Morgunblaðið - 21.04.1991, Blaðsíða 44
Bögglapóstur
um ollt Iflfld
PÓSTUR OG SÍft/II
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÚSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IlAFNARSTRÆTl 85
Grímnur
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
SUNNUDAGUR 21. APRIL 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Unglingur
stunginn
með hnífi
Vestmannaeyjar.
Sextán ára unglingur var stung-
inn með hnífi í Eyjum aðfarar-
nótt laugardags. Pilturinn slas-
aðist alvarlega og þurfti að gang-
ast undir aðgerð vegna áverka
sem hann hlaut.
Maður á fimmtugsaldri stakk
drenginn 3 stungum og særði hann
alvarlega. Að sögn rannsóknarlög-
reglunnar í Eyjum er rannsókn
málsins á frumstigi og því lítið
hægt að segja um tildrög atburðar-
ins._
Árásarmaðurinn var handtekinn
og situr í fangageymslum lögregl-
unnar. Grímur
Oðu í land
frá strand-
aðri trillu
Morgunblaðið/RAX
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksms, var krafinn um skilríki er hann kom á kjörstað í
Melaskóla í gærmorgun ásamt konu sinni Ástríði Thorarensen.
Mörgum
skilríkja-
lausurn var
vísað frá
MORGUM kjósendum var vísað
frá kjörstað í gær þar sem þeir
höfðu ekki meðferðis persónu-
skilríki eins og krafist er í ný-
samþykkri lagabreytingu.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
segir að slælega hafi verið staðið
að kynningu á hinum hertu reglum
kosningalaganna. Hann taldi í sam-
tali við Morgunblaðið líklegt að
margir þeir sem vísað væri frá
vegna þess að þeir hefðu ekki
skilríki meðferðis kæmu ekki aftur
á kjörstað.
„Þegar gerð er breyting í jafn-
miklum grundvallaratriðum er það
skylda allra stjórnvalda sem bera
ábyrgð að kynna þessar breytingar
vandlega fyrir almenningi,“ sagði
Kjartan Gunnarsson. „Hér er það
verkefni alfarið Iátið stjórnmála-
flokkum og framboðsaðilum eftir.
Manni dettur stundum í hug að
stjórnvöld telji að ekki einungis
kosningaathöfnin sjálf heldur kosn-
ingarnar allar eigi að fara fram
með leynd.“
Sjá myndir frá kjörstöðum
bls. 18 og 19.
ÞRIGGJA tonna trilla, Kórall HF
109, strandaði i blíðviðri við inn-
siglinguna í Sandgerðishöfn um
miðnætti á föstudagskvöld.
Tveimur mönnum, sem á voru, var
bjargað í land og trillan losnaði
af strandstað á flóðinu á laugar-
dagsmorgun.
Að sögn Sigtryggs Pálssonar,
formanns björgunarsveitarinnar Sig-
urvonar, virtist sem trillan hefði ekki
hitt á innsiglinguna og steytt á skeri.
Hálffallið var út þegar trillan strand-
aði. Björgunarsveitarmenn færðu
skipveijunum tveimur galla sem þeir
klædust áður en þeir óðu í land. Á
háfjöru var hægt að ganga þurrum
fótum út í bátinn. Hann losnaði þeg-
ar flæddi að og virtist lítið skemmd-
ur, að sögn Sigtryggs.
Bifhjólamað-
ur slasaðist
í árekstri
16 ÁRA piltur slasaðist illa í
árekstri létts bifhjóls og bifreið-
ar á Hafnarstræti á ísafirði um
miðnætti á föstudag.
Pilturinn, sem var ökumaður bif-
hjólsins, hlaut meðal annars opin
beinbrot og var fluttur með sjúkra-
flugi til Akureyrar.
Gjöld gefin eftir í vildarþjónustu Islandsbanka:
Þjónustugjöld fyrir aðra
viðskiptavini hækka ekki
segir Tryggvi Pálsson bankastjóri
ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið
að fella niður ýmis þjónustugjöld
hjá þeim viðskiptavinum sínum,
sem eiga samtals yfir 500.000
króna innstæðu í bankanum og
kjósa að nýta sér svokallaða vild-
arþjónustu. Ljóst er að þarna
getur verið um þúsundir króna
að ræða. Tryggvi Pálsson,
bankastjóri íslandsbanka, segir
að þessi nýja þjónusta muni
standa undir sér með því að hún
afli bankanum væntanlega auk-
inna innlána, og því séu engin
áform um að hækka þjónustu-
gjöld hjá öðrum viðskiptavinum
bankans til að standa undir þess-
um kostnaðarauka.
Að sögn Tryggva felst í vildar-
þjónustunni að felld eru niður ýmis
gjöld, sem verið hafa „pirrmgs-
gjöld“ hjá traustum viðskiptavinum
bankans. Bankinn mun greiða eitt
almennt greiðslukort fyrir þá, sem
nýta sér þjónustuna, láta þeim í té
ókeypis tékkhefti, gefa 200.000
króna yfirdráttarheimild á tékka-
reikningi ókeypis og veita ókeypis
innheimtuþjónustu. Viðskiptavinur-
inn hefur sérstakan þjónustufull-
trúa og verður starfræktur þjón-
ustusími, sem hægt er að hringja
í utan vinnutíma og koma skilaboð-
Islenskur blaðamaður heimsækir flóttamannabúðir í Irak:
míii
r oik ueyr ems
völdum sára og vosbúðar
KRISTJÁN Guðlaugsson blaðamaður, sem búsettur er I Noregi,
heimsótti í síðustu viku flóttamannabúðir á landamærum íraks og
Tyrklands, og jafnframt fór hann í fylgd kúrdískra skæruliða í
flóttamannabúðir sem eru um 100 km inn í Irak. Hann segir ástand-
ið í flóttamannabúðunum hafa verið skelfilegt, og fólk deyji þar
eins og flugur úr hungri, kulda og vosbúð, auk sára af völdum
napalmsprengja.
„Ég heimsótti sjúkrahús í litlum
bæ á landamærunum sem heitir
Hakkari, en þar eru venjulega 75
sjúkrarúm. Þarna voru nálægt 300
sjúklingar, sem voru sundurtættir,
napalmbrenndir og deyjandi,"
sagði Kristján í samtali við Morg-
unblaðið.
„Það voru engin lyf handa fólk-
inu, matur né sáraumbúðir, og að
sögn yfirlæknis sjúkrahússins var
ekkert hægt að gera nema hjálpa
því að deyja annars staðar en í
leðjunni í flóttamannabúðum sem
þarna eru. Þarna voru smábörn
sem voru sundurtætt og með
brennd andlit eftir napalmsprengj-
ur, og gamalmenni sem þjáðust af
vosbúð, kulda og
sulti. Tyrknesk
yfirvöld hafa lítið
gert til að hjálpa
þessu fólki, en í
flóttamannabúð-
um.þarna búa 90
þúsund Kúrdar,
og aðeins eru þar
50 kamrar og Kristján
einn vatnskram.
Nú eru vorrigningar á þessum slóð-
um og ef ekkert verður gert varð-
andi hreinlætisaðstöðu þarna
næstu daga er augljós hætta á
farsóttum."
Kristján ferðaðist fótgangandi
og á ösnum með kúrdískum skæru-
liðum um 100 km inn í írak að
nóttu til, en skotið var á þá meðal
annars af tyrkneskum landamæra-
vörðum. „Við heimsóttum flótta-
mannabúðir sem þarna eru, og
blaðamenn hafa ekki komið í áður.
Ástandið þar var hryllilegt, og mun
verra en i búðunum á landamærun-
um. Algjör hungursneyð ríkti, og
flestir voru sjúkir og deyjandi. Það
eru ólýsanlegar hörmungar, sem
þetta fólk þarf að þola,“ sagði
Kristján.
til þjónustufulltrúans
símsvara.
Tryggvi segir að vildarþjónustan
sé byggð á „vinningsliðinu", sér-
þjónustu, sem Verzlunarbankinn
rak. „Við sjáum að vaxtamunurinn
er að lækka, en við erum líka bún-
ir að ná töluverðri hagræðingu í
bankanum. Þessir viðskiptamenn
leggja mikið til arðsemi bankans
og við viljum skapa tryggð þeirra
við okkur og vinna ný innlánsvið-
skipti. Á móti minni tekjum okkar
vegna eftirgjafar gjalda og kostnað-
ar við að bæta gæði þjónustunnar,
kemur að við vonumst til að vinna
innlánsviðskipti. Við ætlum á engan
hátt að rýra þjónustu annarra við-
skiptamanna eða hækka gjöld
þeirra vegna þessa. Við vonum að
aukin gæði þjónustunnar skili sér
til allra viðskiptavina," sagði
Tryggvi í samtali við Morgunblaðið.
„Slagurinn um innlánsféð er á
fullu og Landsbankinn mun ekki
láta sitt eftir liggja," sagði Sverrir
Hermannsson bankastjóri Lands-
bankans þegar hann var spurður
hvort bankinn myndi svara þessu
útspili Islandsbanka á einhvern
hátt. „En þessa leið myndi ég ekki
velja. Ég vil líka láta litla manninn,
með færri krónur, njóta góðs af því
sem við getum bezt boðið.“
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði í samtali við
blaðið að þegar einn banki auglýsti
eitthvað sérstakt, þá hlytu aðrir að
fara af stað. „Við munum skoða
þetta sem samkeppnisaðilar," sagði
Stefán. „Menn verða aldrei einir í
heiminum lengi. Það er slagur um
innlánsféð."