Morgunblaðið - 05.05.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAI 1991
21
ars Thoroddsen, í blóra við þáver-
andi formann flokksins, Geir Hall-
grímsson, og meirihluta þingflokks-
ins og átta ár frá því að Pálmi
gekk til liðs við meirihluta þing-
flokksins á nýjan leik er ljóst að
meirihluti þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins hefur engu gleymt í þeim
efnum og breytir þar engu þótt
helmingur nýkjörins þingflokks sé
nýr á þingi. Ljóst er af þessu, að
hvenær sem nafn Pálma verður í
framtíðinni orðað við ráðherrastól
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins,
mun ákveðinn kjarni þingmanna
flokksins verða því andvígur að
hann hljóti slíkan stól.
Raunar mun Pálmi sjálfur telja
að höfuðandstæðingur þess að hann
fengi ráðherrastól hafi verið Þor-
steinn Pálsson, með fulltingi Ólafs
G. Einarssonar.
Þá mun Eyjólfur Konráð Jónsson
síður en svo sáttur við sinn hlut.
Eyjólfur Konráð hafði fastlega
vænst þess að formaðurinn gerði
tillögu um sig sem ráðherra, en svo
varð ekki. Þá hefur því verið haldið
fram að það hafi nánast verið
ákveðið að Björn Bjarnason verði
formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis, enda telja sumir nýrri og
yngri þingmenn flokksins að nauð-
synlegt sé að sú endurnýjun, sem
átt hefur sér stað í þingflokknum,
skili sér í áhrifastöður innan þings-
ins, þar sem hennar hafi ekki verið
látið gæta í ráðherravali flokksins
eða vali í ábyrgðarstöður í þing-
flokki og forsetaembætti Alþingis,
en það embætti mun Salóme Þor-
kelsdóttir hljóta. Benda þessir þing-
menn á að þekking Björns og
reynsla á sviði utanríkismála sé slik,
að fáránlegt væri að hafna mannin-
um sem formanni utanríkismála-
nefndar.
Eyjólfur Konráð hefur um
margra ára skeið verið helsti sér-
fræðingur Sjálfstæðisflokksins í
utanríkismálum á Alþingi. Eldri
þingmenn flokksins benda á að það
geti ekki talist eðlilegt að ganga
milli bols og höfuðs á manni sem
Eyjólfi Konráð og hafna honum sem
formanni utanríkismálanefndar.
Riija þeir reyndar upp þátt EjKons
í einu stærsta baráttumáli Islend-
inga nokkurn tíma — hafréttarmál-
um og spyrja hvaða vit sé í að ganga
framhjá slíkum brautryðjanda. Eyj-
ólfur Konráð með margra ára
reynslu sem formaður nefndarinnar
mun ekki gefa formennskuna í
nefndinni eftir baráttulaust, ef
menn þekkja hann rétt.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
telja sig hafa vissu fyrir því að Ingi
Björn Albertsson sé ekki alls kostar
sáttur við stöðu mála innan flokks-
ins nú, en enginn þeirra sem rætt
var við, höfðu rökræna skýringu á
óánægju þingmannsins. Öánægju
hans segjast flokksbræður hans
merkja á þann hátt að hann virðist
fyrirfram staðráðinn í því að vera
flestum hugmyndum formanns
flokksins andvígur.
Þá er ónefndur enn einn óglaður
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sjálfur aldursforsetinn, Matthías
Bjarnason. Ógleði Matthíasar bein-
ist þó síður en svo að því stjórnar-
samstarfi sem nú hefur hafist milli
Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks,
heldur að vinnubrögðum þeim sem
viðhöfð voru við undirbúning ráð-
herravals Sjálfstæðisflokksins.
Matthías sóttist ekki eftir ráðherra-
embætti sjálfur, en hann telur, sam-
kvæmt mínum upplýsingum, að
talsvert hafi skort á að sér væri
sýnd sú virðing sem hann eigi kröfu
á. Honum mun alls ekki hafa líkað
það þegar Davíð kannaði hjá Matt-
híasi hvort hann væri reiðubúinn
til þess að gefa eftir formennsku í
Byggðastofnun, sem Davíð mun þá
hafa haft í huga að veita Pálma
Jónssyni. Aðrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins segja þetta nú meiri
viðkvæmnina hjá aldursforsetan-
um. Formaðurinn hafi ekki gert
annað en kanna hug hans, og að
þeirri könnun lokinni ákveðið að
hafast ekki að í málinu. „Hver er
þá glæpurinn?“ var spurt.
Því er ekki loku fyrir það skotið
áð Matthías muni sækjast eftir for-
mennsku í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins, en hugur formannsins
stendur til þess að gera Geir H.
Haarde að þingflokksformanni.
Matthías vill ekkert-um það segja
hvort hann hyggst sækjast eftir því
embætti eða ekki.
Afstaða Geirs til þessa embættis
er hin sama og var til ráðherraemb-
ættis. Hann sækist ekki sérstaklega
eftir þessu vandasama starfi, en er
reiðubúinn til þess að taka það að
sér verði hann til þess valinn.
Þótt hér hafi einkum verið ijallað
um innanhússátök Sjálfstæðis-
flokksins í tengslum við stjórnar-
myndunina, var það ekki svo að Jón
Baldvin Hannibalsson slyppi í gegn-
um hana áfallalaust. Jón Baldvin
hafði notað tímann á meðan enginn
hafði umboð til stjórnarmyndunar,
strax í kjölfar kosninganna til þess
að kanna viðhorf aðila vinnumark-
aðarins til undirbúnings kjarasamn-
inga og framhalds þjóðarsáttar.
I þeim viðræðum mun hafa kom-
ið á daginn að aðilar vinnumarkað-
arins teldu að það myndi styrkja
sambandið við stjórnvöld, ef Karl
Steinar Guðnason forystumaður úr
verkalýðsarmi Alþýðuflokks yrði
ráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks. Jón
Baldvin mun vel hafa getað hugsað
sér að gera Karl Steinar að félags-
málaráðherra og hann og fleiri töldu
að þar með væri ríkisstjórnin komin
með sérstakan tengilið við aðila
vinnumarkaðarins. I þessu sam-
bandi stóð til að Þröstur Ólafsson,
sem jafnframt hefur sterk tengsl
inn í verkalýðshreyfinguna, yrði
aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herra. Þegar fyrir lá að heilbrigðis-
og tryggingamál kæmu jafnframt
í hlut Alþýðuflokks ræddi Jón Bald-
vin við Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra á mánudagskvöld
og reifaði við hana þá möguleika
að hún tæki að sér heilbrigðis- og
tryggingamál, en Karl Steinar fengi
félagsmálin. Fyrr um kvöldið hafði
Jón Baldvin látið að því liggja við
Karl Steinar að þessi möguleiki
væri fyrir hendi, ef Jóhanna væri
honum samþykk. Formaður flokks-
ins taldi að brýnni verkefni biðu
Jóhönnu í heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytinu en í félagsmálaráðu-
neytinu, eins og endurskoðun á al-
mannatryggingunum. Jóhanna
þvertók fyrir þennan möguleika og
■ Kratar segja að
formaður þeirra nagi
sig nú í handarbökin
fyrir að hafa ekki
haldið kröfunni um
sjávarútveginn til
streilu.
■ Raunar mun Pálmi
sjálfur telja að höfuð-
andstæðingur hess að
hann fengi ráðherra-
stúl hafi verið Þor-
steinn Pálsson, með
fulltingi filafs G. Ein-
arssonar.
■Davíð hafði löngun
til hess að fá Björn
Bjarnason sem fjár-
málaráðherra í ríkis-
stjúrn sinni, en har
rak hann sig enn á
fyrirstöðu.
kvaðst líta á þessa hugmynd sem
samsæri gegn sér. Hún greindi
formanninum frá því að hún myndi
ekki fallast á að taka að sér heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið.
Samkvæmt mínum upplýsingum,
mun Jóhanna hafa reiðst því mjög
að formaður Alþýðuflokksins ræddi
þennan möguleika fyrst við hana á
mánudagskvöld, rétt áður en þing-
flokksfundur hófst. Hún mun einnig
hafa talið að óeðlilegt væri að utan-
aðkomandi aðilar, áhrifamenn inn-
an ASÍ og VSÍ, reyndu að hlutast
til um ráðherraval Alþýðuflokksins.
Við svo búið gerði Jón Baldvin
tillögu um þann ráðherralista sem
síðan var samþykktur í þingflokki
Alþýðuflokksins, þannig að hann
hvarf frá þeirri hugmynd að gera
tillögu um Karl Steinar sem félags-
málaráðherra, sem hefði verið borin
fram gegn vilja Jóhönnu.
Auðvitað fylgja þessu ákveðin
særindi, og Karl Steinar mun ósátt-
ur við þessa niðurstöðu. Forysta
Alþýðuflokksins hefur ekki af þessu
stórar áhyggjur og telur að Karl
Steinar muni sætta sig við orðinn
hlut, þegar hann hefur verið kjörinn
formaður fjárveitinganefndar. Þeir
þrír þingmenn sem voru andvígir
því að Alþýðuflokkurinn gengi til
stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn: Sigbjörn Gunnarsson,
Gunnlaugur Stefánsson og Össur
Skarphéðinsson eru flokksfor-
ystunni ekki heldur neitt sérstakt
áhyggjuefni, en vissulega munu
þeir eiga eftir að malda í móinn
þegar svo ber undir.
Þrátt fyrir ákveðin innanhúss-
vandamál í báðum þirtgflokkum er
líklegt að samstarf með ágætum
geti tekist með oddvitum beggja
flokka, þeim Davíð og Jóni Baldvin.
Sennilegt er að tíminn lækni ein-
hver þau sár sem menn hafa fengið
í þessari atrennu. Þau hafa kannski
orðið fleiri og sviðið sárar en ella,
vegna þess hve skammur tími var
notaður til stjórnarmyndunarinnar.
Allt varð að gerast með miklum
hraða og ákvarðanataka þurfti að
vera hröð. í heild er. þó fátt sem
þarf að koma á óvart, þegar stjórn-
armyndunin er skoðuð ofan í kjöl-
inn: Davíð fór hefðbundnar leiðir
við ráðherraval sitt og í samningum
um skiptingu ráðuneyta. Sú ákvörð-
un hans að samþykkja helminga-
skipti með Alþýðuflokki á ráðherra-
stólum er að vísu umdeild, en að-
eins tíminn sker úr um það hvort
hún var rétt. Sömuleiðis fór Jón
Baldvin hefðbundnar leiðir og sætti
sig við orðinn hlut, að fá hvorki
sjávarútvegs- né landbúnaðarráðu-
neyti. Hann gerði misheppnaða til-
raun til þess að btjótá hefðina og
reyndi að gera Karl Steinar að ráð-
herra, í stað Eiðs Guðnasonar, en
sætti sig við að svo gat ekki orðið.
Þannig að burtséð frá þeim skamma
tíma sem stjórnarmyndunin tók,
virðist flest harla venjulegt við
hana.
HASKQLABD
SJÁ BÍÓSIÐU
» SANDVIK
garðverkfæri eru gæðavara
» SANDVÍK
fyrir fagmenn og fólk sem
gerir kröfur
i SANDVÍK
fæst í betri verslunum
Hrím heildverslun,
sími 614233.
A EG HVERGI HEIMA?
Pýdandi: Árni Bergmann
Leikstjóri: María kiistjánsdóuir
Leikmynd: Steinþól' SÍgUI'ðsson
Búningar: Sigl íður Guðjónsdóltil'
Lýsing: Lárus Björnsson
Umsjón með tónlist: Jóhann (i. Jóhannsson
Leikarar: Bessi Bjarnasoii, Kggert Nrleilsson,
(iuðrón Ásmundsdóttir, (iuðrón S. (iísladótlir,
Sigríður Hagalín og Þóra Friðriksdóttir.
eftir Alexander Qalín
LEIKFÉLAG
REYKjAVtKUR M
bdrguleikhBsib
Frumsýning fim. 9. maí kl. 20:00
2. sýning: sun. 12. maí kl. 20:00 (Grá kort gilda)
3. sýning: mið. 15. maí kl. 20:00 (Rauð kort gilda)
Miðasalan er opin dagiega kl. 14-20, nema mánudaga frá kl. 15-17,
auk þess er tekið á móti pöntunum í síma 680680
milli kl. 10-12 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta