Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUÐAGUR 5. MAÍ 1991
Frá Fósturskóla íslands
Umsóknarfrestur um dreift og sveigjanlegt
fóstrunám rennur út 21. maí nk.
Skólastjóri.
UÓSTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
heldur almennan félagsfund um „ÚTFJÓLU-
BLÁA GEISLUN OG ÁHRIF HENNAR“
þriðjudag 7. maíkl. 20.15 íÁrsal Hótel Sögu.
Ræðumenn: Ellen Mooney læknir,
Valgerður Skúladóttir, verkfræðingur.
Kaffiveitingar.
Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórn LFI.
TILKYNNINGAR
Mosfellsbær -
skipulag
Mosfellsdalur - Aðalskipulag
1990-2010
1. endurskoðun aðalskipulags
Mosfellsbæjar 1983-2003
(Áður Mosfellshreppur)
Skipulagsuppdráttur er sýnir endurskoðun
aðalskipulags í Mosfellsdal verður til sýnis á
skrifstofu Mosfellsbæjar, Hlégarði, kl. 8.00-
15.30, alla virka dagafrá 6. maí- 14. júní 1991.
Athugasemdum og ábendingum, ef einhverj-
ar eru, skal skila skriflega til Bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar, innan ofangreinds kynning-
artíma.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Varmárskóli Mosfellsbæ
Foreldrar
munið stofnfund foreldrafélags mánudag 6.
maí kl. 20.00.
Skólastjóri.
Sumartími
Frá og með 6. maí til 1. september 1991
verður opnunartími skrifstofu, söludeildar og
lagers okkar frá kl. 8.00-16.00 frá mánudegi
til föstudags.
imœ a Idœ
Menntamálaráðuneytið
Norrænir
starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finn-
lands og Noregs veita á námsárinu 1991-92
nokkra styrki handa íslendingum til náms við
fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirn-
ir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir
iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til und-
irbúnings kennslu í iðnskólum eða fram-
haldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss
konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að
afla á íslandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 16.200 d.kr.,
í Finnlandi 27.000 mörk og í Noregi 22.000
n.kr. miðað við styrk til heils skólaárs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
1. júní nk. og fylgi afrit prófskírteina ásamt
meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
2. maí 1991.
TIL SÖLU
Jörð - jörð
Einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki eða
einstaklinga
Landmikil jörð á Vesturlandi er til sölu. Mik-
il náttúrufegurð. Á jörðinni er m.a. nýlegt
íbúðarhús, 150fm, flugvöllur, stórt, nýttflug-
skýli. Góð veiðiá og vötn. Gott rjúpna- og
gæsaland. Jörðin er að hluta til kjarri vaxin.
Ótrúlega miklir möguleikar fyrir náttúruunn-
endur. Upplýsingar og myndir á skrifstofunni.
s.62-1200 /UmmlÍTrt . H|iiip|Eipr
Kári Fanndal Guðbrandsson, Axel Kristjánsson hrl. GARÐUR Skioholti 5
Til sölu
Vegna endurnýjunar og hagræðingar eru
eftirtalin tæki ásamt fleiru til sölu:
Jarðýtur: Komatsu D45 A ’82.
Cat D5 ’71.
Komatsu D65 A ’81.
Gröfur: O & K RH14 ’73.
Hitachi '81.
Liebherr 922 hjólagr. '84.
Komatsu PW 150 ’85.
Annað: Massey Ferguson traktor ’88
útbúinn með sóp og ámoksturstæki.
Hentugur fyrir bæjarfélög og til vega-
gerðar.
Framangreind tæki verða til sýnis eftir nán-
ara samkomulagi.
Upplysingar gefa Magnús Ingjaldsson og
Sigurður Ö. Kadsson í síma 53999.
O HAGVIRKI
n KLETTUR
Skútahrauni 2, 220 Hafnarfirði.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 = 173568A =
I.O.O.F. 3 = 173568 = 0
Félag
austfirskra kvenna
Fundur verður haldinn mánu-
daginn 6. maí á Hallveigarstöð-
um kl. 20.00. Rætt um sumar-
ferðalag á Vestfirði.
Skipholti 50b
Almenn samkoma í dag kl.
11.00. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Allir innilega velkomnir.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Kl. 11.00 Fræðsla og barna-
kirkja.
Kl. 20.30 Kvöldsamkoma. Préd-
ikun orðsins. Lofgjörð. Fyrir-
bæn. „Syngið Drottni nýjan
söng“. Verið velkomin.
Hjálpræðis-
herinst
Kirkjvstræti 2
Almenn samkoma kl. 11.00.
Gestir frá Akureyri syngja og
tala. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samhjálparsamkoma í dag kl.
16.30. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Sunnudagaskóli kl. 11.00.
ÚTIVIST
GRÓFINNII • REYICJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Sunnudagur 5. mai
Póstgangan, 9. áfangi
Kl. 10.30: Méltunnuklif -
Deildarháls.
Kl. 13.00: Krísuvíkur - Mælifell
- Deildarháls, einnig boðið upp
á auðveldari göngu frá Krísuvík
að Deildarhálsi. Hægt er að
koma í rútuna á leiðinni.
Hjólað um Heiðmörk
Á sunnudaginn hefjast hjólreiða-
ferðir Útivistar á ný með hjól-
reiðaferð um Heiðmörk. Lagt
verður af stað frá Árbæjarsafni
kl. 13.00.
Kvöldganga
Miðvikud. 8. maí kl. 20.00:
Vogavík - Vogstapi, eitt af
skemmtilegri útivistarsvæðum
hér á suðvesturhominu, sem
allt of fáir þekkja. Gengið upp
Reyðarskarð og niður Brekku-
skarð, áfram upp Rauöaskarð
(Heljarskarð) og upp á Grimshól
en þaðan er mjög gott útsýni til
allra átta. Haldið til baka niður
á ströndina um Urðarskarð,
Einnig boðið upp á Ijúfa strand-
göngu. Að göngu lokinni verður
kveikt fjörubál, hlýtt á drauga-
sögur frá þessu magnaða svæði
og raddböndin þanin við harm-
óníkuleik.
Tvær góðar ferðir 9., 10.-12. maí:
Eyjafjallajökull
Gist í Básum. Þaðan verður
gengin Hátindaleið yfir jökulinn
og komið niður við Seljavelli.
Þórsmörk - Giljagöngur
M.a. farið í hin stórfenglegu gil,
Bæjargil og Nauthúsagil, enn-
fremur Merkurkerið, Selgil,
Grýtugil og Smjörgilin. Þá verður
einnig boðið upp á göngur upp
á Morinsheiði og yfir í Hamra-
skóla ef farið er 9. maí. Jöklaför-
unum fagnað i Seljavallalaug.
i Útivistarferð eru allir velkomnir.
Sjáumst!
Útivist.
fomhjólp
Samhjálparsamkoma
verður í Fíladelfíukirkjunni í dag
kl. 16.30. Fjölbreytt dagskrá.
Mikill söngur og margir vitnis-
burðir. Samhjálparkórinn tekur
lagið. Söngtríóið „Beiskar jurtir"
syngur. Stjórnandi: Óli Ágústs-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
Samkoma fellur niður í Þríbúðum.
Samhjálp.
Bkfuk
V KFUM
KFUMog KFUK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 i kristniboössalnum, Háa-
leitisbrau* 58. Átt þú eilíft líf?
Jóh. 17,1-19. Upphafsorð:
Vigfús Hallgrímsson. Ræðumað-
ur: Sr. Ólafur Jóhannsson.
Allir velkomnir,
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFELAG
@ ISLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Sunnudagsferðir 5. maí
Raðgangan1991:
Gönguferð um gosbeltið,
3. ferð
A. Kl. 10.30, Bláalónið-
Fagradalsfjall-Slaga
Gengið frá Bláa lóninu inn á
vestasta fjall í Reykjanesfjall-
garði. Ekki mjög erfið fjallganga.
Ef þú vilt sleppa fjallinu, mætirðu
í ferðina kl. 13.00.
B. Kl. 13.00, Bláa lónið-
Sundhnúkur-Vatnsheiði-
Slaga
Gengið norðan Svartsengisfells
um dyngjuna Vatnsheiði að
hamrinum Slögu ofan við bæinn
ísólfsskála. Áning við Drykkjar-
stein í báðum ferðum. Verð kr.
1.100.-, frítt f. börn m. fullorðn-
um. Brottför frá Umferðarmíð-
stöðlnni, austanmegin. Hægt að
taka rútuna á leiðinni m.a. á
Kópavogshálsi, Ásgarði
Garðabæ og viö kirkjugaröinn í
Hafnarfirði. Mætið vel í rað-
göngu Ferðafélagsins 1991;
gengið í 12 áföngum um gos-
beltið Suðvestanlands, frá
Reykjanestá að Skjaldbreið. Fjöl-
breytt leið sem allir ættu að
kynnast. Byrjið nú og verið meö
í sem flestum áföngunum.
Spurning ferðagetraunar 3. ferð-
ar: Hvert er annað nafn á Svarts-
engisfelli? Viðurkenning verður
veitt þeim sem mæta I flestar
ferðanna.
Frönsku alparnir-Mt. Blanc.
Kynningarfundur fyrir áhugafólk
um ferð þangað 11.-20. júlí í
sumar, er á mánudagskvöldið
5. maí kl. 20.30 í húsnæði isalp,
Grensásvegi 5. Páll Sveinsson,
fararstjóri, segir frá ferðinni.
Munið hvítasunnuferðir Ferða-
félagsins: 1. Þórsmörk, 2.
Fimmvörðuháls-Mýrdalsjökull.
3. Snæfellsnes-Snæfellsjökull.
4. Skaftafell-Öræfasveit. 5. Ör-
æfajökull-Skaftafell.
Nánar auglýst síðar.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
<% ÍSIANDS
ÖLDUGÚTU 3 & 11798 1953'
Hvítasunnuferðir
Ferðafélagsins
17.-20. maí
1. Snæfellsnes - Snæfellsjök-
ull. Jökullinn hefur sitt aðdráttar-
afl en það er margt annað í boði
m.a. strandgöngur, hellaskoðun
í Purkhólahrauni einu hellauðug-
asta hrauni landsins nýtt), geng-
in verður ný leið af jöklinum.
Silungsveisla. Gist að Görðum í
Staöarsveit, ein besta svefn-
pokagisting á Snæfellsnesi.
Stutt í sundlaug. Matsala á
staðnum.
2. Þórsmörk. Gist i Skagfjörðs-
skála, Langadal, en þar er að-
staðan ein sú besta í óbyggðum.
Gönguleið við allra hæfi. Það
hefur vorað óvenju snemma í
Mörkinni.
3. Fimmvörðuháls (Hvanna-
dalshnjúkur) - Skaftafell. Því
ekki að reyna að sigra hæsta
fjall landsins. Leiðbeint í jökla-
tækni áður en lagt er upp.
Gönguferðir um þjóðgarðinn.
6. Skaftafell - Öræfasvelt -
Jökulsárlón. Göngu- og ökuferð-
ir. M.a. farið um nýju göngu-
brúna á Morsá og gengið í Bæj-
arstaðaskóg og jafnvel í hina
litríku Kjós. Svefnpokagisting
eða tjöld að Hofi. I Hvítasunnu-
ferðum ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. Muniö að fé-
lagar fá afslátt f helgar- og lengri
ferðirnar; skráið ykkur í Ferðafé-
lagið. Góð fararstjórn í öllum
ferðum. Pantið tímanlega á
skrifst. Öldugötu 3, 101
Reykjavík. Símar: 19533 og
11798. Fax: 11765.
Uppstigningardagur 9. maí:
1. Kl. 10.30 Esja að norðan.
2. Kl. 13.00 Esja - Þverfells-
horn.
Árleg fuglaskoðunarferð Ferða-
félagsins um Suðurnes verður
laugardaginn 11. maí kl. 10.00.
Fróðleg ferð. Þórsmerkuferð um
næstu helgi. Verið með!
Ferðafélag fslands.
Audbrehfta 2. Kópimiíiio'
Sunnudagur: Samkoma I dag
kl. 16.30.
Þriðjudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.