Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 29
29
llf
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA
fli
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991
ATVINNUAíiGíYS/NGA/?
■ ■r ■ ■ ■■ / V \ / vJ/L / // N/vJ7/ \/ v
Hjúkrunarfræðingur
Læknahúsið óskar eftir hjúkrunarfræðingi til
sumarafleysinga í 6 vikur. Reynsla á skurð-
stofu æskileg.
Upplýsingar gefur Dóra Hansen, hjúkrunar-
forstjóri, í síma 685788 eftir kl. 13.00 alla
virka daga.
Læknahúsið,
Síðumúla 29.
Háskólinn á Akureyri
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður
við Háskólann á Akureyri:
Staða dósents/prófessors íhag-
fræði við sjávarútvegsdeild.
Sérgrein er fiskihagfræði.
Staða dósents í hjúkrunarf ræði við
heilbrigðisdeild
Staða dósents íiðnrekstrarfræði við
rekstrardeild
Meðal kennslugreina er framleiðsla og fram-
leiðslu- og birgðastýring.
Staða lektors í rekstrarhagfræði við
rekstrardeild
Meðal kennslugreina er rekstrarhagfræði,
bókfærsla og fjármál.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíð-
ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og
störf.
Upplýsingar um starfið gefa forstöðumenn
viðkomandi deilda í síma 96-11770.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á
Akureyri fyrir 1. júní nk.
Háskólinn á Akureyri.
BORGARSPÍTALINN
Geðdeildir
Okkur vantar fólk til starfa á nokkrar af deild-
um okkar nú þegar og til sumarafleysinga.
Um er að ræða eftirfarandi deildir:
A-2, Borgarspítala, sem er móttökudeild
með 31 rúmi og aðstöðu fyrir dagsjúklinga.
Á deildinni fer fram fjölbreytt meðferðarstarf
og starfsandi er mjög góður. Unnið er á 8
tíma vöktum.
Deild 33, Arnarholti, sem er hjúkrunardeild
fyrir eldri einstaklinga. Lögð er áhersla á
heimilislegan anda.
Deild 34, Arnarholti, sem er einnig hjúk-
runardeild og með svipaðar áherslur og deild
33.
Deild 35, Arnarholti, sem er endurhæfingar-
deild fyrir yngri sjúklinga, þar sem áhersla
er á félagslega virkni og vinnuþjálfun.
Arnarholt er um 30 km fyrir utan Reykjavík
og þangað ganga rútur frá Hlemmi í sam-
bandi við vaktir. í Arnarholti er unnið á 12
tíma vöktum, 2 daga í senn og 2ja daga frí
á milli.
Á þessar deildir vantar fyrst og fremst hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða en fáist þeir
ekki til starfa eru ráðnir ófaglærðir starfs-
menn af báðum kynjum í nokkrar stöður.
Auk hins ágæta starfsanda bjóðum við:
★ Skipulagða aðlögun.
★ Starfsmannaviðtöl.
★ Fræðslustarf yfir vetrarmánuðina.
Þá minnum við á starfsmannaþjálfun á Borg-
arspítalanum, fagbókasafn og aðgang að
Grensássundlaug, svo og sjúkraþjálfunarað-
stöðu í Arnarholti.
Verið velkomin að leita frekari upplýsinga
hjá Guðnýju Önnu Arnþórsdóttur, hjúkrunar-
framkvæmdastjóra, í síma 696355.
Utlitshönnun
Morgunblaðið, framleiðsludeild,
Aðalstræti 6, Reykjavik,
óskar að ráða útlitshönnuð til starfa.
Starfið er laust sem fyrst.
Æskilegt, en ekki skilyrði, að viðkomandi
sé vanur slíkri vinnu. Vaktavinna.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Guðna
Jónssonar, Tjarnargötu 14.
Umsóknarfrestur er til 11. maí nk.
Guðnt Tónsson
RAÐCJÖF & RAÐNINCARLJÓNLISTA
TIARNARGöTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Tónlistarskólinn á Akureyri
Tónlistarkennarar
Sellókennara og trompetkennara vantar
næsta vetur.
Einnig eru lausartil umsóknar stöður á klarin-
ett, básúnu, Suzuki-píanókennara, Suzuki-
fiðlukennara og yfirkennara.
Umsóknarfrestur er til 20. maí.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
(96) 21788.
Ríkistollstjóri
auglýsir
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður
hjá embætti ríkistollstjóra:
A) Staða fulltrúa í almennri deild. Starfið
felur í sér m.a. ritun handbóka fyrir toll-
starfsmenn og viðskiptamenn tollstjóra-
embættana.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá
Tollskóla ríkisins eða hafa aflað sér
víðtækrar þekkingar á tollamálum.
B) Staða tollfulltrúa við rannsóknardeild.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá
Tollskóla ríkisins og hafa reynslu í toll-
gæslustörfum.
Laun samkvaemt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum sem
fást á skrifstofu embættisins aðTryggvagötu
19, Reykjavík fyrir 1. júní nk.
Reykjavík, 30. apríl 1991.
Ríkistollstjóri.
Þjónusta við tölvur
Vegna aukinna umsvifa leitum við nú að raf-
eindavirkja til starfa í þjónustudeild.
Við bjóðum:
- Góð vinnuskilyrði.
- Góðan starfsanda.
- Fjölbreytt starf.
- Góð laun fyrir hæfan starfsmann.
Við viljum ráða starfsmann sem:
- Er jákvæður.
- Hefur áhuga á starfi sínu.
- Sýnir frumkvæði.
- Hefur þekkingu á tölvum, stórum og
smáum.
Upplýsingar veitir Jón Kristinn Jensson.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslun
Örtölvutækni í Skeifunni 17.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 13. maí
1991.
Örtölvutækni selur, setur upp og þjónustar tölvubúnað frá mörgum
viðurkenndum framleiðendum svo sem Hewlett Packard, Tulip,
SynOptics o.fl.
H ÖRTÖLVUTÆKNI M
Tölvukaup hf, - Skeifunni 17 - sími 687220.
iLr
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Leikskólinn
Brekkukot
20 lífleg og skemmtileg börn á aldrinum 2-5
ára óska eftir áhugasamri fóstru eða starfs-
manni með uppeldismenntun í fullt starf, sem
fyrst. Vinnutími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Brynjúlfs-
dóttir leikskólastjóri í síma 604359.
Fóstrur
Leikskólana Litlakot og Öldukot vantar fóstr-
ur til starfa nú þegar eða eftir nánari sam-
komulagi.
Upplýsingar gefa leikskólastjórarnir Arna
Heiðmar í síma 604364 og Margrét Steinunn
í síma 604365 milli kl. 10.00-14.00.
Afgreiðslustjóri
Fyrirtækið er iðnfyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu.
BORGARSPÍTALINN
Starfssvið: Skipulagning pökkunar, af-
greiðslu og útkeyrslu til viðskiptavina. Af-
greiðslustjóri annast einnig sölu fylgihluta
og aðstoðar við frágang greiðslna og inn-
heimtu.
Við leitum að manni með reynslu af sölu-
mennsku. Lögð er áhersla á góða stjórnun-
ar- og samstarfseiginleika.
Nánari upplýsingarveitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „222“ fyrir 14. maí nk.
Hagva ngurhf
i Grensásvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Slysa- og sjúkravakt - gæsludeild
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar-
stjóra á gæsludeild. Dagvinna. Staðan veitist
frá 1. september 1991. Umsóknarfrestur er
til 15. júní 1991.
Endurkomudeild
Laus er til umsóknar 70% staða hjúkrunar-
fræðings. Dagvinna virka daga.
Nánari upplýsingar gefur Erna Einarsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, ísíma 696356.
Endurhæfinga- og taugadeild
Grensásdeild
Staða deildarstjóra á deild E-61 er laus til
umsóknar.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
reynslu/þekkingu í stjórnun.
Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á endurhæfinga- og taugadeild.
Nánari upplýsingar gefur Gunnhildur Valdi-
marsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 696364.