Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 38
38
KARLAR
Úr kolaport-
inutilKenýa
Við konur erum fljótar að
læra af körlunum og höfum
tileinkað okkur margt nýtiiegt
úr karlamenningunni. Eitt af
þvi er að vera í alþjóðlegum fé-
lögum og fara á
ráðstefnur út í
heimi — eins og
þeir. Við erum
hins vegar ekki
komnar lengra
en svo að þurfa
að borga ferðirn-
eftír Helgu ar sjálfar!
Thorberg Jæja, en
hvernig eiga konur að afla fjár
til að komast alla ieið til Kenýa?
Jú, það vefst ekki lengi fyrir
þeim. Þær safna saman gömlu
dóti og fötum úr skápunum hjá
sér. leigja bás í Kolaportinu og
þá er ferðin hafin!
Fyrir skömmu mátti sjá þar
innan um fastagestina m.a.
virðulega alþingismenn blanda
geði við kjósendur, dreifa bækl-
ingum og límmiðum, konu að
selja kókosbollur og lakkrís og
svo okkur svona venjulegar
konur að selja sitt af hverju til
að komast á kvennafund í
Kenýa. Við vorum mættar einar
fimm eldsnemma með kassana
okkar. Ein hafði auk þess bakað
rúgbrauð og smákökur um nótt-
ina og önnur var með kaffi á
brúsa. Nokkrar félagskonur
höfðu brugðist vel við, notuðu
tækifærið til að hreinsa til hjá
sér og þannig höfðu'bæst við
fleiri kassar með varningi í sölu-
básinn.
Þetta lagðist vel í okkur og
við vorum i okkar besta skapi
við að hengja upp á slárnar
gamla jogginggalla, pelsjakka,
tískudress og of þrönga kjóla. Á
borðin raðaðist hinn fjölbreytt-
asti varningur, allt frá gömlu
trúlofunarveski sem í leyndust
Lídó-aðgöngumiðar upp í rosa
afmælisstyttur og límdan lampa
með ljósum skermi og kögri. Það
þurfti að verðleggja og sú með
löggilta fjármálavitið lagði
línuna: „Nógu ódýrt“ og var að
sjálfsögðu farið eftir því.
Fyrsta salan fór fram áður en
formlegur opnunartími hófst og
hún var meira en lítið stolt sú
sem átt hafði þær styttur og
stjaka, sem bókstaflega ruku út.
Hlutirnir hennaE fóru reyndar
ekki langt því þá mátti kaupa á
nærliggjandi bás fyrir snöggtum
hærri upphæð en þeir voru
keyptir hjá okkur! Þarna sá einn
karlinn (auðvitað!) sér leik á
borði og gerði góð kaup hjá okk-
ur. Hann kom meira að segja
aftur um hádegið til að ná sér í
fleiri hluti!
Ég hefði svarið fyrir að ég
þekkti þessar konur en þær
komu svo sannarlega á óvart.
Þessi sem kom með kaffibrús-
ann hafði fleira meðferðis. Þegar
upp kom spurning um sídd á
einum buxunum reif mín upp
málband og títiprjóna úr tuð-
runni og sló máli á viðskiptavin-
inn! Áður en dagurinn var á
enda var hún búin að selja sjálfa
tuðruna á einar 300 krónur!
Önnur hafði ætlað að selja
gæðalegan einnkennisjakka frá
fyrrverandi vinnustað en tókst
ekki. Hún seldi hann þá bara i
nýju vinnunni daginn eftir á
einar 500 krónur. Eg ætla hins
vegar að svipast um í vestur-
bænum nú á vordögum og vita
hvort ég sjái eínhvern háan og
grannan i 15 ára gamla bláa
jogginggallanum af bóndanum
mínum. sem hann var svo
rausnarlegur að missa ofan í
söfnunarkassann!
Við kellurnar erum reyndar
ekki komnar lengra en á „túris-
taklass" til Færeyja eftir daginn
en erum þeim mun ríkari af
skemmtilegum endurminning-
um og eigum fleiri slika daga í
vændum.
‘•ítMflM liilíí f IIIIMtltttíH s
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991
---------------r:—r—-:—t , : i.--'JV,-.—S-rr-I-;----;-----
Janne Justesen í miðið ssamt stúlkunum sem urðu í öðru og þriðja sæti.
FYRIRSÆTA
Hálfíslensk dönsk
módeldrottning
Pabbi og mamma fagna dóttur sinni daginn eftir keppnina. Sagt
er að Jörgen hafi ekki komið dúr á auga alla nóttina fyrir keppn-
ina...
Danir kusu fyrir skömmu full-
trúa sinn á Eileen Ford fyr-
irsætukeppnina sem fram fer í
New York innan skamms. 204
fegurðardísir kepptu og aðeins ein
gat hreppt hnossið. Sú sem það
gerði heitir Janne Justesen. Faðir
hennar heitir Jörgen Justesen, en
móðirin Jóna Kristín Gunnars-
dóttir Justesen. Það er ekki víst
að danska dómnefndin hafi vitað
það er hún kaus Janne, en hún
er hálfíslensk. Jóna móðir hennar
er íslendingur í húð og hár. Hins
vegar hefur Janne alið allan sinn
aldur í Danmörku og talar ekki
íslensku þótt hún hafi komið hing-
að til lands nokkrum sinnum.
Nú tekur við strangt prógramm
hjá Janne, því haft er eftir henni
að hún ætli sér að ná 7 kí-
lógrömmum af sér áður en hún
keppir á Eileen Ford keppninni á
næstunni. Blátt bann hefur verið
iagt við súkkulaðiáti og flestu
sykurmeti. Nú er það bara brauð,
ávextir og fiskur, skolað niður
með vatni. Á meðfylgjandi mynd-
um má sjá hina hálfíslensku mód-
eldrottningu Dana. Hún er nú 17
ára gömul og er þegar farin að
sitja fyrir fyrir danska aðila. Haft
er eftir henni, að hún sé spennt
fyrir því að leggja fyrirsætu- og
tískusýningarstarfið fyrir sig ein-
hvern tíma að minnsta kosti...
VEITINGAR
Ning ríður
á nýtt vað
Nings“ heitir nýtt veitingahús,
raunar heitir það veitinga- og
vöruhús Nings, á Suðurlandsbraut-
inni, en þetta fyrirtæki hóf göngu
sína um miðjan april. Nmgs heitir
eftir Ning de Jesus, sem er Filipsey-
ingur sem hefur dvalið hér á landi
síðustu 17 árin. Hann er matreiðslu-
maður og rak meðal annars um skeið
veitingastaðinn Mandarínin í
Tryggvagötu. Ning er fyrir löngu
orðinn íslensku ríkisborgari og
þekktur matreiðslumaður. Hann er
yfírmatreiðslumaður og annar aðal-
eigenda„Nings“ og hann var spurður
hvort hér væri einhver ný bóla á
ferðinni.
Hann sagði, að staðir sem þessi
væru vel þekktir í Kínahverfum víða,
til dæmis í Toronto og New York.
Sjálfur hefði hann séð svona staði í
Singapore og Hong Kong og vissi
til þess að þeir væru að opna í París.
Ning de Jesus
Hér er um að ræða veitingastað þar
sem fólk tekur matinn með sér heim.
Þarna er auk þess verslunarpláss þar
sem allt milli himins og jarðar, tengt
austurlenskri matargerðarlist, er á
boðstólum. Fólk fær matinn heim
með sér í sérstökum „umhverfisvæn-
um“ boxum eins og Ning orðaði það,
en box þessi eru nýlunda hér á landi
og halda hitanum vel að matnum.
En hvernig hefur nýbreytni Ning
og félaga hans verið tekið: Ning svar-
ar, „Þetta hefur gengið mjög vel og
þótt við höfum lítið sem ekkert aug-
lýst má heita að við hefðum ekki
getað sinnt ðf gagni fleiru fólki held-
ur en hefur komið til okkar. Við erum
að gæla við það að aðsóknin aukist
enn og erum að búa okkur undir
það. Við ætlum einnig að auka þjón-
ustu okkar, bjóða veisluþjónustu og
efna til matreiðslunámskeiða er
hausta tekur á ný,“ segir Ning.
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar
K..E.W Hobby
Háþrýstidælan
Ðíllinn þveginn og
bónaður á tíu mínútum.
Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með
lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með
drullugum þvottakústi.
Bílsápa og sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylg-
ir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurnar, stéttina,
veröndina og sandblásið málningu, sprungur og
m.fl. með þessu undratæki. Úrval fylgihluta!
REKSTRARVORUR
Réltarhálsi 2,110 Rvík. - símar 31956-685554-Fax 687116
• Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
‘Híll