Morgunblaðið - 05.05.1991, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAI 1991
m tekiik m hF mm?
eftir Þórholl Jósepsson
Sami maður er nú í senn borgarfulltrúi, borgarstjóri, alþingismaður, forsætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins: Davíð Oddsson. Hann stefnir að því að láta af embætti borgarstjóra og annar maður taki
við á næsta fundi borgarstjórnar, 16. maí. 20 manna liópur borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins velur eftirmann Davíðs, að fenginni tillögu hans. Þegar þetta er skrifað, á föstudag, er alls
óljóst hver verður næsti borgarstjóri. Fjórir borgarfulltrúar hafa öðrum fremur verið orðaðir við embætt-
ið, hér taldir í þeirri röð sem þeir voru kosnir í borgarstjórn: Magnús L. Sveinsson, Katrín Fjeldsted,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Arni Sigfússon.
Davíð Oddsson
uMJmmTtB
smrmn msKisr ekiíi
DAVÍD Oddsson borgarstjóri hefur Iykilhlutverki að gegna við val
eftirmanns síns, þar sem í hans hlut kemur að ná samstööu í borgar-
stjórnarflokki sjálfstæðismanna um valið. Hann ræðir við borgarfuil-
trúa og varaborgarfuiltrúa um eða eftir helgina og stefnt cr að því
að ákvöröun sjálfstæðismanna um eftirmann hans liggi fyrir i vikulok.
Rætt var við Davíð um þetta verkefni og hans framtíð sem borgai-full-
trúa, eftir að hann hefur tekið við embætti forsætisráðherra.
Davíð sagði að reynt verði að
ganga frá ákvörðun um arftaka
hans í borgarstjóraembætti fyr-
irborgarstjómarfund 16. maí. Hann
kvaðst ætla að ræða við hvem og
einn borgarfulltrúaogvaraborgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Eftir
það mun ég væntanlega gera tillögu
til borgarstjómarflokksins,“ sagði
hann. „Ég býst við að það gerist í
næstu viku.“
Davíð var spurður hvort hann
hefði áhyggjur af deilum innan borg-
arstjórnarflokksins um borgarstjóra-
efni, hugsanlega illvígum deilum.
„Ég hef nú passað að fjalla lítið um
þetta meðan á þessu stæði, en ein-
hvern veginn ímynda ég mér að það
ætt i að vera hægt að komast hjá því
að hafa illvígar deilur um þetta, með
þessari aðferð sem ég hef notað, eins
og með ráðherrana, að tala við alla
og heyra hljóðið."
Hann kvaðst mundu reyna að
að er ekki nýtt að borgarstjórinn
í Reykjavík verði þingmaður
eða ráðherra. Magnús Oskars-
son borgarlögmaður hefur skoðað
fyrri dæmi þess.
Hann bendir á að Bjarni Bene-
diktsson var borgarstjóri, en lét af
embættinu um leið og hann tók við
ráðherraembætti 4. febrúar 1947.
Gunnar Thoroddsen, sem tók við
borgarstjóraembættinu af Bjarna,
varð ráðherra 1959. Gunnar hélt
sæti sínu í borgarstjórn það
kjörtímabil og byijaði á að fá leyfi
um sinn frá störfum borgarstjóra.
Þá vom til bráðabirgða settir tveir
borgarstjórar, Geir Hallgrímsson og
Auður Auðuns. Gunnar var forseti
borgarstjórnar og sat áfram í borg-
arráði.
Geir Hallgrímsson var borgar-
stjóri 1959 til 1972. Hann varð al-
þingismaður 1970 og forsætisráð-
herra 1974.
Birgir Isleifur Gunnarsson tók við
embættinu af Geir, hann varð þing-
maður 1979, ári eftir að hann lét
af störfum borgarstjóra.
„Borgarstjóri og forsætisráð-
herra, það dettur engum manni í
hug að fari saman,“ segir Magnús
Oskarsson. „Það stendur bara þann-
ig af sér almanakið að borgarstjóm-
arfundur, sem er hálfsmánaðarlega,
er á fimmtudegi og það segir sig
sjálft að borgarstjóri sem tekur við
forsætisráðherraembætti tveimur
dögum fyrr hefur ekki svigrúm til
að skila starfinu af sér.“
Af samtölum við borgarfulltrúa
og varaborgarfulltrúa í liðinni viku
má ráða að keppni hafi farið af stað
á milli manna um hver yrði valinn.
I byijun vikunnar voru einkum Vil-
hjálmur og Árni nefndir til sögunn-
ar, en fljótt kom nafn Katrínar upp,
einnig Magnúsar, hann væri til stað-
ar, ef ekki næðist samstaða um eitt-
hvert hinna, þótt hann saákist ekki
eftir embættinu eins og fram kemur
í viðtali við hann hér á opnunni.
Einhveijir borgarfulltrúar hafa
lofað stuðningi við borgarstjóra-
kandidata, en hlutföll eru óljós. Einn
úr 20 manna hópnum segir: „Ég
lofaði mínum stuðningi miðað við
að valið stæði milli tveggja, ég hlýt
að endurskoða það þegar fleiri
blanda sér i málið.“
Eining í hættu
Mikil áhersla hefur verið lögð á,
í málfiutningi sjálfstæðismanna, að
borgarstjórnarflokkurinn sé sam-
stæður hópur. Þegar fjórir borgar-
fulltrúar, ef ekki fleiri, sækjast eftir
embætti borgarstjóra, setur ugg að
mönnum um að samstaðan rofni.
Sá uggur magnaðist í vikunni, þegar
fjölmiðlar fluttu frásagnir af meintri
baráttu milli manna.
Borgarfulltrúar og varaborgar-
fulltrúar sem rætt var við létu í ljósi
ótta um að ef svo héldi áfram sem
horfði, liti út fyrir harðvítug átök
milli manna, borgarstjórnarflokkur-
inn gæti skipst upp í fylkingar og
trúnaðarbrestur orðið á milli manna.
Innan borgarstjórnarflokksins höfðu
menn gert með sér samkomulag um
að útkljá málið innan hópsins, reka
það ekki í fjölmiðlum. Þegar ljölmiðl-
arnir fóru engu að síður að ijalla
um málið olli það spennu á milli
manna.
Eftir því sem leið á vikuna var
greinilegt að menn höfðu róast og
ákveðið að láta opinbera umræðu
og ágiskanir um eftirmann Davíðs
Oddssonar ekki stýra geði sínu meira
en góðu hófi gegndi, tónninn linaðist
og áherslan á samheldni og sátt
varð ríkjandi, þótt enn vildi hver
halda sínum hlut.
Einn borgarfulltrúi sagði:
„Ábyrgð okkar borgarfulltrúa er
mjög mikil og þessi hópur hefur
miklar skyldur gagnvart íbúum
borgarinnar. Miklar kröfur eru gerð-
ar til okkar og við verðum að standa
undir þeim kröfum. Þess vegna verð-
um við að halda ró okkar og hlíta
niðurstöðu borgarstjórnarflokksins
þegar hún liggur fyrir.“
Spyija má hvers vegna ekki sé
einhlítt hver taki við af Davíð. Um
það skal ekki dæmt hér, en einn
borgarfulltrúi lýsir stöðunni svo: „Ég
held að staðan sé þannig að það sé
ekki hægt að benda afgerandi á'einn
mann núna sem allir segðu um:
Húrra, þessi maður er góður, og
stendur þannig upp úr. Þetta er
vandinn sem við eigum við.“
Mörg sjónarmið koma til álita við
val borgarstjóra: Sumir vitna til þess
að viðtakandi borgarstjóri hafi jafn-
an verið ungur, milli þrítugs og fer-
tugs, eins og Bjarni, Gunnar, Geir
og Birgir ísleifur. Sumir vilja að
kona fái að spreyta sig á starfinu,
sumir vilja mann se'm fyrst og fremst
hefur sýnt stjórnunarhæfileika og
býr yfir mikilli reynslu, aðrir leita
að foringjaeiginleikum sem höfða til
almennings.
Hinn almenni sjálfstæðismaður í
borginni segir síðan sitt álit í næsta
prófkjöri. Þar verður val borgar-
stjóra nú staðfest fái hann góða
kosningu, eða að honum verður
hafnað og leitað eftir nýjum. Af
Léttmjólkin er fitusnauð mjólkurafurð og ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini, fosfóri og