Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991
17
húsinu eða íbúðinni sl. sex mán-
uði. Þegar t.d. um skartgripi er
að ræða eru þó aðeins 5% af vá-
tryggingarupphæðinni greidd.
Árið 1990 greiddu Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar hf. átta og hálfa
milljón króna í tjónabætur vegna
innbrota í heimahús, og má þá
reikna með að önnur tryggingafé-
lög greiði svipaða upphæð.
Eigendur Vaktþjónustunnar hf.
segja að engin sérstök hverfi verði
fyrir barðinu á afbrotamönnum og
er brotist jafnt inn í íbúðir sem
og raðhús eða einbýlishús, eða þar
sem einhver von er um að finna
verðmæti.
Það vekur ef til vill furðu borg-
arans að menn skuli bijótast inn
í hvert húsið af öðru í sama hverfi
þegar þeir vita að rannsóknarlög-
reglan er komin á sporið, en
ástæðan mun vera sú, að innbrots-
þjófar eru oft undir áhrifum fíkni-
efna og hugsun því ekki rökrétt
nema að litlu leyti.
Innbrotum er oft hagað þannig,
að þjófar vakta tiltekið hús um
tíma og fylgjast með mannaferð-
um. Oft er jafnvel hringt eða bank-
að uppá til að kanna hvort einhver
sé heima, og í innbroti í Kópavogi
t.a.m. höfðu þjófar hringt bjöllum
i íjórum húsum við sömu götu en
íbúar alltaf komið til dyra. í
fimmta húsinu var hins vegar eng-
inn heima og þar fóru þeir inn.
Innbrotin eru algengust frá
klukkan sex á kvöldin til miðnætt-
is. Ef þjófar sjá að húsráðendur
eru í fríi, athafna þeir sig í róleg-
heitum og koma oft mörgum sinn-
um í.sama húsið. , , ,, . (.
Ekkert virðist geta komið í veg
fyrir að brotist sé inn í hús. Ef
menn ætla sér inn á annað borð
skipta rammlæstar hurðir og
gluggar engu máli, rúða er ein-
faldlega brotin.
Því miður virðast innbrotin oft-
ast fara fram hjá nágrannanum
og eru ýmsar ástæður fynr því.
Vinnudagur er langur hjá íslend-
ingum og fara þeir minna en áður
út á kvöldin í heimsóknir eða ann-
að eins og var hér áður fyrr. Þeir
fylgjast því lítið með því sem ger-
ist í öðrum húsum. Það hefur lika
komið fyrir að menn hafa staðið
grandalausir og horft á „selflutn-
ing“ í næstu húsum en álitið að
viðkomandi væri að flytja, enda
búferlaflutningar tíðir á Islandi.
Einnig eru dæmi þess að menn
hafi grunað að ekki væri allt með
felldu, en ekki viljað koma ná-
grannanum til hjálpar sökum rígs
sem milli þeirra var vegna númers-
lauss bíls sem óprýddi umhverfíð.
Húsin vöktuð
í Danmörku eru til svonefnd
nábúasamtök þar sem hverfin eru
vöktuð að bandarískri fyrirmynd.
Engin slík samtök eru hér á landi,
en þeir sem vilja láta gæta eigna
sinna meðan þeir eru fjarverandi
hafa um ýmsa kosti að velja.
Þijú fyrirtæki sjá að mestu leyti
um öryggisgæslu á höfuðborgar-
svæðinu, Securitas hf., Vari og
Vaktþjónustan hf. Vari er elst
þessara fyrirtækja, stofnað 1969
og er með 24 starfsmenn. Þeir
hafa séð um öryggisgæslu hjá fyr-
irtækjum ,en ejnnig tekið. að sér
Vaktþjónustan, og víst er að af-
brotamenn verða ekki upplitsdjarf-
ir þegar þeir mæta erkióvinum
sínum, rannsóknarlögreglumönn-
um, á innbrotsstað. Allir hafa þeir
Vaktþjónustumenn unnið við
rannsóknir afbrota árum saman
og vita upp á hár að hveiju beri
að gæta. Þeir þekkja flesta afbrot-
amenn og aðferðir þeirra, og fylgj-
ast auk þess daglega með ferðum
margra þeirra í starfi sínu.
Vissulega er það öryggi fyrir
borgarann að vita af slíkri þjón-
ustu, en sú staðreynd, að auðgun-
arbrotum skuli hafa fjölgað svo
mjög að rannsóknarlögreglumönn-
um þyki full ástæða til að stofna
fyrirtæki sem sér um að gæta
eigna borgarans, er dapurleg.
íbúar íslands eru ekki fleiri en
íbúar lítillar borgar á meginl-
andinu og því er það ekki eðlilegt
að innbrot á heimili skuli vera svo
mörg sem raun ber vitni. Síbrota-
menn spóka sig í bænum með
„með nokkra dóma yfir höfði sér“,
eins og þar stendur, og segir það
ýmislegt um réttarkerfið á Islandi.
Hinn ungi aldur þeirra og fíkni-
efnanotkun vekur upp spurningu
um það hvernig fjölskyldu- og
uppeldismálum hefur verið háttað
á Islandi síðustu árin.
Siðast en ekki síst vekur af-
skiptaleysi nágrannans ugg hjá
mönnum. Þótt heilt sófasett sé
borið út úr húsi um hábjartan dag
eins og gerðist fyrir skömmu á
Grandavegi í Reykjavík, húsi þar
sem hundrað manns búa, skiptir
enginn sér af þvi.
FAGMENN MEÐ
VAKTÞJÓNUSTU
FIMM rannsóknarlögreglumenn
stofnuðu í vetur fyrirtækið Vakt-
þjónustuna hf. í Kópavogi, sem
sér um gæslu á eignum einstakl-
inga og fyrirtækja. Hugmyndina
að stofnun fyrirtækisins fengu
þeir Gunnleifur Kjartansson og
Benedikt H. Benediktsson sl. sum-
ar þegar innbrotafaraldur í Foss-
vogi stóð sem hæst. Þeir fengu
síðan þá Gylfa Dýrmundsson,
Harald Sigurðsson og Eirík Hrein
Helgason í lið með sér, og vinna
þeir nú við afbrotavai-nir og eftir-
lit utan vinnutíma hjá RLR.
Bkkur ofbauð hversu auðvelt það er
að bijótast inn á heimili manna, og
ákváðum að setja á laggirnar þjón-
ustu fyrir þá sem vilja láta gæta eigna
sinna um stundarsakir eða í lengri tíma,“
segir Gunnleifur.
Að sögn þeirra fimmmenninga sitja
óvandaðir einstaklingar og hópar oft
dögum saman um húsnæði þar sem ekki
sésttil mannaferða, og sæta síðan færis
og láta greipar sópa. „Við þekkjum þetta
úr stai*fi okkar sem rannsóknarlögreglu-
menn og höfum hugsað okkur að gera
þessum mönnum erfiðara fyrir við þessa
iðju. Við erum allir fagmenn, höfum um
árabil unnið við rannsóknir afbrota.
Varslan fer þannig fram að við fylgj-.
umst með húsnæði viðskiptavina, förum
eftirlitsferðir, athugum hvort dyr og
gluggar séu tryggilega lokaðir, hvort
hiti, rafmagn og vatn sé í lagi og fleira
sem flokka má undir öiyggi. Ef eitthvað
gerist þrátt fyrir stranga gæslu sjáum
við um að tilkynna það réttum aðilum,
þ.e. lögreglu og tryggingafélögum, þann-
ig að húsið stendur ekki í reiðileysi dög-
um saman eftir að innbrot hefur verið
framið. Einnig veitum við faglega ráð-
gjöf á sviði afbrotavarna, sé þess óskað.“
eftirlit í heimahúsum. Þeir taka
að sér farandgæslu og kostar ein
vaktferð á sólarhring um sjö þús-
und krónur á mánuði. Hægt er
að fá leigt öryggiskerfi sem tengt
er stjórnstöð hjá Vara og kostar
leiga á slíku tæki um 20 þús. krón-
ur i 30 daga. Einnig er hægt að
kaupa slík tæki, og kostar svokall-
aður „Þjófavari“, sem skynjar
hreyfingu innan 12 metra, um 18
þús. krónur.
Securitas hf. var stofnað 1979
og er með um 300 starfsmenn,
þar af 70 til 80 öryggisverði. Þeir
hafa eins og Vari helst séð um
öryggisgæslu hjá fyrirtækjum, og
segir Hannes Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri að mikið vatn hafi
runnið til sjávar því fyrir nokkrum
árum hafi það verið afrek að fá
forráðamenn fyrirtækja til að
ræða um öryggisgæslu.
Securitas hf. býður upp á svip-
aða þjónustu og Vari, þ.e. farand-
gæslu, kostar þá ein vaktferð á
sólarhring um sex þúsund krónur
á mánuði, og öryggiskerfi bæði til
leigu og sölu. Leigð öryggiskerfi
kosta milli 20 til 30 þúsund fyrir
einn til tvo mánuði, en kerfi til
eignar um 100 þúsund krónur.
Vaktþjónustan hf. var stofnuð
í vetur og sjá eigendurnir fimm
um eftirlit og gæslu fyrir einstakl-
inga og fyrirtæki. Þeir fara í tvær
til þijár vaktferðir í hvert hús á
sólarhring og kosta þijár vikur um
átta þúsund krónur.
Erkióvinir afbrotamanna
Eina fyrirtækið sem hefur í raun
fagmenn á sínum ,snærum er
Eigendur
Vaktþjón-
ustunnar hf.
Frá vinstri: Ei-
ríkur Hreinn
Helgason, Gylfi
Dýrmundsson,
Benedikt H.
Benediktsson
og Gunnleifur
KjarL'insson. Á
myndina vant-
ar Harald Sig-
urðsson.
STEIKARTILBOÐ
I apríl seldi Jarlinn
um 6.300 grillsteikur.
Áslædan:
Þær eru góðar. Þær eru ódýrar.
Geta þær verið eins góðar og
steikur sem kosta 2-3 sinnum
meira?
Já, þaó sýnir sívaxandi sala,
en meö mikilli sölu og einfaldri
þjónustu er þetta hægt.
NAUTAGRILLSTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR.690,- .
SVÍNASTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR. 650,-
mt
larlinn