Morgunblaðið - 05.05.1991, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMJ\1 A/RAÐ/SMÁ .gJJNM.UDAGUR 5. MAÍ 1991
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Múrarar
Viljum ráða nokkra múrara til starfa nú þeg-
ar við framkvæmdir okkar í Grafarvogi.
Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 671773 eða
í vinnuskálum við Gagnveg.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða vantar nú
á allar vaktir á krabbameins- og lyflækninga-
deild 11-E, Landspítala.
Á deildinni er einstaklingum með krabba-
mein og illkynja blóðsjúkdóma veitt læknis-
og hjúkrunarmeðferð. Um er að ræða fjöl-
breytt og gefandi starf, sem jafnframt reynir
á hæfni hjúkrunarfólks. Við leitum því eftir
hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum með 1
árs starfsreynslu, eða lengri (þó ekki skil-
yrði). Skipulögð aðlögun hefst í september,
með tveggja daga námskeiði, fyrir nýráðið
starfsfólk. Fræðslufyrirlestrar verða síðan
einn eftirmiðdag í viku í 8 vikur ásamt áfram-
haldandi aðlögun á deildinni. Þeir hjúkruna-
rfræðingar og sjúkraliðar, sem óska eftir því
að hefja störf strax, fá einstaklingshæfða
aðlögun á deildinni og sækja að sjálfsögðu
fræðslufyrirlestra á hausti komandi.
Unnið er fjórðu hverja helgi. Starfshlutfall er
eftir samkomulagi svo og vaktafyrirkomulag.
Þeir, sem áhuga bafa á að koma til starfa,
eru beðnir að leggja inn umsóknir fyrir 20.
maí, til að auðvelda skipulag aðlögunarnáms.
Nánari upplýsingar gefa Kristín Sóphusdótt-
ir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601225, og
Elín J. G. Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601290 eða 601300.
Okkur vantar fleiri hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða til starfa á handlækningadeild 3
(11-G). Ákveðið hefur verið að endurtaka
námskeið í hjúkrun hjarta- og lungnasjúkl-
inga, þar sem árangur af fyrra námskeiði var
mjög góður.
Þann 15. september nk. verður farið af stað
með 6 vikna námskeið. Námskeiðið sam-
anstendur af markvissri aðlögun með leið-
sögn reyndra hjúkrunarfræðinga á hand-
lækningadeild 3. Jafnframt eru fyrirlestrar
einn eftirmiðdag í viku. Fyrirlestrarnir eru
fluttir af hjúkrunarfræðingum og læknum
deildarinnar. Handlækningadeild 3 er brjóst-
holsaðgerðadeild, sem er í örri þróun vegna
fjölgunar hjartaaðgerða hér á landi.
Nánari upplýsingar 'veita Lilja Þorsteinsdótt-
ir, deildarstjóri, sími 601340, og Anna Stef-
ánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími
601366/601300.
Bráðamóttaka
Sjúkraliði óskast í sumarafleysingar í 100%
starf, allar vaktir.
Upplýsingar veitir Gyða Baldursdóttir, deild-
arstjóri, í síma 601010, og Lovísa Baldurs-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601300.
Aðstoðarlæknir
Staða reynds aðstoðarlæknis á deild 12-A
handlækningadeild er laus frá 1. ágúst 1991.
Umsóknir berist Páli Gíslasyni, yfirlækni, fyr-
ir 1. júní á eyðublöðum lækna. Staðan veitist
til eins árs með möguleika á framlengingu.
Upplýsingar gefur Páll Gíslason, yfirlæknir,
í síma 601336.
Viðskiptafræðingur
sem stjórnað hefur markaðs- og sölustörfum
í einu af stærstu fyrirtækjum landsins í
mikilli samkeppni er að leyta að stjórnunar-
starfi hjá góðu fyrirtæki.
Þeir sem hafa áhuga á að ræða málin í trún-
aði vinsamlegast leggi inn nafn og símanúm-
er á auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. maí nk.
merkt: „Trúnaður - 14491“.
Tónlistarkennarar -
organistar
Tónlistarskóla Seyðisfjarðar vantar málm-
blásturskennara, gítarkennara og píanó-
kennara.
Einnig vantar okkur organista við kirkjuna.
Seyðisfjarðarkirkja er nýuppgerð eftir bruna
og er nú mjög falleg. Nýtt Frobenius orgel
var tekið í notkun í desember sl. Það er 15
radda, með tvö hljómborð og pedal.
Tónlistarskólinn er í eigin húsnæði og hefur
u.þ.b. 70 nemendur. Möguleiki er einnig á
starfi tónmenntakennara við grunnskólann.
Seyðisfjörður er lítill útgerðarbær í fallegu
umhverfi, með u.þ.b. 1000 íbúa. Aðalatvinnu-
vegir tengjast fiskvinnslu og útgerð ásamt
vélsmíði.
Verslun og fjölbreytt þjónustufyrirtæki eru á
staðnum. Sjúkrahús og heilsugæslustöð eru
einnig mikilvægir vinnustaðir.
Við útvegum ódýrt húsnæði.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Undirritaðar gefa allar nánari upplýsingar.
Kristrún H. Björnsdóttir
(skólastjóri) sfmi 97-21366.
SigríðurJúlíusdóttir
(organisti) sími 97-21365.
AUKhf
Auglýsingastofa Kristínar,
Skipholti 50c, Reykjavík
óskar að ráða starfsfólk sem fyrst: **
Hugmynda- og
textahöfund
Leitað er að hugmyndaríkum textahöfundi,
sem vinnur sjálfstætt og skipulega. Starfs-
manni, sem á auðvelt með að setja sig inn
í margvísleg og flókin mál, að útfæra eigin
hugmyndir og þróa hugmyndir annarra fyrir
prentmiðla jafnt sem Ijósvakamiðla. Viðkom-
andi þarf að eiga auðvelt með að vinna með
öðru fólki og hafa gott vald á íslensku máli
og blæbrigðum þess.
Starfsmann í
móttöku
Þessi starfsmaður er „andlit og rödd“ fyrir-
tækisins og þarf að hafa góða framkomu,
gott skap og lipurð. Viðkomandi þarf að hafa
gott vald á íslensku, geta unnið við rit-
vinnslu og unnið hratt og sjálfstætt að af-
mörkuðum skrifstofuverkefnum.
Um er að ræða reyklausan, þægilegan og
skemmtilegan vinnustað þar sem fengist er
við lifandi og spennandi verkefni.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Tjarnar-
götu 14, og skal umsóknum skilað á sama
stað fyrir 12. maí nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Gudni íónsson
RÁÐC.JÖF&RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Atvinnurekendur
/iðnnemar
Tekið hefurtil starfa Atvinnumiðlun iðnnema
(AMIN). Miðlunin sér um að útvega atvinnu-
rekendum hæfa starfsmenn, sem hafa nema-
þekkingu á því sviði sem starfið felst í. Miðl-
unin útvegar störf og starfsmenn til sumaraf-
leysinga, hlutastarfa og á námssamninga.
Upplýsingar um skráningu fást í síma
91-14318 á skrifstofutíma.
AMIN
Atvinnumiðlun iðnnema,
Skólavörðustíg 19, 101 Rvíks. 91-14318,
fax 91-620474.
Leikskólinn
Álfaheiði
Fóstra eða þroskaþjálfi óskast til starfa sem
fyrst til að annast stuðning barns með sér-
þarfir. Um er að ræða 50% starf.
Einnig óskast fóstrur frá 1. ágúst.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
642520.
Leikskólinn
Efstihjalli
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast í hlutastarf. Einnig fóstra
eða þroskaþjálfi til að annast stuðning barns
með sérþarífir. Um er að ræða 50% starf.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
46150.
Auk þess veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar
um störfin í síma 45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmálstofn-
un Kópavogs, Fannborg 4.
Dagvistarfulltrúi.
Kennarar
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn-
arastöður við grunnskóla í Reykjanesum-
dæmi
framlengist til 25. maí.
Grunnskólar Kópavogs:
Kópavogsskóli - smíðar.
Snælandsskóli - tónmennt.
Grunnskólar Seltjarnaness:
Mýrarhúsaskóli - almenn kennsla, tónmennt,
heimilisfræði.
Grunnskólar Hafnarfjarðar:
Engidalsskóli - tónmennt - íþróttir.
Álftanesskóli, Bessastaðahreppi:
Almenn kennsla, sérkennsla, tónmennt.
Grunnskólar Mosfellsbæjar:
Gagnfræðaskólinn - sérkennsla, erlend mál,
líffrlæði, stærðfræði, starf á skólasafni.
Grunnskólar Keflavíkur:
Holtaskóli - íslenska, enska, danska, smíðar,
líffræði, stærðfræði.
Myllubakkaskóli - almenn kennsla, tón-
mennt, saumar.
Grunnskólinn í Njarðvík: Alemnn kennsla,
sérkennsla.
Grunnskólinn í Grindavík: Almenn kennsla,
sérkennsla, tónmennt, danska.
Grunnskólinn í Sandgerði: Alemnn kennsla,
sérkennsla, smíði,saumar, myndmennt.
Gerðaskóli, Garði: Alemnn kennsla yngri
barna, sérkennsla.
Stóru-Vogaskóli, Vatnsleysustrandarhr.:
Myndmennt, smíði, saumar.
Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis.