Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 37
m itíCÍ ÍAM H’Jí) wHGUNHAMaVOMVMIWZA (JIGAJ H KÚ OHO M ___________Brids_______________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag byrjenda - stærsta bridsfélag landsins Þótt Bridsfélag byrjenda sé aðeins tæplega þriggja mánaða gamalt er það orðið stærsta bridsfélag landsins. Spilakvöld félagsins eru á hálfs mán- aðar fresti og spila um og yfir 100 manns á hverju kvöldi. Er salur Brids- sambandsins þéttsetinn þegar best lætur. Félagið var stofnað 11. febrúar sl. Formaður félagsins er Karl Zophon- íasson, Hjördís Siguijónsdótir vara- formaður, María Guðnadóttir gjald-- keri, Tómas Sigurðsson er ritari og Aðalheiður Hákonardóttir meðstjórn- andi. Síðastliðinn þriðjudag var spila- kvöld hjá félaginu í Sigtúni 9. Þátt- taka var mjög góð og var spilað á 23 borðum. Spilaður var Mitchell- tvímenningur og urðu úrslit þessi: Norður/Suður: Maria Haraldsdóttir - Liija Halldórsdóttir 244 JóhannesLaxdal-FelixSigurðsson 223 Ingólfur Ámason - Hafsteinn Einarsson 212 Óskarlngason-SteinjiórBenediktsson 210 GísliJónsson-LofturSveinsson 205 Austur/Vestur: GunnarHámundarson-BergþórAlbertsson 221 Halldór Már Sverrisson - Jón Ingþórsson 219 Ásgeir Benediktsson - Hallgrimur Kristjánss. 216 AronÞorfinnsson-SkúliJakobsson 211 OtharPetersen-LeifurDungal 205 Næsta spilakvöld verður í Sigtúni 9 þriðjudaginn 14. maí nk. og verður byijað að spila kl. 19.30. Fólk er beð- ið um að mæta tímanlega og alls ekki seinna en 19.15. Bridsdeild Barðstrendinga Síðastliðinn mánudag lauk baró- metertvímenningi deildarinnar, sem jafnframt var síðasta keppni vetrar- ins. 32 pör tóku þátt í keppninni sem aldrei varð verulega spénnandi. Til þess voru yfirburðir Þórarins Ámason- ar og Gísla Víglundssonar of miklir. Lokastaða efstu para varð annars þessi: ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 362 Hörður Davíðsson - Þorieifur Þórarinsson 233 KristjánJóhannsson-ÁmiEyvinds 197 Eggert Einarsson - Bjöm Ámason 136 Leifur Kr. Jóhannesson - Haraldur Sverrisson 105 ÁmiMagnússon-AntonSigurðsson 93 Þar sem aðeins 12 spil voru eftir af barómeternum var slegið upp rúb- ertukeppni með útsláttarfyrirkomu- lagi að honum loknum. Hvert par mátti tapa einum leik (ýmist 2 eða 3 spil), en féll úr keppni eftir 2 töp. Skemmst er frá því að segja að Þórar- inn og Gísli unnu alla sína leiki og yfirgáfu því staðinn með forláta konf- ektkassa. Það var vel við hæfi því þeir hafa unnið nánast allar keppnir vetrarins. Frá Skagfirðingum Hjá Skagfírðingum stendur nú yfír eins kvölds tvímenningskeppni. Sl. þriðjudag var spilað í einum riðli. Úrslit urðu (efstu pör): ÓlafurLámsson-RagnarBjömsson 273 Jón Viðar Jónmundsson -ÞórðurSigfússon 250 HjálmarS.Pálsson-SigmarJónsson 244 HelgiHermannsson-KjartanJóhannsson 231 Ragnheiður Tómasdóttir - Rúnar Lárasson 230 Gylfí Ólafsson — Sigurjón Harðarson 227 Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35 og hefst spilamennska kl. 19.30. Allt spilaáhugafólk velkomið. Frá sýningu á Toscu í Verona í fyrra. AUÐLEGÐ ÍTALÍU Ferðakynning Heimsklúbbsins á Hótel Sög-u í dag Áhugi íslendinga á ítalskri list, menningu og sögu hefur stórau- kist frá því beinar ferðir hófust þangað árið 1974. í tilefni af heimsókn forseta Ítalíu til Is- lands heldur Ingólfur Guð- brandsson, forstjóri Heims- klúbbsins, erindi um ítalska menningararfinn og kynnir jafn- framt menningarferð - til Italiu, sem hefst 23. ágúst næstkom- andi. I ferðinni verður sameinuð listskoðun, einkum timabil end- urreisnarinnar eins og hún birt- ist í myndlistinni, rakin þróun byggingarlistar hinna ýmsu tímabila í fögrum byggingum Ítalíu, jafnframt því að njóta töfra náttúrunnar, t.d. við Garda- vatnið og í Toscanahéraði. Ferðin hefst í Mílanó, þar sem m.a. er skoðuð Dómkirkjan, Scala- óperan og -safnið, Breri-listasafnið og kirkjan Santa Maria delle Grazie, en þar er várðveitt eitt frægasta listaverk Leonardos da Vinci, Síðasta kvöldmáltíðin. Stanzað er í mörgum smábæjum við Gardavatn- ið og gist tvær nætur í miðaldaborg- inni Verona, sem er bakgrunnur að snilldarverki Shakespeares um elsk- endurna Romeo og Júlíu. í Aren- unni í Verona er stærsta óperusvið heimsins, þar sem þátttakendur verða viðstaddir flutning á óperunni Turandot eftir Puccini hinn 27. ágúst, og hafa aðgöngumiðar þegar verið keyptir í hringnum næst leik- sviðinu, svo að sýningarinnar verði notið til fulls. Það er einmitt í Tur- andot, sem heimssöngvari okkar, Leiðrétting Villa var í frétt blaðsins í gær um eigendaskipti á veitingahúsinu Nausti. Hið rétta er að Hörður Sig- uijónsson var áður aðstoðarhótel- stjóri á Hótel íslandi og Hafsteinn Egilsson var veitingastjóri á Hótel Sögu. Þ.Þ0R6RÍMSS0N &C0 E3ÍÉBÍÍ0ODI0. gólfflísar - kverklistar ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 Kristján Jóhannsson, þreytir frum- raun sína í Arenunni í sumar, en flytjendur eru í tölu beztu söngvara heimsins. í Feneyjum er gist tvo daga á hóteli við Canal Grande og rétt við Markúsartorg, og þijá daga í lista- borginni Flórens á Bernini Palace, rétt við Piazza Signoria, ráðhúsið og Uffizi-safnið. Þannig gefst meira tóm til að njóta listarinnar og um- hverfisins en í stuttum dagsferðum frá strandbæjum. Þá eru miðaldar- borgirnar Pisa, Siena, Perugia og Assisi einnig skoðaðar og að lokum verður dvalist í Róm í fjóra daga. Ingólfur kallar erindi sitt „Auð- legð Italíu“. Það hefst kl. 16.00 í dag í Ársal Hótels Sögu og lýkur með myndasýningu. Aðgangur er ókeypis. (Fréttatilkynning frá Heimsklúbbi Ingólfs.) 13. og 14. maí Svipmyndir fra spilakvöldi Bridsfélags byijenda sl. þriðjudag. TIL - SÖLU Fiskvinnslufyrirtæki Til sölu fiskvinnslufyrirtæki á góðum stað í Reykjavík. Fyrirtækið er snyrtilegt og vel búið tækjum sem gefa fjölbreytta möguleika í vinnslu. Góð viðskiptasambönd. Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 9. maí merkt: „ F - 7851“. Til sölu að Hjallavegi 10 í Hrísey nýtt verkstæðishús- næði 240 fm með eða án tækja og áhalda sem í húsinu eru til járnsmíði og viðgerða ásamt litlum lager af smíðajárni og boltum og ýmsu öðru sem rekstrinum tengist. Einn- ig eru aliar vinnuvélar mínar til sölu, þar á meðal jarðýta TD 8B árgerð '76, traktors- grafa Hymas árgerð '80, hjólaskófla 12 tonna bakstýrð árgerð '74, snjóblásari nýr, loft- pressa dregin árgerð '70 ásamt ýmsu dóti sem þessu fylgir. Skipti á íbúð á Suðurlandi kemur til greina. ' Upplýsingar í síma 96-61711 (heimasími) og 96-61791 (vinnusími). Frystiskápar Til sölu eru tveir frystiskápar. Hagstætt verð. Upplýsingar í símum 91-623870 og 91- 666765.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.