Morgunblaðið - 05.05.1991, Síða 44
Bögglapóstur
um ullt land
PÓSTUR OG SÍMI
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐIfí, ADALSTRÆTI 6> 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1S55 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Höfn í Hornafirði:
Lánsfjármarkaður:
Utlit er fyrir mun minni
spamað en á síðasta ári
Lántökuáf orm ríkisins mun hærri en sem nemur sparnaði
Bjargveiði-
menn verð-
leggja nytjar
’ Vestmannaeyjum.
Bjargveiðimannafélag' Vest-
mannaeyja liefur nú komið sam-
an og ákveðið verð á bjargnytj-
um sumarsins.
Að sögn Hlöðvers Johnsen fór
verðlagningin fram í anda þjóðar-
sáttar og sagði hann verðið í lægri
kantinum sem fyrr. Verð á lunda,
ófrosnum í fiðrinu, verður 50 krón-
ur en eftir að búið verður að frysta
hann verður verðið 55 krónur fyrir
stykkið. Hamflett lundabringa
verðu svo seld á 65 krónur frá
lundakörlunum.
En bjargveiðimenn verðleggja
fleira en lundann því áður en lunda-
■y.veiðitíminn kemur er það eggjatím-
inn sem kallar og í ár verða svart-
fugls- og fýlsegg seld á 60 krónur
ÞINGMENN allra stjórnarand-
stöðuflokkanna á færeyska lög-
þinginu hafa mótmælt sölu á
laxveiðikvóta þeirra og segja
furðulegt að ekki skyidi rætt
um málið á þinginu áður cn
gengið var frá samningum.
Undir fyrirsögninni „Landa-
svik!“ segir dagblaðið Dinnnalætt-,
ÚTLIT er fyrir að innlendur
sparnaður verði mun minni á
þessu ári en fyrri áætlanir
ing irá því að þingmenn stjórnar-
andstöðunnar í Færeyjum hafi
sent Anfinni Kallsberg, forseta
lögþingsins, bréf þar sem sölunni
á laxveiðikvótanum er mótmælt.
í frétt blaðsins segir að þrátt
fyrir að viðskiptanefndinni sé
heimilt að gera fiskveiðisamninga
milli landa þá hafi verið eðlilegra
að.færeyska.lögþingið fjallaði um
gerðu ráð fyrir. Seðlabankinn
teiur nú að nýr peningalegur
sparnaður muni nema tæpum
málið áður en samningar voru
gerðir.
Eins og skýrt hefur verið frá
gerði Alþjóða laxakvótanefndin,
undir forustu Orra Vigfússonar,
samning við Færeyinga um að
kaupa laxveiðikvóta þeirra í fram-
tíðinni og greiða fyrir hann 700
þúsund dali á ári næstu þrjú árin.
27 miHjörðum króna á þessu
ári, en endurskoðuð spá í janúar
gerði ráð fyrir 38 milljarða
sparnaði. Hrein lánsfjárþörf
rikissjóðs og opinberra sjóða á
árinu er talin geta orðið tals-
vert hærri en þessi tala.
Eiríkur Guðnason aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans sagði
við Morgunblaðið, að því hefði
verið spáð í lok síðasta árs, að
peningalegur sparnaður yrði á
þessu ári svipaður og á síðasta
ári, eða 37-38 milljarðar. En þegar
líða fór á árið 1991, hafi komið í
ljós að framvindan var miklu hæg-
ari en á síðasta ári. Nú sé talið
að sparnaðurinn muni nema 26,6
milljörðum króna, en það væri
raunar mjög lausleg áætlun.
Eiríkur sagðist ekki geta áttað
sig á, hver hrein lánsfjárþörf opin-
berra aðila og sjóða væri á þessu
ári, þar sem ýmsar tölur væru á
sveimi. Þó væri ljóst að lántöku-
áform ríkisins, ásamt með venju-
legum lánum annarra, gengju tals-
vert lengra en ætla mætti að hægt
væri að fá á innlendum lánamark-
aði.
Morgunblaðið hefur heyrt
nefnda töluna 28 milljarða í þessu
sambandi en Eiríkur vildi ekki
staðfesta hana. Með hreinni láns-
fjárþörf er átt við þá upphæð sem
eftir stendúr þegar greitt hefur
verið af eldri lánum, en verg láns-
fjárþörf er mun meiri.
Eiríkur Guðnason sagði, að til-
tölulega stutt væri síðan Seðla-
bankinn hefði náð þannig utan um
lánakerfið í heild, að hægt væri
að búa til stærð, sem héti peninga-
legur sparnaður. Það væri með
öðrum orðum það fé, sem lagt sé
til hliðar. Hins vegar væru áætlan-
ir um þennan sparnað frekar óná-
kvæmar, þar sem ekki væri byggt
á mikilli reynslu.
stykkið.
Grímur
Færeyska lögþingið:
Stj órnaranclstæðingar mót-
mæla sölu laxveiðikvótans
„ # # , Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, tekur á móti Francesco Cossiga, forseta Italíu, á Reykjavíkurflugvelli í gær.
Ítalíuforseti 1 opinberri heimsókn
FRANCESCO Cossiga forseti ítaliu kom til íslands í tveggja daga
opinbera heimsókn í gær. Flugvél forsetans lenti á Reykjavíkur-
flugvelli klukkan 11 og tók forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, á móti honum ásamt ráðherrum úr íslensku ríkisstjórninni.
Francesco Cossiga er fyrsti
ítalski þjóðhöfðinginn sem heim-
sækir Island. Þegar forsetinn
steig út úr flugvélinni var veður
með mildasta móti, logn og þurrt.
Lúðrasveit Reykjavíkur lék þjóð-
söngva Ítalíu og íslands þegar
forsetar landanna höfðu heilsast.
Af hálfu ríkisstjórnar og Alþingis
tóku á móti forsetanum Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra, Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra, Ólafur G. Einars-
son menntamálaráðherra, Jón
Sigurðsson iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, Eiður Guðnason um-
hverfismálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra, Þorsteinn Rálsson sjávarút-
vegs-, dóms- og. kirkjumálaráð-
herra og af hálfu Alþingis Salóme
Þorkelsdóttir, alþingismaður.
Ítalíuforseti snæddi hádegis-
verð á Bessastöðum í boði forseta
íslands. Síðan heimsótti hann
Árnastofnun og að því loknu var
haldið í Háskólabíó þar sem
Francesco Cossiga var sæmdur
heiðursdoktorsnafnbót við laga-
deild Háskóla íslands. Ítalíufor-
seti fór síðan til Höfða í boði borg-
arstjórans í Reykjavík og þar tóku
á móti honum Davíð Oddsson
borgarstjóri og kona hans, Ástríð-
ur Thorarensen. Að lokum var
hátíðarkvöldverður í boði forseta
íslands á Hótel Sögu í gærkvöldi.
í dag fer Ítalíuforseti árla dags
og gróðursetur tré í Vinaskógi og
síðan að Almannagjá, þar sem
forsætisráðherrahjónin taka á
móti honum. Forsætisráðherra
heldur hádegisverð til heiðurs for-
seta Ítalíu á Hótel Holti í hádeg-
inu og síðdegis lýkur heimsókn-
inni og Francesco Cossiga heldur
af landi brott.
Með í för Ítalíuforseta er Gianni
de Michelis, utanríkisráðherra ít-
alíu, og átti hann í gær fund með
Jóni Baldvin Hannibalssyni ut-
anríkisráðherra.
Björguðu
** skólabróð-
ur sínum frá
drukknun
TVÖ níu ára börn, Einar Páll
Benediktsson og Guðrún Arna
Kristjánsdóttir úr Nesjaskóla í
Hornarfirði, náðu að bjarga átta
ára skólabróður sínum frá
drukknun í sundlaug Hafnar-
hrepps á Höfn síðdegis á fimmtu-
dag.
„í sundtímanum var allt í lagi
með hann en þegar við vorum að
leika okkur í djúpu lauginni eftir
- tímann gerðist eitthvað og hann
sökk. Hann náði ekki að hrópa á
hjálp en eitthvert hljóð heyrðist í
honum og einn bekkjarbróðir hans,
sem tók eftir þessu, kallaði á hjálp
því hann treysti sér ekki að fara á
eftir honum. Eg heyrði kallið og
kafaði á eftir honum en stuttu
seinna kom Guðrún Arna, sem var
uppi á bakkanum, og hjálpaði mér
að toga hann upp á bakkann þar
sem Guðbrandur og Ólöf, sund-
kennararnir okkar, tóku við honum.
^ V-t.Uppúr honum kom vatn og hann
var máttlaus en þegar hjúkrunar-
fólkið kom var hann búinn að
þurrka sér, kominn í föt og stóð
úti á stétt,“ sagði Einar Páll Bene-
diktsson í samtali við Morgunblaðið.
Drengurinn, sem börnin björg-
uðu, var að sögn Einars Páls flug-
syndur.