Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 14. JUNI 1991
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
23
JIIWQtiiiWafeffe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakurh.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Afangi á langri leið
Berlínarmúrinn og járn-
tjaldið, sem til skamms
tíma voru „vörumerki“ marx-
ismans og sósíalismans í ver-
öldinni, heyra nú sögunni til.
Sú þjóðfélagsþróun sem yfir
stendur í mörgum A-Evrópu-
ríkjum — frá alræði eins
flokks og miðstýrðum sósíal-
isma í átt til lýðræðis og
markaðsbúskapar — eru
markverðustu tímamót í sögu
Evrópu frá lyktum síðari
heimsstyijaldarinnar, með og
ásamt vaxandi efnahagssam-
starfi lýðræðisríkja álfunnar.
Sú staðreynd að forseti
Rússlands, stærsta lýðveldis
Sovétríkjanna, sækir nú vald
sitt til almennings í leynileg-
um kosningum, sem og niður-
stöður kosninganna, eru
stærri viðburður í samtíma-
sögunni en menn gera sér í
fljótu bragði grein fyrir. Ljóst
er engu að síður að það er
alltof snemmt á þessu stigi
máls að fullyrða um fram-
vindu lýðræðisþróunar í Sov-
étríkjunum. Forsetakosning-
arnar í Rússlandi eru rétt-
vísandi og mikilvægur áfangi
á langri og erfiðri leið, sem
framundan er.
Á öndverðum valdaferli
Míkhail Gorbatsjov sovét-
forsta vöknuðu góðar vonir
um lýðræðisþróun í Sovétríkj-
unum, bæði í bijóstum heima-
þjóða þessa víðfeðma ríkis og
um veröld alla. Fljótlega varð
þó lýðum ljóst að gata sovét-
þjóðanna til lýðræðis, mann-
réttinda og markaðsbúskapar
var ekki eins greiðfær og
björtustu vonir stóðu til.
Harðlínumenn hafa tögl og
hagldir í flokknum, hernum,
leynilögreglunni og ríkiskerf-
inu — og virðast staðráðnir í
að veija völd sín og flokksins
með öllum tiltækum ráðum.
Sitthvað bendir til þess að
Gorbatsjov sé ekki jafn ein-
arður lýðræðissinni og hann
vill vera láta — og/eða hann
sé um of bundinn á klafa
hinna þröngsýnni afla í
Kommúnistaflokki Sovétríkj-
anna, til að megna að þoka
þjóðfélagsþróuninni nægilega
í átt til lýðræðis. Þar ber
máski hæst pólitískt og hem-
aðarlegt ofbeldi gegn Eystra-
saltsríkjunum, sem sovétveld-
ið innlimaði með samningum
við Hitlers-Þýzkaland í byijun
síðari heimsstyijaldarinnar.
Þessi neikvæða afstaða segir
og til sín í hörðum viðbrögðum
gegn mannréttinda- og þjóð-
ernisvakningu í hinum ýmsu
ríkjum sovétsambandsins. Það
talar og sínu máli um afstöðu
hinna þröngsýnu afla til
fijálsrar skoðanamyndunar
og tjáningar, að yfirstjórn
aganefndar sovézka komm-
únistaflokksins hefur fyrir-
skipað sérstaka rannsókn á
meintu agabroti Edúards
Shevardnadze, fyrrum ut-
anríkisráðherra Sovétríkj-
anna, vegna ummæla hans
þess efnis, að stofna beri nýj-
an flokk sovézkra lýðræðis-
sinna til að knýja fram um-
bætur í þágu þjóðar og þegna.
Veruleikinn hefur dregið
dökk ský á himin þeirra, sem
sáu sól lýðræðis og mannrétt-
inda rísa í orðum Míkhaíl
Gorbatsjov sovétforseta á
öndverðum valdaferli hans.
Nýafstaðnar forsetakosningar
í Rússlandi, stærsta sovétlýð-
veldinu, ýta hins vegar við
þessum vonbrigðaskýjum. í
fyrsta lagi er það stórviðburð-
ur í sögu Rússlands að forseti
landsins er valinn í fijálsum
kosningum; þarf að sækja
vald sitt eftir lýðræðisleiðum
til almennings. í annan stað
staðfesta niðurstöður kosn-
inganna sigur Borís Jeltsín,
forseta rússneska þingsins, að
meirihluti Rússa hafnar al-
ræði Kommúnistaflokksins og
lýsir yfir stuðningi við þróun
til hefðbundins lýðræðis.
Samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem fyrir liggja, hefur
Borís Jeltsín, sem hvað harð-
ast hefur deilt á stjómkerfið
í Sovétríkjunum og karfizt
þróunar í lýðræðisátt, farið
með sigur af hólmi og fengið
meirihluta atkvæða. Níkolaj
Ryzhkov, fyrrum forsætisráð-
herra, studdur af harðlínu-
mönnum, var ekki hálfdrætt-
ingur hans í atkvæðum. Þessi
úrslit styrkja stöðu Jeltsíns
gagnvart Kommúnistaflokkn-
um og Gorbatsjov sovétfor-
seta. Þau fela í sér aukinn
þrýsting um að flýta efna-
hagsumbótum, þróun í lýð-
ræðisátt og tilfærzlu valds til
sovézku lýðveldanna.
Sem fyrr segir em kosning-
arnar sem slíkar, sem og nið-
urstöður þeirra, áfangi á
langri leið íbúa Sovétríkjanna
til lýðræðis, mannréttinda og
markaðsbúskapar. Lýðræðis-
sinnar hafa unnið orustu á
hinum pólitíska vettvangi. Það
er hins vegar ekki séð fyrir
endann á stríðinu.
Mögnlegt að tvöfalda
vinnslu í frystihúsinu
- segir Ólafur Rögnvaldsson hjá Hraðfrystihúsi Hellissands
ÓLAFUR Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellis-
sands, kvaðst óhress með stofnsamninginn sem gerður hefur verið
um rekstur Hraðfrystihússins í Ólafsvík. Aðilar á Hellissandi eiga 15%
hlut í togaranum Má á móti fiskvinnslufyrirtækjum og Bæjarsjóði
Ólafsvíkur, sem á aðild að stofnsamningi hins nýja hlutafélags um
rekstur Hraðfrystihússins í Ólafsvík. Ólafur sagði að samkvæmt samn-
ingnum væri ætlunin að landa 80% aflans í Ólafsvík en afgangurinn
yrði seldur erlendis eða á mörkuðum.
„Við verðum að sitja úti eins og
áður og það er ég ekki hress með.
Við höfum ekkert um málið að segja
vegna þess að við erum í minnihluta.
Við höfum haft 15% af afla togarans
í gegnum tíðina en litið sem ekkert
fengið í eitt ár vegna þess að Hrað-
frystihús Ólafsvíkur ætlaði að kaupa
togarann gegn okkar vilja,“ sagði
Ólafur.
„Okkur þykir það ekki viðunandi
hér fyrir utan Enni að meirihluti
stjórnar Útvers skuli samþykkja að
láta nýja hlutafélagið hafa 80% afla
úr togaranum, 20% fari til útlanda
eða á markað og skilji okkur eftir á
köldum klaka. Einkum í ljósi þess
að við höfum staðið við allar skuld-
bindingar við okkar lánadrottna,
Landsbankann, fiskveiðisjóð og aðrar
lánastofnanir."
Hann sagði að Hraðfrystihús Hell-
issands á Rifi gæti unnið helmingi
meiri afla en gert er í dag. Á milli
12-15 tonn eru fryst í hraðfrystihús-
inu á degi hveijum og sagði Ólafur
að fyrirtækið gæti auðveldlega fryst
tvöfalt meiri afla. Með því móti yrðu
sköpuð störf fyrir 30 manns. Á milli
Ólafsvíkur og Rifs eru sex kílómetr-
ar.
Morgunblaðið/Alfons
Innsiglaðar dyr á geymslu Hrað-
frystihúss Ólafsvíkur.
Vilja leigja rekstur HÖ fyrir
5% af framleiðsluverðmætinu
FULLTRÚAR Bæjarsljórnar Ólafsvíkur, Verkalýðsfélagsins Jökuls og
útgerðarfyrirtækjanna Tungufells og Útvers í Ólafsvík hafa gert sam-
eiginlegt tilboð um að leigja rekstur Hraðfrystihúss Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur. Þessir aðilar hafa fengið samþykki sinna stjórna um leggja
tilboðið fram og stofna hlutafélag um reksturinn. Bústjóra, Jóhanni
Níelssyni, var afhent tilboðið í gær.
Stefán Garðarsson, bæjarstjóri í
Ólafsvík, sagði að ekkert yrði frekar
aðhafst í málinu fyrr en jákvæð við-
brögð hafa borist við tilboðinu. í
stofnsamningnum kemur fram að
Ólafsvíkurkaupstaður á 35% í vænt-
anlegu hlutafélagi, Verkalýðsfélagið
Jökull 15%, Útver 25% og Tungufell
25%. Tveir stjórnarmenn í fyrirtæk-
inu verða frá bæjarsjóði Ólafsvíkur,
einn frá Verkalýðsfélaginu, og sinn
hvor frá Tungufelli og Útveri. Undir-
ritaður samningur þessara aðilaligg-
ur fyrir um það að togarinn Már landi
hjá þessu nýja fyrirtæki sem og fjór-
ir bátar. „Það er í sjálfu sér ekkert
leyndarmál að tilboðið hljóðar upp á
5% af framleiðsluverðmæti hrað-
frystihússins. Það er áætlað að það
séu um 20 milljónir á ári, sem þá
yrðu borgaðar í leigu,“ sagði Stefán.
Innifalið í þeirri upphæð er fasteig-
nagjald, ekki aðstöðugjald sem fyr-
irtækið þarf að greiða til sveitarfé-
lagsins.
Hann sagði það engan vanda leysa
að afli Ólafsvíkinga yrði unnin af
Hraðfrystihúsi Hellissands á Rifí.
„Þeir hafa ekkert rætt það við okk-
ur. Ég lít svo á að við höfum hér
húsnæði og rekstrargrundvöll. Því
ættum við þá að sækja vinnu í annað
sveitarfélag?,“ sagði Stefán. Hann
sagði að það_yrði enginn stofnkostn-
aður hjá hinu nýja fyrirtæki. Að vísu
yrði að kaupa einhverjar rekstraivör-
ur til að byija með en það væri eng-
inn fjárfestingarkostnaður í þessu
dæmi.
Stefán kvaðst furða sig á ritstjórn-
argrein Morgunblaðsins í gær þar
sem lagt er til að frystihúsum á Snæ-
fellsnesi verði fækkað. „Það er eng-
inn að biðja einn né neinn að gefa
nokkuð í þessu dæmi. Við teljum
okkur fært að helja þennan rekstur.
Auðvitað er rétt að skoða allar leiðir
en við höfum ekki rætt við þá á
Hellissandi um það að þeir fari að
taka fólk héðan til vinnu. Bæjarfélag-
ið yrði af geysilegum tekjum frá
þeim fyrirtækjum sem yrðu hér á
staðnum, en við fengjum að vísu út-
svar frá þessu fólki,“ sagði Stefán.
Markaðsskráning gengis
yki hagsæld og velmegun
- segir Birgir Isleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri
TENGING íslensku krónunnar við evrópsku rhynteininguna ECU myndi
stuðla að lækkun verðbólgu, auknum stöðugleika og velmegun. Það er
þó ekki sjálfgefið að tengja þurfi gengi krónunnar öðrum gjaldmiðli.
Til greina kæmi að Seðlabanka yrði falið að framfylgja fastgengisstefnu
með markaðsviðskiptum á innlendum gjaldeyrismarkaði. Þetta kom fram
í erindi Birgis Isleifs Gunnarssonar bankastjóra Seðlabankans á morgun-
verðarfundi Verslunarráðs Islands á miðvikudag.
Að sögn Birgis hyggst Seðlabank-
inn taka upp þann hátt að skrá gengi
oftar en einu sinni á dag á haustmán-
uðum. Þessi ráðstöfun er gerð til þess
að koma í veg fyrir að kaupendur
gjaldeyris geti hagnast á viðskiptum,
þegar gengi mynta á erlendum mörk-
uðum breytist frá því að Seðlabanki
skráir gengi kl. 9 að morgni og þar
til bankar loka að kvöldi.
Birgir rakti í erindi sínu niðurstöður
nefndar á vegum Seðlabankans sém
skoðað hefur hvaða breytingar þurfi
að gera á gengisskráningu hér á landi.
Nú er gengi skráð af Seðlabankanum,
með tilliti til myntkörfu sem ákveðin
er fyrir hvert ár. Karfan er sett sam-
an úr myntum helstu viðskiptaþjóða
í Evrópu og Norður-Ameríku auk Jap-
ans.
Nefndin taldi þijár leiðir helst koma
til álita. Hin fyrsta er sú sem áður
er nefnd. Onnur leið sem tilgreind er
í áliti nefndarinnar er að bankinn
skrái miðgengi hvers gjaldmiðils, en
jafnframt ákveðin fráviksmörk. Við-
skiptabankarnir hefðu þá svigrúm til
þess að mæta breytingum á gengi
yfir daginn, innan viðmiðunarmarka.
Birgir sagði að ef þessi leið yrði
valin þyrfti lagabreytingar við. Efla
þyrfti millibankamarkað til þess að
aðilar gætu leitað hagstæðasta gengis
á hverri stundu. Kostur væri að breyt-
ingar á gjaldeyrismarkaði kæmu skýrt
í ljós.
Markaðsskráning róttækasta
breytingin
í nefndarálitinu er einnig bent á
þá leið að taka upp markgengi. A
hveijum degi héldi Seðlabankinn við-
skiptafund þar sem skráð væru kaup
og sölutilboð. Skráð gengi bankans
væri fyrst og fremst til afr mæta þörf
sem skapast af viðskiptum á mark-
aðnum og til að ákveða dómsgengi.
Hér yrði um róttækustu breyting-
una á gjaldeyrismálum að ræða sem
nefndar eru í áliti nefndarinnar, að
sögn Birgis. Bankinn yrði að fá völd
til þess framfylgja yfirlýstri stefnu í
gengismálum.
íhlutun Seðlabankans yrði einkum
með tvennum hætti. í fyrsta lagi með
breytingu á vöxtum skammtímaskuld-
bindinga til að stjórna flæði fjár inn
og út úr landi. í öðru lagi gæti bank-
inn selt af gjaldeyrisforða sínum, eða
keypt gjaldeyri á markaði.
Birgir sagði að engin afstaða hefði
komið fram til þessara þriggja leiða.
Hann kvaðst þeirrar skoðunar að
nauðsynlegt væri að breyta núverandi
kerfi. Hinsvegar þyrfti að sýna aðgát
og gefa viðskiptabönkunum og Seðla-
bankanum langan frest til að laga sig
að gengisskráningu á ftjálsum mark-
aði.
Tenging við ECU
yki stöðugleika
Birgir vék næst að myntsamstarfi
Evrópuþjóða, EMS. ísland er nú eitt
Norðurlanda án tengsla við það. Nor-
egur, Svíþjóð og Finnland hafa hvert
um sig tengst samstarfinu með ein-
hliða aðgerðum.
EMS byggist á því að hver mynt
hefur skilgreint viðmiðunargengi
Friðarhlaup 1991:
Fólk frá A-Evr-
ópu tekur þátt
Friðarhlaup 1991 verður haldið á þjóðhátíðardaginn og verður
hlaupið frá Þingvöllum til Reykjavíkur. Eymundur Matthíasson er
einn af forsvarsmönnum hlaupsins og var rætt við hann um Friðar-
hlaupið.
„Sögu Friðarhlaupsins má rekja
aftur til 1987. Að því stendur Sri
Chinmoy maraþonliðið,íþróttasam-
tök sem leggja áherslu á uppbygg-
ingu líkama og sálar gegnum íþrótt-
ir. Þessi samtök starfa um allan
heim. íslandsdeild samtakanna varð
til \ kringum hlaupið 1987.
í fyrsta friðarhlaupinu hlupum
við umhverfís ísland. Þetta var boð-
hlaup með friðarkyndil. Við skipu-
lagningu hlaupsins nutum við sam-
starfs við Fijálsíþróttasamband ís-
lands. íþrótta- og ungmennafélög
kringum landið sáu hvert um sinn
hluta. Án þess hefði hlaupið vart
verið framkvæmanlegt. Svo um-
fangsmikil hlaup krefjast gífurlegr-
ar skipulagningar.
I upphafi ríkti talsverð óvissa um
hvemig hlaupið tækist til. Það gekk
hins vegar vonum framar og vakti
mikla athygli. Því var ákveðið að
gera Friðarhlaupið að reglulegum
viðburði, halda það á tveggja ára
fresti. Við höfum lagt okkur eftir
að fá stuðning íþróttamanna,
stjórnmálamanna og annarra. Að
sjálfsögðu vonumst við til að áfram-
hald verði á því.
I ár verður ekki hlaupið í kringum
Iandið enda em vinir okkar í Fijáls-
íþróttasambandinu með landshlaup.
Þess vegna verður hlaupið frá Þing-
völlum en það eru um 50 kflómetr-
ar. Það er liðlega maraþonvega-
lengd og því ættu duglegir hlaupar-
ar að geta hlaupið alla leið.
Hins vegar ætlumst við alls ekki
til að allir hlaupi alla leið og því
mun rúta fylgja hlaupinu alla leið
og auk þess hefur náðst samvinna
við Reykjavíkurborg um fríar rútu-
ferðir í átt að hlaupinu.
Hlaupinu lýkur síðan í Hljómská-
lagarðinum kl.13,45. Þar mun for-
seti borgarstjórnar, Magnús L.
Sveinsson, flytja ræðu og stuttu
síðar hefst landshlaup Fijálsíþrótta-
sambandsins.
Við leggjum höfuðáherslu á að
sem flestir taki þátt í hlaupinu.
Tilgangur hlaupsins er fyrst og
fremst sá að sýna á táknrænan
hátt að friður er mál allra. Friður
byijar innra með einstaklingum og
breiðist síðan frá manni til manns.
Það er ekki auðvelt að segja til
um hvort hlaupið hefur haft einhver
áhrif. Bein áhrif em aldrei merkjan-
leg. Hins vegar er varla hægt að
fullyrða að það hafi engin áhrif
haft. Það er okkur sem stöndum
að hlaupinu mikið gleðiefni að þjóð-
ir Austur-Evrópu skuli taka þátt í
hlaupinu í ár. Það skapar samkennd
milli þjóða.
Sérstaklega er ánægjulegt hve
hlaupið hefur vakið mikla og já-
kvæða athygli í Júgóslavíu. Þaðan
Sri Chinmoy, upphafsmaður
hlaupsins
emm við alltaf að heyra fréttir
sem benda til að allt sé að springa
í loft upp. Hins vegar hefur Frið-
arhlaupið hlotið þar mikla umfjöll-
un og þátttaka verið afar góð.
Þetta sýnir að talsverður vilji er
fyrir friði í landinu. Ég vona að
hlaup af þessu tagi geti stuðlað
að því að friðurinn haldist.
Áð lokum vil ég bara hvetja
fólk til að mæta og hlaupa á 17.
júní. Þetta getur orðið mjög
skemmtilegt hlaup. Ef veður helst
gott efast ég ekki um að þátttaka
í hlaupinu verði góð líka.“
Spánveijar ítreka kröfu um veiðiheimildir fyrir markaðsaðgang:
Afstaða okkar er kristal-
tær og mun ekki breytast
-segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Sjávarútvegsráðherra segir það makalaust, að Spánverjar skuli
draga fram sjónarmið sín í sjávarútvegsmálum, á Iokastigi samninga
EFTA og Evrópubandalagsins um evrópskt efnahagssvæði. Spánverjar
hafa í fréttatilkynningu ítrekað kröfur sínar um veiðiheimildir á Norð-
ur-Atlantshafi, og að EB-ríkjum verði leyfðar fjárfestingar í sjávarút-
vegi EFTA-landa.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að við
erum ekki tilbúnir til að ræða veiði-
heimildir í skiptum fyrir tollfijálsan
aðgang að mörkuðum EB. Sú af-
staða hefur verið kristaltær af okk-
ar hálfu og mun ekki breytast,"
sagði Þorteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra þegar yfirlýsing
Spánveija var borin undir hann í
gær.
Þar segja Spánveijar að þeim
hafi verið haldið utan við fiskimið
í Norður-Atlantshafi þrátt fyrir
veiðar annara Evrópubandalags-
ríkja á þeim slóðum. Og í ljósi þess
að staða sjávarútvegs á Spáni sé
erfið, sé Spánveijum nauðsynlegt
að fá fiskveiðiréttindi fyrir flota
Námstefna noirænna
r éttarfar sfræðinga
UM þessa helgi verður haldin á Selfossi norræn námstefna um réttarf-
ar á vegum félags, sem helgar sig þessu sviði lögfræðinnar. Gerð
verður grein fyrir nýlegum lagabreytingum um dómstólaskipan og
málsmeðferð.
Rætt verður um hinu svonefndu
Lugano-sáttmála um vamarþing og
gagnkvæma viðurkenninga dóma
um 6. gr. mannréttindasáttmála
Evrópu, sem er um réttláta málsmeð-
ferð fyrir dómi. Loks mun Hans
Gammeltoft-Hansen, umboðsmaður
danska þjóðþingsins, hafa framsögu
um aðstoð frá sérfræðingum í störf-
um dómstóla.
Formaður Samtaka norrænna
réttarfarsfræðinga er Hans Michels-
en fyrrverandi hæstaréttardómi í
Noregi.
Stjórnarmaður af Islands hálfu er
Stefán M. Stefánsson prófessor, sem
er meðal framsögumanna á nám-
stefnunni. Aðrir íslenskir framsögu-
menn - eru hæstaréttardómaramir
gagnvart hverjum hinna gjaldmiðl-
anna og evrópsku gjaldmiðilseining-
unni ECU. Mega einstakir gjaldmiðlar
sveiflast um viðmiðunargengið innan
marka, sem að jafnaði eru 2,25% á
hvom veg.
Ef gengi gjaldmiðils nálgast viðm-
iðunarmörkin er gert ráð fyrir að við-
komandi seðlabanki grípi til viðeig-
andi ráðstafana, með því að kaupa
og selja gjaldeyri.
Birgir sagði engan vafa leika á því
að tenging myntar við gjaldmiðil
svæðis sem býr við lága verðbólgu,
eins og gildir um ECU, væri til þess
fallin að draga úr verðbólgu og auka
stöðugleika. Skilyrði hagstjórnar gjör-
breyttust. Svigrúm til sjálfstæðrar
vaxta- og peningamálastefnu væri
stórlega skert. Stefna í ríkisfjármálum
fengi aukið vægi. Launþegar og fyrir-
tæki yrðu að taka raunhæfar ákvarð-
anir, þar sem launahækkanir á röng-
um forsendum myndu skerða sam-
keppnisstöðu fyrirtækja og auka
hættu á atvinnuleysi.
Birgir kvaðst þeirrar skoðunar að
ef þeir kostir er fylgdu tengingu við
ECU kæmu í ljós yrði lagður traustur
grunnur að efnahagslegum stöð-
ugleika, aukinni hagsæld og velmeg-
un.
Engin patent-lausn
Birgir sagði að tenging við ECU
Birgir ísleifur Gunnarsson
bankastjóri Seðlabankans.
væri ekki eina leiðin að þessu marki.
Sá kostur væri fyrir hendi að viðhalda
gildandi kerfi en taka í auknum mæli
mið af markaðsaðstæðum við gengis-
skráningu. „Stöðugleikinn myndi þá
fyrst og fremst byggjast á yfirlýsing-
um stjórnvalda og framkvæmd fast-
gengisstefnu en viðurkenna verður að
reynsla undanfarinna ára er ekki allt
of traustvekjandi,“ sagði hann.
„Við íslendingar þurfum að lokum
að kanna mjög rækilega hvort stíga
eigi það skref að tengja krónuna við
ECU. í allri umræðunni verðum við
að forðast að líta á þetta sem ein-
hveija patent-lausn á efnahagsvanda
okkar. Verst væri ef við stigum skerf-
ið en yrðum síðar að hrökklast til
baka — og gefast upp vegna skorts
á aga eða vegna sérstöðu íslensks
efnahagslífs," sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson Seðlabankastjóri.
sinn í fiskveiðilögsögu EFTA-ríkja.
Ekkert sé því til fyrirstöðu að semja
um tollaívilnanir á mörkuðum EB,
svo framarlega sem viðunandi
veiðiheimildir fáist í staðinn.
Þá segjast Spánveijarnir ekki
geta fallist á þær kröfur einstakra
aðildarríkja EFTA, að í samningum
um evrópst efnahagssvæði verði
tekið til frambúðar íyrir fjárfesting-
• ar útlendinga í sjávarútvegi. „Þeir
sem eru aðilar að Evrópubandalag-
inu ættu nú að vita það manna
best, að þeir hafa hafnað kröfum
okkar um fríverslun með sjávaraf-
urðir, vegna þess að þeir ætla sé
að viðhalda áfram styrkjakerfi í
sjávarútvegi. Og það liggur í aug-
um uppi, að það er ekki hlustað á
kröfur Evrópubandalagsins um
fijálsan aðgang til fjárfestinga í
sjávarútvegi við slíkar aðstæður og
ég er í meira lagi hissa á að þeir
skuli láta svona lagað út úr sér
þegar komið er á lokastig þessara
samninga,“ sagði Þorsteinn.
Utanríkisráðherra hefur nýlega
sagt að skipti á gagnkvæmum
veiðiréttindum komi til greina í
tengslum við sjávarútvegssamning
íslendinga og Evrópubandalagsins.
Þorsteinn sagði um þetta, að menn
hefðu alltaf verið tilbúnir til að
ræða gagnkvæman samstarfs-
samning. „Það á ekkert skylt við
það að veita veiðiheimildir fyrir
tollafríðindi og er því alveg óvið-
komandi," sagði Þorsteinn Pálsson.
Brottnám líffæra úr látnum í undirbúningi:
Fyrirsjáanleg er
styttri bið eftir
ígræðslu erlendis
ÆTLA má að hérlendis verði 8-9 dauðsföll árlega þar sem til falla
líffæri er nýst gætu sjúklingum. Kom þetta fram í máli Páls Ás-
mundssonar læknis á þingi Norræna ígræðslufélagsins sem nú stend-
ur yfir í Reykjavík. Páll sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
hingað til hefðu Islendingar verið þiggjendur líffæra erlendis en
með löggjöf um heiladauða og Iíffæraflutninga frá því í mars sl.
hefðu skapast forsendur fyrir því að Islendingar létu eitthvað af
mörkum í staðinn. Starfandi væri vinnuhópur sem undirbúa ætti
slíkt. Páll sagðist telja að fyrir vikið myndu íslenskir sjúklingar
eiga greiðari aðgang að sjúkrahúsum crlendis þar sem bið eftir
ígræðslu er löng.
Páll segir að líffæri úr látnum
manni sem uppfylla ákveðin skil-
yrði geti að jafnaði nýst fjórum til
fimm sjúklingum. Hugsanlega
gætu íslensk líffæri því komið tug-
um sjúklingum að gagni á ári
hveiju. „í staðinn er líklegt að for-
svarsmenn erlendra stofnana settu
íslenska sjúklinga á biðlista með
sama rétt og þeirra eigin landar."
Hingað til hafa íslendingar fyrst
og fremst skipt við ríkisspítalann
í Kaupmannahöfn sem ásamt fleiri
síkum stofnunum á Norðurlöndum
er aðili að Scandiatransplant, nor-
rænni samstarfsstofnun um líffær-
aflutninga. Hins vegar benti Páll á
að Danir hefðu líkt og íslendingar
dregið mjög að setja lög um heila-
dauða og hefðu því ekki eins mikla
reynslu af hjarta- og lungna-
ígræðslu og t.d. Norðmenn og
Svíar.
Það kom fram á þingi Norræna
ígræðslufélagsins í gær að hvar-
vetna á Norðurlöndum er samþykki
hins látna eða aðstandenda skilyrði
þess að líffæri séu numin brott.
Var nokkuð rætt um gildi korta
sem menn bera á sér til að sýna
vilja sinn til að gefa líffæri við
andlát. í ljósi reynslu annarra þjóða
sagðist Páll hafa efasemdir um að
það borgaði sig fyrir íslendinga að
innleiða slík kort. „Það kom fram
í máli eins fyrirlesarans, Arthurs
Caplans, frá Minnesota-háskóla,
að bandarískir læknar taka ekki
mikið tillit til slíkra korta. Menn
hafa þá reglu að leita ætíð sam-
þykkis aðstandenda óháð því hvort
hinir látnu bera kortin eður ei. Gildi
slíkra korta er því fyrst og fremst
að vekja umræður innan ljöl-
skyldna og búa aðstandendur undir
það að gefa samþykki fyrir líffæra-
brottnámi. Af því má draga þann
lærdóm að dreifing slíkra korta
væri mikil fyrirhöfn sem skilaði
árangri sem e.t.v. mætti ná betur
með öðrum aðferðum, eins og al-
mennri fræðslu."
í erindi sínu lagði Caplan einnig
áherslu á mikilvægi fræðslu fyrir
heilbrigðisstéttir. Hann sagðist
hafa rekið sig á að margt starfs-
fólk sjúkrahúsa hefði efasemdir um
þá nýju skilgreiningu dauða sem
víðast hvar er að ryðja sér til rúms
semsé að maður teljist látinn þegar
heilastarfsemi er hætt og fullljóst
að hún getur ekki hafíst á ný.
Hefðbundin skilmerki dauða hafa
eins og kunnugt er verið þau að
hjarta sé hætt að slá og öndun
fari ekki lengur fram.
Páll tók undir orð Caplans um
mikilvægi fræðslu fyrir starfsfólk
spítala einkurn á því sjúkrahúsi þar
sem tilfelli af þessu tagi kæmu
helst upp, þ.e. á Borgarspítalanum
þvi þar er slysavarðstofan og eina
taugaskurðaðgerðadeild landsins.
Óneitanlega verði nýstárlegt fyrir
þá sem nærri koma að sveit manna
erlendis frá komi til að sækja líf-
færi úr látnum sjúklingum og það
krefjist mikils undirbúnings, þjálf-
unar og fræðslu.