Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991 Heilsuhælið í Hveragerði: Uppsagnir yfirlækn- anna afturkallaðar Bráðabirgðastjórn Heilsuhælisins í Hveragerði dró í gær til baka uppsagnir tveggja yfirlækna, sem vikið var frá störfum fyrir skömmu. Þetta gerðist í kjölfar fundar heilbrigðisráðherra, Sighvats Björgvins- sonar, með formanni bráðabirgðasljórnarinnar og stjórnarmönnum úr Læknafélagi íslands. Á fundinum kom jafnframt fram, að stjórn Lækna- félagsins muni væntanlega ákveða á fundi sínum í næstu viku að draga til baka áskorun sína til lækna um að sækja ekki um störf á hælinu. Bráðabirgðastjórn Heiisuhælisins í Hveragerði sendi stjórn Læknafé- lags íslands erindi á þriðjudaginn, þar sem óskað var eftir því að hún breytti tilmælum sínum til félags- manna, um að sækja ekki um störf á hælinu. Bráðabirgðastjómin lýsti jafnframt yfir vilja sínum til að draga til baka brottvikningu tveggja yfir- lækna hælisins. Stjóm Læknafélagsins fundaði um málið á þriðjudaginn og var niður- staða hennar, að áður en félagið endurskoðaði afstöðu sína í máli þyrfti að liggja fyrir af hálfu heil- brigðisráðherra, hvemig rekstri hæl- isins yrði háttað í framtíðinni. Heilbrigðisráðherra hélt í gær fund með stjómarmönnum úr Læknafélaginu og Pétri Jónssyni, neytinu, segir, að á fundinum hafi einkum verið rætt um afstöðu stjórn- ar Læknafélagsins í málefnum hælis- ins, eftir að bráðabirgðastjórnin tók þar við. Þar hafí komið fram af hálfu ráðherra, að Heilsuhælið yrði rekið sem endurhæfingarstofnun, sem félli undir lög um heilbrigðisþjónustu, en Læknafélagið hefði lagt áherslu á að fá staðfestingu á því. Páll segir að á fundinum hafi jafn- framt komið fram, að bráðabirgða- stjómin hygðist afturkalla uppsagnir yfirlæknanna sem vikið var frá störf- um og að stjórn Læknafélagsins myndi væntanlega ákveða í næstu viku að draga til baka áskoran sína til lækna um að sækja ekki um störf á hælinu. Kristslíkneski brotið Morgunblaðið/KGA Þriggja metra hátt Kristslíkneski eftir Einar Jónsson var brotið í Hallgrímskirkju í gær og einnig stór kertastjaki úr smíðajárni. Sá sem framdi verknaðinn flúði af vettvangi en var handsamaður af lögreglunni í garði Hnitbjarga, listasafns Einars Jónssonar við Njarðargötu. Höfuðið brotnaði af líkneskinu og einnig brotn- aði úr annarri hliðinni. Maðurinn, sem að sögn lögreglunnar á við geðræn vandamál að stríða, dvelst nú í fangageymslu. formanni Heilsuhælisins. ráðuneytisstjóri bráðabirgðastjómar Páll Sigurðsson, í heilbrigðisráðu- Vogavík: Rúmlega 1.000 laxar gengnir RÚMLEGA 1.000 laxar hafa skilað sér til hafbeitarstöðvar- innar Vogavík i Vogum á Vatnsleysuströnd, og er þar fyrst og fremst um tveggja ára fisk að ræða. Þetta eru svipað- ar heimtur og á sama tíma í fyrra, en búist er við að eins árs lax fari að skila sér í aukn- um mæli í lok mánaðarins. Að sögn Sesselju Guðmunds- dóttur stöðvarstjóra hjá Vogavík vora heimturnar hjá stöðinni rúmlega 1% af eins árs laxi í fyrra, og svipað heimtist þá af tveggja ára laxi. Hún sagði að miðað við ástand sjávar við sleppingar í fyrra væri ekki búist við endurheimt á meira en 3% af eins árs laxi í sumar og um 1% af tveggja ára laxi. í fyrra var sleppt 1.300 þúsund seiðum hjá Vogavík, en árið á undan var 1.800 þúsund seiðum sleppt. Byggðastofnun fær 200 millj. til að aðstoða rækjuvinnsluna Duga skammt ef koma á öllum rækjuiðnaðinum á réttan kjöl, segir Matthías Bjamason nýskipaður stjómarformaður RIKISSTJÓRNIN ákvað í gær að veita 200 milljónum króna til rækjuiðnaðarins með milligöngu Byggðastofnunar. Heimild var til þessa í lánsfjárlögum. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði í gær að ekki yrði um frekari fyrirgreiðslu til greinarinnar að ræða. Matthías Bjarnason alþingismaður hefur verið skipaður formaður stjórnar Byggðastofnunar og hefur hann boðað til stjórnarfundar næstkomandi þriðjudag. Hann segir þessar 200 milljónir króna duga skammt ef koma eigi öllum rækjuiðnaðinum á réttan kjöl aftur. Lárus Jónsson framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda segir að auk þessara peninga þurfi að koma til skuldbreytingar vanskilalána fyrirtækjanna. milljónir króna gætu með þessum hætti gert fyrir rækjuiðnaðinn. „Ef á að koma rækjuiðnaðinum öllum á réttan kjöl, þá hrekkur þetta skammt. Þetta er auðvitað hjálp, en það vantar mikið til að allt komist á réttan kjöl, það þarf margt annað að gera,“ sagði Matthías. Lárus sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að rækjuvinnslan hefði óskað eftir því að ríkisstjórn- in tæki til athugunar að nýju að taka lán til Verðjöfnunarsjóðs og greiða einstökum framleiðendum hluta af því verðfalli sem orðið hefur á síðastliðnu ári. „Við því Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins: Staða sjóðsins hef- ur versnað um nær helming á 11 árum STAÐA Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur versnað um nær helm- ing frá árinu 1978 eða á 11 árum þegar Guðjón Hansen, tryggingar- fræðingur, gerði úttekt á sjóðnum. Þá voru heildarskuldbindingar sjóðs- ins umfram eignir 43 milljarðar króna en voru í árslok 1989 sam- kvæmt tryggingarúttekt Jóns Erlings Þorlákssonar, 88 milljarðar króna. var ekki orðið,“ sagði Lárus. „Það er nánast sama niðurstaða og við fengum hjá fyrri ríkisstjórn.“ Hann sagði erfitt að meta hve mörgum fyrirtækjum þessi fyrir- greiðsla gæti bjargað út úr erfið- leikunum. Hann sagði að menn yrðu að velta fyrir sér hvernig taka ætti á þessum málum til frambúðar, ekki síst í ljósi mikilla styrkja til rækjuvinnslunnar í helstu samkeppnislöndunum, Nor- egi og Grænlandi. Matthías Bjarnason sagði að stjórnarfundur Byggðastofnunar hefði verið boðaður 25. júní næst- komandi og yrði þá fjallað um málið. Hann var spurður hvað 200 LIU ályktar um fijáls olíuviðskipti: Flutningsj öfnuður verði felldur niður Olíufélagið vill viðhalda flutningsjöfnun STJÓRN Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur samþykkt að taka upp viðræður við olíufélögin um að beita sér fyrir því við stjórnvöld að olíuviðskipti verði gefin fijáls. Mælt er með að ákvæði um flutningsjöfnuð og innkaupajöfnuð á gasolíu og svartolíu verði feUd úr gildi og Verðlagsráð gefi verðið fijálst. í frétt frá LIÚ kemur fram að Iögin telji það hagkvæmt. Þá segir efni samþykktarinnar hafi verið kynnt fulltrúum olíufélaganna og hafa tvö þeirra lýst sig samþykk ályktuninni en Olíufélagið hf. telur að viðhalda eigi flutningsjöfnun en samþykkir ályktunina að öðru leyti. I samþykkt stjórnar LÍÚ kemur fram að eftir sem áður verði keypt olía frá Sovétríkjunum þegar olíufé- að vegna tengingar olíuverðs við skiptakjör sjómanna sé óskað eftir því að olíufélögin gefi LÍÚ upp verð á gasolíu í birgðum miðað við hver mánaðamót. Hefur ályktunin verið send við- skiptaráðherra og þess óskað að hann vinni að þeim breytingum á viðskiptum með olíuu, sem í álykt- uninni felast. Landsbankinn: Ástæður fyrir því að staða sjóðsins hefur versnað svo á stuttum tíma eru samkvæmt úttekt Jóns Erlings helstar þær, að þessa 43 milljarða hefur vantað í sjóðinn auk raunvaxta af þeim í 11 ár. Höfuðstóll sjóðsins hélt áfram að brenna upp í verðbólgu og 1980 vora aðeins 22% eigna sjóðs- ins verðtryggð. Þá hefur sjóðfélögum fjölgað mjög ört þetta tímabil og gjöld til sjóðsins hafa aldrei náð því að standa undir þeim réttindum sem sjóðurinn veitir fyrirheit um. Enn- fremur hafa réttindi sjóðfélaga verið aukin á þessum tíma. í úttektinni era skuldbindingar sjóðsins reiknaðar út með tvennum hætti. Annars vegar er rætt um áfallnar skuldbindingar og þær töld- ust 56 milljarðar umfram eignir í árslok 1989. Þá er miðað við það að sjóðnum sé lokað og sjóðfélögum greidd út þau réttindi sem þeim ber samkvæmt lögum sjóðsins jafnóðum og þau falla til. Væra iðgjöldin þann- ig hækkuð núna úr 10% í 26,4% til að standa undir réttindum, myndi samt skorta 56 milljarða á að sjóður- inn ætti eignir fyrir skuldbindingum sínum. Hins vegar eru einnig reiknaðar út heildarskuldbindingar sjóðsins. Þá er við það miðað að þeir sem greiða í sjóðinn nú muni greiða í hann áfram út starfsævina og frá réttindi í sam- ræmi við það, þó iðgjöld haldist áfram óbreytt 10%. Þá þarf að leggja sjóðnum til ofangreinda 88 milljarða króna til þess að hann geti staðið við skuldbindingar sínar, en sam- svarandi upphæð var 43 miljarðar króna árið 1978 eins og fyrr sagði. Allri fyrirgreiðslu hætt til fiskeldisfyrirtækja BANKASTJÓRN Landsbanka íslands hefur sent framkvæmdastjór- um þeirra laxeldisfyrirtækja, sem viðskipti hafa átt við bankann, tilkynningu um að bankastjórnin hafi ákveðið að hætta fyrirgreiðslu til laxeldisfyrirtækja. I bréfi til framkvæmdastjóranna segir að þetta sé gert með hliðsjón af stöðu laxeldis í landinu í dag og framtíðar- möguleikum greinarinnar, og þar sem nú Iiggi fyrir sú ákvörðun stjórnvalda að veita fé til einhverra fyrirtækja í tilraunaskyni. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hefur Landsbank- inn lánað langmest af viðskipta- bönkunum til fiskeldisfyrirtækja, eða samtals um 1,2 milljarða króna í afurða- og rekstrarlán, og lítur bankinn á þetta sem tapað fé að meginhluta til. Búnaðarbanki íslands hefur sam- tals lánað 324 milljónir til fískeldis- fyrirtækja, en þar af eru afurðalán um 170 milljónir. Sjö starfandi fisk- eldisfyrirtæki eru nú í viðskiptum við bankann, og að sögn Kristins Zimsen, aðstoðarbankastjóra, verð- ur engin breyting á viðskiptum bankans við þau. Hann sagði að bankinn hefði þó engan hug á að hefja viðskipti við fleiri fiskeldisfyr- irtæki. íslandsbanki hefur lítil viðskipti við fiskeldisfyrirtæki nú orðið, að sögn Vals Valssonar bankastjóra, en helstu fyrirtækin sem bankinn hafði í viðskiptum eru nú gjald- þrota. Hann sagði að bankinn hefði því að mestu afskrifað það fé sem hann hefði lánað til fiskeldis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.