Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991 Minning: Magnhildur Bender Þegar litið er yfir farinn veg er líf manns eins og púsluspil. Mörg minningabrot 'mynda æviferilinn. Sum eru aðeins smáleiftur en önnur svo stór þáttur í myndsköpuninni að án þeirra yrði ómögulegt að hugsa sér heildarmynd. Svo mikil- væg var Magnhildur frænka mín, Lóa, í lífi mínu og ég get ekki gert mér grein fyrir því hvernig það hefði orðið ef hennar þátt vantaði þar í. Lóa kom á heimili foreldra minna árið 1939, þá fimmtán ára gömul. Hún var þar þegar ég fæddist, ári síðar, og við vorum samferða allar götur síðan þótt við ættum ekki sama heimili nema í 17 ár. Við vor- um systradætur, uppeldissystur og vinkonur. Nú er hún horfin sjónum okkar samferðafólksins og við sem vorum henni náin stöndum hnípin og sorg- mædd — en rík af minningum um yndislega konu og full þakklætis fyrir að hafa öðlast hana sem mikil- vægan hluta í lífsmynstrinu. Magnhildur Pálsdóttir Bender var fædd í Kolgröf í Skagafirði 31. maí 1924. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Magnúsdóttir og Páll Sig- urðsson, en þau bjuggu síðast í Keldudal í Hegranesi í Skagafirði. Hún var næstelst sjö systkina; þeirra Sigurðar, Skarphéðins, Reyn- is, Hólmfríðar, Gests og Hólmars. ÚRVALS bón- og hreinsivörurl Olíufélagið hf Lóa var ákaflega starfsöm kona og vandvirk og hún stundaði störf sín af samviskusemi og ánægju, hvort sem það var að sinna heimili fyrir frænku sína, Önnu, og mann hennar, Bernhard Petersen, og að- stoða við að koma bömunum þar til manns, sinna afgreiðslustörfum m.a. í Austurbæjarapóteki, sem hún gerði í mörg ár fyrir hjónaband, selja heimilisblaðið Eldhúsbókina, ræsta í æfingadeild Kennaraháskóla íslands eða taka þátt í umönnun aldraðra sem var atvinna hennar allmörg seinustu árin. Það lék allt í höndunum á henni og vílaði hún ekki fyrir sér að takast á við ný verkefni. Hún var virkjur þátttak- andi í félagsskap Málfreyja í mörg ár og naut þess að spreyta sig á ýmsum verkefnum sem henni voru falin. Margt kenndi hún mér og gat ég ávallt flett upp í henni ef mig rak á gat í hinum ýmsu húsmóðurstörf- um og oftar en ekki var fljótlegra að fara til Lóu frænku en leita í bókum. Ekki skipti máli þótt ég þyrfti að notast við landsímann í fjöldamörg ár ef ég var í vandræðum og þurfti að fá ráð hjá henni. Auðvit- að var það dýrara, en þúsund sinn- um öruggara. Hún hughreysti mig margsinnis og treysti ég alltaf ráð- um hennar. Hún hafði gott skipulag á öllum hlutum og er mér t.d. ógley- manlegt þegar ég fór með henni og móður minni í innkaupaleiðangur fyrir jól, en Lóa sá um að kaupa flestar jólagjafir fyrir móður sína handa ýmsum afkomendum henanr, þar til móðir hennar lést árið 1988. Bamabarnabömin, sem áttu að fá gjafír, voru 25 eða fleiri og hafði Lóa skrá yfír aldur þeirra og ýmis- legt sem koma að gagni að vita þegar hún var að velja gjafimar. Hún gekk að þessu eins og hveiju öðru verki sem unnið var af alúð og öryggi. Það sem við otuðum að henni, náttkjólar, húfur eða eitt- hvert dót féll ekki alltaf í kramið því að annaðhvort hafði það verið valið árið áður eða þörf á einhvetju öðru frekar, liturinn hentaði ekki en stundum var það nákvæmlega það sem hún var að leita að. Það var eins og hún hefði tölvu í höfðinu svo nákvæm var hún i samlagningu á öllum þeim varningi sem safnaðist í gjafapokana. Þegar við komum heim, gengnar upp að hnjám, spörk- uðum við af okkur skótauinu og fengum okkur góða „kjaftatörn“ og hlógum saman sem oftar. Ég mun sakna rabbstundanna -okkar, ekkert mun koma í þeirra stað. Hún giftist Sófusi Bender bifreið- astjóra 11. maí 1957. Ég man eftir því að okkur krökkunum á Flóka- götu 25 fannst að hann Sófus væri að taka hana Lóu frá okkur, en eitt er víst að það gerði hann ekki held- ur eignuðumst við í honum góðan vin sem okkur öllum þótti mjög vænt um, enda var hann öðlings- maður og ljúfmenni. Hann lést 1. maí 1988. Þau eignuðust tvo syni, Gunnar og Ingvar Júlíus, sem er kvæntur Guðríði Önnu Jóhannsdótt- ur og eiga þau dótturina Petru níu ára og soninn Anton ársgamlan. Fjölskyldan og heimilið var Lóu frænku minni eitt og allt. Uppeldi sonanna var hennar hugðarefni og voru þau Sófus samhent í því sem öðru. Strákunum fannst þau eflaust oft ströng en það er víst að ekki hefur það skaðað þá enda voru þau hlý og ástúðleg í umvöndunum sín- um. Þeir bræður hafa erft ljúf- mennsku og alúð foreldranna og hlýlegra samband á milli móður og uppkominna sona, en var hjá Lóu og drengjunum, er varla hægt að hugsa sér. Eftir lát Sófusar hélt Lóa fyrir alvöru út á vinnumarkaðinn. Ekki reyndist auðvelt að fá starf sem henni féll og fóru margir á mis við góðan starfskraft, en á þeim árum var miðaldra húsmóðir ekki eftirsótt á skrifstofur borgarinnar. Vélritun- arkunnátta, bókhaldsþekking eða samviskusemi og aðrar slíkar dyggðir voru ekki tíundaðar. Hjá mörgum atvinnurekandanum sem óskaði eftir starfskrafti var slík umsókn ekki svaraverð og virtist aldur og húsmóðurstarfíð ráða úr- slitum um að slík persóna væri ekki hæf. En hún frænka mín lagði ekki árar í bát og eftir að hafa verið starfstúlka á dvalarheimili aldraðra við Dalbraut í nokkur ár bauðst henni starf í félagsmiðstöð aldraðra í Bólstaðarhlíð 43, þegar hún var opnuð. Þar tel ég að hún hafi verið komin í draumastarfið, og ég veit að hún saknaði starfsins sárt þegar veikindin tóku starfsorku hennar. Það var henni þó huggun harmi gegn að fínna þá hlýju og einstöku vinsemd sem streymdi til hennar frá samstarfsfólki hennar í Bólstaðar- hlíðinni. Ég er viss um að hún myndi vilja að ég þakkaði þessu fólki fyrir allt það sem það gerði fyrir hana. Ekki aðeins mátti hún koma til vinnu þegar hún treysti sér til, held- ur buðu samstarfsstúlkurnar henni í dvöl vestur á Reykhólum á Barða- strönd í fyrrasumar til þess að hún gæti fyrr náð sér eftir stórar Iæknis- aðgerðir og lært að þekkja nýjar aðferðir í matargerð og lifnaðar- háttum sem gestir þar vestra læra að tileinka sér og talið er að gefíst vel, m.a. í baráttunni við sjúkdóminn krabbamein. Þijár starfssystur hennar heim- sóttu hana á 67 ára afmælisdaginn hennar, sem var réttri viku áður en hún lést. Þær buðu henni með sér í leikhús og voru tilbúnar að aðstoða hana á allan hátt við að komast með. Það var stoltið, járnviljinn og lífslöngunin sem hjálpaði Lóu til að fara með þeim í þessa leikhúsför, sem hún naut mjög. Hún hitti fjölda fólks sem hún hafði kynnst í Ból- staðarhlíðinni og sagði mér að allir hefðu fagnað henni, kysst hana og faðmað og ekki látið á sig fá að útlitið væri breytt. Lóa hafði gert það upp við sig að takast á við lífið til hinstu stundar og þrátt fyrir áverka sjúkdómsins var hún sama ljúfa konan og áður og það var það sem fólkið skynjaði. Aðeins tæpri viku áður en hún fór í leikhúsið dreif hún sig einnig upp af sjúkrabeðinum, dubbaði sig upp og mætti á ættarmót móðurfjöl- skyldu sinnar. Þetta mót var ráð- gert á liðnu ári og vorum við saman í undirbúningsnefndinni. Lét hún HYUNDAI MÓTÖLD 1200 og 2400 baud, bæöi frístandandi og innbyggð í tölvur. 2400 baud gerðin fæst með gagnaþjöppu og villueftirliti með MNP 5 staðli. Verð frá aðeins kr. 16.497.00 án VSK. Miðstöð tölvuviðskiptanna § TZ["'| i||/K 111 #A 1 s IÆKNIVAL SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665 sitt ekki eftir liggja og tók þátt í undirbúningnum allt fram á móts- dag. Einnig í þetta sinn var það hark- an og áhuginn sem hjálpaði henni að komast það sem hún hafði ætlað sér. Mótið tókst miklu betur en við höfðum þorað að vona en vorum báðar með fíðring í maganum dag- ana áður, vegna óvissu um mætingu og áhuga fjölskyldu okkar. En það voru 190 afkomendur ömmu okkar og afa, Efimíu Bóasdóttur og Magn- úsar Andréssonar frá Kleifum í Kaldbaksvík, sem komu saman á sunnudagssíðdegi til að hitta fjöl- skyldu sína og fagna því að vera svo ríkir af ættingjum. Ég er þakk- lát fyrir að Lóa frænka mín náði takmarki sínu að vera með okkur þennan eftirminnilega dag og hún lék á als oddi. Hún var engum lík. Að kynnast því hvernig Lóa brást við veikindum sínum var mér lær- dómsríkt. Hun horfðist í augu við dauðann eins og við eigum líklega að gera. Hún undirbjó sig og fjöl- skyldu sína fyrir viðskilnaðinn. Hún gekk frá málum sínum á þann veg að engin spurningarmerki yrðu þeg- ar hennar nyti ekki lengur. Hún var viðbúin því sem koma skyidi. Þennan erfíða tíma naut hún ein- stakrar umönnunar Gunnars sonar síns, sem hefur alla tíð haldið heim- ili með móður sinni, Ingvars og konu hans. Og börnin lífguðu tilver- una, þótt ekki væru kraftar til þess að hossa þeim eins og hún vildi. Hólmfríður systir hennar og mað- ur hennar, Páll, léttu undir með henni og þótt fjarlægðin væri nokk- ur gaf það einlæga samband sem alltaf var á milli þeirra systra henni mikinn styrk, svo og umhyggja Sigr- únar, dóttur Sófusar af fyrra hjóna- bandi, sem býr í Bandaríkjunum. Fóstursystir Lóu, Ingibjörg Stella Guðvinsdóttir, reyndist henni svo vel að ég held að slíkt sé einstakt. Hún kom norðan úr landi til að hjúkra henni og fundum við hve mikið traust Lóa bar til hennar og nú í síðustu viku þegar von var á Stellu eina ferðina enn sagði hún að allt yrði í lagi á meðan að Stella væri hjá sér, sem hún gerði þar til yfír lauk. Ég er viss um að Guð launar henni Stellu þann kærleika sem hún sýndi henni Lóu frænku minni, ekki síst á þeim 14 mánuðum sem liðnir eru síðan sjúkdómurinn greindist. Ég get ekki lokið þessum kveðju- orðum án þess að minnast á þann þátt sem hjálpaði henni frænku minni ekki minnst til þess að takast á við erfið veikindi, sætta sig við örlögin og vera raunsæ. Það er þátt- ur starfsliðs Heimahlynningar Krabbameinsfélags íslands. Þegar ég orðaði fórnfúst starf við einn hjúkrunarfræðinginn sagði hann að þetta væri ekki fórnfysi heldur ákveðin hugmyndafræði sem unnið væri eftir. Ég veit kki hvað á að kalla slíka aðhlynningu en að það skuli vera til fólk sem líknar sjúkum á slíkan hátt og styrkir aðstandend- ur eins og starfsfólk heimahlynning- arinnar gerir er ómetanlegt og verð- ur seint fullþakkað. Lóu varð að ósk sinni að geta verið heima til hinstu stundar, hún lést þar að morgni 8. júní sl. í faðmi ástvina. Það er komin kveðjustund, ég þakka samfylgdina og allt sem hún Lóa mín kær var mér og fjölskyldu minni. Ég þakka einnig fyrir ástrík- ið sem hún sýndi móður minni ætíð og ómetanlegan stuðning við hana. Móðir mín hefur ekki aðeins misst kæra frænku sína heldur einnig bestu vinkonu sína og trúnaðarvin, á mili þeirra bar aldrei skugga. Ég bið góðan Guð að taka elsku- lega.frænku mína, Magnhildi Bend- er, í faðm sinn og gefa henni frið. Elsa Petersen í dag kveðjum við kæra sam- starfskonu og góðan vin, frú Magn- hildi Bender, en hún starfaði síðustu æviár sín i Félagsmiðstöð aldraðra, Bólstaðarhlíð 43. Fyrir rúmu ári veiktist hún af ill- kynja sjúkdómi sem hún barðist hetjulega gegn fram til hins síðasta, en þegar líðan hennar leyfði kom hún til vinnu og var gott að njóta starfskrafta hennar og fá góð ráð hjá henni, sem ætíð voru gefín af skynsemi og vel yfirveguð. Ánægjulegt var að fara með henni á fallegum sólskinsdegi í leik- hús 1. júní sl. Og sjá hve hún naut þess að sjá „Söngvaseið" en það hafði verið ein helsta uppáhalds kvikmynd hennar. Við kveðjum hana með söknuði og vottum sonum hennar og fjöl- skyldu allri okkar dýpstu samúð. Samstarfsfólk í Bólstaðarhlíð 43 Stykkishólmur: Landsvirkjun sem- ur um umframorku Stykkishólmi. NÝLEGA hefur Landsvirkjun gert samninga um kaup og nýt- ingu afgangsorku hér á svæðinu. Var fyrri samningurinn undirrit- aður í Ólafsvík fyrir seinustu mánaðamót, en hann felur í sér að Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. kaupir orku með ýmsum skilyrð- um. Helstu skilyrðin eru þau að ef Landsvirkjun (RARIK) verður uppi- Vörur úr lífrænt ræktuðu komí Faxafell hf. sími 51775 skroppa með algenga raforku verð- ur umframorkan tekin fyrirvara- laust, sem þýðir að þá verður Hrað- frystihúsið annaðhvort að sætta sig við það eða bregða upp varaafli með díselstöð sem tiltæk mun verða ef á þarf að halda. Auk þessa eru svo ýmis skilyrði af beggja hálfu. Er með þessu um helmings sparnað- ur á raforku og er það mikil stoð í umfangsmiklum rekstri. Þá hefur eins samningur verið undirritaður í Stykkishólmi og á þar í hlut Sund- laug Stykkishólms. Asgeir Ólafsson rafveitustjóri í Stykkishólmi segir að þetta séu fyrstu samningar sinnar tegundar sem Landsvirkjun og RARIK hafa gert hér um sölu á umframorku fyirtækjanna. Einnig gat hann þess að ef þessir samningar yrðu í fram- kvæmd til góðs myndi vonandi hægt að bjóða fleirum slík við- skipti. Þessa samninga má endur- skoða á vissu millibili. - Árni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.