Morgunblaðið - 24.07.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.07.1991, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991 Þröngir hagsmunir eöa þjóðarheill eftir Gylfa Þ. Gíslason Þriðja grein i Séu menn sammála um það, að markmið fiskveiðistjórnarinnar sé að vemda fiskistofnana og efla hagkvæmni í útgerð, fyrst og fremst með því að minnka fiski- skipaflotann, hljóta menn að kom- ast að þeirri niðurstöðu, að þessi markmið hafi ekki náðst. Tillögur Hafrannsóknarstofnunar nú benda einmitt til þess, að fiskverndunar- markmiðið hafi ekki náðst. Skipu- lagi fiskveiðistjórnarinnar verður samt með engu móti um það kennt. Á grundvelli gildandi lagasetningar hafa stjómvöld getað tekið hveijar þær ákvarðanir, sem þeim hefur sýnst, varðandi það magn, sem leyft hefur verið að veiða. Oðru máli gegnir hins vegar um hagkvæmnis- sjónarmiðið. Ástæðaþess, að flotinn hefur haldið áfram að stækka og að nauðsynleg hagræðing hefur ekki átt sér stað, stendur hins veg- ar í beinu sambandi við galla á fisk- veiðistefnunni sjálfri, og á hið sama við um það efnahagslega misrétti milli atvinnugreina og það þjóðfé- lagslega ranglæti, sem hlotizt hefur og hlýzt af framkvæmd fiskveiði- stefnunnar, eins og hún hefur verið og er. Fiskveiðistefnan frá 1984 var tvímælalaust framför miðað við skrapdagakerfið, að ekki sé talað um það kerfí fijálsra og ókeypis fiskveiða, sem áður ríkti. Allar þær breytingar, sem gerðar hafa verið á kerfinu frá 1984, hafa verið til bóta. Á það sérstaklega við um heimildir til framsals á kvótum og afnám sóknarmarksins um síðustu áramót. En hvað hefur þá farið úrskeiðis? II Það er fyrst og fremst tvennt. Annars vegar hefur flotinn ekki minnkað eins og æskilegt hefði ver- ið. Hann hefur þvert á móti haldið áfram að vaxa þangað til nýlega. Hins vegar hefur fiskveiðistefnan haft ranglátar afleiðingar. Þær eru sumpart efnahagslegar, sumpart þjóðfélagslegar. Efnahagslega ranglætið hefur komið fram í því, að hallað hefur verið á aðrar út- flutningsgreinar en sjávarútveg, þótt þær afli nær helmings allra gjaldeyristekna þjóðarbúsins. Þjóð- félagslega ranglætið hefur komið fram í hinu, að auður hefur safnazt á hendur einstakra útgerðarfyrir- tækja í skjóli kerfisins, auður, sem á rót sína að rekja til sölu verð- mætra réttinda, sem fyrirtækin hafa fengið afhent án greiðslu. Þá vaknar sú spurning, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, og hvort hægt sé að fyrirbyggja, að slíkt gerist áfram. Hugmyndin að baki veiðigjaldi hefur frá upphafí verið sú að örva tilhneigingu til minnkunar flotans og þeirrar hagræðingar, sem það hefði í för með sér, og koma í veg fyrir það efnahagslega og þjóðfé- lagslega ranglæti, sem afhending veiðileyfa án gjalds hefði í för með sér. í núgildandi kerfi hefur verið treyst á það, að heimild til fijáls framsals á veiðileyfum mundi stuðla að hagræðingu í nægilega ríkum mæli. Sá, sem þetta ritar, hefur alltaf talið þá trú ranga. 0g reynsl- an hefur hingað til ekki sýnt, að heimildir til frjáls framsals á veiði- kvótum dugi til þess, að nægileg minnkun flotans og nægileg hag- ræðing eigi sér stað. Skýringin er einfaldlega sú, að meðan ekki þarf að greiða fyrir veiðileyfin er óhag- kvæmum skipum haldið of lengi til veiða. Veiðigjald er nauðsynlegt til þess að herða á hagræðingunni. Hinn tilgangur veiðigjalds er síðan sá að koma í veg fyrir mis- rétti milli útflutningsgreina og tryggja eiganda fiskistofnanna, þjóðarheildinni, í einhverju formi réttmætan arð af eign sinni, í stað þess að eðlileg renta af þessari þjóðarauðlind verði undirrót rang- látrar eignasöfnunar hjá einstökum útgerðarmönnum eða fyrirtækjum í sjávarútvegi. III. Hér er rétt að víkja enn einu sinni að þeirri mótbáru gegn veiðigjaldi, að það séu álögur á sjávarútveginn og að hann geti ekki borið slíkar álögur, allra sízt nú. í fyrsta lagi verður að minna á, hversu misjöfn afkoma einstakra útgerðarfyrir- tækja er. Verulegur hluti útgerðar- fyrirtækja hefur getað staðið undir þeim auknu útgjöldum, sem kaup á kvótum hafa haft í för með sér. Það gengur auðvitað ekki að láta lélegri afkomu hinna verða til þess, að heildarflotinn haldist alltof lengi alltof stór. Í öðru lagi verður að taka fram, að engum hefur dottið annað í hug en að veiðigjaldi verði komið á í áföngum. Vel mætti hugsa sér, að upphæð þess yrði í fyrstunni svo lág, að aðeins allra óhagkvæmustu skipunum yrði um megn að greiða það, þannig að þau hættu veiðum. Hæð gjaldsins gæti verið við það miðuð, að einmitt þau skip hyrfu úr flotanum, sem hag- kvæmt væri frá þjóðhagslegu sjón- Gylfi Þ. Gíslason armiði, að hættu veiðum. í þriðja lagi ber að minna enn á, að hug- myndina um veiðigjald ber að skoða í tengslum við gengisstefnuna. Markmið þess er að gera sjávarút- veginn heilbrigðari og hagkvæmari og auka skerf hans til þjóðarbúsins frá því sem nú á sér stað. Til þess að eyða ótta við, að veiði- gjald verði strax baggi á útvegin- um, finnst þeim, sem þetta ritar, jafnvel koma til greina, að tekjur af veiðigjaldi í fyrsta áfanga yrðu allar notaðar í þágu sjávarútvegsins sjálfs, t.d. til þess að efla hafrann- sóknir og til þess að kaupa óhag- kvæm skip og Ieggja þeim. Slíkt veiðigjald yrði varla talið álögur á útgerðina. En það gæti skapað mik- ilvæga reynslu varðandi mikilvægt viðfangsefni. í þessu sambandi er rétt að minn- ast á þá skoðun, að veiðigjald yrði baggi á litlum fiskiþorpum í dreif- býli. Ef hér er átt við það, að veiði- gjald sé yfirleitt skattur, er sú skoð- un röng. Sé átt við hitt, að það mundi stuðla að því, að veiðileyfi flyttust úr dreifbýli í þéttbýli, er það að segja, að á grundvelli gild- andi fiskveiðistjórnar er ekkert því til fyrirstöðu, að slíkt gerist. Hins vegar væru byggðakvótar mjög óhagkvæm lausn á vandamálum í fiskiþorpum. Það á ekki að blanda saman fiskveiðistefnu og byggða- stefnu. Séu styrkir nauðsynlegir, eru beinir byggðastyrkir hagkvæm- ari en byggðakvótar. IV Hvernig á þá að bregðast við til- lögum Hafrannsóknarstofnunar- innar um minnkaða veiði? Er ekki augljóst, að meginviðbrögðin hljóta að felast í minni sókn? Getur það verið rétta ráðið að úthluta veiði- leyfum til jafnmargra skipa og minni kvóta til hvers? Þýddi það ekki augljóslega minni hagkvæmni en áður? Það er flotinn, sem þarf að minnka. Vonandi dettur engum í hug, að stjórnvöld eigi að ákveða, hvaða skipum eigi að leggja. Það á að leggja þeim skipum, þar sem hagkvæmni er minnst. Er gildandi kerfi fiskyeiðistjórnar treystandi til þess að leiða til slíkrar minnkunar flotans? Reynsla hefur einmitt sýnt, að gildandi kerfi ýtir of seint og of lítið undir minnkun flotans. Hóf- legt veiðigjald er eina leiðin til þess að tryggja, að sú minnkun flota, sem talin er nauðsynleg, taki ein- mitt til þeirra skipa, sem óhag- kvæmust eru. Fiskveiðistefnan má því ekki haldast óbreytt. Ástæðan er ekki aðeins sú, að hún leiddi ekki til hagkvæmastrar minnkunar flotans. Að öllu öðru óbreyttu mundi minnk- un leyfðs heildarafla hafa í för með sér verðhækkun á kvóta í fijálsum viðskiptum. Vilja menn það? Von- andi ekki. En eina leiðin til þess að koma í veg fyrir slíkt er að taka upp veiðigjald, sem smám saman mundi stuðla að því, að arðurinn af fiskimiðunum rynni til markm- iða, sem eigandi auðlindarinnar teldi réttmæt og skynsamleg, en yrði ekki til þess að stuðla enn frek- ar að óeðlilegri eignasöfnun ein- stakra útgerðarmanna eða fyrir- tækja. Höfundur er prófessor og fyrrverandi ráðherra. Um sjúkrakostnað o g Alþýðuflokk eftir Sigurgeir Jónsson Ég velti því dálítið fyrir mér hvað gæti legið að baki þeirri hugmynd Jóns Baldvins Hannibalssonar ekki alls fyrir löngu að breyta nafni Al- þýðuflokksins í eitthvað annað nafn, sem ég man nú ekki nákvæm- lega hvert var. Ég komst ekki að niðurstöðu, gat ekki ráðið í það hvað vekti fyrir flokksformanninum frekar en ég hefði getað ef hann KARL Grönvold, jarðfræðingur, segir að lækkað hitastig af völd- um eldgosa sé ekki staðbundið heldur hafi áhrif víða. Hann seg- ir að eldgosið í Heklu hafi verið of lítið til þess að hafa áhrif á hitastig. I forsíðufrétt Morgun- blaðsins í fyrri viku segir að breskir loftslagsfræðingar telji að loftslag á norðurhveli jarðar muni kólna á næstu tveimur tU þremur árum af völdum eldgoss- ins í Pinatubo-fjalli á Filippseyj- um í síðasta mánuði. „Þegar eldfjöll gjósa fara brenni- steinssambönd í gosmekkinum upp- úr andrúmsloftinu í ytri lög gufu- hvolfsins og drekka í sig sólarljós. hefði óskað eftir að breyta um nafn á sjálfum sér. Nú hefur runnið upp fyrir mér ljós, þegar flokksforingi þessi hefur ráðið sjálfan sig og húskarla sína, þar á meðal Sighvat Björgvinsson, til vinnu á höfuðbóli nokkru þar sem verkefni þess síðargreinda a.m.k. virðist vera það, að gera hugsjónir Hannesar Hólmsteins að veruleika. Hefur Sighvatur staðið rösklega að því verki og lofað meiru. Ég skil það vel að formaður Al- þýðuflokksins hafi talið það henta Þannig getur hiti lækkað,“ sagði Karl. „Menn hafa töluvert spáð í þessa hluti en ekki er vitað hve mikil áhrif eru af hveiju gosi. Þó er nokkuð víst að Heklugosið núna var of lítið til að hafa marktæk áhrif. Aftur á móti hafa menn gælt við að stóru Heklugosin til dæmis 1104 og önnur forsöguleg gos gætu hafa haft áhrif á lofts- lagið. Eins er líklegt að Skaftáreld- ar árið 1783 hafi haft áhrif nokkur ár á eftir.“ Karl sagði yfirleitt gætti áhrifa eldgosa aðeins nokkur ár en eftir eldgosið 4 Krakatau í Indónesíu 1883 hafu menn þóst finna fyrir breytingu á loftslaginu lengi á eftir. að gleyma nafni Alþýðuflokksins við þau verk sem hann hefur falið Sighvati að vinna. Nafnbreytingar- hugmyndin tökst þó ekki alveg, gömlu kratarnir létu ekki alveg að stjórn. Sumum þeirra fínnst nú víst núna, að betra hefði verið að fara að hugmyndum formannsins og láta annað nafn en Alþýðuflokksins tengjast verkum Sighvats Björg- vinssonar á ráðherrastóli. Allir stjómmálaflokkar vilja nú eigna sér stuðning við almanna- tryggingar á íslandi, sumir með nokkrum rétti og aðrir minni. Eitt má þó öllum sanngjömum mönnum vera ljóst, en það er að barátta Alþýðuflokksins fyrir þeim var ekki aðeins þýðingarmest heldur réð hún úrslitum um að þær komust á á fjórða áratugnum og voru stórefld- ar á þeim fimmta. Það hefði því farið betur á því, að störf núver- andi heilbrigðis- og tryggingaráð- herra tengdust öðru flokksnafni en Alþýðuflokksins. Eins og málin horfa nú fyrir mér hafa þessir herrar komið málum svo fyrir, að kostnaði við heilbrigðismál á ekki að jafna niður á íslendinga eftir efnum og ástæðum svo sem verið hefur, heldur eftir því hvort menn eru vel eða illa staddir heilsuf- arslega, þeir sem eru illa settir eiga að borga útgjöldin en þeir velmeg- andi, þ.e. heilsugóðu, eiga að sleppa við þau. Þetta er samkvæmt ákvörðun manna sem kenna sig við Alþýðuflokkinn, höfund almanna- trygginga á íslandi. Eg sagði í blaðagrein 8. júní sl. að höfundur Reykjavíkurbréfs 2. Sigurgeir Jónsson „Fyrir 70 árum var fólk ekki almennt látið drepast af vöntun lækn- ishjálpar eða lyfja vegna fátæktar. En þeir sem ekki áttu pen- inga til að greiða fyrir lyf, læknishjálp eða sjúkrahúsvist þurftu að leita til sveitarsjóðs. Nú á tímum heitir það að leita til félagsmála- stofnunar. Við sem gömul erum vitum, hvort sem það snerti okkur persónulega eða ekki, hvað það þýddi: sveitarlimur, þurfa- maður.“ júní vildi færa klukkuna aftur um 70 ár eða svo. Fyrir 70 árum var fólk ekki almennt látið drepast af vöntun læknishjálpar eða lyfja vegna fátæktar. En þeir sem ekki áttu peninga til að greiða fyrir lyf, læknishjálp eða sjúkrahúsvist þurftu að leita til sveitarsjóðs. Nú á tímum heitir það að leita til félags- málastofnunar. Við sem gömul er- um vitum, hvort sem það snerti okkur persónulega eða ekki, hvað það þýddi: sveitarlimur, þúrfamað- ur. Fólkið sem nú fer bugað út úr lyfjabúð með óafgreiddan lyfseðil vegna skorts á skotsilfri, það verður að velja á milli þess að leita til fé- lagsmálastofnunar eða verða án lyfsins fyrir sjálft sig eða ástvini sína, með þeim afleiðingum sem það kann að hafa. Hitt er þó sjálfsagt algengara að þeir sem þannig er ástatt um láti lyfjakaupin ganga ‘fyrir og svipti sig þá öðrum nauð- synjum. Sumir hafa engin úrræði þar sem aðstaða þeirra passar ekki við reglur félagsmálastofnunar. Mér dettur í hug að orða það við þá kratana, sem nú velta sér í völd- um og peningum almennings, hvort ekki sé rétt að láta kné fylgja kviði og færa klukkuna ekki aðeins 70 ár aftur í tímann að því er heilbrigð- ismál varðar heldur líka varðandi opinbera aðstoð og kosningarétt. Fyrir 70 árum (eða allt til ársins 1934) höfðu þeir, sem ekki gátu greitt fyrir sín veikindi sjálfír, ekki kosningarétt, frekar en aðrir sem undir höfðu orðið í lífinu og þurftu þess vegna að leita styrks. Það yrði „system i galskaben" eins ogdansk- urinn segir ef þetta hvorttveggja yrði látið haldast í hendur eins og í gamla daga. Þessi tenging opin- berrar aðstoðar og kosningaréttar var afnumin með stjórnskipunarlög- um 1933 eða 1934 fyrir tilstilli stjórnmálaafls sem hét Alþýðu- flokkur. Höfundur erfyrrverandi hæstaréttardómari. Heklugos breytir ekki loftslagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.