Morgunblaðið - 24.07.1991, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
NÝVERIÐ lauk verulegri stækk-
un og breytingum á verslunar-
húsnæði Hagkaups á Akureyri.
Um þetta leyti eru liðin 30 ár
síðan Hagkaup opnaði fyrstu
verslun sína í bænum og 10 ár
síðan fyrirtækið flutti í eigið
húsnæði. Með breytingunum hef-
ur verslunarhúsnæðið stækkað
að mun og er deildaskiptara en
áður.
Þórhalla Þórhallsdóttir verslun-
arstjóri sagði að verslunarrýmið
hefði við viðbygginguna stækkað
um 600 fermertra og væri nú 1.200
fermetrar en heildarflatarmálið
væri um 1.800 fermetrar. Við þessa
stækkun hefðu verið settar upp
nýjar deildir. Þannig væri nú komið
langþráð kjötborð, brauðbúð,
snyrtivörubúð, garnsala og græn-
metistorgið hefði verið stækkað að
mun. Þá væri einnig komið leikher-
bergi fyrir börn. Sett hefði verið
terraso á öll gólf og það yrði einnig
sett upp á veggi síðar. Skipt hefði
verið um allar innréttingar í versl-
Félagslegar íbúðir nær
helmingur nýs húsnæðis
uninni, settar breskar Clairs inn-
réttingar í matvörudeild en sér-
hæfðar austurrískar Umdash-inn-
réttingar í sérvörudeildir.
Þórhalla sagði að Hagkaup væri
stór vinnustaður, þar væru starf-
andi hartnær 100 manna, ýmist í
heils eða hálfs dags starfi. Að
stækkun verslunarinnar, breyting-
um og frágangi öllum hefðu unnið
akureyrskir iðnaðarmenn og verk-
fræðingar svo fyrirtækið skapaði
talsverða atvinnu auk verslunarinn-
ar sjálfrar. Hún sagði að viðskipta-
vinir hefðu lokið lofsorði á breyting-
arnar á versluninni og væri tíðrætt
um það hversu búðin væri orðin
snyrtileg og falleg. Það hefði auk
heldur sýnt sig í því að vörusala
hefði aukist um 30% eftir breyting-
arnar miðað við sama tíma í fyrra.
Að sögn Þórhöllu er áberandi að
fólk úr nærliggjandi byggðarlögum
komi og versli í Hagkaup á Akur-
eyri og jafnvel komi fólk langan
veg. Verð á vörum sé hið sama á
Akureyri og í Reykjavík, það sé
stefna fyrirtækisins að hafa sama
vöruverð í öllum sínum búðum. Að
undanförnu hefði staðið yfir átak
til að lækka verð á ýmsum vörum
og stæði það enn.
Ný vörumerkingavél
í vikunni tók Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. á Akureyri í notkun
nýja, sjálfvirka vél sem límir vörumerkimiða á innpakkaðar vörur.
Þetta er DIGI-vél frá Skrifstofuvélum í Reykjavík, sú fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Hún er fljótvirk og afar fullkomin og með
notkun hennar unnt að gefa viðskiptavinum mjög góðar upplýsingar
um þá vöru sem þeir eru að kaupa. Á myndinni eru við nýju DIGI-
vélina Hörður Hákonarson frá Skrifstofuvélum og Kjartan Snorrason
hjá Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co.
Brauðbúðin í Hagkaup á Akureyri.
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
* #*> t. 0 m #*I000M
Hagkaup í breyttum búningi
SAMIÐ hefur verið við verktaka
um að byggja 19 félagslegar
ibúðir og verið er að ganga frá
samningum um að byggja 30
íbúðir til viðbótar á þessu ári á
Akureyri. Nærri lætur að helm-
ingnr þess húsnæðis sem byggt
hefur verið á Akureyri á árunum
1985 til 1990 sé félagslegar íbúð-
ir. Húsnæðisskrifstofan á Akur-
eyri hefur með höndum bygg-
ingu og kaup á þessu húsnæði
og annast auk þess ráðgjöf og
hluta af afgreiðslu gagna í hús-
bréfakerfinu.
Húsnæðisskrifstofan á Akureyri
er rekin á vegum Akureyrarbæjar
og Húsnæðisstofnunar ríkisins og
hefur starfað í um það bil ár síðan
bærinn og Húsnæðisstofnun gerðu
samning um rekstur hennar á rót-
um þess starfs sem áður hafði heyrt
undir Stjórn verkamannabústaða.
Að sögn Guðríðar Friðriksdóttur,
forstöðumanns Húsnæðisskrifstof-
unnar, gegnir skrifstofan ýmsum
hlutverkum á vegum Húsnæðis-
stofnunar, meðal annars ráðgjöf í
húsnæðismálum og vegna greiðslu-
erfiðleika, gefnar eru' upplýsingar
um möguleika á að fjármagna hús-
næðiskaup, kauptilboð eru metin
og upplýsingar veittar um skyldu-
sparnað. Á vegum Akureyrarbæjar
annast skrifstofan umsjón og eftir-
lit með byggingu og kaupum á fé-
lagslegum íbúðum og annað er lýt-
ur að þeirri gerð húsnæðis.
Friðfínnur Hermannsson á Hús-
næðisskrifstofunni sagði að auk
.þessa annaðist skrifstofan af-
greiðslu á fasteignaveðbréfum
vegna kaupa á eldra húsnæði en
ekki væri enn hafin afgreiðsla
vegna nýbygginga eða viðauka-
bréfa. Oðum styttist í að svo yrði.
Hins vegar væri veitt sú þjónusta
að fara með fasteignasölum yfir öll
gögn áður en þau væru send til
Húsnæðisstofnunar og það flýtti
fyrir afgreiðslu þeirra.
Fram kom hjá Guðríði og Frið-
finni að samið hefði verið við Aðal-
geir Finnsson hf. um að byggja 19
íbúða fjölbýlishús með félagslegum
'íbúðum við Vestursíðu 10-14. Þar
er um að ræða verk sem var hann-
að fyrir Húsnæðisskrifstofuna og
boðið út. Aðalgeir Finnsson reynd-
ist eiga lægsta tilboðið. Auk þess
yrði á næstunni samið við 3-4 verk-
taka um að byggja 30 íbúðir til
viðbótar, en þar er um að ræða 10
íbúðir í raðhúsum og 20 í fjölbýlis-
húsum. Það eru verk hönnuð á veg-
1985 1986 1987 1988 1989 1990 Alls
Fjöldi íbúða sem hafin var bygging á á Akureyri 17 28 110 156 66 110 487
Þar af félagslegar íbúðir 15 28 22 62 54 56 237
um verktakanna sjálfra, boðin Hús-
næðisskrifstofunni til kaups. Áætl-
að er að verð á tveggja herbergja
íbúð verði 6-6,6 milljónir, á þriggja
herbergja íbúð 7-7,7 milljónir og á
fjögurra herbergja íbúð 8,4-9,5
milljónir.
Guðríður sagði að nærri léti að
helmingur þess húsnæðis sem
byggt væri á Akureyri væri félags-
iegar íbúðir og hefði svo verið að
meðaltali á árabilinu 1985-1990,
eins og nánar sést á meðfylgjandi
töflu. Athygli vekur að árin 1985
og 1986 voru nær eingöngu byggð-
ar félagslegar íbúðir í bænum, mik-
ill vöxtur er í einkabyggingum árin
1987 og 1988 en bakslag á ný
1989. Á síðasta ári voru byggingar
nærri áðurnefndu meðaltali.
Hlutavelta
Þessar ungu dömur, Gunn-
hildur Helga Guðbjöms-
dóttir til vinstri og Aðal-
björg Bragadóttir til hægri,
héldu nýverið hlutaveltu í
Vanabyggð á Akureyri.
Þar söfnuðu þær 6.553
krónum og færðu Akur-
eyrardeild Rauða krossins.
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
Ætla að hjóla á hæstu tinda landsins
Ungir Akureyringar reyna nýjar
aðferðir í ferðamennsku innanlands
TVEIR ungir Akureyringar
ætla að fara í óvenjulega hjól-
reiðaferð um næstu helgi og
fara á reiðhjólum sínum á fjóra
hæstu tinda íslands. Þeir hafa
þegar farið nokkrar reynslu-
ferðir um fjöll við Eyjafjörð.
Tveir ungir Akureyringar, Jó-
hann Kjartansson stálsmiður og
Tómas Júlíusson garðyrkjumaður,
hafa að undanförnu reynt fyrir
sér í íjallaferðum á reiðhjólum og
um næstu helgi hyggja þeir á
hálendisferð og ætla að leggja að
baki fjóra hæstu fjallatinda lands-
ins í rúmlega vikulangri ferð.
Jóhann sagði að þeir félagar
væru báðir starfandi í Hjálpar-
sveit skáta og Skátafélaginu á
Akureyri. Þessi ferðamennska
þeirra væri á vissan hátt liður í
þjálfun þeirra, en þessar ferðir
veittu þeim margvíslega reynslu
auk þess að ferðast um á hjólun-
um. Á föstudaginn myndu þeir
leggja af stað á jeppa upp á há-
lendið, en ætlunin væri að fara á
hjólunum upp á tinda Hvanna-
dalshnjúks, Bárðarbungu, Kverk-
fjalla og Snæfells, í þeirri röð sem
veður og aðstæður hentuðu best.
Þeir hyggðu á dagsferðir á hvert
fjall en færu á milli á jeppanum.
Á leiðinni upp er ætlun þeirra
Jóhanns og Tómasar að hjóla hvar
sem þess er nokkur kostur en
bera hjólin á bakinu þar sem al-
gerlega er ófært. Þeir hyggjast
hins vegar hjóla alla leið niður,
en að sögn Jóhanns er það all-
þokkalega gerlegt, víðast sé hægt
að finna færar slóðir innan um
grjót og klungur og sums staðar
verði farið á snjó. Jóhann sagði
að þetta yrði auk þess að sumu
leyti skíða- og jöklaklifursferð því
upp á Bárðarbungu færu þeir á
skíðum. Þá myndu þeir festa hjól-
in saman og draga á eftir sér eins
og fjórhjóla vagn. Auk þess hefðu
þeir í för fullkominn klifurbúnað
til að nota ef á þyrfti að halda.
Jóhann sagði að um síðustu
helgi hefðu þeir félagar farið í
hjólaferð á Kaldbak. Þeir hefðu
lagt upp frá Grenivík klukkan
13.30 og verið þijár klukkustund-
ir á leiðinni upp. Þeir hefðu þurft
að bera hjólin mestalla leiðina upp
því þetta væri svo snarbratt, en
þeir hefðu hins vegar hjólað alla
leið niður, mest á snjó, og verið
klukkutíma að því. Eins hefðu
þeir prófað ágæta leið, farið á bíl
upp á Vaðlaheiði, hjólað suður
„Skólavörðustíg" og áfram suður
frá skólavörðunni og síðast niður
gömlu þingmannaleiðina að Leifs-
stöðum. „Á sunnudaginn var fór-
um við svo upp á brún Hlíðar-
ijalls og hjóluðum norður Frosta-
staðagil niður á Þelamörk. En nú
bíðum við í ofvæni eftir því að
komast upp á háu tindana,“ sagði
Jóhann að lokum.
Morgunblaðið/Jóhann Kjartansson
Hærra er ekki unnt að komast á Kaldbak en upp á vörðuna á
tindinum.