Morgunblaðið - 24.07.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
27
Þorbjörg Ottós-
dóttir - Minning
Fædd 23. júlí 1924
Dáin 10. júlí 1991
Ekki datt mér í hug þegar ég
kvaddi Þóru, Þorbjörgu Ottósdótt-
ur, að kvöldi hins 8. júlí að það
væru okkar siðustu samverustundir
hér á þessari jörð.
Eg vil þakka henni fyrir allar
góðu stundinrnar er við áttum sam-
an og einnig þann trúnað, góðvild
og traust er hún sýndi mér jafnt á
gleði- sem á sorgarstundum. Hún
var þeim eiginleikum gædd að geta
hlustað og gefið góð ráð þegar til
hennar var leitað og vil ég þakka
henni það af alhug. Þóra talaði um
það við mig hvað sér hefði þótt
vænt um þegar sonur hennar, Guð-
mundur, tók sér sumarfrí til að
geta hugsað um hana síðasta hálfan
mánuðinn sem hún var heima og
sagði að hann annaðist sig af mik-
illi hlýju. Ég get ekki látið hjá líða
að minnast á sambýlismann henn-
ar, Einar Guðmundsson, og eitt sinn
þegar við sátum á tali saman sagði
hún mér að án hans hjálpar og
umhyggju hefðþ hún ekki getað
haldið heimili. Á milli þeirra var
mikil vinátta og gagnkvæmur skiln-
ingur og fannst mér eftirminnilegt
að verða vitni að því hvernig Einar
reyndist Þóru til þess síðasta. Þóra
og Einar reyndust eftirlifandi föður
Þóru sem nú er orðinn háaldraður
og enn á lífi mjög vel og hlakkaði
gamli maðurinn ávallt til þeirra
stunda sem hann naut samveru
þeirra en þau buðu gamla mannin-
um ávallt heim til sín á sunnudögum
og á hátíðisdögum. Þóra var víðles-
in og vel heima í hinum ýmsu máia-
flokkum og hafði hún mikið dálæti
á ljóðum. Þóra var mjög orðheppin
í tilsvörum og var hrókur alls fagn-
aðar meðan heilsan leyfði og ófáar
voru bingóferðimar okkar Þóru og
sátum við þá oft saman við sama
borð og oft var slegið á létta strengi.
Það verður tómlegt að faraí bingó
og einnig á heimili hennar í Hæðar-
garði þegar hennar nýtur ekki leng-
ur við. Ég votta öldnum föður henn-
ar svo og sambýlismanni hennar,
Einari Guðmundssyni, og öðrum
ættingjum mína dýpstu samúð.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Br.)
Hulda Sassoon
Finnbogi Þ. Þor-
bergsson — Minning
Fæddur 24. júlí 1912
Dáinn 9. júní 1991
Finnbogi Þórarinn Þorbergsson
var fæddur í Efri Miðvík í Aðalvík
í Sléttuhreppi 24. júlí 1912 og hefði
því orðið 79 ára gamall í dag.
Hann var sonur hjónanna Þor-
bergs Jónssonar útvegsbónda í Efri
Miðvík fæddur 1858, dáinn 1934,
og seinni konu hans Oddnýjar Finn-
bogadóttur, fædd 1874, dáin 1938.
Þorbergur var sonur Jóns Björns-
sonar bónda í Rekavík Bak Látur,
fæddur 1822, dáinn 1878. Hann
var sonur Björns Guðmundssonar í
Rekavík, fæddur 1792, dáinn 1870.
Faðir hans var aðfluttur, Guðmund-
ur Guðmundsson fæddur 1761 á
Útibliksstöðum í Miðfirði í Húna-
þingi. Hann gekk að eiga ekkju,
Hildi Ólafsdóttur í Görðum, þau
bjuggu svo íÞverdal. Hann dó 1847.
Oddný var dóttir Finnboga Árna-
sonar, fæddur 1849, dáinn 1897,
bóndi í Efri Miðvík. Hann var sonur
Árna Jónssonar, fæddur 1824, dá-
inn 1862, húsmaður í Neðri Miðvík.
Hann var sonur Jóns Jónssonar,
fæddur 1790, dáinn 1865, bónda í
Neðri Miðvík. Hans faðir var Jón
Guðlaugsson, fæddur 1748, dáinn
1819, bóndi í Neðri Miðvík, sonur
Guðlaugs ísleikssonar í Neðri Mið-
vík, fæddur 1710, dáinn ?.
Eins og sjá má, eru þessar ættir
alfarið í Sléttuhreppi í meir en tvær
aldir. Þetta virðist hafa verið dug-
legt fólk, sem lifði jöfnum höndum
á búskap og sjósókn.
Þorbergur í Miðvík missti fyrri
konu sína, Margréti Þorvaldsdóttur,
þau áttu tvö börn sem komust á
legg, Óla (eldri), hann dr. 1913, og
Þórunni, en hún lést 1975 háöldruð.
16. júlí 1912 fórust synir prests-
hjónanna á Stað í Aðalvík, og í
skírninni hlaut sveinninn ungi nöfn
þeirra beggja, Finnbogi Þórarinn.
Finnbogi ólst upp í stórum systk-
inahópi í Efri Miðvík, næst yngstur
10 barna. Af þeim eru nú látin Finn-
björn, Sölvi, Margrét, Sigríður og
Þorbergur. Ájífi eru Valdimar og
Guðmunda á ísafirði og Oddný og
Óli (yngri) í Reykjavík.
Finnbogi sem og aðrir á þessum
tímum naut ekki langrar skóla-
göngu. En þeim mun diýgri varð
ganga í skóla lífsins honum. Hann
hlaut hvarvetna lof fyrir störf sín
og samviskusemi hvar sem hann
starfaði.
Sem ungur maður vann hann á
Korpúlfsstöðm. Hann var mörg ár
í Súgandafirði, sem landmaður á
bátum, og þótti meðal annars af-
burðamaður við lóðabeitingu. Hann
var á Kleppsspítala og á Úlfarsá,
Jón Jónsson, Skaga-
strönd - Minning -
Fæddur 21. maí 1921
Dáinn 9. júlí 1991
Nú þegar Jón Jónsson, nágranni
okkar og vinur, er látinn langar
okkur til að minnast hans með
nokkrum orðum. Vinátta okkar
hófst fyrir um tuttugu árum þegar
við stofnuðum heimili á Skaga-
strönd. Alla tíð síðan reyndist Jón
okkur traustur vinur og hjálparhella
sem gott var að leita með vanda-
mál sín því hann átti alltaf góð ráð
í pokahorninu sem hann var ósínkur
á.
Jón lagði gjörva hönd á margt
um ævina og gekk til allra starfa
með bros á vör og brjartsýni í huga.
Var þá sama hvort starfið var að
fara á sjó á trillunni sinni eða
stjórna stóru fyrirtæki eins og
Rækjuvinnslunni, alltaf var Jón jafn
glaður í sinni. Jákvæðni Jóns og
hæfileiki hans til að sjá björtu hlið-
arnar á lífinu gerðu það að verkum
að hann hafði bætandi áhrif á þá
sem umgengust hann. Eftir að Jón
hætti á vinnumarkaðnum dró hann
sem forstöðumaður, en það var þá
deild frá Kleppi. Hann vann og all-
mörg ár á Keflavíkurflugvelli. Síð-
ustu starfsárin var hann húsvörður
í Hátúni 10 í Reykjavík og að síð-
ustu vistmaður þar.
Hann kvæntist Emilíu Guð-
mundsdóttur hjúkrunarfræðingi og
þau eignuðust dótturina Oddnýju.
Hún er bókasafnsfræðingur, gift
Birni Björnssyni kennara. Þau eiga
3 dætur. Þau eru búsett á Sauðár-
króki.
Finnbogi og Emilía slitu hjúskap.
Síðar hóf Finnbogi sambúð með
Ingibjörgu Jónsdóttur frá Þingeyri,
og lifir hún hann.
Finnbogi var alla tíð mjög heilsu-
veill. Hann þjáðist að liðagigt.
Mér er það minnisstætt, þegar
ég var ungur drengur, hvað mér
fannst hann þjást mikið. Hann virt-
ist svo undirlagður, að mér finnst
nú, uppkominn, að það sé með ein-
dæmum, hvað hægt er að leggja á
sumt fólk, ég held að við skiljum
það ekki.
En nú er þjáningum Finnboga
lokið í þessari jarðvist, við hittumst
hinumegin. Eftir lifir minningin um
góðan dreng og kæran frænda.
Ég votta Oddnýju dóttur hans
og hennar fjölskyldu, svo og Ingi-
björgu Jónsdóttur, samúð og virð-
ingu.
Kjartan T. Olafsson
sig ekki aldeilis í hlé heldur kom
sér upp aðstöðu í bílskúrnum til
smíða og smíðaði þar hvern gripinn
öðrum fínni. Einnig varð hann for-
maður Skógræktarfélagsins og
dreif það upp með atorku sinni og
vinnusemi. Þegar honum var ljóst
hvaða veikindi hann ætti við að
stríða lagði hann í baráttuna^ið
þau með sömu atorkunni og bjart-
sýninni og hafði dugað honum svo
vel fram að því. Einbeittur vilji Jóns
dugði ekki í þetta sinn því hér var
við æðri mátt að etja og stríðinu
við þann mátt hljóta allir að tapa
einhvern tíma. Jón varð að viður-
kenna ósigur sinn aðfaranótt 9.
júlí er hann lést á Landakotsspítal-
anum í Reykjavík.
Elsku Maju og öðrum aðstand-
endum sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur en minn-
ingin um góðan mann mun lifa með
okkur öllum.
Gunna og Óli
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
FÉLAGSLÍF
ÉSAMBAND (SŒNZKRA
i KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboössamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn: Valdís og Kjartan.
Allir velkomnir.
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
í kvöld i Suðurhólum 35:
Bænastund kl. 20.10. Samveran
hefst kl. 20.30. „Ég er frjáls".
Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn
Bolladóttir.
Ungt fólk á öllum aldri velkomið.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bilblíulestur í kvöld kl. 20.30.
„Trúboð í dag“. Gestir frá
Kanada tala.
Tjaldsamkomur byrja við Laugar-
nesskóla annað kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
'Ufawdi
H ÚTIVIST
GRÓFIHHI l • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARII4606
Létt kvöldganga
miðvikudag 24. júlí.
Bláfjallaleiðin. Skoðaður hluti
hinnar skemmtilegu Bláfjalla-
leiðar. Gengið verður frá Rauðu-
hnúkum, um Sandfell og útsýnis
notið af Selfjalli. Göngunni lýkur
í Lækjarbotnum. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni að vestan
kl. 20.00, komið við hjá Árbæjar-
safni.
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur 24. júlí
Kl. 20 Skógarstígar í Heið-
mörk. Létt og skemmtileg ganga
í-Vífilsstaðahlíð. Trjásýnireitur-
inn skoðaður. Afsláttarverð kr.
500. Frítt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSl austanmegin.
Fjölbreýttar helgarferð-
ir. 26.-28. júlí
1. Miðsumarsferð í Þórsmörk.
Góð gistiaðstaða í Skagfjörðs-
skála Langadal. Gönguferðir.
2. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsinu í Laugum.
Ekið í Eldgjá. Gönguferðir.
3. Hvftárnes - Kerlingarfjöll -
Hveravellir. Ekið og gengið. Gist
í skálum F.i.
4. Þverbrekknamúli - Hrútfell.
Gengið í skálann i Þverbrekkna-
múla og gist þar. Dagsganga á
Hrútfell (1410 m.y.s.).
Helgarferð 27.-28. júlí:
Emstrur-þórsmörk. Gengið af
Emstrum til Þórsmerkur á laug-
ardeginum (um 67 klst. ganga).
Gist í Þórsmörk.
Munið ferðir um verslunar-
mannahelgina: 1. Landmanna-
laugar - Eldgjá. 2. Dalir - Breiða-
fjarðareyjar - Dagverðarnes. 3.
Lakagfgar (Eldborgarraðir) -
Blágil - Leiðólfsfeli. 4. Höfða-
brekkufjöll (sannkallað Þórs-
merkurlandslag). 5. Nýidalur -
Vonarskarð - Laugafell. 6.
Þórsmörk. Miðar óskast sóttir
fyrir þriðjudag í Þórsmerkur-
ferðina.
Ferðafélag Islands.
Ðútivist
CIHHII • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARt 14606
Miðvikudag 24. júií
Bláfjallaleiðin
Létt kvöldganga
Skoðaður hluti hinnar skemmti-
legu Bláfjallaleiðar. Gengið verð-
ur frá Rauðuhnúkum um Sand-
feli og útsýnis notið af Selfjalli.
Göngunni lýkur í Lækjarbotnum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni að vestan kl. 20.00, komið
við hjá Árbæjarsafni.
Um næstu helgi
Hólmsárlón - Strúts-
laug - Brytalækir
Gist í húsi. Gengið af Mælifells-
sandi um Hólmsárbotna í Strúts-
laug. Þaðan austur með Hólms-
árlóni i Rauðabotn, sem er hluti
af Eldgjá. Komið við í Eldgjá og
Landmannalaugum á heimleið.
Fararstjóri Anna Soffia Óskars-
dóttir.
Básará Goðalandi
Tilvalinn staður til að slaka á
eftir annir vikunnar. Fararstjóri
Sigurður Einarsson.
Fimmvörðuháls - Básar
Hin vinsæla gönguleið milli Bása
og Skóga. Gangan tekur 8-9 klst.
Gist í Básum.
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU 3 & 11798 19533
Ferðist innanlands með
Ferðafélaginu í sumar
26/7-1/8 (7 dagar): Borgar-
fjörður eystri - Loðmundar-
fjörður. Gist í húsum. Skoðunar-
og gönguferðir um þetta fjöl-
skrúðuga landsvæði.
26/7-1/8 (7 dagar): Seyðis-
fjörður - Borgarfjörður eystri.
Bakpokaferð um Loðmundar-
fjörð og Vikurnar.
2.-5. ágúst (4 dagar): Þórisdal-
ur - Hlöðuvellir. Bakpokaferð
um verslunarmannahelgina.
Gengið frá Kaldadal og í skálan
Slunkaríki.
2.-11. ágúst (10 dagar): Vonar-
skarð - Kverkfjöll. Spennandi
bakpokaferð um og með norð-
urjaðri Vatnajökuls. Fararstjóri:
Jóhannes L. Jónsson. í lokin eru
hveradalir Kverkfjalla skoðaðir.
Ferðin er hluti af göngusyrpu í
kringum Vatnajökul. Göngutjöld.
2.-8, ágúst (7 dagar): Lóns-
öræfi. Mögulegt að gista í nýja
skálanum meðan pláss leyfir
(30). Gönguferðir um stórbrotið
og litríkt svæði.
Árbókarferðir 8.-13. ágúst
(6 dagar): Einstakt tækifæri
til að kynnast hluta af þeim
svæðum sem árbækur 1990 og
1991 fjalla um þ.e. „Tröllaskag-
anum" ásamt fleiri áhugaverð-
um stöðum.
a. Árbókarferð-ökuferð. Kjölur,
Öxnadalsheiði, Hraunsvatn,
Hörgárdalur, Eyjafjarðardalir,
Náttfaravík, Sprengisandur.
b. Árbókarferð-Tungnahryggs-
leið. Bakpokaferð á milli Eyjar-
fjarðar og Skagafjarðar. Gist
tvær nætur í Tungnahryggs-
skála.
14.-18. ágúst Kjalvegur hinn
forni: Hvítárnes-Þverbrekkna-
múli-Hveravellir. Áhugaverð
gönguleið, ekki síðri en „Lauga-
vegurinn".
Gönguferðir um „Laugaveg-
inn“ í allt sumar.
Gönguferð um Jötunheima í
Noregi 17.-26. ágúst. Þekkt-
asta fjallasvæði Noregs. Ferð í
samvinnu við norska Ferðafélag-
ið.
Nánari uppl. á skrifstofunni,
Öldugötu 3, símar 19533 og
11798.
Ferðafélag íslands.