Morgunblaðið - 24.07.1991, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
-*~v38
ÍÞR&mR
- FOLK
■ BIRKIR Kristinsson mark-
vörður Fram hélt marki sínu hreinu
í 299 mínútur samfleytt eða í rétt
tæpar fimm klukkustundir. Birkir
fékk á sig mark strax á 3. mínútu
í leiknum við UBK í síðustu umferð
en þá hafði ekki verið skorað hjá
Fram í deiidarkeppninni síðan í 6.
umferð er liðið lék gegn FH. Bjarni
Sigurðsson markvörður Vals hefur
því enn haldið hreinu lengst allra
markvarða í sumar því Valsmenn
fengu ekki á sig mark fyrr en 318
mínútur voru liðnar af mótinu.
■ 24 MÖRK voru skoruð í 1.
umferð Samskipadeildarinnar og
er það mesti markafjöldi í einni
umferð. Fæst mörk voru skoruð í
2. umferð, aðeins sex og skoruðu
heimaliðin þau öll.
■ FLESTIR áhorfendur komu að
sjá leik Fram og KR í 8. umferð.
2.965 greiddu aðgangseyri, rúm-
lega sautján sinnum fleiri en bor-
guðu sig inn á leik FH og KA í
umferðinni á undan. 170 borguðu
sig inn á Kaplakrikann og er það
minnsti áborfendafjöldinn á þeim
50 leikjum sem leiknir hafa verið.
. m VÍKINGUR sem gerði flest
jafnteflin í fyrra, sjö talsins, er nú
eina liðið sem ekki hefur gert jafn-
tefli í deildinni.
■ KR er með prúðasta liðið að
mati dómara sem aðeins hafa sýnt
leikmönnum liðsins gula spjaldið
átta sinnum í sumar. Víkingar sem
hafa aðeins fengið eitt gult spjald
í síðustu þremur leikjum, hafa feng-
ið flest spjöldi, 25, þar af tvö rauð.
■ BREIÐABLIK hefur teflt fram
flestum leikmönnum í sumar eða
^uttugu. Víðir hefur notað fæsta,
aðeins fimmtán.
■ STEINAR Ingimundarson
hefur skorað helming marka Víðis
í sumar. Víðismenn hafa aðeins
skorað átta mörk og hefur Steinar
gert fjögur þeirra. Víðir er einnig
eina lið deildarinnar sem ekki hefur
unnið leik og eina liðið sem fengið
hefur á sig mark í öllum leikjunum.
■ BRAGI Bergmann og Egill
Már Markússon hafa gefið flestu
spjöldin í einstökum leikjum. Báðir
gáfu þeir átta gul spjöld og eitt
rautt í leikjum Víkings við Stjörn-
una og Fram.
■ KR hefur gert 22 mörk í deild-
inni í sumar, þar af helminginn
gegn Víði - 11. Sjö í fyrrakvöld og
ijögur í fyrstu umferð mótsins.
KNATTSPYRNA
Guðmundur yngsti
atvinnumaðurinn
ogsá 14.íBelgíu
Guðmundur Benediktsson verður
14. íslendingurinn sem gerist at-
vinnumaður í knattspyrnu í Belgíu,
og jafnframt yngsti íslenski at-
vinnumaðurinn til þessa. Hann
verður 17 ára 3. september næst-
komandi, en skrifar undar samning
-.-yið Ekeren einhvern næstu daga.
Arnór Guðjohsen, yngsti atvinnu-
maður íslands til þessa, undirritaði
samning við Lokeren á sínum tíma
daginn frir 17 ára afmæiið.
Asgeir Sigurvinsson var sá fyrsti
sem fór til Belgíu; samdi við Stand-
ard Liege haustið 1973, og fyrsti
deildarleikur hans með félaginu —
útileikur gegn Beerschot — fór fram
8. september 1973, rétt tæpu ári
áður en Guðmundur Benediktsson
fæddist!
Þess má geta að Guðmundur er
aðeins þriðji Akureyringurinn sem
gerist leikmaður með erlendu fé-
lagi. Árni Stefánsson, fyrrum lands-
liðsmarkvörður, var hjá Jönköping
og Landskrona í Svíþjóð á sínum
tíma og Þorvaldur Örlygsson gekk
til liðs við Nottingham Forest í
Englandi í désember 1989. Þeir eru
báðir úr KA, en Guðmundur er
fyrsti Þórsarinn sem spreytir sig
sem atvinnumaður erlendis.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Sævar Jónsson úr Val, Stefán Arnarson úr FH og Ólafur Gottskálksson úr KR eru efstir og jafnir í einkunnagjöf
Morgunblaðsins og hafa allir fengið 11 M.
Þríreru efstirog
jafnirmed 11 M
MARKVERÐIRNIR ÓLAFUR
Gottskálksson KR og Stefán
Arnarson FH eru ásamt Sævari
Jónssyni Val efstir í einkunna-
gjöf Morgunblaðsins. Þre-
menningarnir hafa allir hlotið
11 M eftirtíu umferðir f Sam-
skipadeildinni.
ÆT
Atta leikmenn hafa hlotið tíu M
en það eru Arnar Grétarsson
UBK, Haukur Bragason KA, Hlyn-
ur Stefánsson ÍBV, Guðmundur I.
Magnússon og Helgi Björgvinsson
Víkingi og KR-ingarnir Þormóður
Egilsson, Atli Eðvaldsson og Sig-
urður Björgvinsson.
Þrír eru með níu M en það eru
þeir Pétur Ormslev Fram og Vals-
mennimir Einar Páll Tómasson og
Bjarni Sigurðsson. Þá hafa sjö leik-
menn fengið átta M.
Hæsta einkunn sem gefín er fyr-
ir frammistöðu er þijú M, sú ein-
kunn var gefin þeim Guðmundi
Steinssyni Fram og Andre Jerina
ÍBV, í fyrra en ekki hefur verið
gefið svo hátt í sumar. Einn leik-
maður hefur fjórum sinnum fengið
tvö M en það er Stefán Arnarson
FH en sjö leikmenn hafa þrívegis
fengið þá einkunn.
Þormóður Egilsson KR hefur
verið í liði umferðarinnar í sex
skipti, Níu leikmenn hafa þrisvar
verið valdir.
Það stefnir í að fleiri M verði
gefin í ár en í íýrra en þá urðu
M-in 682 en nú þegar hafa verið
gefin 532 M. Aðalsteinn Aðalsteins-
son Víkingi fékk flest M í fyrra,
fjórtán að tölu.
VALLARMAL / KOPAVOGUR
Aðalvöllurinn ekki tilbúinn
MIKIÐ hefur verið rætt um
hvers vegna aðalleikvangur-
inn í Kópavogi er ekki notaður
fyrir knattspyrnu í sumar.
Astæðan er að hann var tek-
inn upp síðsliðið haust og er
ekki orðinn nógu góðurtil að
hægt sé að leika knattspyrnu
þar.
Jón Julíusson, íþróttafulltrúi
Kópavogs segir að sérfræðing-
ar hafi gert úttekt á vellinum og
komist að þeirri niðuretöðu að
ekki sé verjandi að hleypa knatt-
spymumönnum á völlinn fyrr en
í fyrsta lagi í ágúst.
Það voru þeir Dr. Bjami Helga-
son og Dr. Árni Bragason sem
gerðu úttekt á vellinum 10. júlí.
I greinargerð frá þeim segir að
greiniiega sé um nokkra mis-
sprettu að ræða og víða séu þök-
urnar ekki nógu gróskumiklar og
því sé grassvörðurinn langt frá
því að vera nægjanlega öflugur
til að ráðlegt sé að nota völlinn
alveg á næstunni.
Þeir segja samt að í heild líti
völlurinn mjög vel út en þeirri
mynd sé fljótlegt að spilla með
ótímabærri notkun. Segja þeir að
ekki eigi undir neinum kringu-
stæðum að nota völlinn fyrr en
eftir miðjan ágúst og þá rpjög
hóflega.
Jón segir vallaryfirvöld í Kópa-
vogi muni fylgja þessum ráðlegg-
ingum og ákveðið hafí verið að
opna leikvanginn fyrir knatt-
spymu í fyrsta lagi 15. ágúst.
BRUSSEL
Tongeren
La Louviere
Charleroi
Magnús
Bergs:
Tongeren
Guögeir
Leifsson:
Charleroi
Islenskir avinnumenn
í Belgíu
Sævar
Jónsson:
Cercle Brugge
Brugge
Arnór
Guðjohnsen:
Lokaren og
Anderlecht
Guömundur
Benediktsson:
Ekeren
Pétur
Pétursson:
Antwerpen og
Anderlecht
Ragnar
Margeirsson:
Gent og
Waterschei
Ekeren
m'
Antwerpen
Lokeren •
Gent
Genk
waterschei
Karl
Þóröarson og
Þorsteinn
Bjarnason:
La Louviere
50 km
Marteinn
Geirsson og
Stefán
Halldórsson:
Royal Union
Guömundur
Torfason:
Racing Club Genk
Lárus
Guömundsson:
Waterschei
Ásgeir
Sigurvinsson:
Standard Liege
FRJALSIÞROTTIR
Brons hjá
Unni á HM
UNNUR Stefánsdóttir náði
bronsverðlaunum í 800 metra
hlaupi á HM öldunga ífrjálsum
íþróttum sem nú stendur yf ir í
Turku i Finnlandi. Unnursem
að keppti í flokki 40-44 ára var
lengst af hlaupsins í 5. sæti
en náði að tryggja sér 3. sætið
með góðum endaspretti á
tímanum 2.29:04.
Sigurborg Guðmundsdóttir
keppti í 100 m. hlaupi í flokki
35-39 ára og náði fimmta sæti.
Sigurborg setti íslandsmet í und-
anrásunum er hún hljóp á 12.99
sekúndum en hún fékk tímann
13:09 sek. í úrslitahlaupinu sem
fram fór í mikilli rigninguí úrslita-
hlaupinu í mikilli rigningu.
Jón Magnússon kastaði 46.08
metra í sleggjukasti í aldursflokki
55-59 ára og varð í 8. sæti.
Jóhann Jónsson, sem ætlar sér
að veija heimsmeistaratitil sinn í
þrístökki á laugardaginn keppti í
tugþraut og lenti í 12. sæti. Jóhann
keppir í aldursflokki 70-74 ára.
Staðan hjá okkur í D-riðli 4.
deildar var ekki alveg rétt í gær.
Hér birtist hún rétt. Einn tölustafur
féll út þegar við sögðum frá úrslit-
úm í leik Stjörnunnar og Reynis frá
Sandgerði í 2. deild kvenna. í blað-
inu stóð 4:0 en það vantaði 1, því
leikurinn endaði 14:0.
4. DEILD C-RIÐILL
Fj.leikja U J T Mörk Stig
GRÓTTA 7 7 0 0 48: 7 21
SNÆFELL 8 2 4 2 00 ö CM 10
FJÖLNIR 7 3 1 3 16: 14 10
HAFNIR 7 3 1 3 19: 21 10
ÁRVAKUR 8 2 3 3 18: 20 9
LÉTTIR 7 0 1 6 7: 53 1
SKOTFIMI
Athugasemd
formanns STÍ
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Þorsteini Ásgeirssyni formanni
Skotsambands íslands.
1. Árangur Tryggva Sigmann-
sonar í loftskammbyssu 575 stig á
móti í Finnlandi 6. 7. 1991. Sem
er íslandsmet í þeirri grein. í loft-
skammbyssu er keppt samkvæmt
reglum alþjóða skotsambandsins
(UIT) og er þessi grein jafnframt
Olympíugrein.
Þessi ámgur Tryggva er besti
árangur íslendings í loftskamm-
byssu til þessa.
2. Einar Páll Garðarsson náði
189 stigum á íslandsmóti í hagla-
byssuskotfimi (skeet) í Leirdal 6.
7. 1991. Og er íslandsmet í þeirri
grein. í haglabyssuskotfimi (skeet)
er keppt samkvæmt reglum alþjóða
skotsambandsins (UIT) og er þessi
grein jafnframt Ólympíugrein.
Þessi árangur Einars er besti
árangur íslendings í Haglabyssu-
skotfimi til þessa.
3. Skráð íslandsmet Carls J.
Eiríkssonar í enskri keppni (utan-
húss) í riffli er 588 stig. Náð í
Zurich 4. júní 1990. I enskri keppni
er keppt samkvæmt reglum alþjóða
skotsambandsins (UIT) og er þessi
grein jafnframt Ólympíugrein.
4. Besti árangur Carls J. Eiríks-
sonar í riffilskotfimi innanhús 60
skot liggjandi er 596 stig. Alþjóða
skotsambandið skráir ekki innanhú-
skeppnir sérstaklega sem alþjóðleg-
an árangur. Heldur er ekki vitað
um neitt land sejn skráir slíkar
keppnir fyrir utan ísland. Skotsam-
bandið veitir undanþágu til skrán-
ingar á íslandsmeti í riffli innan-
húss.
Greinin er byggð á misskilningi
og er því eki ástæða til að elta ólar
við það
Höfundur er formaður Skotsam-
bands íslands.