Morgunblaðið - 24.07.1991, Qupperneq 39
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
39
Bo hættir - Ásgeir
Elíasson tekur við
SVÍINN BO Johansson hættir
sem landsliðsþjálfari íslands í
knattspyrnu eftir vináttuleikinn
við Dani 4. september næst-
komandi og Ásgeir Elíasson,
þjálfari Fram, verður eftirmað-
ur hans. Fyrsti leikur íslenska
landsliðsins undir stjórn Ás-
geirs verður á Laugardalsveili
25. september — gegn Spán-
verjum í Evrópukeppninni. Ás-
geir verður ráðinn til tveggja
ára.
Knattspymusambandið gefur
tvær ástæður fyrir því að Bo
Johansson hætti störfum. Í fyrsta
lagi að hann telji veru sína á ís-
landi erfiða fyrir fjölskyldu sína, en
Bo býr hér á landi í 8 mánuði á
ári. Og í öðm lagi hafí KSÍ haft
áhuga á að ráða íslenskan þjálfara.
Svíinn var með samning við KSÍ
út þetta ár, en síðasti leikur ársins
er í Evrópukeppninni gegn Frökk-
um í Paris 20. nóvember. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, og Jo-
hansson hittust á fundi í gærmorg-
un þar sem ákveðið var, skv. upplýs-
ingum frá KSÍ, að samningur
Svíans yrði ekki framlengdur.
Morgunblaðið hefur hins vegar
heimildir fyrir því að landsliðsnefnd
hafi ákveðið það á fundi fyrir
nokkru að framlengja ekki samning
Johanssons, og stjórn KSÍ hafi þeg-
ar verið búin að samþykkja þá nið-
urstöðu fyrir fundinn í gærmorgun.
Vildi hætta strax
Landsliðsþjálfarinn óskaði eftir
því í gær að hætta þegar störfum,
en féllst á að stjóma liðinu í vináttu-
leiknum gegn Dönum, þar sem
Ásgeir eftirmaður hans er upptek-
inn við þjálfun og stjórnun Fram-
liðsins og baráttan um íslands-
meistaratitilinn verður komin á
lokastig þegar Danaleikurinn fer
fram. Ásgeir hefur því um nóg
annað að hugsa á þeim tíma, eins
og hann og hann orðar það sjálfur
í viðtali hér að neðan.
Fráfarandi landsliðsþjálfari full-
yrti, í samtali við Morgunblaðið í
Ásgeir Elíasson þjálfarí Fram sem
stjórnar landsliðinu a.m.k. næstu tvö
árin.
gærkvöldi, að hann hefði viljað
kiára tveggja ára samning sinn við
KSÍ en hverfa síðan á braut. Hefði
ekki viljað starfa lengur hér á landi,
aðallega vegna þess — eins og fram
kom í fréttatilkynningu frá honum
og Eggert Magnússyni sem send
var út í gærkvöldi — hversu lengi
hann er í burtu frá fjölskyldu sinni
á ári hveiju. Hann hefði því talið
rétt að hætta strax og gefa nýjum
manni tækifæri á að taka við liðinu
sem fyrst. Stýra því gegn Dönum
og síðan í Evrópuleikjunum tveim-
ur. „Það er alltaf best fyrir þjálfara
að hafa sem bestan tíma,“ sagði
Johansson í gærkvöldi. En þegar
hann hefði vitað að eftirmaðurinn
Morgunblaðið/Bjarni
Bo Johansson, fráfarandi landsliðsþjálfari, á varamannabekknum í einum af fjórum leikjum undir hans stjóm á
heimavelli. Þeir verða alls fimm - sá síðastLgegn Dönum 4. september.
væri Ásgeir Elíasson, sem vaeri
upptekinn í öðru verkefni, hefði
hann fallist á að stýra liðinu gegn
Dönum.
„Góðurtími"
Johansson sagðist hafa haft mjög
gaman af dvölinni hér á landi. „Ég
hef hitt mikið af góðu fólki hér,
bæði leikmenn og aðra. Þetta hefur
verið góður tími.“ Hann heldur til
Svíþjóðar á morgun, kemur síðan
aftur fyrir úrslitaleikinn í Mjólkur-
bikarkeppninni, fylgist með næstu
umferð í deildinni þar á eftir og þá
verður komið að Danaleiknum.
Hann sagði allt óráðið um fram-
haldið hjá sér — þar sem hann hefðL.
verið í þessu starfi hefði hann neit-
að að ræða önnur hugsanleg verk-
efni fram að þessu.
Landsleikir íslands undir
sljóm Bo Johanssons
1990
28. mars Lúxemborg VLÍsland - Lúxemborg ..2:1
4. apríl Bermúda VLÍsland - Bermúda....4:0
8. apr íl St. Luis VL ísland - Bandríkin.1:4
30. maí Reykjavík EM ísland - Albanía....2:1
8. ágúst Þórshöfn VL ísland - Færeyjar.3:2
5. septemberReykjav. EM ísland - Frakkland.l:2
26. sept. Kosice EM ísland - Tékkóslóvakía ....0:1
10. október Sevilla EM ísland - Spánn.1:2
1991
27. apríl Watford yL ísland - England b.0:1
1. maí Cardiff VL ísland - Wales......0:1
7. maí Valetta VL ísland - Malta.........4:1
26. maí Tirana EM ísland - Albanía......0:1
5. júní Reykjavík EM ísland - Tékkóslóvakía...0:l
17. júlí Reykjavík VL ísland - Tyrkland.5:1
Veit ekki hvort ég geri
meiriháttar breytingar
r __ *
segirAsgeir Elíasson nýráðinn landsliðsþjálfari Islands í knattspyrnu
að var verið að ganga frá
þessu og ég hef ekki haft
mikinn tíma til að hugsa um
þetta, en verð ég ekki að segja
að þetta leggist vel í mig? Annars
hefði ég varla tekið starfið að
mér,“ sagði Ásgeir Elíasson ný-
ráðinn landsliðsþjálfari íslands í
knattspyrnu í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Ásgeir hefur verið þjálfari
meistaraflokks Fram undanfarin
ár og er þetta sjöunda árið sem
hann sér um þjálfun á þeim bæ.
Hann lék fyrsta landsleik sinn
árið 1970 og þann síðasta árið
; 1983. „Ég er skráður með 39
landsleiki en ég held ég hafi bara
leikið 32 eða 33,“ sagði Ásgeir í
gærkvöldi.
Ásgeir er íþróttakennari að
mennt og hefur auk þess sótt
ýmis þjálfaranámskeið á liðnum
árum auk þess sem hann hefur
farið erlendis og athugað hvernig
þjálfarar þar bera sig að. Hann
hefur verið þjálfari í 12 ár sam-
fleytt þrátt fyrir að hann sé ekki
nema 41 árs. Hann lék með Fram
fram til ársins 1975 er hann gerð-
ist leikmaður og þjálfari á Ól-
afsvík. Leiðin lá aftur til Fram
og þar lék hann þar til hann tók
að sér að þjálfa og leika með FH
árið 1980. Næstu fjögur ár þjálf-
aði hann Þrótt í Reykjavík og nú
er hann að ljúka sjöunda árinu
sem þjálfari hjá Fram.
„Það er talað um að gera samn-
ing til tveggja ára en það er ekki
búið að ganga frá neinum samn-
ingum ennþá,“ sagði Ásgeir í
gærkvöldi. „Ég veit ekki hvort það
verða meiriháttar breytingar á lið-
inu en sjálfsagt gerir maður ein-
hveijar breytingar, en eins og er
hef ég nóg annað að hugsa um
enda deildarkeppnin aðeins hálfn-
uð,“ sagði Ásgeir, en hann mun
stjórna landsliðinu í leik gegn
Spánveijum á Laugardalsvelli 25.
september.
„Mér hefur stundum fundist að
velja hefði mátt aðra menn í
landsliðið þegar hópurinn hefur
verið tilkynntur og þá hugsanlega
fljótari menn því ég tel, og byggi
það á eigin reynslu, að móther-
jarnir séu oftast fljótari á boltann
en við. Við eigum fullt af ungum
og efnilegum strákum og ég mun
reyna að byggja liðið upp á fljót-
um og „teknískum" leikmönnum,
en við vitum að það er alltaf á
brattann að sækja hjá okkur því
við leikum mest við atvinnu-
menn,“ sagði nýi landsliðsþjálfar-
inn í gærkvöldi.
Aðspurður um hvar uppáhalds
knattspyrnan hans væri leikinn
sagði hann: „Ég hef alltaf verið
hrifinn af Brasilíumönnum og
Hollendingum. Það er svo mikil
mýkt i leik Brasiliumanna og
Hollendingar voru með geysilega
sterkt lið á árunum 1970-74 og
svo auðvitað á síðustu árum,“
sagði Ásgeir.
Framarar hafa verið mjög sig-
ursælir undir stjórn Ásgeirs. Þau
sex ár sem hann hefur þjálfað lið-
ið hafa þeir unnið sex stóra titla.
Þeir urðu íslandsmeistarar árin
1986, 1988 og 1990 og bikar-
meistarar árin 1985, 1987 og
1989.