Morgunblaðið - 24.07.1991, Page 40
svo vel
sétryggt
ALMENNAR
UNIX
FRAMTÍÐARINNAR
HEITIR:
IBM AIX
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Mulroney
hittir Davíð
í Leifsstöð
— Forsætisráðherrar Islands og
Kanada, Davíð Oddsson og Brian
Mulroney, munu eiga fund í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar síðdegis í
dag, en Mulroney kemur við hér
á landi á leið sinni frá Evrópu
vestur um haf.
Að sögn Hreins Loftssonar, að-
stoðarmanns forsætisráðherra, ósk-
aði Mulroney eftir fundi með Davíð
þegar ljóst varð að hann kæmi við
hér á landi. Gera megi ráð fyrir að
þar muni þeir meðal annars fjalla
um fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja
Vesturlanda í London á dögunum,
auk hugmynda Mulroneys um að
efla samstarf ríkja á norðurhveli
jarðar, einkum í tengslum við um-
'Tfverfismál og nýtingu auðlinda.
Knattspyrna:
Asgeir ráð-
inn lands-
liðsþjálfari
SVÍINN Bo Johansson hættir sem
landsliðsþjálfari í knattspyrnu
eftir vináttuleik gegn Dönum á
Laugardalsvelli 4. september og
hefur Asgeir Elíasson, þjálfari
íslandsmeistara Fram, verið ráð-
inn eftirmaður hans.
Morgunblaðiö/Arni Sæberg
Sprengtfyrir Vestfjarðagöngum
Framkvæmdir eru nýhafnar við gerð jarðganga undir Breiðadals- að lengd. Myndin sýnir framkvæmdir í Tungudal við ísafjarðarkaup-
og Botnsheiði. Göngin, sem eiga að tengja Suðureyri í Súgandafírði stað, þar sem verið er að undirbúa sprengingar fyrir göngunum.
og Flateyri í Önundarfirði við ísafjarðarsvæðið, verða alls 8,7 km
Samningur Johanssons rennur út
um áramót, og samþykktu landsliðs-
nefnd KSÍ og síðar stjórn sambands-
ins, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, að endurráða hann ekki.
Johansson vildi fá að hætta strax,
en féllst á að stjórna liðinu gegn
Dönum.
Fyrsti leikur landsliðsins undir
stjóm Ásgeirs verður í Evrópu-
-keppninni 25. september gegn Spán-
veijum á Laugardalsvellinum.
Sjá nánar bls. 39.
Ásgeir Elíasson
Bo Johansson
Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands:
Nú er lag að leggja láns-
kjaravísitöluna niður
Veit að umræðan um afnám lánskjaravísitölunnar skelfir víxlarana
EINAR Oddur Kristjánsson, for-
maður Vinnuveitendasambands
íslands, segir að tímabært sé að
afnema lánskjaravísitölu og það
sé raunhæft að stefna að því að
gera það í kjölfarið á skynsam-
legum kjarasamningum í haust,
sem tryggi áframhaldandi stöð-
ugleika í þjóðfélaginu. Hann seg-
ist vera í meginatriðum sammála
Erni Friðrikssyni, formanni
Málm- og skipasmiðasambands
íslands og 2. varaforseta Alþýðu-
sambands íslands, í þessuin efn-
um, en hann sagði í Morgunblað-
inu í gær að nauðsynlegt væri
að afnema sjálfvirkni milli launa
og lánskjaravísitölu. Jón Sigurðs-
Sjávarútvegur:
TCostnaður við þjónustu og
eftirlit um 2,9 milljarðar
AÆTLAÐUR kostnaður ríkisins við þjónustu, stjórnun og eftirlit
með sjávarútveginum er um 2,9 milljarðar króna í ár. Greiða þyrfti
um 3,50 króna veiðigjald af hverju kílói í þorskigildum til að greiða
þennan kostnað, miðað við 800 þúsund tonna afla í þorskígildum,
en aflinn árið 1987 var 843 þúsund tonn í þorskigildum. Akveðið
hefur verið að hækka taxta Ríkismats sjávarafurða um þriðjung í
.^-wimræmi við þá stefnu að fyrirtækin greiði kostnað við þá þjón-
ustu, sem þeim er veitt.
Grandi hf. er með 2,73% af heild-
araflakvótanum í þorskígildum á
yfírstandandi kvótatímabili og ætti
því að greiða um 79 milljónir króna
í veiðigjald á þessu ári, eða 42%
af hagnaði fyrirtækisins í fyrra, ef
fyrirtækið ætti að greiða 2,73% af
áætluðum kostnaði við þjónustu,
stjórnun og eftirlit með sjávarút-
veginum í ár. Vegna ójafnaðs
skattalegs taps frá fyrri árum greið-
ir Grandi engan tekjuskatt í ár en
hagnaður fyrirtækisins var 190
milljónir króna í fyrra.
Framlag ríkisins til Vita- og
hafnamálastofnunar er 1.266 millj-
ónir króna í ár, Landhelgisgæslunn-
ar 677 milljónir, Hafrannsókna-
stofnunar 518 milljónir, Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins 89,4
milljónir, aðalskrifstofu sjávarút-
vegsráðuneytisins 77 milljónir,
Ríkismats sjávarafurða 62-63 millj-
ónir, skrifstofu rannsóknastofnana
atvinnuveganna 58,3 milljónir, Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins um 50
milljónir, Fiskifélags íslands 44,7
milljónir, veiðieftirlits sjávarútvegs-
ráðuneytisins 34,6 milljónir, bygg-
ingar rannsóknastofnana sjávarút-
vegsins 20 milljónir og Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins 6,2 milljónir.
Sjá nánar í Ur verinu bls. B3.
son, viðskiptaráðherra, sagðist
aðspurður ekki hafa séð þessa
frétt og ekki geta tjáð sig fyrr
en hann hefði lesið hana.
„Ég er heilmikið sammála Erni
Friðrikssyni í þessum efnum. Við
skulum vona að okkur takist nú í
haust að gera raunhæfa og skyn-
samlega kjarasamninga sem
tryggja áframhaldandi stöðugleika
í þessu þjóðfélagi. Ef okkur tekst
það ætti það ekki að vera nein
goðgá að hafa það sem markmið
að þessi lánskjaravísitala hreinlega
hyrfi. Ég held hún verði að hverfa,
hún var aldrei annað en veruleika-
flótti,“ sagði Einar Oddur.
Hann sagði að lánskjaravísi-
tölunni hefði verið komið á fót með
lögunum 1979 til þess að bjarga
því sem bjargað varð en hún ætti
ekki rétt á sér í þjóðfélagi stöðug-
leika og skynsamlegra kjarasamn-
inga. Ef það tækist að gera skyn-
samlega kjarasamninga ætti hún
að hverfa fyrr en seinna. „Menn
hafa haldið dauðahaldi í lánskjara-
vísitöluna vegna þess að þeir hafa
ekki haft trú á því að hér væri
hægt að skapa heilbrigt þjóðfélag,
þjóðfélag sem býr við lágt verð-
bólgustig og byggir á heilbrigðri
og raunhæfri hagstjórn. Þess vegna
hafa menn haldið dauðahaldi í þessa
vísitölu, en það er lag nú til að
leggja hana niður og það verður
að nýta,“ sagði Einar Oddur.
Hann sagði að vísitölur væru
reiknilíkön þar sem reynt væri að
líkja eftir veruleikanum og það
mætti ekki taka þær fram yfir veru-
leikann sjálfan. „Mér er engin laun-
ung á því að takist okkur að end-
urnýja samninga ogtryggja stöðug-
leika í þjóðfélaginu, þá er það rétt
að lánskjaravísitalan fari. Við verð-
um að vinna okkur frá þessum vísi-
tölum. Það verða allir að taka
ábyrgð á sér í þessum heimi og
taka þá áhættu sem því fylgir. Það
er ekki hægt til lengdar að búa við
þessa misvísan. Einhveijir gætu
ímyndað sér að til séu áhættulaus
viðskipti vegna þeirrar sjálfvirkni
sem vísitölurnar bera með sér, en
svo er ekki. Allir verða að taka
áhættu og þeir sem ekki taka
áhættu og vilja samt hafa allt sitt
á þurru verða dragbítar á þjóðfélag-
ið. Ég veit að þessi umræða um að
afnema lánskjaravísitöluna skelfir
víxlarana. En það mun aldrei skap-
ast fullkomið traust milli aðila
vinnumarkaðarins og launþegar
verða aldrei fullkomlega öruggir
meðan það misgengi sem varð
1983-84 milli launa og lánskjara
getur endurtekið sig. Það misgengi
var óhæfa og má ekki endurtaka
sig.“
Sjá ennfremur innlendan vett-
vang á bls. 16-17.