Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 2

Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 Selfossi. SNARPUR jardskjálftakippur fannst í Hveragerði og í Ölfusi um tíuleytið í gærmorgun. Kipp- urinn mældist 3 stig á Richter og átti upptök í um 2ja kíló- metra fjalaígð frá Hveragerði til suðausturs. I kjölfar kippsins fundust svo aðrir vægari. Ibúum Hveragerðis varð mörgum hverft við enda fannst kippurinn greinilega þar. Kippirnir fund- ust einnig á Selfossi en voru þar mun vægari. „Já ég fann kippinn rækilega. Það var eins og eitthvað stórt rækist snögglega á húsið,“ sagði Kristín Ólafsdóttir sem býr í Þórs- mörk 1 í Hveragerði. Hún var að tala við móður sína á Selfossi í síma þegar kippurinn reið yfir og fundu þær báðar kippinn en Kristín mun greinilegar. Kristín sagðist hafa heyrt leir- tauið glamra í eldhússkápunum og þilplötur í kjallara runnu til. Hún hélt á 5 mánaða dóttur sinni og við kippinn brá þeirri litlu mjög og kipptist til. „Það fyrsta sem manni datt í hug var Suðurlandsskjálftinn enda er alltaf verið að minnast á hann og hræða mann með honum. Mað- Jarðskjálfti í Hveragerði: Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kristín Ólafsdóttir með dóttur sína Eyrúnu Briem og Þórhallur Hróðmarsson Var eins og eitthvað stórt rækist snögglega á húsið ur vonar bara að þessu fylgi ekki hrina eins og í vor þegar margir kippir komu á hveijum degi. Ann- ars er þetta bara nokkuð sem maður býr við og lærir að búa við.“ Píanóið hoppaði „Ég sat við píanóið sem hoppaði til. Þetta var eins og snöggt vel útilátið högg á húsið,“ sagði Þór- hallur Hróðmarsson sem býr við Lyngheiði. „Maður fann jú almennilega fyr- ir honum þessum en annars er maður svo vanur þessum smákipp- um hérna að maður kippir sér ekki upp við þetta en vissulega getur þetta verið ónotalegt fyrir fólk sem ekki er vant þessu." Þórhallur sagðist hafa upplifað það í afmælisveislu á æskuárum sínum í Hveragerði að stór hrafn- tinnusteinn kom niður í afmælis- borðið ofan úr hillu. í kjölfar jarðskjálftakippsins var lesin í útvarpi áminning þar sem fólk var hvatt til að kynna sér við- brögð við jarðskjálftum. , Sig. Jóns. Sjávarútvegsráðherrar Norðurlandanna: Auðlindir hafsins verði nýttar á vís- indalegum grundvelli FUNDI sjávarútvegsráðherra Norðurlandanna lauk á Grænlandi í gær, en fundurinn hófst á þriðjudaginn. Þorsteinn Pálsson, sjávar- útvegsráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að helstu mál fundarins hefðu verið umræður um EB-EFTA-samningana og undirbúning að umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður í Brasilíu á n'æsta ári. Hann sagð; að í ályktun fundar- ins varðandi þann undirbúning kæmi fram samhljóða álit þjóð- anna, að þær vilji leggja áherslu á að auðlindir hafsins verði nýttar á vísindalegum grundvelli og lögð verði áhersla á það að líta með sama hætti á hvali eins og önnur sjávardýr að þessu leyti. Þá væri lögð áhersla á að eftirlit og stjórn- un slíkra veiða geti farið fram á grundvelli svæðisbundinna sam- taka. „Ég tel að þetta séu atriði sem skipti mjög miklu máli fyrir okk- ur, og að víðtæk samstaða náist um með Norðurlandaþjóðunum. Ég er þess vegna mjög ánægður með niðurstöðu fundarins að þessu leyti,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði að í umræðum um EFTA-EB samningana á fundin- um hefði fátt nýtt komið fram. „Það hefur verið lögð áhersla á það af okkar hálfu, og einnig kom það fram af hálfu Norðmanna, að krafan um fullan markaðsaðgang standi óbreytt, og hlýtur hún að vera forsenda fyrir framhaldi við- ræðnanna," sagði hann. Á fundi sjávarútvegsráðherra Norðurlandanna var einnig rædd- ur undirbúningur að nýju sam- starfsverkefni Norðurlandanna á sjávarútvegssviðinu. Að sögn Þor- steins er það mál enn á undirbún- ingsstigi, en ætlunin er að leggja það fullbúið fyrir fund Norður- landaráðs næsta vetur. Viðskiptabankarnir: Afnám lagaákvæða inn verð- trvggingu lagt til við ráðherra Fiskafli í júlí með besta móti Um 30.000 tonn eftir af þorskkvótanum FISKAFLINN í júlí síðastliðnum reyndist með bezta móti. AIls öfluðust um 71.000 tonn, sem er um 3.000 tonnum meira en í fyrra. Aukning milli ára liggur mest í miklum ufsaafla. Það, sem af er árinu er afli 662.000 tonn á móti 1.057.000 í fyrra, en þar ræður mestu loðnubrest- urinn í vetur sem leið. Þorskafli um mánaðamótin var orðinn tæplega 215.000 tonn en var á sama tíma í fyrra 222.000 tonn. Því eru um 30.000 tonn eftir af leyfilegum þorskafla. N'% Þorskafli fyrir fiskveiðiárið, sem nú er að ljúka var 245.000 tonn, en leyfílegt er að færa 20% af út- hlutun þessa árs yfir á nýtt físk- veiðiár, sem hefst eftir næstu mán- aðamót. Ýsuafli er nú nokkru minni en í fyrra, en betur hefur fískazt af karfa og ufsa. Töluverð aukning hefur einnig orðið á veið- um af steinbít og kola og humri og rækju. Forsvarsmenn Seðlabanka og innlánsstofnana funduðu um verðtryggingarhalla í gær toníá mítiTe.os^tonnímffyS VIÐSKIPTABANKARNIR hafa óskað eftir því við viðskiptaráð- herra að hann beiti sér fyrir afnámi lagaákvæða og reglna um verðtryggingu. Valur Vals- son bankastjóri íslandsbanka segir að verði hömlum á verð- tryggingu aflétt megi gera ráð fyrir að 22 - 26 milljarða verð- tryggingarhalla innlánsstofn- ana verði eytt með því að verð- tryggja meira af útlánum. Full- trúar banka og sparisjóða áttu í gær fund með bankastjórn Seðlabankans þar sem rætt var um þann vanda sem skapast hefur hjá innlánsstofnunum vegna misræmis verðtryggðra innlána og útlána. Að sögn Vals Valssonar kom fram á fundinum að bæði Seðla- bankinn og innlánsstofnanir hafa miklar áhyggjur af þessari þróun og eru sammála um að verðtrygg- ingarhallinn sé óviðunandi og skapi mikla áhættu í rekstri innlánsstofn- ana. „Vaxtamálin eru af þessum sökum í ógöngum og við verðum að fínna leið út úr þeim. Að mínu mati er eina raunhæfa leiðin, þegar til lengri tíma er litið að afnema þessar sérstöku verðtryggingar- reglur sem gilda í bönkum og spari- sjóðum,“ sagði Valur Valsson. Valur segir að verði hömlum á verðtryggingu aflétt megi gera ráð fyrir að verðtryggingarhalla verði eytt með því að verðtryggja meira af útlánum. „En eftir að jafnvægi . verður. náð. og . því .markmiði. að.. hafa meiri stöðugleika í verðlagi en verið hefur á síðustu árum geri ég ráð fyrir að verðtrygging á skammtimaskuldbindingum muni smám saman heyra sögunni til,“ sagði Valur. Hann sagðist telja ógjöming að segja til um á hve löng- um tíma jafnvægi næðist en minnti á að frá 1. janúar 1993 stæði til að opna hagkerfíð og gefa fjár- magnsflutninga til og frá landinu frjálsa. Valur sagði að á næstunni mundu sérfræðingar vinna að athugun þessa máls en innlánsstofnanir leggi áherslu á að nauðsynlegt sé að vinna hratt því tíminn sé orðinn naumur. Forsvarsmenn innláns- stofnana og Seðlabanka myndu koma saman til funda eftir því sem þeirri vinnu yndi fram. Aðspurður sagði hann að engin viðbrögð hefðu borist frá viðskiptaráðherra við til- lögum um afnám reglnanna og ekki væri vitað hvenær þeirra væri að vænta. Þær verðtryggingareglur sem innlánsstofnunum hefur verið gert að vinna eftir frá síðustu áramótum fela í sér að heimilt er að verð- tryggja innlán til sex mánaða eða lengri tíma en útlán einungis ef þau eru til 3 ára eða lengri tíma. og eru togararnir með tvo þriðju hluta hans. Alls öfluðu togaramir nú 41.535 tonn en 42.077 tonna í fyrra. Bátaflinn varð 22.189 tonn, rúmum 4.000 tonnum meiri en í fyrra og trillumar tóku rúm 7.000 tonn, nær það sama og í júlí í fyrra. Mestum afla var í júlí landað í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum, rúmlega 6.000 tonnum á hvoram stað, og á Akureyri, 5.575 tonnum. Per-Olof Aronsson forsljóri Granges: Viljum vera með til enda Umræðan um stækkun álbræðslunnar í Sundsvall ótengd Atlantsál með öllu PER-OLOF Aronsson forsljóri Griinges segir að fyrirtækið sé aðili að Atlantsal og hafi fullan hug á að vera með í samstarfs- verkefninu um byggingu og rekstur nýrrar álbræðslu á Keilis- nesi allt til enda. „Vissulega eru ýmis ljón í veginum, en eins og málin standa í dag, þá er Granges fullur aðili að Atlantsál í samvinnu við AJumax og Hoogovens og ég er eindregið þeirrar óskar að svo verði allt til enda,“ sagði Aronsson í samtali við Morgunblaðið i gær. Hann sagði að umræðan um stækkun ál- bræðslu Gránges í Sundsvall í Svíþjóð væri nú komin upp á borðið á nýjan leik, vegna átaka sem ættu sér stað í Svíþjóð um sænska orkustefnu, en þetta tiltekna mál væri með öllu ótengt Atlantsál. „Sænsk orkustefna hefur und- anfarin ár verið mjög í þá veru að loka beri sem flestum kjarn- orkuveram, og á því varð fyrst breyting fyrir ári eða svo,“ sagði . Aronssom . Hann. sagði. að þótt andstaðan við notkun kjarnorku hefði minnkað í Svíþjóð, þá teldi hann horfumar hvað varðar frek- ari nýtingu hennar og þar með innifalið stækkun álbræðslunnar j SundsyalL ekki .góðar.________ „Þá verða menn líka að gera sér grein fyrir því að álbræðslan sem við eigum í Sundsvall er auðvitað sænsk verksmiðja. Ýms- ir hagsmunaaðilar hér í Svíþjóð, sem vita að við höfum áhuga á að fjárfesta í nýrri verksmiðju á íslandi, fyllast áhyggjum og við höfum verið beittir talsverðum þrýstingi af mismunandi hópum, bæði starfsmönnum verksmiðj- unnar í Sundsvall og sveitar- stjómarmönnum. Þeir hafa reynt að sannfæra okkur um ágæti þess að beina fremur fjárfesting- um okkar til Svíðþjóðar og halda áfram starfseminni þar,“ sagði Ar-onsson.. . ........... Aronsson sagði jafnframt: „Við höfum aldrei sagt að við myndum gera annað tveggja, að stækka í Svíþjóð eða halda áfram þátttöku í Atlantsál. Hér er um tvö óskyld mál að ræða og óskyldar ákvarð- anir. í þessu er ekkert annað hvort eða. Við eram enn í Atlantsál og við höfum fullan hug á að vera með í framhaldinu, vonandi til enda, en auðvitað ræðst fram- haldið meðal annars af því hvem- ig fjármögnunarviðræðurnar ganga, eins og þegar hefur verið greint frá,“ sagði Aronsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.