Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
LOFTSTÝRIBÚNAÐUR
CoJ**
Höfum fyrirliggjandi:
• Loftstrokka
• Loftstýriloka
• Tengibúnað
Alltsamkvæmt ^^stöðlum
Veitum tækniráðgjöf og þjónustu
Allar nánari upplysingar gefur
LANDSSMIÐJAN HF.
VERSLUN:SÖLVHÓLSGÖTU 13•101 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 20680 • TELEFAX (91) 19199
Matur og mál-
tíðir aldraðra
eftirFriðrik
Einarsson
Víkveiji Morgunblaðsins skrifaði
27. f.m. mjög athyglisverða grein,
m.a. um ofannefnd efni. Ég hefí
orðið var við að greinin hefir farið
fram hjá of mörgum. Þess vegna
vil ég leyfa mér að endurtaka sumt
af henni, og bæta svolitlu við, en
þeir sem enn kunna að eiga Morg-
unblaðið frá 27. júlí ætt'u að lesa
hana alla.
„Þjónustu- og félagsmiðstöðvar
fyrir aldraða hafa skipt sköpum
fyrir marga og ef til vill sérstaklega
fyrir þá sem búa einir. Þarna kom-
ast þeir í samband við annað fólk
á sínu reki. Hafa tækifæri til að
rifja upp liðna tíð ásamt því að
eyða deginum í tómstundir og ýmsa
skemmtan. Þjónustumiðstöðvarnar
sinna að mörgu leyti því hlutverki,
sem stór heimili gerðu fyrr á öld-
inni...
Heimsendingarþjónustan á mat,
sem aldraðir borgarar geta fengið
í hádeginu ýmist frá Rauða krossin-
um eða þjónustumiðstöðvunum, er
þægileg. Þó hafa margir kvartað
yfir því sín á milli að megnið af
matnum hæfi ekki eldra fólki. Eiga
þeir þá við feitt kjöt, djúpsteiktan
mat, feitar sósur, saltkjöt og yfir-
leitt þann mat sem þessum aldurs-
hópi er ráðlagt að forðast. Óánægja
er með að ekki skuli a.m.k. vegna
hægt að velja um létt fæði, þar sem
mikið er af grænmeti, soðinn fisk
eða bakaðan, kjúkling og oftar soð-
ið kjöt. Er bent á þetta hér forsvars-
mönnum þessara stofnana til at-
hugunar.
Aldraður ættingi Víkveija dvelur
á einu af elliheimilum landsins.
Hann segist oft standa upp frá
borðum án þess að vera saddur.
Ekki er hægt að kenna því um að
honum bjóðist ekki nægur matur
heldur hijá hann erfiðleikar við að
tyggja, þannig að hann er lengi að
borða. Þegar starfsfólkið í eldhús-
inu byijar að ganga frá hugsar það
e.t.v. ekki út í þetta og ýtir á hann
að ljúka matnum. Hann kann þá
ekki við að sitja mikið lengur og
stendur upp frá borðum.“
Hér er ekki miklu við að bæta.
Ég er viss um að sá matur sem
gamla fólkið langar mest í og kem-
ur því best þegar til lengdar lætur
er óbreyttur, íslenskur matur: Soð-
inn fískur, soðið kjöt, soðnar kart-
öflur ásamt grænmeti eftir því sem
efni leyfa, en grænmeti er því mið-
CtfíRP^R .
arahlutir
nyíum
Samskonar ábyrgö og fyrir nýjan búnað. Eins árs ábyrgð óháð
vinnustundafjölda fylgir hverjum hlut.
Ræsar/Rafalar
Olíuverk.....
Olíudælur....
Forþjöppur ...
Vatnsdælur...
Hreyfill (34D6).
Strokkstykki ..
Drifbúnaður ...
Strokkslífar og stimplasétt
Stimpilstangir.............
Sveifarás (grunnstærð) ....
Sveifarás (undirstærð) ....
Strokkstykki (með stimplum
og sveifarási)..............
Eldsneytislokar.............
HEKLA
LAUGAVEGI174
SÍMAR:
695750 & 695751
ATH! Nýtt telefax nr. á varahlutalager: 695-788
8 fe fi [ i w j
f I jl i 1 I
/' 1
\i
Friðrik Einarsson
„Vil ég stinga upp á við
stjórnendur þjónustu-
miðstöðvanna (og
skyldra stofnana),
hvort ekki væri ráð að
kjósa matarnefnd sam-
eiginlega, sem gæfi ráð
um fæði gamla fólks-
ins.“
ur alltof dýrt hér. Feitur matur,
feitar sósur, djúpsteiktur og reyktur
matur ætti að heyra til undantekn-
inga, en auðvitað nauðsynlegt að
breyta til.
Ánnað, sem Víkveiji bendir rétti-
lega á, er að gefa öldruðum nægan
tíma til að borða. Þegar maður er
orðinn gamall gengur allt miklu
hægar en áður var. Þegar gamla
fólkið sér að byijað er að taka út
tómu diskana, fínnst því það ábend-
ing um að ljúka máltíðinni, og
hættir þá oft án þess að hafa feng-
ið nægju sína.
Þetta er ekki skrifað neinum til
hnjóðs, en ég vil biðja starfsfólk,
þótt það sé önnum kafið, að gefa
gamla fólkinu allan þann tíma sem
það þarf til að matast. E.t.v. er
máltíðin sú stund dagsins sem það
í einsemd sinni hlakkar mest til.
Að lokum vil ég stinga upp á við
stjórnendur þjónustumiðstöðvanna
(og skyldra stofnana), hvort ekki
væri ráð að kjósa matamefnd sam-
eiginlega, sem gæfí ráð um fæði
gamla fólksins og annað það sem
hér hefir verið fjallað um.
Hðfundur er fyrrverandi
yfirskurðlæknir Borgarspítalans.
---------------------
■ SÍÐASTI fyrirlestur í Opnu
húsi í Norræna húsinu á þessu
sumri verður á fímmtudagskvöldið
15. ágúst kl. 19.30, en þá talar
Dagný Kristjánsdóttir bókmennt-
afræðingur um íslenskar nútíma-
bókmenntir og flytur mál sitt á
norsku. Á eftir fyrirlestrinum verð-
ur sýnd kvikmyndin Eldur í
Heimaey. Kaffístofa og bókasafn
hafa opið til kl. 22.00 á fimmtu-
dagskvöld.
■ HLJÓMSVEITIN G.C.D. held-
ur tónleika í kvöld, fímmtudag, 15.
ágúst á veitingahúsinu Gauk á
Stöng. Tónleikarnir hefjast upp úr
22.30 og standa til kl. 01.00. Sveit-
ina skipa: Bubbi Morthens, Rúnar
Júlíusson, Gunnlaugur Briem og
Bergþór Morthens. Föstudag og
Iaugardag 16. og 17. ágúst er það
síðan ný hljómsveit Hjartar How-
sér er nefnist Óttablandin virðing.
Sunnudaginn 18. og mánudaginn
19. mæta meðlimir Sniglabandsins
til leiks. Þriðjudaginn 20. og mið-
vikudaginn 21. er það síðan rokk-
sveitin Loðin rotta sem gleðja mun
gesti hússins.
(Fréttatilkynning)
werzalit- íglugga
SÓLBEKKIR
fyrirliggjandi. vatn.
hK SENDUM I PÓSTKRÖFU
co P. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla29 • Reykjavik • simi 38640