Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 29 ÁRIMAÐ HEILLA HJÓNABAND. í Hesslewood Church í borginni Hull í Bretlandi voru gefín saman í hjónaband Jóna Lovísa Jóns- dóttir og Anthony Stowell. Heimili þeirra er þar í borginni. HJÓNABAND. í Svíþjóð hafa verið gefín saman í hjónaband Charlotte Alm og Finnbogi Magnús Árnason, Engjaseli 3, RvíR. Heimíii þeirra í Svíþjóð er: Gárdsby 3 35590 Vaxjö. fT i^ára afmæli. í dag, 15. OU þ-m., er fimmtug Erna Aradóttir, Smáraflöt 35, Garðabæ. Eiginmaður hennar er Sævar 0. Krist- björnsson. Þau taka á móti gestum í samkomuhúsinu á Garðaholti í dag, afmælisdag- inn, kl. 18-21. KIRKJUSTARF___________ LAUGARNESKIRKJA. Kyrrðarstund kl. 12 i dag. Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. FRÉTTIR________________ í VEÐURFRÉTTUNUM í gærmorgun skar Heiðar- bær í Þingvallasveit sig nokkuð úr. Þar hafði úr- koman uin nóttina mælst 18 mm. Veðurstofan sagðh Hiti breytist lítið. I Reykjavík var 10 stiga hiti um nóttina. Minnstur hiti á láglendinu var austur í Norðurhjáleigu, 5 stig. Inni á hálendinu var hiti 3 stig, t.d. í Snæfellsskála. í fyrra- dag var sól i höfuðstaðnum í tæpl. eina klst. Húsnæðisnefnd Kópavogs: Vantar íbúðir fyrir félagslegt húsnæðr HÚSNÆÐISNEFND Kópavogs auglýsti í Morg- unblaðinu sl. sunnudag eftir íbúðum, stigahús- um, fjölbýlishúsum eða lóðum sem henta myndu fyrir félagslegar íbúðir. Að sögn Gissurar Jör- undar Kristinssonar, framkvæmdasljóra Hús- næðisnefndar, er auglýst eftir lóðunum og íbúð- unum þar sem þær lóðir sem nefndin hefur átt kost á hafa ekki hentað fyrir félagslegar íbúðir vegna kvaða um bilageymslur sem á þeim hafa verið. í SÚÐAVÍK. Samgöngu- ráðuneytið augl. í nýlegu Lög- birtingablaði lausa stöðu stöðvarstjóra Pósts & síma vestur í Súðavík. — Umsókn- arfrestur er settur til 23. þ.m. NORÐUR á Húsavík er laus staða lögregluþjóns við emb- ætti sýslumanns Þingeyjar- sýslu, en hann er jafnframt bæjarfógeti Húsavíkur. Um- sóknarfrestinn setur- bæjar- fógetinn, Halldór Kristins- son, til 20. þ.m. Gissur Jörundur sagði í samtali við Morgunblað- ið að Húsnæðisnefndin hefði heimild til að byggja 65 félagslegar íbúðir á þessu ári. „Ástæðan fyrir því að við auglýsum eftir lóðum og hentugum íbúð- um er sú að þær lóðir sem við höfum átt kost á nú hafa verið með kvöðum um bílageymslur en þær eru ekki lánshæfar hjá Húsnæðisstofnun og því ekki hentugar fyrir félagslegar íbúðir. Það er hins vegar enginn vafí á því að hefðum við verið með hentugar byggingarlóðir þá hefðum við byggt sjálf. Af því höfum við bestu reynsluna" sagði Gissur Jörundur. „Hvort við semjum við einn aðila eða marga eða hvort við kaupum margar íbúðir eða fáar liggur ekki fyrir en við erum með heimild fyrir 65 íbúð- um,“ sagði Gissur. TILKYNNINGAR HVOLSVÖLLUR Félagslegar kaupleiguíbúðir Nýlega var samþykkt af Húsnæðismálastjórn ríkisins að veita framkvæmdalán úr Bygg- ingasjóði verkamanna til bygginga 6 félags- legra kaupleiguíbúða á Hvolsvelli. Hugmyndir eru um að byggja 6 íbúða sambýl- ishús með 70 m2til 90 m2 kaupleiguíbúðum, ef þörf reynist vera fyrir þessu húsnæði. Húsnæðisnefnd Hvolhrepps auglýsir nú eftir umsóknum um íbúðirnar. Skilyrði eru um eigna- og tekjumörk. Meðaltal áranna 1987 til 1989 má hæst vera fyrir hvert ár kr. 1.181,975.- fyrir einstakling, kr 1.477,469.- fyrir hjón og 107,683 fyrir hvert barn (á verð- lagi hvers árs). Hámarks leyfileg eign er skv. ákvörðun Húsnæðisstofnunarkr. 1.186,500.- Allar frekari upplýsingar veitir ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, sími 98-78124, og Árni Valdimarsson, formaður húsnæðis- nefndar Hvolhrepps, sími 98-78393. Skriflegar umsóknir þurfa að berast skrif- stofu Hvoihrepps fyrir 15. september nk. Húsnæðisnefnd Hvolhrepps. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Framhaldsaðalfundur Hraðfrystihúss Stokks- eyrar hf. verður haldinn í samkomúhúsinu Gimli, Stokkseyri, föstudaginn 23. ágúst nk. og hefst kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. „ ., . Stjornm. HÚSNÆÐIÓSKAST íbúð - einbýli Óskum eftir að taka á leigu fyrir mjög traust- an aðila 4ra-5 herb. íbúð, raðhús eða ein- býlishús í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi. Upplýsingar veittar á skrifstofu. Fasteigna- & fírmasalan Nýbýlavegi 20 3ja-4ra herb. fbúð óskast Tvær stúlkur í námi óska eftir að taka á leigu íbúð frá 1. september. Skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 678475. ÓSKASTKEYPT Fyrirtæki með skattalegt tap Fyrir hönd umbjóðanda okkar óskum við eft- ir að kaupa heildsölu, smásölu eða annan verslunarrekstur í hlutafélagsformi með yfir- færanlegt, skattalegt tap. Þeir, sem áhuga kunna að hafa, eru beðnir um að hafa sam- band við skrifstofu undirritaðs fyrir 24. ágúst. JónasA. Aðalsteinssón, hrl., Lögmannsstofan Lágmúla 7, sími 91-812622. Heildsala með nauðsynjavöru Höfum mjög fjársterkan umbjóðanda, sem óskar eftir að kaupa innflutningsfyrirtæki, heildsölu eða umboðsfyrirtæki, sem versla með matvöru og/eða annan nauðsynjavarning. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu und- irritaðs fyrir 24. ágúst. JónasA. Aðalsteinsson, hrl., Lögmannsstofan Lágmúla 7, sími 91-812622. TILBOÐ - ÚTBOÐ ij ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna fyrirhugaðrar frjálsíþróttaaðstöðu í Laugardál. Helstu magntölur eru: Gröftur 8.500 m3. Fylling 12.100m3. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 5. september 1991 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirk|uveyi 3 Simi 25800 TIL SÖLU Fiskiðjan Freyja hf. Suðureyri við Súgandafjörð auglýsir til sölu hlutabréfin í Hlaðsvík hf. Hlaðsvík er eigandi b/v Elínar Þorbjarnardóttur, ÍS-700, skipa- skrárnúmer 1482. Togaranum fylgir 75% aflaheimilda hans. Á aðalfundi í Fiskiðjunni Freyju hf. kom einn- ~ ig fram áhugi hluthafa þar að selja öll hluta- bréfin í Fiskiðjunni Freyju hf. Upplýsingar um ofangreind atriði veita stjórnarformaður félagsins, Helgi G. Þórðar- son, Túngötu 6 í Reykjavík, sími 91-21060, og vararformaður, Áðalsteinn Óskarsson, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, ísafirði, í síma 94-4633. Tilboðum skal skila til Aðalsteins Óskarsson- ar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, 400 ísafirði, fyrir 30. ágúst 1991. Réttur er áskilinn til þess að taka hvaða til- boði sem er eða hafna öllum. FÉLAGSSTARF 31.þing Sambands ungra sjálf- stæðismanna á ísafirði 16.-18. ágúst 1991 Dagskrá: Föstudagur 16. ágúst Kl. 12:00 Skráning hefst. Kl. 17:00 Ávarpog þingsetning-DaviðStefánsson.formaðurSUS. Ávarp - ísól Fanney Ómarsdóttir, formaður Fylkis. Ávarp - Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Nefndakjör Kl. 18:30 Nefndastörf. Kl. 19:30 Kvöldverður. Kl. 20:30 Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins sitja fyrir svörum. Stjórnsýsluhús ísafjarðar. Kl. 22:00 Kvöldvaka Laugardagur 17. águst Kl. 9:30 Nefndastörf. Kl. 12:00 Hádegisverður. Kl. 13:00 Nefhdastörf. Kl. 14:00 Skýrsla stjórnar, af- greiðsla reikninga, lagabreytingar. Kl. 16:30 Sigling í Vigur. Kl. 20:30 Hátíðarkvöldverður. Hátíðarræða - Matthías Bjarnason. Sunnudagur 18. ágúst Kl. 9:00 Knattspyrna. Kl. 10:00 Afgreiðsla ályktana. Kl. 12:30 Hádegisverður. Kl. 13:30 Afgreiðsla ályktana. Kl. 15:30 Kosning formanns og stjórnar. Kl. 17:30 Þingslit. Skráning og afhending gagna fer fram á Hótel ísafirði. Þingstörf fara fram i Grunnskóla ísafjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.