Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 31 Guðni Bjamason frá Flatey - Minning Fæddur 9. október 1910 Dáinn 7. ágnst 1991 Góður drengur er genginn á vit feðra sinna. Guðni Bjamason fyrr- verandi umsjónarmaður við Sund- laug Hafnarfjarðar lést á Sólvangi þar í bæ 7. þ.m. Guðni Bjarnason var fæddur í Flatey á Breiðafirði 9. október 1910 sonur hjónanna Júlíönu Guð- mundsdóttur og Bjarna Bjarnason- ar, sem áttu heima öll sín hjúskap- arár í Flatey, og var Guðni einn af sex bömum þeirra. Hann var látinn heita Guðni eftir Guðna kaupmanni Guðmundssyni í Flat- ey, sem farist hafði með báti sínum Hörpu nokkmm dögum áður en drengurinn fæddist, en Guðni kaupmaður var giftur Kristínu Aðalheiði Bjamadóttur sem var alsystir Bjarna Bjarnasonar föður Guðna. Guðni ólst upp hjá foreld- mm sínum í Flatey, og dvaldist þar við nám og störf fram yfir tvítugt er hann fór suður til Reykjavíkur á vélstjómamámskeið, sem hann lauk með sóma 1934. Upp frá því hóf hann störf sem vélstjóri á skipum frænda síns Jóns Sveinssonar fyrst á Þorsteini RE og'Nsíðar á Ásgeiri RE, þar sem hann var lengst af vélstjóri, skip þessi stuiiduðu síldveiðar og vetrarvertíðir, þess á milli kom hann heim til foreldra sinna í Flat- ey og dvaldist þar fram á næstu vertíð. Mér er það jafnan minnisstætt, hve okkur ungu strákunum í Flat- ey þótti mikið til þess koma, þegar Guðni, félagar hans og jafnaldrar komu heim af síldveiðum á haust- in, þeir vora vel klæddir í nýjum fötum með hatt, og báru með sér eitthvað framandi sem við skynjuð- um sem einhvern vott af stórborg- arbrag, þetta voru allt bráðmynd- arlegir menn, sem við voram stolt- ir af sem Flateyingar. Hámarkið Fædd 4. nóvember 1908 Dáin 2. ágúst 1991 Þegar vinir deyja, deyr hluti af manni sjálfum. Þannig er því varið við fráfall vinkonu minnar Þuríðar Jóhannesdóttur. Eftir stendur ófyllt skarð en þekkar minningar streyma fram í hugskotið. Hún hét fullu nafni Þuríður Svanhildur og var fædd á Mið- grand í Skagafírði þann 4. nóvem- ber 1908 og hlaut það hlutskipti að alast upp meðal vandalausra frá 7 ára aldri. Sauðfjárveiki hafði heijað á héraðið og áttu foreldrar hennar ekki annars úrkosta en að bregða búi. Næstu sex árin dvaldi hún i Vesturdal í Skagafirði en til þeirrar byggðar bar hún æ síðan afar sterkar tilfinningar. Afburðagreind, háttvísi, iðju- semi, hógværð og skapfesta ein- kenndu Þuríði til hinstu stundar. Hún hlaut í æsku meiri menntun en títt var um hérlendar konur á fyrri hluta aldarinnar. Þannig var hún veturlangt við nám í Kvenna- skólanum á Blönduósi. Næsta vet- ur var hún fengin til að vefa fyrir skólann. Slíkt mun hafa verið mik- il upphefð fyrir unga stúlku í þá daga og sýnir hve mikillar tiltrúar hún naut þá þegar. Leið Þuríðar lá því næst í Kenn- araskóla íslands en þaðan varð hún frá að hverfa eftir eins árs nám vegna fjárskorts. í Kennaraskólan- um kynntist Þuríður eftirlifandi eiginmanni sínum, Þórarni Jóns- syni, kennara, og gengu þau í var er þeir höfðu nýja harmónikku meðferðis, eins og Guðni og Maggi Stefáns. Þá fór líka í hönd undir- búningur undir hinar árvissu skemmtanir 1. des. og félags- skemmtanir að ógleymdu þorra- blóti eftir áramótin. Ungu menn- irnir voru allt í öllu, og átti Guðni frændi minn stóran þátt í því, hann söng í karlakórnum „Gamla Nóa“, kirkjukórnum, lék i leikritum, sá um brennuna á gamlárskvöld, og lék svo fyrir dansi ásamt öðrum á öllum þessum skemmtunum. Jáj þá var nú líf og fjör í Flatey. I stríðsbyijun má segja að Guðni hafi verið alfluttur suður, a.m.k. kom hann ekki eins reglubundið heim eftir vertíðir, enda var þá orðið mun minna um atvinnu í Flat- ey en áður var. Hann sást þó end- rum og eins öllum til óblandinnar ánægju, einkum þó öldraðum for- eldrum hans, sem hann reyndist hinn besti sonur, enda var Guðni fádæma góður og vinsælll maður. Eins og áður er sagt var sjó- mennska aðalstarf Guðna framan af æfí, og var hann vélstjóri á bátum við allskonar veiðiskap. Á þeim árum átti hann heimili hjá Laufeyju systur sinni og Andrési Bjarnasyni, sjómanni, manni henn- ar á Mýrargötu í Reykjavík. Var Guðni systur sinni mikil stoð og stytta og langri fjarveru manns hennar á sjónum á togurum í ógn- um stríðsins. Þar bjó hann allt til ársins 1948, er hann kvæntist in- dælli konu Sigurunni Konráðsdótt- ur og flutti með henni í Hafnar- ijörð. Hún var einstæð móðir með 5 böm, sem Guðni reyndist sem besti faðir. Þau áttu saman tvö börn Stúlku og dreng, sem dóu bæði við fæðingu. Árið 1956 veiktist Guðni í lung- um og var lagður inn á Vífilsstaða- spítala, þar sem hann er í nær eitt og hálft ár. Má nærri geta hve óskaplegir erfíðleikar voru hjá hjónaband þann 5. júní 1930. Ekki var auðvelt fyrir ungan kennara að fá fasta kennarastöðu á kreppuáranum. Farkennsla í Kjós var það vænlegasta sem bauðst. Ungu hjónin dvöldu þann vetur á Ingunnarstöðum í Kjós, þar sem þeim fæddist elsta dóttir- in. Átti Þuríður æ síðan afar góðar minningar um hjónin á Ingunnar- stöðum og dvöl sína þar. Að því kennsluári loknu héldu þau til Reykjavíkur, þar sem Þór- ami hlotnaðist forfallakennsla við Austurbæjarskólann. Þaðan lá leiðin til Aðalvíkur í Norður-ísa- fjarðarsýslu og síðan til Flateyjar á Skjálfanda. Munu þau hafa dval- ið í u.þ.b. 7 ár á hvoram stað. Höfðu þessi afskekktu og um leið framandlegu byggðarlög, kjör fólksins þar og staðhættir allir djúpstæð áhrif á næma og glögg- skyggna sál Þuríðar. Margt það er hún hafði séð það og reynt varð henni óþrotleg uppspretta hugleið- inga um örlög manna og hinstu rök tilvera okkar. Kennsluferli Þuríðar og Þórarins lauk í Innri-Akraneshreppi þar sem þau ásamt með kennslu hófu bú- skap. Jörðina Kjaransstaði keyptu þau og byggðu síðar upp með dótt- ur og tengdasyni. Þar er nú eitt af fyrirmyndarbýlum landsins. Þó Þuríði hafí ekki tekist að ljúka kennaraprófí mun hún hafa verið frábær kennari og aðstoðaði mann sinn oft dyggilega í starfi. Auk þess sem hún kenndi hinar þeim hjónum á þessu veikindatíma- bili, er Sigurunn var ein heima með börnin sín ung á mismunandi aldri og fyrirvinnu á sjúkrahúsi. Guðni sagði mér það síðar, að veik- indi hans hafi verið mjög alvarleg og ef ekki hefðu komið til hin nýju berklalyf hefði hann verið dauðans matur. Hann minntist Helga Ingv- arssonar, yfírlæknis á Vífílsstöðum ætíð með miklu þakklæti og virð- ingu og þakkaði honum manna mest þann góða bata sem hann hlaut á Vífilsstöðum. Eftir að hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu var ekki um lengri sjómennsku að ræða. Hann þurfti að fá starfa sem hentaði skertri heilsu hans. Með aðstoð góðra manna tókst honum að fá starf við sitt hæfi í Sundlaug Hafnar- fjarðar, þar undi hann hag sínum og starfaði óslitið til eftirlaunaald- urs. í þeim góða bæ Hafnarfirði leið honum vel. Guðni var hafsjór af fróðleik um Flatey og aðrar Breiðafjarðareyjar, menn og málefni. Sat ég oft hjá honum og fræddist um gamla at- burði, sem ég hafi áhuga á, sömu- leiðis var það segin saga, ef um einhver vafaatriði var að ræða frá fyrri tíð í Breiðafjarðareyjum sem þurfti að fá staðfest, þá var leitað til hans og fengust þá skýr og ýmsu greinar skólaskyldunnar, tók hún iðulega að sér börn sem af ýmsum orsökum þurftu á sérstakri aðstoð að halda. Sum þeirra dvöldu um lengri eða skemmri tíma í ein- stakri umsjá þeirra Þuríðar og Þórarins en þau hjónin munu hafa verið sérstaklega samhent í öllu því er náungakærleik varðaði. Þá er kennsluferli Þuríðar og Þórarins lauk, réð Þuríður sig sem aðstoðarkonu við barnaskólann að Ásgarði í Kjós um nokkurra ára skeið. Aðstoð hennar þar var mjög margþátta. Fósturdóttur sína Sig- þrúði aðstoðaði hún við matseld- ina, Hólmfríði skólastjóra við umönnun ungra dætra hennar, undirritaða við kennsluna auk þess sem hún sá um að halda skólanum hreinum og vistlegum. Alúð hennar og trúmennska við öll þessi störf var eftirbreytniverð og fjölhæfni hennar þar sem annars staðar eft- irtektarverð. skilmerkileg svör. Það var einkar ánægjulegt hveð hjónin Sigurann og Guðni vora samhent og nutu þess að ferðast innanlands og utan hin síðari ár og gátu þá heimsótt ættingja og vini, það vora sólar- geislar í ellinni, sem þau nutu svo sannarlega og var heilsa hans all- góð allt fram til ársins 1989, er hann fór í aðgerð á Landspítalan- um í Reykjavík, sem tókst allvel á svo öldraðum manni, en uppfrá því má segja að hann haf dvalið á sjúkrahúsum meira og minna, fyrst á St. Jósefsspítalanum í Hafnar- firði og síðan á sjúkrahúsi aldraðra Sólvangi í Hafnarfirði. Það er að- dáunarvert hvað eiginkona hans öldrað og heilsuskert reyndi af fremsta megni að heimsækja eigin- mann sinn á sjúkrahúsi allt til hins síðasta. Með þessum orðum kveð ég frænda minn hinstu kveðju og votta eiginkonu hans og öðrum vandamönnum innilega samúð okkar hjóna. I.V. Guðni Bjarnason vélstjóri, fyrr- verandi starfsmaður Sundhallar llafnarfjarðar, andaðist á Sólvangi í Hafnarfrði 7. ágúst sl. og verður jarðsunginn í dag frá Hafnarfjarð- arkirkju. Ég kynntist mínum góða vini Guðna, er hann hóf störf við Sund- höll Hafnarfjarðar í júní 1958. Hann var þá nýútskrifaður af Vífíls- staðaspítala eftir langvinn veikindi, sem urðu þess valdandi að hann varð að hætta því starfi sem hann hafði gegnt í fjölda ára, en það var vélstjóm á fiskiskipum. Guðni var einstaklega vinnusam- ur og skemmtilegur félagi. Gaman var að heyra hann rifja upp atvik frá æskustöðvum hans í Flatey á Breiðafirði og frá reynslu hans á löngum sjómannsferli. Baðgestir, sem sóttu Sundhöllina á starfstíma Guðna, minnast lipurð- ar hans og hlýlegs viðmóts. Æsku- fólki var hann góður og kunni að umgangast ærslafulla unglinga á þann hátt, að nauðsynlegum aga og umburðarlyndi var blandað á besta máta. Slíkt er ekki á allra færi. Samstarfsfólki sínu var Guðni góður vinur og söknðu hans allir Skólahúsið, sem eftir eril og ærsl dagsins hafði verið í óreiðu, varð fínt og fágað án þess að nokk- ur yrði var við þau umsvif sem gjarna fylgja tiltektum. Sömuleiðis var morgunverðurinn tilbúinn og ilmandi á réttum tíma dag hvern án þess að nokkur hefðiu heyrt svo mikið sem skóhljóð í húsinu. Fyrir þessar eðliseigindir, þ.e. hljóðlætið og eljusemina, hlaut hún nafnið „búálfurinn góði“ hjá undirritaðri, en að þeirri nafngift henti hún oft gaman þar eð henni þótt hún hæfa sér harla vel. Síðustu starfsáram sínum varði Þuríður í umönnun þriggja aldr- aðra kvnena, hverri á eftir ann- arri. Þær studdi hún með styrkri hendi af nærfærni og skilningsríki síðasta spöl lífsferils þeirra. Þuríður var sem fyrr segir af- burðagreind og fljúgandi hagmælt. Skopskyn hennar var ríkt þótt í heild væri hún mikil alvörakona. Hún var hafsjór af þekkingu á þjóðlegum fræðum, íslensku máli og bókmenntum. Stærðfræðingur var hún og góður. Fátítt er að hitta fyrir einstakling svo fjölþættum gáfum gæddan. Geta má nærri að fengur var í því fyrir ungan og óreyndan kennara að hitta fyrir slíka manngerð í upphafí kennslu- ferils síns. Síðar, eftir að undirrituð var orðin háskólakennari kom það oft fyrir að hún hringdi til Þuríðar og spurði hvort hægt væri að fá viðtal við fótgangandi alfræðiorða- bókina! Unun var og uppbyggilegt að eiga við Þuríði samræður um hvað eina er mannrækt og mannlífí við- kom. Sífellt var hún tilbúin að miðla af þekkingu sinni og lífs- reypslu. Átthagatryggð Þuríðar var fá- gæt. Tilfinning hennar fyrir eðli og lífsháttum Skagfirðinga var þegar hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir árið 1981. Hann var dygg- ur starfsmaður og vann sín störf af ósérhlífni og trúmennsku í 22 ár. Bæjarstjórn mat störf hans mik- ils og var hann ráðinn umsjónar- maður Sundhallarinnar árið 1971 og gegndi hann því starfí með mikl- um sóma til starfsloka. Erfiðri sjúkdómslegu er lokið og Guðni er nú farinn í ferðina miklu sem okkur öllum er ætluð. Við sem vorum svo lánsöm að ganga með honum hluta af lífsleiðinni, biðjum honum Guðs blessunar og þökkum af hjarta allar þær ánægjustundir sem við áttum með honum. Fyrrver- andi samstarfsfólk og fjölskylda mín senda eftirlifandi eiginkonu hans, Sigurunni Konráðsdóttur og fjölskyldu, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Minningin lifír um mætan mann. Yngvi R. Baldvinsson Að einhver sé gæddur hjarta- gæsku, slíkt er varla notað í ís- lensku máli lengur. En, það er eina setningin sem á við þegar rætt er um pabba. — Því pabbi okkar var hann í orðsins fyllstu merkingu. Hann tók okkur systkinin að sér og sleppti aldrei af okkur sinni traustu föðurhendi fyrr en yfír lauk. Það er sem ég fínni hijúfu höndina hans stijúka mér um vangann, eins og hann gerði oft þegar mér leið illa. Allt mátti bæta, öll sár lækna, allt varð einhvern veginn léttara eftir að rætt hafði verið við pabba. Traustur og tryggur var hann, og er hans sárt saknað af afa og lang- afabörnum, því alltaf hafði afi tíma fyrir þau, að spiia eða bara ræða málin, og þá með sömu alvöru og þau væra fullorðin. Mun minning hans fylgja þeim, ekki síður en okkur foreldrunum. Vona ég að hans handleiðslu gæti í fari þeirra á lífsleiðinni. Að gjöra engum mein, gera hveijum manni gott, að Iasta engan mann. Sárt er hans saknað, hins góða hljóðláta manns, sem aldrei mátti vamm sitt vita. Minningarnar verma hjartað, en þung verða spor- in á eftir kistunni hans í dag. Fari höfðinginn heill. Kveðja frá Svönu R. Guðmunds- dóttur, fósturdóttur. mótuð af næmleik og víðtækum samanburði við önnur byggðarlög. Þá taldi hún kunna manna best að hryggjast og gleðjast. Meðfædd hógværð Þuríðar varð þess valdandi að ótilkvödd flíkaði hún hvorki hagmælsku sinni né þekkingu. Hún vann störf sín í kyrrþey af elju og alúð hvert sem eðli þeirra var og gætti þess vand- lega að styggja ekki umhverfí sitt í neinu. Barnalán Þuríðar og Þórarins er mikið, dæturnar 3, Þórný, Jó- hanna, Þórgunnur, einkasonurinn Þórmundur svo og fósturbömin 'Sigþrúður og Pálmi era öll dug- andi mannkostafólk hvert á sínu sviði. Afkomendurnir era komnir á 5. tuginn. Manndómur og farsæld einkenna hópinn. Ævikvöldið var kyrrlátt og fag- urt þar sem þau Þuríður og Þórar- inn hafa mörg undangengin ár dvalið við frábært atlæti í skjóli sonar og tengdadóttur. Þar hefír ekkert verið til sparað að gera góðum foreldram og fósturforeld- ram ævikvöldið sem ánægjulegast. Farsælli lífsgöngu gagnmerkrar konu er lokið. Efst í huga er þakk- læti fyrir tryggð og ómæld elsku- legheit um tæplega aldarfjórð- ungsskeið. Eftirlifandi eiginmanni Þuríðar, systkinum, svo og allri fjölskyldu hennar votta ég einlæga samúð. Tilhlýðilegt má telja að ljúka þessari grein með stöku eftir Þu- ríði sjálfa, um þau lífsviðhorf sem á langri ævi einkenndu alla hennar gjörð. „Við það eitt ég hugann hef þó heldur gerist fábreytt saga, að yrkja svo mitt ævistef að öðram verði lítt til baga.“ Ragna Sigrún Sveinsdóttir Þuríður Jóhannes- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.