Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
J
' . ’
• • ■ vv
:............:
í;vjv
Siiii
1111
1
j
SIEMENS
gg| Tísku-
B^sýning
í Naustkjallaranum
í kvötd kl. 21.30
Tískusýning frá
versluninni £Yiyr
Laugavegi
Sýnum nýjustu tískuna
frá PARÍS.
Módelsamtökin sýna.
Verslunin FOX
Naustkjallarinn.
........ , AJ
VELVAKAWDI
SVARAR í SJÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Misheppnaður kvöldverður
Fyrr á árinu, fór ég ásamt fjór-
um hressum konum út að borða
og varð Grillið á Hótel Sögu fyrir
valinu. Sérstakt stóð til hjá okkur
og því var ákveðið að borða það
besta og girnilegasta á matseðli
staðarins. Nokkrum dögum áður
var sérstakt borð pantað, svokallað
hringborð við glugga og var það
vel valið — sannkallaður forréttur
að sitja þarna í góða skapinu og
dást að fallegu útsýni til allra átta.
Góð byijun, sem endaði þó miður
vel. Þjónusta staðarins var í alla
staði til háborinnar skammar!
Við komum rétt upp úr kl. hálf
níu og byijuðum á að panta for-
rétt. Sá reyndist misgóður, en það
er nú einu sinni smekksatriði
hveiju sinni og ekkert meir um
hann að segja. Aðalmáltíðin sem
átti að sjálfsögðu að vera hápunkt-
ur kyöldsins var framreiddur upp
úr kl. hálf ellefu, þ.e.a.s. tveim tím-
um eftir að við komum á staðinn
og geri aðrir betur! Okkur þótti
sennilegt að kokkurinn hefði
brugðið sér frá til að slátra öndun-
um sem tvær okkar höfðu pantað
af matseðlinum. Eftir að hafa set-
ið þarna hálf afskiptalausar (fórum
og báðum um ljós við borðið þegar
rökkva tók, báðum um að losað
yrði úr öskubökkum í tvígang, leit-
að að stúlkunni til að fá ábót á
vín o.s.frv.) birtust allt í einu
nokkrir þjónar við borðið okkar og
tóku að skammta langþráðar veit-
ingar af hjólvagni beint á diskana.
En mikil urðu vonbrigðin hjá mér
og stöllu minni, þegar í ljós kom,
að öndin (hjá báðum) var ísköld,
slepjuleg og virkilega ógeðsleg.
Vinkonan gerði tilraun til að
kroppa af henni, en gafst upp.
Stúlkan var kölluð sem síðan kall-
aði á þjón. Sá viðurkenndi strax
að öndin var misheppnuð og bauðst
til að eldaður yrði einhver annar
réttur (þó það nú væri) klukkan
var þá að verða ellefu og a.m.k.
ég var búin að missa alla löngun
og matarlystin horfin. Hvorug
hafði löngun eða ánægju af því
að bíða eftir nýjum rétti. Hinar
kláruðu sitt og voru ánægðar með
það sem þær fengu (heppni?) Þá
var komið að eftirrétti sem reynd-
ist ágætur, nema hvað, að frá
minni hálfu fann ég enga ánægju
að borða hann, enda varla hægt
að kalla þetta eftirrétt þegar slíkur
er snæddur sem aðálréttur kvölds-
ins í „boði“ staðarins sem sárabæt-
ur fyrir önd sem ekki var önd.
Svo kom reikningurinn og viti
menn! endurnar tvær sem flugu
væntanlega beint ofan í ruslatunnu
voru matreiddar beint á reikning-
inn! „Ykkur var boðið upp á eftir-
rétt“ var svarið, þegar ég gerði
athugasemd við þetta og þar við
sat!
Ég varð bara orðlaus, svo ein-
falt var það. Ég vildi ekki enda
kvöldið með látum og rifrildi svo
ég ákvað að ég skyldi hringja
seinna í yfirþjón staðarins sem ég
og gerði. Sá kannaðist við þessi
leiðindi og vildi fá nöfn okkar
tveggja og sagðist mundi hringja
í mig fljótlega. Þessi höfðingi hafði
aldrei samband!!! Rúmar 30 þús.
kr. kostaði þessi „útsýnisferð“ á
stað sem stærir sig á því að vera
meðal bestu veitingastaða bæjar-
ins. Það er a.m.k. af sem áður var
og má Grillið á Hótel Sögu muna
sinn fífil fegri.
Næst þegar halda skal upp á
eitthvað sérstakt fer maður á Holt-
ið það hefur aldrei brugðist hvorki
í þjónustu né matseldinni og þar
þurfa þeir ekki að tæla fólk með
gylliboðum um útsýnisturna til að
veita sínum gestum þá ánægju sem
þeir borga fyrir.
Sif Ragnhiidardóttir
Mísmunun útvarpsstöðva
í dag, 8. ágúst, er í Velvakanda
Morgunblaðsins greinarstúfur eftir
Þórð Óskarsson er hann nefnir Um
„fijálsu" stöðvarnar. Hann segir
þær hafa valdið sér vonbrigðum.
Hann segir sjaldgæft að sjá nokkra
vitræna dagskrá hjá þessum stöðv-
um. Hann segir nýju útvarpsstöðv-
amar bjóða upp á fátt annað en
lágkúru og þær séu alls ófærar
um að keppa við Rás 1. Enn sé
þó ekki fullreynt hvort fijáls út-
varpsrekstur eigi rétt á sér. Fleiri
em hans orð í sama dúr.
Grein hans hefði sómt sér vel
sem innlegg til stuðnings þeim,
sem börðust sem harðast gegn
útvarpslögunum, sem leyfðu fijáls-
an útvarpsrekstur.
Sé Þórður Óskarsson yngri en
svo að hann muni ekki útvarps-
og sjónvarpsrekstur ríkisins, fyrir
tilkomu fijálsu stöðvanna, skal ég
veita honum alla mína samúð. Ég
verð því að fræða hann um það
að lágkúran, sem hann er að væna
stöðvarnar um, var orðin slík á
ríkisreknu útvarpi og sjónvarpi að
ekki var lengur við unað. Hann
forðast að nefna það að mismunur-
inn á rekstraraðstöðu nýju stöðv-
anna og hinna ríkisreknu er slíkur
að undrun vekur að þær skuli lifa
af slíkt misrétti.
Er það samkvæmt hans lýðræð-
ishugsjónum að sjálfsagt sé að rík-
isfjölmiðill geti sótt rekstrarfé sitt
í vasa þegnanna, án þess þeir hafi
nokkurt val? Hann forðast að nefna
Rás 2 hjá Ríkisútvarpinu. Hann
veit að sú rás var sett á stofn til
að vega upp á móti vinsældum
fijálsu stöðvanna, með samskonar
dagskrárefni og þær. Að hans dómi
er Ríkisútvarpið því sokkið í sama
lágkúrupottinn. Að hans dómi ætti
því að leggja slíka lágkúru niður.
Þeir menn, sem stöðugt mæla með
ríkisrekstri á öllum sviðum, hafa
ekki ráð á víðara sjónarsviði en
anddyri músarholunnar. Mikið af
efni fijálsu stöðvanna er hreint
frábært. Mundu þegnarnir sætta
sig við að þær yrðu lagðar niður,
til þess að gefa ríkisfjölmiðiunum
kost á því að komast á sitt fyrra
lágkúrustig?
Þórður Halldórsson
Kœli - oq frvstitœki ímiklu úrvali!
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 ■ SlMI 28300
Krakkarnir færðu fjársöfnun Rauða krossins rúmlega 2.500 kr. sem
komu inn hlutaveltu þeirra til stuðnings málefninu. Krakkarnir
heita: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Lilja Björg Kjartansdóttir, Stefán
Steinn Sigurðarson og Ósk Óskarsdóttir. K'
I
I
ÞVI LIFID LIGGUR VID «« \
Sýnd k.. 5, 7, 9 „ KCBCBé
* * * 5P SIMI 11384 - SNORRABRAUT