Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
>
30
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn verður fyrir von-
brigðum með einn af vinum
sfnum núna. Hann blandar far-
sæliega saman leik og starfi
og eitthvað kemur honum
skemmtiiega á óvart i kvöld.
~ Naut
(20. april - 20. maí)
Nautið verður fyrir töfum í
vinnunni fyrri hluta dagsins.
Það er hamingjusamt í ástar-
sambandi sínu og á skemmti-
legan tíma fram undan.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Það gengur hvorki né rekur
hjá tvíburanum með verkefni
sem hann hefur með höndum,
en úr því rætist innan skamms.
Hann er á sömu bylgjulengd
og vinnufélagi hans.
Krabbi
^ (21. júní - 22. júlí) >“18
Krabbinn verður að greiða
ákveðna reikninga núna.
Ovissa hans um sjálfan sig
gerir honum erfitt fyrir í dag.
Hann ætti að opna sig fyrir
öðru fólki. Óheft tjáskipti gera
honum kleift að sigrast á erfið-
leikunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið fær ekki þær undirtektir
sem það átti von á frá nánum
ættingja eða vini. Andinn kem-
ur yfir það í kvöld. ♦
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Meyjan ætti ekki að láta vand-
ræði í vinnunni draga sig niður
langtímum saman. Hún á auð-
velt með að tjá hug sinn og
getur treyst því að aðrir hlusta
á hana.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vogin fær gagnlegar ábend-
ingar varðandi fjárfestingu eða
önnur viðskipti. Hún fær
óvæntan gest í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®(jj0
Sporðdrekanum finnst ættingi
sinn draga sig niður í dag.
Félagsskapur vina hans lyfta
honum þó upp á móti og fylla
hann lífskrafti.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Bogmanninum hættir til að
vera niðurdreginn fyrri hluta
dagsins. Hann langar mikið til
að veija tíma sínum með ást-
vini.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)^
^Steingeitin er með allan hug-
^ann við vandamál sín núna.
Hún ætti að fara í heimsókn
til vina og taka þátt í félags-
starfí til að losa sig úr krepp-
unni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh.
Verkefni sem vatnsberinn tekst
á við reynist ekki eins erfitt
og hann áætlaði. Hann blandar
farsæilega saman leik og starfi.
Fiskar
_J19. febrúar - 20. mars) irS+t
Fiskurinn ætti að beijast gegn
þeirri tilhneigingu sinni að
veita sér upp úr erfiðleikunum.
Hann verður að koma út úr
skelinni og sækja sér styrk með
þvl að leita eftir samveru við
annað fólk.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
........'W,
Hi/ap ertu a e>
HORFÁ'A.óRErrie?
XKLÓfiiP 1' HÖS&ÖQSHN I
TOMMI OG JENNI
GLEVHUXJ þ\/i, TOMrU!..
B/NA SE/H VB/ZÐOG ÉT/£>1 AllN
ttSAU/HUAI ee OSTUft f
SMÁFÓLK
Kæri Jólasveinn, ég krefst þess að Þetta er fremur fast að orði kveðið, Viltu gjöra svo vel
þú færir mér eftirfarandi atriði í ár. er það ekki?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Ég hef bara aldrei bókfært
þessa tölu áður,“ sagði ítalinn
Duboin og skemmti sér konung-
lega. Talan var 240 fyrir eitt
grand og sex unnin:
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ KD1076
V 74
♦ ÁK6
+ 1062
Austur
iiini *G5
II z01083
♦ 74
+ Á8753
Suður
+ Á94
VK5
♦ D109853
+ G9
Lokaður salur: NS: Bocchi og
Duboin. AV: Þorlákur Jonsson
og Guðm. P. Amarson.
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Bocchi Þorl. Duboin
— 1 spaði Pass 1 grand
Pass Pass Pass
Útspilið var lítið hjarta. Dubo-
in fékk á hjartakóng, 6 slagi á
tígul og 5 á spaða. Með laufkóng
út tekur vörnin hins vegar 10
fyrstu slagina!! Skrítið spil brids.
Grandsamningurinn er ekki
til fyrirmyndar, en Bocchi og
Duboin spila 4-litar opnanir í
hálit og Bocchi valdi grandsvarið
fram yfir 2 spaða eða 2 tígla,
sem líklega er krafa í geim í
þeirra kerfí. Örn Arnþórsson og
Guðlaugur R. Jóhannsson opna
einnig á 4-spila hálitum, en út-
færa framhaldið á annan hátt:
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Santia Guðl. Versace Öm
— 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Það þarf lítið annað en hjarta-
ásinn réttan til að fjórir spaðar
vinnist, svo geimið er vel reyn-
andi á hættunni. En það fór
óhjákvæmilega einn niður, 100
í ÁV, og 8 IMPar til Ítalíu.
SKÁK
Vestur
+ 832
V ÁD962
♦ G2
+ KD4
Umsjón Margeir
Pétursson
í Evrópukeppni fiugfélaga
1989-91 kom þessi staða upp í
skák Róberts Harðarssonar
(2.310), Flugleiðum, sem hafði
hvítt og átti leik, og Norðmanns-
ins Tor K. Schölseth, sem teflir
fyrir SAS.
16. Rxf7!! - Kxf7 17. Rxd5! -
Hxd5 (17. - Kf8 18. Rc7! var
ekki hótinu betra.) 18. Hxd5 —
Rxd5 19. Df3+ - Ke8 20. Bxd5
- Re5 21. Dh5+ - g6 22. Dxeð
og svartur gafst upp. Flugleiðir-
sigruðu í keppninni, sem að þessu
sinni var haldin í ellefta skipti.
Þar af hafa Flugleiðir, SAS og
spánska félagið Iberia öll sigrað
þrisvar. Skákin hér að ofan var
tefld í undanúrslitaviðureign Flug-
leiða og SAS, sem lauk 4-2, og í
úrslitum unnu Flugleiðamenn
austurríska flugfélagið Austrian
Airlines, með sömu tölum. Fyrir
Flugleiðir í siðustu tveimur viður-
eignum tefldu þeir Róbert Harð-
arsson, Ögmundur Kristinsson,
Björn Theódórsson, Hörður Jóns-
son, Frímann Benediktsson, Ólaf-
ur Ingason og Andri V. Hrólfsson.