Morgunblaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
17
Matthías Bjarnason sjötugur;
Heill þér höldur
Matthías Bjarnason á sjötugsaf-
mæli í dag. Það er alveg furðulegt
að svo rígfullorðnir menn geti verið
svo ungir og ferskir. Við, sem erum
mun yngri að árum, fyllumst lotn-
ingu yfir þeim eldmóði og krafti sem
fylgir honum „Matta okkar Bjarna".
Þegar framfaramál Vestfirðinga
ber á góma og styrk vantar þá spytja
menn um liðsinni frá Matthíasi og
ef málefnið er réttmætt og horfír til
framfara mega menn vera vissir um
að hann iiggur ekki á liði sínu.
Ég ætla ekki að telja upp öll þau
margvíslegu störf sem Matthías hef-
ur unnið landi og þjóð til heilla öll-
um, en minna á 200 mílna lögsögu
okkar og færa til ljóss þann kraft
og einurð sem hann lagði í þær samn-
ingaviðræður fyrir okkar hönd. Einn-
ig vill gleymast mikilvægði „Bókunar
6“ fyrir allan útflutning okkar nú á
tímum EES-trúarbragða.
Oft þegar mig langar til að hlaða
lífsrafhlöðurnar þá jafnast fátt á við
að heyra í Matthíasi þó ekki sé nema
í gegnum síma, blaðra um áhyggjur
og illt hlutskipti okkar hér vestra,
nöldra um verk eða verkleysi ríkis-
Hjórna á hveijum tíma og vera í
alla staði til leiðinda. Á allt þetta
hlustar Matthías með stakri ró og
háttvísi sálusorgara, síðan minnir
hann mann föðurlega á að horfa á
verk vel unnin og framþróun ýmissa
mála, að því búnu segir hann sína
skoðun á þeim málum sem að hans
mati mættu fara á betri veg, þá er
ekki nöldrað heldur töluð skiljanleg
íslenska gagnyrt.
Sumarparadísin er í Trostansfirði,
þar dvelur Matthías í sumarbústað
þeirra hjóna, öllum frístundum sem
ævistarfið hefur skammtað all naum-
lega. Það er sérstakt að heimsækja
þau Kristínu og Matthías þangað,
andrýmið er þar bæði óþvingað og
maður finnur svo ríkulega fyrir sam-
iyndi og kærleika; aldeilis furðulegt
að nokkur manneskja þoli þennan
sífellda yfirgang og átroðslu okkar
úr kjördæminu og það með svona
sérstakri vinsemd að maður fær það
á tilfinninguna að maður hafi verið
Myndhöfundasjóður íslands:
Samningar um greiðslur
fyrir höiundarrétt í haust
MYNDSTEF, Myndhöfundasjóður
Islands stefnir að því að hefja í
haust samningaviðræður við út-
gefendur og sjónvarpsstöðvar um
greiðslur fyrir höfundarrétt. Sjóð-
urinn gekkst fyrir ráðstefnu um
höfundarrétt myndhöfunda í
Borgartúni 6 á þriðjudag. Fram-
kvæmdastjórar norrænna mynd-
höfundasjóða héldu fyrirlestra og
svöruðu fyrirspurnum. Á milli
þijátíu og fjörutíu manns sátu
ráðstefnuna.
Dagskráin hófst með því að Knút-
ur Bruun, stjórnarformaður Mynd-
stefs,_flutti ávarp og setti ráðstefn-
una. í ávarpi sínu gat Knútur þess
að mikið grundvallarstarf væri fram-
undan hjá sjóðnum. Hann kvaðst
vænta þess að sjóðurinn gæti í haust
hafið samningaviðræður við sjón-
varpsstöðvar, blaða- og bókaútgef-
endur um greiðslur til höfunda fyrir
birtingu myndverka. Knútur lagði
áhersiu á það í máli sínu að farið
yrði með friði í samningaviðræðunum
og fullt samkomulag næðist milli
aðila.
Knútur fjallaði nokkuð um skil-
greiningar í máli sínu. Þannig sagði
hann að þegar greitt væri fyrir höf-
Treystum samstöðu
Daglega fréttum við af slysum og
hörmungum sem dynja yfir — alla
aðra en okkur og okkar nánustu.
Síðan heyrist lítið meira og fæstir
vita um afdrif þeirra, sem í hlut áttu.
Eina bjarta sumarnótt kom upp
eldur í timburhúsi við Hverfisgötu í
Reykjavík. Mesta miidi var að íbúar
á efri hæð hússins skyldu sleppa lif-
andi frá þeim hildarleik, þar eð þeir
voru í fastasvefni er éldurinn kom
upp. Umræddir íbúar eru listakonur,
sem fjölmargir þekkja, þær Elísabet
Þorgeirsdóttir skáldkona og Stella
Hauksdóttir trúbador, sem jafnframt
er þekkt fyrir baráttu sína fyrir verk-
akonur og fiskvinnslufólk. Að auki
voru í íbúðinni börn þeirra beggja.
Ótrúleg he'ppni réði því að gestkom-
andi kona í íbúðinni náði að aðvara
fjölskylduna og vegna snarræðis
hennar svo og annarra sem að komu,
tókst að bjarga öllum úr eldhafinu á
vinur þeirra um áratugaskeið. Þarna
fara höfðingjar.
Þarna í Trostansfirðinum hafa öll
bil verið brúuð, kynslóðabil og öll
önnur. Þar starfa allir að ræktun og
umhirðu landsins, skógrækt, sáningu
melfræs, áburðargjöf og öllu því er
til góða getur orðið náttúrunni.
Þarna ganga þeir nafnamir afinn og
hnokkinn til þessara starfa af alúð
og nærgætni, er til betri aðferð að
rækta land og lýð?
Þá kem ég að því í fari Matthías-
ar sem oft vill gleymast þegar um
hann er rætt, það er hin ríka réttlæt-
iskennd og umhyggja fyrir náung-
anum. Þetta kemur æ ofan í æ í ljós
í hjálpsemi hans við menn, þá er
ekki spurt eftir flokksskírteini eða
beðið um atkvæði viðkomandi.
Nú þegar ég skrifa þetta til þín
vil ég þakka kærlega og með mikilli
virðingu hið liðna og alla þá orku
sem þú hefur geislað frá þér innan
flokks okkar, einnig óska ég þess
að hægt verði að endurgjalda þér
hluta þess vinarþels sem þú hefur
sýnt okkur hér á Tálknafirði.
Við erum frekjuhundar hér vestra
og ætlumst því til af þér að þú verð-
ir enn um sinn „okkar Matti“.
Vinarkveðjur,
Bjarni Kjartansson,
Tálknafirði.
SIEMENS
mn
Nr.
I
I
Rafmagnsofnar frá
Siemens í miklu úrvali
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
undarrétt fyrir listaverk væri það
hugverkið, sú huglæga vinna sem
lægi að baki málningunni á strigan-
um sem væri greitt fyrir, ekki mynd-
in í rammanum. Einnig talaði Knútur
um sæmdarrétt myndhöfunda, sem
tæki til þess að nafn höfundar og
verks væri getið við birtingu svo og
að verk höfunda væru hvorki skrum-
skæld né misnotuð. í lok ávarps síns
fól Knútur Leifi Þorsteinssyni ráð-
stefnustjóm.
Gestir á ráðstefnunni voru auk
myndhöfunda fulltrúar frá helstu
væntanlegu viðsemjendum þeirra,
alls nær fjörutíu manns. Gestirnir
hlýddu á Mats Lindberg, fram-
kvæmdastjóra sænska myndhöfund-
asjóðsins segja frá samningum sjóðs-
ins við sænska ríkissjónvarpið, Kirst-
en Kirkegaard frá Danmörku fjalla
um innheimtu og úthlutun fylgirétt-
argjalda þar í landi, Ullu Shackleton,
framkvæmdastjóra finnska sjóðsins
um starfsemi hans og helstu vanda-
mál við innheimtu höfundarréttar-
gjaldsins í Finnlandi og Jennie Collet
frá Noregi tala um dagleigugjöld
vegna leigu á myndverkum til sýn-
inga. Að loknum hverjum fyrirlestri
svöruðu fyrirlesarar spurningum ráð-
stefnugesta.
síðasta augnabliki. Engu var bjarg-
að; fjölskyldan stóð fáklædd og
eignalaus á götunni.
Þrátt fyrir lágmarkstryggingar
mun aldrei verða hægt að bæta þann
skaða sem varð þessa sumarnótt. Því
hafa nokkrir vinir þeirra Elsu og
Stellu stofnað sjóð þeim til styrktar,
þar sem velunnarar þeirra geta sýnt
stuðning í verki. Sparisjóðsbók nr.
176585 við Landsbanka íslands, að-
alútibú, er á nafni þeirra beggja.
Með sameinuðu átaki getum við létt
þeim leiðina yfir erfiðasta hjallann.
Birna Þórðardóttir,
Guðrún Óladóttir,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Ingibjörg Hafstað,
Kristján Jóhann Jónsson,
Margrét Pála Ólafsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir,
Umhyggja. Sólveig Eggerz
istund
ikm
ómantísk stund eða glæsilegur viðskiptamálsverður? Gullni Haninn sérhæfir
sig í áð uppfylla væntingar þínar um öndvegis veitingar og úrvals þjónustu
í glæsilegum húsakynnum þar sem ekkert hefur verið til sparað. Gullni Haninn er
sem nýr í hólf og gólf, en andrúmsloftið og veitingamar bera enn aðalsmerki
fagmennsku og þjónustu í fremstu röð.
Við sérstök tækifæri er sjálfsagt að gera kröfur - Gullni Haninn uppfyllir þínar
óskir og gerir stundina ógleymanlega.
SIMI 67 99 67
LAUGAVEG 178 -105 REYKJAVÍK
iBHIi