Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
Kvennaráð-
stefnan verð-
ur ekki hald-
in á Islandi
næsta sumar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Alþjóð-
leg kvennaráðstefna, sem efna
átti til á Islandi, verði ekki hald-
in hérlendis að sinni. Ástæðan
er sú að fjárhagslegur grundvöll-
ur ráðstefnunnar hefur ekki ver-
ið tryggður. Ráðstefnan átti upp-
haflega að vera í júní 1991 en
var frestað til júní 1992. Frestun-
in varð vegna tímaskorts en einn-
ig vegna þess að fjáröflun gekk
hægar en búist var við.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi ráðstefnunnar frá því að hug-
myndin að henni varð til í heimsókn
bandarísku kvenréttindakonunnar
Betty Frieden til íslands í fyrrasum-
ar. Stofnaðar voru undirbúnings-
nefndir á íslandi og í Bandaríkjun-
um en fjármögnun ráðstefnunnar
var verkefni bandarísku kvenn-
anna. Konunum hefur hins vegar
ekki tekist að tryggja fjárhagslegan
grundvöll ráðstefnunnar en í fram-
haldi af því^ákváðu íslenska og
bandaríska undirbúningsnefndin að
ráðstefnan yrði ekki haldin hér að
sinni.
í frétt frá íslensku undirbúnings-
nefndinni segir að íslenskar og
bandarískar konur telji enn mjög
brýnt að halda alþjóðlega ráðstefnu
kvenna þar sem áhersla sé lögð á
nýja sýn, sýn kvenna í aðþrengdum
heimi. Þörf sé á nýju gildismati við
nauðsynlega uppstokkun og endur-
byggingu samfélagsins. Réttinda-
barátta kvenna eigi langt í land og
þar sem réttindi kvenna hafi þegar
verið tryggð, jafnvel með lögum,
reynist þau hverful og hafi verið
skert þegar minnst vari.
Morgunblaðið/Þóra Þóris
Smyrillinn varð óður þegar Gunnar hugðist skilja á milli og
réðst að honum með miklum látum.
Oður smyrill réðst
á fluffvallarvörð
Bíldudal. ^
GUNNAR Valdimarsson flugvallarvörður á Bíldudalsflugvelli
fékk aldeilis óvænta vængjaða gesti í flugskýlið á dögunum,
þegar óður smyrill villtist þangað inn með tvo dauðskelkaða
maríuerluunga á undan sér.
„Ég var í símanum þegar ég
heyrði þessi læti frammi í far-
þegasalnum. Og áður en ég vissi
af var óður smyrill kominn inn á
skrifstofuna mína með tvo maríu-
erluunga á undan sér,“ sagði
Gunnar í samtali við Morgunblað-
ið.
Dyrnar á flugskýlinu voru opn-
ar þegar þetta gerðist og var
Gupnar að bíða eftir póstvélinni
frá ísafirði. Eftir fáein vængjaslög
og darraðardans á skrifstofunni
færðist leikurinn fram í farþega-
salinn. Gunnar hugðist nú reyna
að skilja á milli, en þá gerði smyr-
illinn árás á hann og enn fjölgaði
í hópi fórnarlambanna. En Gunnar
dó ekki ráðalaus heldur snaraði
sér úr vestinu sem hann var í og
kastaði því yfir ránfuglinn
grimma.
Sögulok urðu þau að smyrillinn
flaug úr skýlinu fijáls ferða sinna
án matar, en eftir sat Gunnar
vestislaus og skjálfandi með tvo
fiðurlitla maríuerluunga á skrif-
borðinu. En rétt í þessu kom ann-
ar vængjaður gestur á svæðið,
sem var saklaus póstvél frá
ísafirði, Gunnari til mikillar gleði.
R. Schmidt.
MEGA loftijós 4X18 w með spegilrist fyrir niðurhengd loft.
Verð aðeins kr. 4.950 stk. m.vsk.
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík
Pósthólf 1026, 121 Reykjavík.
Sími 91-680606. Fax 91-680208.
70 DAGA UTSALA A V-ÞYSKU
MONTANA REIÐHJÓLUNUM
DÆMI:
Barnahjól frá kr. 8.486.- (abur kr. 12.052.-)
Unglinga og fullorbinshjól án gíra,
frá kr. 12.118.- (ábur kr. 17.312.-)
Unglinga og fullorbinshjól, 3ja gíra,
frá kr. 14.911.- (ábur kr. 21.302. )
10 gíra, kr. 13.081.- (ábur kr.21.802.-)
EINNIG Á FÁEINUM DÖNSKUM WINTER HJÓLUM
DÆMI:
Barnahjól frá kr. 9.467,- (ábur kr. 12.623.-)
Lúxus-kvenhjól, 3ja gíra, frá kr. 23.762,-
(ábur kr. 29.498.-)
Níislerlct stell og fr
“fyggisetidorsltin Mjúku, hnckkuf
ós I með fjöðrun
| Sferkur 4
I TILEFNI
SUMARTILBOÐS:
ÖRFÁ
ALVÓRU FJALLAHJÓL
Á SÉRTILBOÐI
óro óbyrgð. Þægileg
i \/ gíroskipfing
Öryggisendurskin
t/ósafaúnoður
Herkfsroloslto
Aukoftotidbi
St Ondori
18 gíra, frá kr. 19.277.
(ábur kr. 27.538. )
21 gíra, frá kr. 25.546.
(áburkr. 31.933.-)
Ö'“9S fétbrem.
SUMARTILBOÐK> STENDUR
AÐEINS í 10 DAGA
■ • Reiðhió/a verslunin Rmssm
ORNINNP'
opið
LAUGARDAGA
KL. 10-16
RAÐGREIÐSLUR
SPlTALASTÍG 8
VIÐÓÐINSTORG SÍMI 14661
ALVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ
EIGNAST KJÖRGRIP Á TOMBÓLUVERÐI
OLL HJOL
ABYRGÐ TIL
ALDAMOTA