Morgunblaðið - 15.08.1991, Síða 11

Morgunblaðið - 15.08.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 11 Sælan í seinni sambúð Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Það þarf tvo til — Hjónabands- slit-ný sambúð. Hjalti Jón Sveinsson skráði. Utg. Ahnenna bókaféiagið hf. 1991. HJÓN eru einlægt að skilja og gifta sig upp á nýtt, oftast að vísu öðrum. Menn segja að skýrslur sýni að skilnuðum og sambúðarslitum hérlendis fjölgi stöðugt. Gæti verið uggvænleg þróun. Sama er upp á teningnum í flestum vestrænum löndum. Menn greinir á Um hvar rótin liggi að upplausn fjölskyld- unnar. Það er handhægt að stað- hæfa að breytt staða kvenna í þró- uðum þjóðfélögum eigi einhvern þátt í því. Þar af leiðandi mætti ætla að það sé bein ógnun við hom- stein þjóðfélagsins að konur verði fjárhagslega sjálfstæðari en áður, starfí einnig utan heimilis, afli sér meiri mienntunar. Engan hef ég samt heyrt mæla með að konumar hverfí aftur algerlega inn á heimil- in; það er líka hætt við að það gæti lagt íjölmargar atvinnugreinar í rúst. En það er líklega engum blöðum um það að fletta að fjárhagslegt sjálfstæði gerir konur óháðari og kröfuharðari, þær una ekki óbæri- legri sambúð eða hjónabandi eins og ein eða tvær kynslóðir á undan okkur. Þær bijótast út. Þær vilja standa á eigin fótum. Vilja byggja upp nýtt líf með bömum sínum. Nota starfsmenntun sína og njóta sín. Og þegar þær hafa nú notið um stund? Ja, samkvæmt bókinni hér þá virðast þær nú eiginlega vilja allra helst gifta sig aftur. Og þá era þær svona líka heppnar. Að minnsta kosti þessar konur í bók- inni. Þær era mjög meðvitaðar og mjög uppteknar i nýja hjónaband- inu/sambúðinni. Þær hafa ekki kynnst ástinni og hamingjunni fyrr. Allt harla gott. Sama er að segja með karlmenn- ina. Þó svo allar skýrslur segi að það séu þrátt fyrir allt oftar konum- ar sem hafa frumkvæði að þvi að hjónabandi er á endanum rift, þá hittist svona á í þessari bók að all- ir karlmennirnir hafa viljað losna við konu númer eitt. Þeir hafa flest- ir búið töluvert lengi í hjónabandi og sumir uppgötva ekki fyrr en í næstu sambúð- þ.e. sem er í bók- inni - hvað þeir hafa verið ólukku- legir í hinni fyrri. Þeir era að byija að opna sig sumir og famir að ræða málin, pæla í tilfínningamál- unum. Það er vegna þess hvað kon- umar era örvandi og vitrar. Börn hafa verið í flestum þessara hjónabanda. Nokkur ruglingur og ónákvæmni er að vísu í því en þó það sé látið liggja milli hluta með aldur og fjölda er öllu verra hvað þeim þætti era gerð rýr skil. Eru ekki allir sammála.um að það séu börnin sem erfíðast eiga þegar for- eldrar slíta samvistum. Yfirborðsleg úrvinnsla þessa þáttar er galli. Það er ókostur að bókin er al- mennt mjög yfírborðslegtr Þar er hvergi skyggnst bak við neitt. Fátt sagt sem skiptir máli eða skilur eftir. Blæbrigði kafla era nánast engin, það er sami tónn í öllum köflunum, höfundur nær ekki að glæða fólkið lífi, draga fram per- sónuleika eða sérkenni. Þetta er allt sama tóbakið.Þrír fjórir kaf- lanna eru um svo svipuð tilvik að það mætti með smábreytingum hnoða þeim saman í einn. Engin persónan sker sig úr. Það er ekki endilega þeim að kenna. Höfundur hefur ekki lagt sig eftir að gára flötinn neins staðar. Hér er allt slétt og fellt og frásögnin lét mig ós- nortna þó stundum ætti persónum að vera nokkuð niðri fyrir vegna fyrri reynslu. að kunni að ver skrif Það er þarft og gagnlegt að skrifa um þessi mál en þá þyrfti að sýna meiri snerpu og skilning að tala við fólkið, fá það til að tjá sig um eitthvað sem kemur við. Það hefur ekki tekist við samningu þess- arar bókar þó nettlega sé að öllu staðið. ———i FÆST Í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUQVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI Staðalbúnaður í Suzuki Vitara •-1.6 I 80 ha vél með rafstýrðri bensínsprautun • 5 gíra með yfirgír eða 3ja gíra sjálfskipting • Samlæsing hurða • Rafmagnsrúðuvindur • Rafstýrðir speglar • Snertulaus kveikja • Vökvastýri • Veltistýri • Halogen ökuljós með dagljósabúnaði • Þokuljós að aftan • Útvarpsstöng • Gormafjöðrun á öllum hjólum • Diskahemlar að framan, skálar að aftan • Grófmynstraðir hjólbarðar 195x15 • Varahjólsfesting • Snúningshraðamælir • Klukka • Vindlingakveikjari • Hituð afturrúða • Afturrúðuþurka og sprauta • Kortaljós • Fullkomin mengunarvörn, (Catalysator) • Samlitir stuðarar, hurðar- húnar og speglar • Vönduð innrétting • Litaðar rúður • Sílsahlífar • Eyðsla frá 8.0 I á 100 km • Verð 5 gíra: 1.438.000 stgr. Sjálfskiptur: 1.530.000 stgr. Til afgreiðslu strax. $ SUZUKI --i«M» SUZUKIBÍLAR HF SKEIFUNNI 17- SÍMI 6851 00 ■ ■■■■■■■■■■■ fltai^iiistMgtðið Blaðið sem þú vaknar við! Losaðu þig við garðúrgang ú auðveldan hútt Nýttu garðúrganginn aftur sem gróðurmold með sérstökum rotílátum frá HIRÐI. Þú safnar laufi, grasi o.fl. í ílátin, þar sem það rotnar og nýtist aftur sem frjósöm mold í garðirin. ílátin eru með loftgötum og raufum svo loft leikur ávallt um úrganginn. Á botninum er rist sem vökvi rennur niður úr í sérstakt hólf, þar sem hann safnast fyrir og nýtist sem fyrirtaks áburður. ílátin eru úr firnasterku plasti, á hjólum og því létt og meðfærileg. Nýttu garðúrganginn á auðveldan hátt með rotílátunum frá HIRÐI Hafðu samband í síma 67 68 55. t!MHVE«FI$IMÓNUSTA Höfðabalcka 1,110 Reykfavik simi 67 68 55, telefax 67 32 40

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.