Morgunblaðið - 15.08.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.08.1991, Qupperneq 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á rhánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Litháen og Oryggisráðið Staða Framkvæmdasjóðs og Byggðastofnunar við stj órnarskiptin: Ríkísendurskoðun tel- ur að afskrifa hefði átt 4,5 milljarða í viðbót SAMKVÆMT úttekt Ríkisendurskoðunar á Framkvæmdasjóði íslands, Byggðastofnun og sjóðum hennar, vantaði alls um fjóra og hálfan milljarð króna upp á að opinberir reikningar þessara stofnana gæfu rétta mynd af fjárhagsstöðu þeirra er ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við í vor. Rikisendurskoðun telur að af lánum þessara stofnana og sjóða séu um 5,8 milljarðar króna tapað fé. Inn á afskriftareikn- inga höfðu hins vegar í mailok aðeins verið lagðir 1,3 miHjarðar króna. Munurinn er 4,5 milljarðar. Við íslendingar berum í brjósti sterkar tilfinning- ar til sjálfstæðisbaráttu Eyst- rasaltsþjóðanna. Það er gömul saga og ný. Við fundum mjög til með þessum þjóðum fyrir mörgum áratugum, þegar sovézka herveldið var að svipta þær sjálfstæði á svipuð- um tíma og við vorum að stofna lýðveldi okkar. Sá mikli áhugi og vilji til þess að veita Eystrasaltsþjóðunum stuðn- ing í sjálfstæðisbaráttu þeirra nú á sér því rætur í fyrri tíð. Alþingi hefur samþykkt ályktun, þar sem ríkisstjórn er falið að taka upp stjórn- málasamband við Litháen svo fljótt sem kostur er. Væntan- lega líður ekki á löngu þar til gengið verður formlega frá því. Rökin fyrir því, að ísland geti gengið fram fyrir skjöldu og sýnt Litháen siðferðilegan og pólitískan stuðning með þeim hætti eru einföld. Hin stærri og voldugri ríki innan Atlantshafsbandalagsins eiga margvíslegra hagsmuna að gæta í samskiptum við Sov- étríkin. Þjóðverjar hafa hags- muni af því, að sameining landsins geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti og sovézkar hersveitir verði flutt- ar burt frá austurhluta Þýzka- lands eins og um hefur verið samið. Bandaríkin hafa hags- muna að gæta í samningum við Sovétmenn um afvopnun- armál. Þessi ríki mundu ekki fórna þessum hagsmunum til þess að veita Litháen viður- kenningu með því að taka upp stjórnmálasamband við Lit- háa. Margvíslegar ástæður af þessu tagi valda því, að önnur aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins taka heldur ekki for- ystu í þessum efnum. Að þessu leyti erum við ís- lendingar fijálsari af hags- munatengslum við Sovétríkin. Olíuviðskiptin við Sovétmenn skipta okkur takmörkuðu máli. Fiskinn getum við selt annars staðar. Sovétríkin geta ekki beitt okkur íslendinga neinum þeim refsiaðgerðum, sem máli skipta. Frumkvæði okkar að þessu leyti hefur, þrátt fyrir smæð okkar, skipt Litháa verulegu máli að þeirra eigin mati. Málflutningur Jóns Baldvins Hannibalssonar, ut- anríkisráðherra og annarra talsmanna íslenzkra stjóm- valda á alþjóðavettvangi hefur orðið til þess að vekja athygli á baráttu Eystrasaltsþjóð- anna. Þetta er það, sem við getum gert: að taka upp form- legt stjórnmálasamband og viðurkenna þar með sjálfstæði Litháens. Litháar verða hins vegar að gera sér grein fyrir því, að pólitísku bolmagni okkar eru takmörk sett. Osk þeirra um að ísland fjalli um vald- beitingu Sovétmanna gagn- vart Litháum fyrir Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna ger- ir kröfu til svo umfangsmikilla aðgerða af okkar hálfu, að hvorki þeir né aðrir geta búizt við því, að við getum orðið við þeim óskum. Þar er ein- faldlega komið út fyrir mörk þess, sem okkur er kleift að gera. Rökin fyrir því eru aug- ljós. Við munum eiga nóg með þau pólitísku átök við Sov- étríkin, sem blasa við, þegar formlega hefur verið gengið frá stjómmálasambandi við Litháa. Þetta eigum við að segja vinum okkar í Litháen í fullri einlægni og vinsemd og ekki draga þá lengi á þeim svörum. Þeir hafa þá möguleika á að leita eftir frumkvæði annarra þjóða á þeim vettvangi. Eftir að Alþingi samþykkti ályktun sína um að taka upp stjórn- málasamband við Litháen fyrr á þessu ári hefur margvísleg- ur undirbúningur farið fram og beðið hefur verið eftir ýmsum gögnum, að því er talsmenn utanríkisráðuneytis- ins hafa sagt. Væntanlega er þeirri gagnasöfnun að ljúka og æskilegt er, að gengið verði formlega frá stjórnmálasam- bandi í samræmi við ákvörðun Alþingis á næstunni. Þar með höfum við íslendingar sýnt í verki vilja okkar til þess að veita Eystrasaltsþjóðunum stuðning. Jafnframt eigum við að nota hvert tækifæri, sem gefst til þess að vekja athygli á málstað þeirra á alþjóðavett- vangi. Úttekt Ríkisendurskoðunar er gerð í framhaldi af bréfi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra frá 10. júní síðastliðnum, þar sem farið er fram á gaumgæfilega könnun á fjár- hagsstöðu þeirra stofnana og sjóða, sem um ræðir, en þær heyra undir forsætisráðuneytið. Ríkisendurskoðun tekur fram að við mat á áhættu nokkurra útlána- flokka þeirra stofnana, sem teknar voru út, hafi verið nauðsynlegt að byggja á gefnum forsendum um framtíðarþróun ýmissa stærða. Slíkir framreikningar séu ávallt nokkurri óvissu háðir. Úttektin miðast við milliuppgjör í lok maímánaðar 1991. Eigið fé Framkvæmdasjóðs í raun neikvætt um 1,2 milljarða Ríkisendurskoðun telur að fram- lög í afskriftasjóð, til að mæta töp- uðum útlánum, hefðu þurft að nema 1.800 milljónum króna hjá Fram- kvæmdasjóði íslands. í ársreikningi sjóðsins fyrir síðasta ár nema af- skriftirnar hins vegar aðeins 200 milljónum, og vantar því 1.600 millj- ónir upp á að mati stofnunarinnar. Eigið fé Framkvæmdasjóðs í lok maí var 400 milljónir, en ætti að mati Ríkisendurskoðunar að vera nei- kvætt um 1.200 milljónir króna. Framkvæmdasjóð mun skorta ver- ulega fjármuni á næstu árum ef jafn- vægi á að vera á inn- og útgreiðsl- um, að mati Ríkisendurskoðunar. Útgreiðslur umfram inngreiðslur vegna tekinna og veittra lána gætu Matthías sagðist algerlega ós- ammála þessum hugmyndum og málið hefði ekkert verið rætt í Sjálf- stæðisflokknum. Hann var spurður hvort hann teldi að einhvern tíma hefði orðið misbrestur á því að Byggðastofnun kynnti sér nægilega vel stöðu mála áður en hún ákvað að veita fé til ákveðinna fyrirtækja. „Nei alls ekki. Byggðastofnun hef- ur kynnt sér þau mjög vel en hins vegar er hlutverk hennar meira en það að lána fé gegn tryggingu. Það er hlutverk hennar líka að halda uppi byggð í landinu og eðlilegri at- vinnuuppbyggingu. Það er líka í hlut- verki hennar, sem Alþingi hefur sett henni, að veita styrki og ýmislegt fleira. En ef það á að hverfa frá þessu öllu þá er það allt annað mál. Ég er b_ara ekki þeirrar skoðunar. Það má alltaf breyta í sambandi við aðhald en hver er þess umkominn að segja að þetta og hitt sé bara rétt en annað rangt? Ef það á að á næstu 10 árum orðið um fjórir milljarðar króna. Ríkissjóður ábyrg- ist allar skuldbindingar Fram- kvæmdasjóðs samkvæmt lögum. Vaxtamunur Framkvæmdasjóðs, þ.e. munurinn á vöxtum útlána um- fram þau lán, sem sjóðurinn tekur sjálfur, hefur farið lækkandi á und- anförnum árum og nam 0,26% á síð- asta ári. Við athugun Ríkisend- urskoðunar á vaxtakjörum einstakra lána kemur fram að í fáum tilvikum voru vextir lægri en meðalvextir tek- inna lána sjóðsins. „Til þess að Framkvæmdasjóður íslands geti sinnt lögboðnu hlutverki sínu þyrfti að auka eigið fé sjóðsins verulega. Sú þróun hefur átt sér stað hin síðari ár að opinberir fjárfesting- alánasjóðir hafa í auknum mæli annazt lántökur sínar sjálfir. Með vísan til þess m.a. telur Ríkisendur- skoðun að stjórnvöld þurfi að íhuga hvort ekki sé tímabært að leggja Framkvæmdasjóð íslands niður og fela öðrum að taka við hlutverki hans, réttindum og skyldum. Að mati Ríkisendurskoðunar gætu t.d. Lánasýsla ríkisins og Byggðastofnun annazt núverandi hlutverk Fram- kvæmdasjóðs íslands,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Stofn- unin bendir á að á síðasta ári hafi rekstrarkostnaður Framkvæmda- sjóðs verið um 55 milljónir króna. Spara megi meginhluta þessa kostn- aðar með því að leggja sjóðinn nið- ur, og jafnframt eigi hann skrifstofu- húsnæði metið á 130 milljónir, sem megi selja. fara út í eitthvað nýtt þá verður allt- af að taka einhverja áhættu. Og ég sé ekki annað en bankarnir hafi orð- ið að taka stóra áhættu og orðið fyr- ir stórum áföllum. Ég þoli alveg að standa frammi fyrir þeim saman- burði sem er gerður á störfum banka og ýmissa sjóða. Byggðastofnun er undir stjóm sjö þingkjörinna manna. Ég hef hvorki látið fyrrverandi né núverandi ríkis- stjórn beita mig neinum þrýstingi. Ég hef bara gert það og staðið að því sem ég hef talið vera eðlilegt og í samræmi við það hlutverk sem Byggðastofnun hefur samkvæmt lög- um. Það hefur verið einhugur um fjöldamörg lán í stjórninni en ekki alltaf. En ég vil líka taka það fram að Byggðastofnun birtir hvert ein- asta lán og styrki sem hún veitir og leggur fyrir Alþingi. Ársskýrsla Byggðastofnunar liggur alltaf fyrir, endurskoðuð og til umræðu á Al- þingi.“ Greiðslustaða Byggðastofnunar mun versna Við stjórnarskiptin í vor voru 506 milljónir króna í afskriftasjóði Byggðastofnunar. Ríkisendurskoðun telur að alls þurfi afskriftir vegna tapaðra útlána að nema 1.725 millj- ónum. Þar af eru tæplega 800 millj- ónir vegna fiskeldisfyrirtækja. I byij- un ágúst lagði stjórn Byggðastofn- unar 1.200 milljónir króna til viðbót- ar í afskriftasjóðinn og stendur hann þá í 1.650 milljónum. „Af framan- sögðu má ráða að framlög í afskrift- asjóð á liðnum árum hafa ekki verið nægilega há,“ segir í úttekt Ríkis- endurskoðunar. Eigið fé Byggða- stofnunar var 1.700 milljónir króna í lok maí, um 19% af heildareignum stofnunarinnar, en þá er ekki tekið tillit til 1.200 milljóna greiðslunnar í afskriftasjóð í ágúst. Ríkisendurskoðun telur að greiðsl- ustaða Byggðastofnunar muni versna verulega á árinu 1994 og verða í járnum næstu tvö árin þar á eftir. Fyrirsjáanlegt sé að útgreiðslur verði umfram inngreiðslur árið 1997 og að greiðslustreymið verði óhag- stætt árin þar á eftir, en með því er átt við að meiri peningar fari út en koma inn. Vaxtamunur Byggða- stofnunar var jákvæður um hálfan af hundraði í maílok. Atvinnutryggingarsjóður með 1,4 milljarða neikvætt eigið fé Þegar forsætisráðherra bað um úttekt á sjóðunum fór hann fram á að sérstaklega yrði farið ofan í saum- ana á atvinnutryggingardeild Byggðastofnunar og hlutafjárdeild stofnunarinnar. Þessar deildir tóku um síðustu áramót við hlutverki Atvinnutryggingarsjóðs útflutnings- greina og Hlutafjársjóðs, sem stofn- aðir voru með bráðabirgðalögum rík- isstjórnar Steingríms Hermannsson- ar árið 1988. Stofnun sjóðanna tveggja var liður í efnahagsaðgerð- um stjórnarinnar, sem þá var nýtek- in við eftir að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sagði af sér. Hlutverk Atvinnutryggingarsjóðs var samkvæmt lögum að veita lán til endurskipulagningar, hagræðing- ar og framleiðniaukningar hjá út- flutningsfyrirtækjum. Jafnframt skyldi hann hafa forgöngu um að breyta lausaskuldum fyrirtækja í föst langtímalán. Sjóðurinn mátti undir sérstökum kringumstæðum kaupa hlutdeildarskírteini hjá Hluta- fjársjóði og leysa til sín húseignir og búnað fyrirtækja sem lið í fjár- hagslegri endurskipulagningu. Að mati Ríkisendurskoðunar má af- skrifa 1.760 milljónir af lánum sjóðs- ins. í ársreikningi 1990 voru hins vegar aðeins 409 milljónir færðar í afskriftasjóð, og munar þarna 1.350 milljónum króna. Samkvæmt árs- reikningi er eigið fé Atvinnutrygg- ingasjóðs neikvætt um 29 milljónir, en yrði neikvætt um tæpar 1.400 milljónir ef afskriftir yrðu sam- kvæmt mati Ríkisendurskoðunar. Útistandandi lán og eignir sjóðsins námu 8.839 milljónum í maílok, en skuldirnar voru 8.868 milljónir. Ríkisendurskoðun gaf í ársbyrjun 1990 út skýrslu um Atvinnutrygg- ingarsjóð, þar sem fram kom að 15-20% af lánþegum sjóðsins væru ekki borgunarmenn fyrir sköldunum. Ríkisendurskoðun segist standa full- komlega við þetta álit sitt. Viðbótarfjár þörf jafnvel þótt allir standi í skilum Fyrirsjáanlegt er að mati Ríkis- endurskoðunar að atvinnutrygging- ardeild Byggðastofnunar mun þurfa Það væri nær að líta á tap bankanna - seg’ii’ Matthías Bjamason alþingismaður og formaður stjómar Byggðastofnunar MATTHÍAS Bjarnason, alþingismaður og formaður stjórnar Byggða- stofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann sæi ekki ástæðu til að breyta starfssviði stofnunarinnar með þeim hætti sem forsætisráð- herra hefði rætt um, að stofnunin hætti lánveitingum. „Eg sé enga ástæðu til að hverfa frá því. Þegar menn tala um tap þessara sjóða þá finnst mér þeir ættu að líta líka á tap bankanna. Þeir hafa ekkert farið varhluta af tapi. Það er rétt að það komi fram áður en menn fara að koma með svona fullyrðingar." MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 23 Morgunblaðið/Árni Sæberg Davíð Oddsson forsætisráðherra kynnir skýrslu Ríkisendurskoðunar á blaðamannafundi í gær. 15. 30ní 1989 Stjórn Framkvæmdasjðós íslands, Rauóarárstíg 25, Reykjavík Ríkisstjórnin samÞykkti á fundi sínum 9. jún£ síóast- lióinn aö fela Framkvaandasjóói íslands aó greiöa fyrir fjármögnun afuröalána til fiskeldisstöðva samanber lög nr. 3/1989 um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðar- ins sem kveóa á um stofnun Tryggingasjóós fiskeldislána. í pessu skyni leiti Framkævmdasjóður bagkvæmustu leióa og er meóal annars heimilt aö: 1) veita vióskiptabönkum sjálfskuldarábyrgó vegna vióbótarlána sem bankarnir veita fiskeldisfyrirtækjum gegn einfaldri ábyrgö Tryggingasjóós fiskeldislána, 2) aó taka erlend lán til pess aö sinna pessu verkefni, 3) aö veita fiskeldisfyrirtækjum afuróalán beint samanber lió 1 hér aö framan náist ekki samningar viö við- skiptabankana um vióbótarlán meö sjálfskuldarábyrgó Framkvæmdasjóös. Tekió skai fram aó meö pessu erindi er ekki ætlast til aö Framkvæmdajóóur taki áhættu vegna pessara vióbótarlána, heldur brúi biliö sem getur myndast frá pví aó greióslufall R£&ur hjá fyrirtæki og par til aó ábyrgó Tryggingasjóós Bískelðislána er innleysanleg. í F Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á aö Framkvæmda- sjóóur taki petta erindi fyrir hið allra fyrsta par sem U*ttuástand er nú í fiskeldlnu vegna ófullnægjandi afuróa- lánafyrirgreióslu vió greinina. Afrit af tveimur bréfum, undirrit- uðum af Stein- grími Hermanns- syni, þar sem mælzt er til þess að Framkvæmda- sjóður veiti fyrir- tækjum fyrir- greiðslu. FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ Reykjavík, 24. apríl 1990 Framkvæmðasjó&ur íslands hr. Gubmundur B. Ólafsson Rauðarárstíg 25 105 Reykjavlk FORSÆTISRÁOUNEYTIÐ Dh. D:ius JC0V91 Ábm. Trm. Sv;:r!'r.. V/o \! Afjir. Tiiv. Fski. Samkomulag hefur £ öllum meginatriöum náöst milli rikis- stjórnar, fjármálastofnana og Álafoss h.f. um fjárhagslega enðurskipulagningu Álafoss h.f., enða þótt eftir sé aö ganga frá nokkrum atriðum. Eitt af því sem er ðfrágengið eru kaup FramkveEmdasjóös íslands á verksmiöjuhúsi Álafoss h.f. í Mosfellsbæ. Kaup Framkvæmdasjóös á verksmiöjuhúsinu voru hluti af samkomulaginu frá því £ ma£ á s£Öasta ári. Þar sem dróst aö hrinda málinu £ framkvæmd varð hins vegar ekki af kaupum þá. Rfkisstjórnin mælist eindregið til þess aö Framkvæmdasjóöur fslands taki upp áðurnefnda samninga og samþykki nú kaupin. / á viðbótarfjármagni að halda til að mæta greiðsluvanda á næstu árum, m.a. vegna mismunandi lánstíma og afborgunarskilmála inn- og útlána Atvinnutrygg- ingarsjóðs. „Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að allir lánþegar sjóðsins standi í skilum mun deildin þurfa á 1.250 milljóna króna viðbótai-fj- ármagni að halda á árunum 1992 til 1994. Sé tekið mið af áætluðu útlánatapi mun greiðslustaða deildarinnar versna enn frekar,“ segir Ríkisendurskoðun. Ríkisendurskoðun vekur at- hygli á lagaákvæði, sem bætt var við lög ríkisstjornar Steingríms Hermannssonar um efnahagsað- gerðir. Þar er mælt fyrir um heimild Byggðastofnunar til að fella niður eða breyta í víkjandi lán kröfum atvinnutryggingar- deildar Byggðastofnunar. „Að mati Ríkisendurskoðunar er gildi umræddrar lagaheimildar vafa- samt. Heimildin er í raun mjög rúm og vandmeðfarin í fram- kvæmd þar sem hætta er á að aðilum, sem eins er ástatt um, sé mismunað ef ýtrustu varúðar er ekki gætt,“ segir í skýrslunni. „Spyija má hvers þeir, sem standa í skilum við deildina eða þurfa jafnvel að þola uppboðs- og gjaldþrotameðferð vegna van- skila, éigi að gjalda gagnvart þeim, sem væru í vanskilum en nytu fyrirgreiðslu á grundvelli umræddrar lagaheimildar. Þá kann heimild af þessu tagi í reynd að draga úr möguleikum á inn- heimtu útistandandi lána hjá deildinni. Loks telur stofnunin að ábyrgð og framkvæmd heimildar sem þessarar, þó viðkvæm sé, eigi alfarið að vera í höndum og á ábyrgð stjórnar Byggðastofn- unar með sama hætti og gildir um aðrar veigamiklar ákvarðanir varðandi starfsemi stofnunarinn- ar.“ Ríkið tapar 260 milljónum á Hlutafjársjóði Hlutafjársjóður var settur á laggirnar í tíð ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar. Hlutverk hans fólst í því að taka þátt í fjárhagslegri endurskipulagn- ingu fyrirtækja með því að kaupa hlutabréf fyrir almannafé í starf- andi fyrirtækjum og að taka þátt í stofnun nýrra félaga, sem taka skyldu við rekstri eldri fyrir- tækja. Sjóðurinn aflaði fjár með sölu hlutdeildarskírteina til lána- stofnana og annarra kröfuhafa þeirra fyrirtækja, sem sóttu um aðstoð til sjóðsins. Annars vegar voru gefin út A-hlutdeildarskír- teini með fullri ríkisábyrgð og hins vegar B-skírteini, sem sjóð- urinn ber ábyrgð á með eignum sínum. í maílok átti hið opinbera rú- man milljarð í ýmsum fyrirtækj- um í gegn um Hlutafjársjóð. Efgn sjóðsins í Álafossi var afskrifuð á síðasta ári. Afskriftareikningur stendur í 120 milljónum króna, sem Ríkisendurskoðun telur 100 milljónum of lítið. Að mati Ríkis- endurskoðunar gæti sjóðurinn hins vegar tapað alls um 335 milljónum króna, eða um 30% af eignum sínum. Tap ríkissjóðs af þeim völdum gæti orðið um 260 milljónir króna, en einnig kæmi tap niður á öðrum eigendum B- hlutdeildarskírteiníi. Ríkisendurskoðun gerði einnig úttekt á ábyrgðadeild fiskeldis hjá Ríkisábyrgðasjóði. Stofnunin telur að þar verði að afskrifa 320 milljónir króna. Beðið um frekari upplýsingar Forsætisráðherra hefur farið fram á frekari upplýsingar í framhaldi af skýrslu Ríkisendur- skoðunar, meðal annars um þró- un vaxtamunar síðastliðin fímm ár og hvort munurinn sé eðlileg- ur. Þá er óskað upplýsinga um dreifíngu útlána og keyptra hlutabréfa nefndra stofnana og sjóða eftir atvinnugreinum og lán til einstakra skuldunauta sem hlutfall af útlánum til viðkomandi greinar. Opinberir sjóðir misnotaðir af stjórnvöldum - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að skýrsla Ríkisendurskoðun- ar um stöðu Framkvæmdasjóðs íslands og Byggðastofnunar og sjóða hennar, staðfesti að sjóðirnir hafi verið misnotaðir af stjórnvöldum og sljórnir þeirra látið undan pólitískum þrýstingi. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á blaðamannafundi, þar sem skýrslan var kynnt. Forsætisráðherra segir að þegar hafi verið ákveðið að leggja Fram- kvæmdasjóð Islands niður. „Stjórn sjóðsins hefur verið falið að skila fyrir lok þessa mánaðar sínum tillög- um um það með hvaða hætti verður bezt staðið að því að leggja sjóðinn niður,“ sagði Davíð. Hann sagði að fleiri rök væru fyrir því að leggja sjóðinn niður en að eigið fé hans væri orðið neikvætt um 1.200 millj- ónir króna. Aðrar stofnanir gætu séð um margvísleg verkefni hans á borð við alls konar lánaumsýslu. „Mér fínnst því að hlutverk þessa sjóðs hafi breytzt frá því sem ráð var fyr- ir gert í upphafi og auk þess er það því miður staðreynd að þessi sjóður hefur verið misnotaður," sagði for- sætisráðherra. „Mér finnst líka að þessi skýrsla Ríkisendurskoðunar hljóti að vekja upp spurningar um það hvort ekki sé tímabært að endurskoða hlutverk Byggðastofnunar," sagði Davíð. Hann sagði að samkvæmt núgildandi lögum væri hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með þróun byggðar í land- inu og gera áætlanir í byggðamálum en jafnframt að veita fjármuni til atvinnulífsins. „Það hlýtur að flögra að manni að verulegur þáttur skýr- ingarinnar á því, hvernig hefur farið fyrir þessum opinberu sjóðum, sé að menn hafi tekið pólitískri leiðsögn, getum við sagt, eða látið undan pólit- ískum þrýstingi við meðferð þessara fjármuna. Þess vegna sé staðan eins og hún sé orðin. Það er spurning hvort ekki eigi að breyta um hlut- verk þessarar stofnunar, láta hana hafa mikilvægt hlutverk, sem tekur til þeirra þátta, sem ég rakti fyrst, en huga að því hvort ekki sé eðlilegt að láta hið fjármálalega hlutverk Byggðastofnunar ganga yfir til þeirra stofnana, sem með slíkt eiga að fara. Þá á ég við almennar fjár- málastofnanir," sagði forsætisráð- herra. Þýðir ekki fyrir stjórnvöld að skýla sér á bak við sjóðsstjórnir Davíð sagði að skýrsla Ríkisendur- skoðunar staðfesti að þær grunsemd- ir, sem hann hefði haft um að staða sjóðanna væri ekki í lagi og að þeir hefðu verið notaðir óskynsamlega og undir pólitískum þrýstingi, hefðu ver- ið á rökum reistar. „Það hefur verið vísað til þess að sérstakar stjórnir fari með málefni þessara sjóða. Það er efnislega rétt. I öðru tilvikinu eru stjórnendur valdir af ráðherrum og í hinu kosnir pólitískri kosningu á Alþingi," sagði Davíð. „En það þýðir ekki fyrir stjórnvöld að skýla sér á bak við þetta. Það er ljóst að það hefur jafnan verið svo í stjórnsýslu hér að til að mynda stjórnir skipaðar af ráðherrum telja sér skylt, eða að minnsta kosti að það sé verulegur þungi í fyrirmælum eða beiðni, sem koma frá þeim mönnum, sem þeir sitja í trúnaðarstörfum fyrir. Sama má segja um pólitískar stjórnir, þótt þær verði ef til vill fyrir annars kon- ar þrýstingi. Allmörg dæmi eru um það fyrr og síðar að til dæmis stjórn Byggðastofnunar hefur tekið ákvörð- un um lánveitingar, jafnvel í stórum stíl, gegn ráðleggingum fagmanna, sem við stofnunina starfa. í einstaka tilvikum hefur jafnvel verið lánað fé til fyrirtækja, sem hafa farið á höfuð- ið örfáum dögum síðar, þvert ofan í álitsgerðir starfsmanna stofnunar- innar." Forsætisráðherra sagði að eitt- hvað rangt hlyti að vera við það að Byggðastofnun hefði lánað fyrirtæki á borð við Miklalax á örfáum árum 500-600 milljónir króna, ,jafnvel þótt menn hafí verið farnir að hafa efasemdir um að laxeldi af þessu tagi gæti gengið, jafnvel þótt fyrir lægju álitsgerðir sérfræðinga um að það gæti ekki gengið.“ Davíð sagði að þegar fram hefði komið að vegna Álafoss hf. hefðu tapazt 2,4 milljarðar af almannafé, hefðu menn reynt að skjóta sér á bak við að þar ættu sjálfstæðar sjóð- stjórnir hlut að máli. Hann las upp úr bókun stjórnar Framkvæmdasjóðs frá í apríl 1990. í þessari bókun seg- ir: „Jafnframt var lagt fram bréf forsætisráðuneytisins, dagsett 24. apríl 1990, um sama efni, þar sem að ríkisstjórnin mælist eindregið til þess að Framkvæmdasjóður sam- þykkti umrædd kaup. Stjórnin sam- þykkti að verða við tilmælum ríkis- stjórnarinnar um kaup verksmiðju- hússins, enda næðust viðunandi samningar um leigugreiðslur, eða, sem stjórnin taldi eðlilegri, að Fram- kvæmdasjóður lánaði Álafossi hf. andvirði eignarinnar þannig að gera mætti upp áhvílandi skuldir. Stjórn sjóðsins byggir þessa ákvörun ein- göngu á eindregnum tilmælum ríkis- stjórnarinnar, því í raun er frekari fyrirgreiðsla sjóðsins við Álafoss hf. sjóðnum ofviða.“ „Ég tel að í framtíð- inni verði vinnubrögð varðandi með- ferð opinberra sjóða og fjármuna að verða með öðrum hætti en þarna er lýst,“ sagði Davíð. „Ég lít þannig á að hér sé um misnotkun á sjóði að ræða, þegar forráðamenn sjóðsins segja að hann þoli ekki að veita til- tekna fjárveitingu, en samt eru gefín fyrirmæli um það. Það eru fleiri dæmi um slíkt.“ Forsætisráðherra las einnig upp úr tveimur bréfum forvera síns, Steingríms Hermannssonar, til stjórnar Framkvæmdasjóðs. Annars vegar er um að ræða bréfið vegna kaupa á verksmiðjuhúsi Álafoss, en þar segir: „Ríkisstjórnin mælist ein- dregið til þess að Framkvæmdasjóður Islands taki upp áðurnefnda samn- inga og samþykki nú kaupin.“ Hitt bréfið er frá 15. júní 1989 og þar segir: „Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 9. júní síðastliðinn að fela Framkvæmdasjóði íslands að greiða fyrir fjármögnun afurðalána til fiskeldisstöðva samanber lög nr. 3/1989 um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins sem kveða á um stofnun Tryggingasjóðs fiskeldislána ... Ríkisstjórnin leggur mikla áherzlu á að Framkvæmda- sjóður taki þetta erindi fyrir hið allra fyrsta þar sem hættuástand er nú í fiskeldinu vegna ófullnægjandi af- urðalánafyrirgreiðslu við greinina.“ Davíð tók fram að fleiri bréf af þessu tagi væru til í forsætisráðuneytinu. Davíð sagði að auk þess að breyta fjárveitingaþætti Byggðastofnunar væri hugsanlega skynsamlegt að miklar fjárhæðir, sem nú væru nán- ast lánaðar út í kyrrþey, hlytu um- fjöllun á Alþingi. „Slíkar tölur væru þá ákveðnar á Alþingi sjálfu og þing- ið tæki ábyrgð á því að eyða fjármun- um með þessum hætti, en það ekki gert á bak við lokaðar dyr sjóðanna. Ég er til að mynda sannfærður um það að ef fram hefði komið tillaga á Alþingi frá ráðherra eða ríkisstjórn, um að leggja tvo og hálfan milljarð til að halda Álafossi gangandi, hefði enginn þingmaður samþykkt það,“ sagði forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.