Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 26

Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 Bæjarsjóður: Um 140 millj. tap vegna gjaldþrota BÆJARSJOÐUR Akureyrar verður fyrir um 140 milljóna króna tekju- missi í kjölfar gjaldþrota fyrirtækja í bænum, einkum vegna Alafoss og ístess. Bæjarráð samþykkti síðla í júlí að ekki yrði ráðist í nýjar framkvæmdir eða undirrilaðir nýir verksamningar fyrr en endurskoð- un fjárhagsáætlunar hefði farið fram. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir oddviti lýsti á fundinum að tekjumissir bæj- Framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar flutti tillögu um að áfram yrði unnið að framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs og voru skoðanir skiptar milli fulltrúa meiri- og minni- hluta. Tillögunni var vísað frá. Halldór Jónsson bæjarstjóri upp- Beðið um bæj- arábyrgð á 78 millj. láni , BÆJARSTJÓRN hefur samþykkt að veita Krossanesverksmiðjunni ábyrgð á 15 milljóna króna láni, sem fyrirtækið tekur vegna kaupa á rækjumjölsverksmiðju. Afgreiðslu erindis Niðursuðu- verksmiðju K. Jónssonar og Co um bæjarábyrgð á 78 milljóna króna láni hefur verið frestað. Halldór Jónsson bæjarstjóri sagði á fundi bæjarstjórnar, að forsvars- menn K.Jónssonar ættu í viðræðum við viðskiptabanka sinn, Landsbank- ann um ábyrð á láni þessu. Forráða- menn bæjarsjóðs væru tregir til að veita ábyrgðir nema fullnægjandi tryggingar væru fyrir hendi, en bærinn gerði sömu kröfur og bank- inn varðandi ábyrgðir og veð. Af- greiðslu málsins hefði því verið frest- að á fundi bæjarráðs. Bæjarstjórn hefur hins vegar samþykkt að veita Krossanesverk- smiðjunni ábyrgð til tryggingar á láni að upphæð 15 milljónir króna, en Hólmsteinn Hólmsteinsson for- maður stjórnar verksmiðjunnar sagði á bæjarstjórnarfundi að það yrði nýtt til kaupa á rækjumjölsverk- smiðju sem setja á upp í Krossanesi. arsjóðs vegna umræddra gjaldþrota yrði urn 140 milljónir, en enn væri ekki nákvæmlega ljóst hversu stór hluti upphæðarinnar hefði bein áhrif á þessu ári. Halldór sagði afar slæmt að þurfa að skera niður framkvæmd- ir nú, meðan atvinnulífíð þyrfti á fjármagni að halda og ástandið ekki eins og best væri á kosið á þeim vettvangi. Úlfhildur sagði það undarlegt sinnuleysi að fresta því að taka á málum viku eftir viku, tíminn nú væri mikilvægur varðandi allar framkvæmdir og því væri skynsam- legt að bregða ekki út af fyrri fram- kvæmdaáætlun og taka tillit til áfallsins við gerð næstu fjárhags- áætlunar, sem vert væri að fara að huga að nú á haustdögum. Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn Heppilegur lendingarstaður Þær fundu heppilegan lendingarstað, gæsirnar sem á myndinni sjást, en þær voru á vappi á nyrðri enda flugbrautarinnar á Akureyrarflugvelli á dögunum. Nokkur gæsapör verpa að jafnaði á flugvallarsvæðinu, en starfsmenn vallarins hafa tekið eftir því að um leið og hefja má skotveiði hópast þær inn á svæðið, eins og í leit að vernd. Bæjarstjórn vísar frá tillögn um að efla Framkvæmdasjóð og IÞE Samkvæmt tillögxmni yrði nýju fjármagni að mestu varið til hlutafjárkaupa ATVINNUMÁL tóku drjúgan tíma í umræðu bæjarfulltrúa á fundi bæjarstjórnar Akureyrar, en Þórarinn E. Sveinsson bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins Iagði fram tillögu, um að bæjar- ráði verði falið að kanna nú þeg- ar möguleika á útvegun aukins fjármagns til Framkvæmdasjóðs Ákureyrar. Einnig verði ráðinu falið að leita eftir samkomulagi við meðeigendur Akureyrarbæj- ar í Iðnþróunarfélagi Eyjafjarð- ar um verulega aukningu á hlut- afé félagsins, með aukin framlög til eflingar atvinnulífsins á svæð- inu í huga. Fjármögnun fari í báðum tilfellum fram með sölu eigna eða lántöku. I greinargerð segir að nýju fjár- magni yrði að mestu varið til hluta- fjárkaupa, sem bætt.gæti eiginfjár- stöðu þeirra alltof mörgu fyrirtækja sem nú leituð ásjár bæjarfélagsins. Þetta yrði hvatning til að snúa vörn og undanhaldi í atvinnulífinu á Akureyri í öfluga sókn. Hvað Iðnþróunarfélagið varðar er bent á nauðsyn þess að hiuti aukins fjármagns félagsins renni til nýsköpunar og að tengsl við Markaðsskrifstofu Iðnaðarráðu- neytisins verði aukin og þar þrýst á um aðstoð, auk þess sem komið verði upp„stóriðjunefnd“ í sam- vinnu við Héraðsnefnd Eyjafjarðar. Fram kemur í greinargerðinni að einungis sé um tímabundið Lögð til bygging 50-60 íbúða fyrir aldraða við Bugðusíðu ástand að ræða og því eðlilegt og nauðsynlegt að bæjarstjórn hafi frumkvæði til aðstoðar atvinnulíf- inu, en svo fljótt sem auðið er verði eignarhluti bæjarins seldur aftur á almennum markaði. Nokkurt fjaðrafok varð um af- greiðslu tillögunnar á fundi bæjar- stjórnar, en Heimir Ingimarsson varaforseti bæjarstjórnar lagði til að henni yrði vísað til umfjöllunar í bæjarráði. Þórarinn fór fram á nafnakall í bæjarstjórn, þar sem hann kvaðst ósáttur við að ekki yrði þar tekin afstaða til hennar. Fundarhlé var gert á meðan athug- að var hvort gengi lengra og féll úrskurður á þá leið, að tillaga Heim- is hefði forgang. Þórarinn sagðist ósáttur við að ekki hefði verið tekið á tillögunni í bæjarstjórn, kvaðst hræddur um að í bæjarráði yrði meira talað, en minna gert. UNDIRBÚNINGSNEFND íbúðabygginga fyrir aldraða leggur til að næstu íbúðir sem byggðar verði sérstaklega fyrir aldraða á Akureyri rísi á lóð Sjálfsbjargar við Bugðusíðu 1 og að innangengt verði úr þeim í þjónustuhúsnæði á jarðhæð Sjálfsbjargarhússins. Lagt er til að 50-60 íbúðir verði byggðar í 1. áfanga, hönnun hefjist nú í haust, en bygg- ingaframkvæmdir næsta vor og að byggingunni verði lokið haustið Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn Næstu íbúðir fyrir aldraða á Akureyri verða byggðar á lóð Bjargs við Bugðusíðu, en þjónustuhúsnæði verður á jarðhæð Sjálfsbjargar- hússins. Gert er ráð fyrir að í 1. áfanga verði 50-60 íbúðir og fram- kvæmdir við bygginguna hefjist næsta vor, en íbúðirnar verði tilbún- ar haustið 1993. 1993. Fram kom í ínáli Úlfhildar Rögn- valdsdóttur bæjarfulltrúa, sem sæti átti í nefndinni á fundi bæjarstjórnar í fyrradag, að 40 manns hefðu þeg- ar lýst yfir áhuga á kaupum á íbúð- um fyrir aldraða. I könnun sem gerð var kom í ljós að langflestir eða 88% vildu kaupa íbúðir í fjölbýlishúsum og einnig hafði stærsti hluti væntan- legara kaupenda áhuga á íburðar- lausum og ódýrum íbúðum. Nefndin leggur til að í 1. áfanga verði byggðar íbúðir fyrir alla um- sækjendur sem gera kaupsamninga fyrir lok október næstkomandi, en þar gæti væntanlega orðið um að ræða 50-60 íbúðir. Þá leggur nefnd- in til að vinna við hönnun hefjist í haust og byggingaframkvæmdir vo- rið 1992, en byggingu 1. áfanga verði lokið fyrir 1. september 1993. Þjónustuhúsnæði verði tilbúið á sama tíma og flutt er inn í íbúðirnar. Þjónustuhúsnæðið verði á jarðhæð Sjálfsbjargarhússins og þar verði m.a. samkomu- og matsalur, setu- stofa, aðstaða til tómstundastarfs, aðstaða fyrir starfsfólk heimilisþjón- ustu og heimahjúkrunar og verslun- araðstaða. Lagt er til að Akureyrar- bær kosti og reki þjónustuhúsnæðið og tryggi með samningum við Sjálfs- björg afnot íbúa í íbúðum fyrir aldr- aða af aðstöðunni sem þar er, s.s. endurhæfingu, þrekþjálfun, íþrótta- aðstöðu og væntanlegri sundlaug. Hvað fjármögnun varðar er lagt til að gerður verið samningur milli væntanlegra eigenda, framkvæmda- nefndar bygginganna og banka um útvegun lánsfjár. Kaupendur greiði mánaðarlega inn á kaupin allt frá því samningur er gerður, en ljúki greiðslunni að öðru leyti með fé fyr- ir sölu eldri ibúðar eða lánsfé frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Hvað framtíðarstefnuna varðar er lagt til að næstu byggingum af sama toga verði valinn staður á Oddeyri og þar verði byijað á bygg- ingu þjónustuhúsnæðis, til að styðja og viðhalda núverandi búsetu aldr- aðra þar. Víða sé húsnæðið hentugt fyrir aldraða, en þjónustan sé langt undan. Bæjarstjórn Akureyrar hefur til- nefnt Jón Kr. Sólnes og Einar Hjart- arson í framkvæmdanefnd um bygg- ingu íbúða fyrir aldraða við Bugðu- síðu og Félag aldraðra á Akureyri mun tilnefna þijá fulltrúa í nefndina. Kartöflumarkaðurinn: Stefnir í harð- an slag í haust I harðan slag stefnir á kartöflu- markaðnum í haust, en óvenjugóð spretta hefur verið í sumar og er hún mun fyrr á ferðinni en í meðalári. AUmikið magn kart- aflna er til í Eyjafirði frá fyrra ári og fátt eitt við þær annað að gera en aka á haugana. Olafur Vagnsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar sagði að búast mætti við óhemju uppskeru í haust, en sprettan nú væri um hálfum mánuði til þremur vikum á undan sprettu í meðalári. „Það má orða það svo að stefni í algjört óefni, uppskeran verður sjálfsagt alltof mikil og menn sjá fram á að geta ekki selt nema hluta uppskerunnar. Þá byijar slagurinn á markaðnum með undirboðum þar sem menn reyna að koma vörunni inn á mark- að. Þannig að ánægjan af góðu tíðar- fari og mikilli uppskeru er dálítið tvíeggjuð,“ sagði Ólafur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.