Morgunblaðið - 15.08.1991, Síða 33

Morgunblaðið - 15.08.1991, Síða 33
.MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991 33 fyrir Kópavogsbúa að fá slík öðl- ingshjón sem Ásdísi og Árna hing- að. Þau hugsuðu fyrst og fremst um hag íbúanna. Ásdísi og Árna varð 6 barna auðið á 22 árum. Þau eru: Ananías Valdimar bifreiðarstjóri og tölvurit- ari fæddur 15. febrúar 1931, dáinn 12. desember 1978, kvæntur Maríu Hallgerði Guðmundsdóttur frá Ól- afsvík. Eignuðust 3 börn. Þau flutt- ust til Ástralíu 1969 og þar býr nú ekkja hans og börn; Karl fæddur 2. maí 1932, forstöoumaður Stræt- isvagna Kópavogs og Vélamið- stöðvar Kópavogs, kvæntur Ólöfu P. Hraunfjörð, eiga 3 börn; Kristín Eva fædd 19. mars 1936, skrifstof- umaður, á 1 barn. Fyrri maður Björn Magnússon, látinn, seinni maður Sigurður Benediktsson; Birna fædd 26. október 1938, hús- móðir, á 1 son með Alexander Jó- hannessyni, maki Steingrímur Steingrímsson, 4 börn; Soffía Ingi- björg fædd 31. desember 1947, elli- hjúkrunarkona, maki Sigurðúr Sig- urbergsson, eiga 1 barn, búa í Málmey í Svíþjóð; Anna fædd 21. ágúst 1953, verslunarskólapróf, maki Torfi Sigurðsson, eiga 3 börn. Ásdís var fríð kona, ákaflega snyrtileg með fallega snyrtar hend- ur á hveiju sem gekk. Hún var grönn og létt í hreyfingum fram í andlátið, glaðsinna og hafði góða frásagnarhæfileika. Hún hafði gaman af að dansa og á yngri árum fór hún oft á iaugardagskvöldum að dansa, meðal annars charleston. í þá daga þegar hún var að ala börnin sín upp var hún, eins og svo margar aðrar konur, einangruð við heimilið á meðan eiginmaðurinn var að afla tekna, en er börnin stálpuð- ust fór hún út á vinnumarkaðinn á ýmsum stöðum, meðal annars um 12 ára skeið í Flatkökugerð Friðriks Haraldssonar, í Ora og í heimilis- þjónustu. Ásdís kunni svo sannarlega að hugsa um heimili. Hún var lista- kokkur og bakaði afbragðs kökur og lengi vel var það venja að fjöl- skyldan hittist um hver jól hjá þeim hjónum, við mikinn fögnuð. Þegar við Karl giftum okkur bjuggum við á heimili þeirra fyrsta árið. Þá voru öll börnin heima og líka eldri sonur þeirra með konu og bam. En þar sem er hjartahlýja þar er líka húspláss. Ég minnist Ásdísar í brúðkaupsveislu okkar hjóna. Þá sat hún með sitt yngsta barn á hnjánum. Það var bara á öðru ári og þannig finnst mér það lýsa henni best, að það barnið sem þurfti mest á henni að halda í það og það sinnið hugsaði hún um hvemig sem stóð á hjá henni sjálfri. Ásdís var hinn mesti lestrarhest- ur og las oft fram á nótt, enda tók við mannmargt heimili og vinnu- dagurinn langur, en er leið á aldur- inn fór sjónin að bila en þá las tengdapabbi fyrir hana. Ásdís fylgdist mjög vel með í þjóðmálum og var jafnréttissinnuð, hún var í kvenfélagi framsóknarkvenna og starfaði þar á meðan kraftar entust. Er um fór að hægjast hjá þeim Ásdísi og Árna fóru þau að fara í útilegur með börnin. Einnig fóru þau oft í bíó, leikhús og óperur, þau áttu sér spilafélaga sem þau hittu 1-2 í viku. Þau voru svo forsjál er aldurinn fór að segja til sín að kaupa blokkaríbúð í Hamraborg svo það var stutt fyrir þau í félagslega þjón- ustu. Ásdís hugsaði um heimilið fram á síðasta dag og var það til fyrirmyndar. Hún átti rétt á heimil- ishjálp en hún var svo dugleg og sjálfstæð í hugsun að hún vildi gera allt sjálf á meðan hún gat. Asdís átti 2 nöfnur, Björnsdóttur og Steingríms, sem henni þótti mjög vænt um. Býr sú fyrrnefnda í Eng- landi og fylgdist hún vel með líðan hennar og sýndi okkur stolt myndir þaðan. Einnig höfðu þau Árni alltaf gott bréfasamband við börnin sín og barnaböm í Svíþjóð og Ástralíu. Barnabörnin eru orðin 16 og barna- barnabörnin 22 og að auki 3 látin. Blessuð sé minning mætrar konu. Ég sendi samúðarkveðjur til tengd- aföður míns og annarra aðstand- enda. Ólöf P. Hraunfjörð Útförin fer fram frá Kópavogs- kirkju í dag, 15. ágúst, kl. 13.30. Jónasína Þ. Sigurðar- dóttír - Kveðjuorð Fædd 28. maí 1903 Dáin 5. ágúst 1991 „Hver er Jónasína?" Þessari spurningu var ég vön að svara þannig: „Hún er besta kona í heimi“. Jónasína var yndisleg. Lífsgleði hennar var innileg, bros hennar ein- lægt. Umhyggja hennar fyrir vel- ferð annarra var ótakmörkuð. Sem lítil stelpa leit ég strax upp til þessarar blíðu og góðu konu, sem reyndist mér svo vel. Heimsóknir í Hraun hafa alltaf verið mikið til- hlökkunarefni, bæði fyrr og síðar, enda fólkið þar höfðingjar heim að sækja. Þær eru óteljandi gleðistund- irnar sem ég hef átt með Jónasínu og Kjartani eftirlifandi eiginmanni hennar í gegnum árin. Jónasína var mjög óeigingjörn og gaf sér- alltaf tíma til að spjalla við litla fænku, sem kom í heimsókn frá Svaibarðsströndinni. Hún hvatti mig til dáða, samgladdist mér þeg- ar vel gekk og talaði í mig kjark þegar eitthvað bjátaði á. Þó við hitt- umst ekki nema nokkrum sinnum á ári, þá fylgdist hún alltaf með mér úr fjarlægð. Það þótti mér mjög vænt um og oft þegar ég ætlaði að segja henni hvað á daga mína hafði drifið síðan síðast, þurfti ég þess ekki. Hún vissi það allt saman. Hún samgladdist mér af alhug þegar Haukur varð kærastinn minn og aftur nokkrum árum seinna þeg- ar við urðum hjón. Daginn þann létu hún og Kjartan sig ekki vanta í veisluhöldin, þó um langan veg væri að fara og þau bæði komin vel yfir áttrætt. Við giftum okkur daginn fyrir afmælisdaginn hennar Jónasínu og gættum þess að veislan stæði fram yfir miðnættið, henni til heiðurs. Þegar við áttum síðan von á barninu okkar var hún jafn spennt og hún væri sjálf að verða móðir. Hún fylgdist vel með gangi mála, umhyggjusöm og hvetjandi eins og venjulega. Hún sagði mér frá því þegar þau Kjartan eignuðst börnin sín, Hólmgrím og Kristínu. Hversu mikla hamingju þau hefðu fært þeim og síðar barnabörnin og barnabarnabörnin. Litli drengurinn okkar fæddist í maí, rétt eins og Jónasína hafði gert 87 árum áður. Nú átti ég tvær maístjörnur. Ég beið spennt eins og barn eftir að vita hvort þau Jónasína og Kjartan myndu treysta sér til að koma og vera viðstödd þegar Víkingur minn yrði skírður. Okkur Hauki til ómældrar ánægju töldu þau það ekki eftir sér og mættu galvösk að venju. Eftir að við fluttum til Svíþjóðar skrifuðumst við Jónasína á. Bréfin hennar voru svo skemmtileg, full af fréttum af fjölskyldunni og dag- lega lífinu hér heima. Ég varðveiti þau á góðum stað, þau eru mér fjár- sjóður. Við Jónasína hittumst í síðasta skipti síðastliðinn þjóðhátíðardag. Þá fórum við mörg saman, iíklega hátt á þriðja tug ættingja í heim- sókn í Hraun. Gömlu hjónin fylgdu okkur þá ásamt syni sínum og tengdadóttur um ástkæra jörðina sína. Við skoðuðum meðal annars réttina, sem yngstu ferðalangarnir höfðu aldrei séð áður og fórum nið- ur að Laxánni þar sem farið var í stutta bátsferð. Þessi sólbjarti dag- ur verður lengi í minnum hafður. Við Haukur vorum búin að ákveða að fara með Víking austur í Aðaldalinn í dag þann 10. ágúst, til að kveðja, áður en við héldum enn á ný til Svíþjóðar. Ekki óraði okkur fyrir því þá að þessi dagur yrði jarðarfarardagur Jónasnu. Er sólin hnígur hægt í djúpan sæ og höfuð sitt til næturhvíldar byrgir, á svalri grund, í golu þýðum blæ, er gott að hvíla þeim, er vini syrgir. í hinstu geislum hljótt þeir nálgast þá, að huga þínum veifa mjúkum svala. Hver sælustund, sem þú þeim hafðir hjá, í hjarta þínu byijar ljúft að tala. Og tárin, sem þá væta vanga þinn, er vökvan, send frá lífsins æðsta brunni. Þau líða eins og elskuð hönd um kinn og eins og koss þau brenna ljúft á munni. Þá líður nóttin ljúfum draumum í, svo ljúft, að kuldagust þú finnur eigi, og, fyrr en veistu, röðull rís á ný, og roðinn lýsir yfir nýjum degi. (Hannes Hafstein) Elsku Kjartan, Grímur, Stína og þið öll! Við Haukur höfum hugsað til ykkar með hlýhug undanfarna daga. Þið getið svo sannarlega ver- ið stolt af henni Jónasínu ykkar og iljað ykkur við minningu hennar um alla framtíð. Með sárum söknuði kveð ég elsku bestu frænkuna mína. Takk fyrir allt og allt. Kristín S. Bjarnadóttir Jónína B. Guðlaugs- dóttir — Minning Fædd 21. október 1904 Dáin 15. júlí 1991 Mér barst sú fregn vestur um haf að amma mín kæra, Jónína Björg Guðlaugsdóttir, hefði látist þann 15. júlí síðastliðinn, þá tæp- íega 87 ára að aldri. Ég á þess því miður ekki kost að fylgja henni til grafár en á kveðjustund rifjast upp fyrir mér minningar um konu sem í gegnum árin var svo stór þáttur í lífi mínu. Ég verð forsjóninni ævinlega þakklát og tel það mína gæfu að hafa fengið að kynnast ömmu svo' náið. Aðstæður höguðu því svo til að ég fékk að búa á loftinu á Öldu- götu 17, í Hafnarfirði, í húsinu hennar Jónu ömmu og hans Sveins afa míns, sem lést árið 1984. Þau fimm ár sem við áttum þar saman verða mér ógleymanleg, ekki síst fyrir þá sök að amma var af þeirri merku kynslóð sem með dugnaði sínum, áræðni og bjartsýni lagði grunnin að því velferðarþjóð- félagi sem við nú byggjum. Kynslóð sem ólst upp í sveitum og sjávar- þorpum í byijun aldar, oft við erfið skilyrði, en lifði einhveijar þær mestu framfarir á sviði tækni og breytinga á lífskjömm sem orðið hafa á einum mannsaldri. Kynslóð sem sannarlega man tímana tvenna. Mér em einkum minnisstæðar margar góðar stundir þar sem skrafað var og skeggrætt í fyllstu einlægni um allt milli himins og jarðar yfír kaffíbolla. Það var á slík- um stundum sem viska hennar og speki kom best í ljós, hvort sem það vom dægurmál eða leitað var álits hennar á mikilvægari málefnum, hélt ég einatt ríkari af hennar fundi. Mér líður seint úr minni saga hennar sjálfrar úr æsku, þar sem hún bjó suður í Hraunum og þurfti að sækja skóla um langan veg. Það var minnst tveggja klukkustunda gangur hvora leið, en það var ekki talið eftir sér þá að leggja í lang- ferð árla dags til að afla sér fróð- leiks og þekkingar. Hún minntist t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR (HILDIGUNNAR) SÖLVI JÓNSSON matreiðslumeistari frá Látrum í Aðalvík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Ásta Ólafsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, HaMdór I. Hansson, Theódór Gunnarsson, Þ. Ósk Kristinsdóttir og barnabörn. 1 Hjartans þakkir færum við öllum ■ þeim fjöimörgu, er auðsýndu okkur samúð, vináttu, ástúð og skilning við andlát og útför ást- kærs sonar okkar, bróður, mágs og sonarsonar, SVEINS PÉTURSSONAR, lllugagötu 56, Vestmannaeyjum. Pétur Sveinsson, Henný Ólafsdóttir, María Pétursdóttir, Davið Þór Einarsson, Aðalheiður Pétursdóttir, Friðjón Jónsson, Erla Björg Pétursdóttir, Sigurður Freyr Pétursson, Guðni Þór Pétursson, Sveinn Matthíasson, Maria Pétursdóttir. oft á að hafa haft sérstaka ánægju af reikningi og notaði hveija stund sem gafst til að æfa sig. En þótt hugurinn stefndi hátt, varð skóla- gangan ekki löng. í þá daga var menntunin ekki sjálfsögð eins og nú. Amma benti jafnan á og það réttilega, að unga fólkinu í dag væru allir vegir færir, ef vilji og góð heilsa væru fyrir hendi. Með þau orð að leiðarljósi kvaddi ég ömmu hinsta sinni fyrir um hálfu ári. Hennar göngu er nú lokið en minningin lifir. Mér koma í hug eftirfrandi ljóðl- ínur sem mér finnst að gætu allt eins verið boðskapur hennar til okk- ar sem landið erfum um að meta þann arf að verðleikum og nýta þau tækifæri sem okkur bjóðast á lífs- leiðinni. Oss verður svo oft síðan vorið leið, að vakna við sárasta drauminn; Um æskunnar kallandi ævintýr, sem ósnortin hverfðust í strauminn. En röðull skein þá hverri rós á brá - Og við riðum þar hjá. Minn glitrandi steinn, hvi greip ég þig ei, úr götunni höndum tveimur? Hví bar mig þar fram um; Þar beið mín þó heill blikandi unaðarheimur. Eins og rúbínsteinn varst þú rauður og hreinn eins og rúbínsteinn (Guðm. Böðv. 1939) Megi elsku amma mín hvíla í friði. Björk Þórarinsdóttir + Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ELIASAR HALLDÓRSSONAR, Snorrabraut 58. Eva Pálmadóttir, Erla Elíasdóttir, Ágúst H. Eliasson, Halldóra Elíasdóttir, Sveinn H. Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega veittan stuðning og hlýhug við andlát og útför móður okkar og ömmu, • RAGNHEIÐAR SIGURÐARDÓTTUR frá Óttarsstöðum, Hringbraut 36, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Borgarspítalans. Sigurður Kristinn Viihjálmsson, Gunnar Vilhjálmsson, Ásta Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður Ásta og Berglind Elva Jóhannsdætur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.