Morgunblaðið - 15.08.1991, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1991
ÍÞRÓmR
■ FOLK
■ CHRIS Woods, markvörður
Glasgow Rangers, gekk til liðs við
Sheffield Wednesday í gær. Fé-
lagið borgaði 1,2 milij. sterlings-
punda fyrir Woods, sem skrifaði
undir fjögurra ára samning.
■ EYJOLFUR Sverrisson kom
inná sem varamaður hjá Stuttgart
þegar sex mín. voru til leiksloka í
jafnteflisleik, 1:1, í Bremen.
■ LIAM Brady, framkvæmda-
stjóri Celtic, ræddi við Gary Gil-
> lespie, miðvörð Liverpool í gær
og er reiknað með að Gillespie
skrifi undir samning við Celtic í
dag. Brady reyndi að fá Paul
McGrath frá Aston Villa, en fékk
svarið; Nei!
■ BLACKBURN Rovers hefur
boðið 1,5 millj. punda fyrir Ronny
Rosenthal og David Speedie hjá
Liverpool. Reiknað er með að Li-
verpool taki boði félagsins.
URSLIT
Knattspyrna
1. deild kvenna:
UBK-Týr..........................6:0
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir, Kristrún Daðadóttir og
Sigrún Ottarsdóttir
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit:
Keflavik-Þór.....................2:1
Anna María Sveinsdóttir vsp., Olga Fær-
seth - Lára Eymundsdóttir
Akranes - Valur..................2:1
Anna Lilja Valsdóttir. Laufey Sigurðardótt-
ir - Ragnheiður Vikingsdóttir.
3. deild karla:
Völsungur - Skallagrímur.........3:0
Hörður Benónýsson 2, Sigurður Illugason
KS - Magni.......................2:2
Sveinn Sverrisson, Baldur Benónýsson -
Sverrir Heimisson 2
Fj. leikja U J T Mörk Stig
LEIFTUR 14 8 2 4 33: 16 26
Bí 14 7 3 4 23: 15 24
DALVÍK 14 7 3 4 30: 24 24
SKALLAGR. 14 6 4 4 32: 33 22
ÍK 14 5 5 4 33: 23 20
ÞRÓTTUR N. 14 5 5 4 32: 25 20
VÖLSUNGUR 14 5 5 4 16: 19 20
MAGNI 14 3 3 8 32: 43 12
REYNIRÁ. 14 3 3 8 18: 45 12
KS 14 2 5 7 14: 20 11
4. deild:
Þrymur - Kormákur..................1:4
Ægir - Álbert Jónsson 2, Hörður Guðbjörns-
son, Rúnar Guðmundsson
Hvöt - Neisti......................3:0
Bjami Gaukur Sigurpsson 2, Orri Baldurs-
_ son
^ UMSEb-SM.............................1:1
Sigurður Bjarkason - Sævar Þorsteinsson
Leiknir - Sindri...................4:4
Kári Jónsson 3, Andre Raes - Elvar Grétars-
son 2, Þrándur Sigurðsson, Börkur Þor-
geirsson
F.inherji - Valur.................6:1
Hallgrímur Guðmundsson 2, Kristján Dav-
íðsson, Björn Sigurbjömsson, Helgi Þórðar-
son, Lýður Skarphéðinsson -
Huginn - Höttur....................0:3
- Jónatan Vilhjálmsson 2, sjálfsm
Ægir - Reynir S....................2:2
Halldór Páll Kjartansson, Dagbjartur Páls-
son - Jónas Jónasson 2
Utandeildakeppnin:
KMF - Flugleiðir...................2:4
Þýskaland
Schalke - Númberg..................1:0
Dússeldorf - Bayem Múnchen.........0:1
_ Hansa Rostock - Borussia Dortmund....5:1
'í^Werder Bremen - Stuttgart...........1:1
Stuttgart Kickers - Bayer Leverkusen.0:1
Köln - Kaiserslautern..............1:1
Bochum - Hamburg...................2:3
Dynamo Dresden - Frankfurt.........2:1
Karlsruhe - Mönchengladbach........2:0
Duisburg - Wattenscheid............0:0
■Hansa Rostock kemur enn skemmtilega
á óvart og er eina félagið með fullt hús
stiga eftir þijá umferðir.
Vináttulandsleikur
Varsjá, Póllandi:
Pólland - Frakkland................1:5
Jan Urban (17.) - Frank Sauzee (41.),
Jean-Pierre Papin (45.), Amara Simba
(68.), Laurent Blanc (69.), Christian Perez
(77.). 15.000
Ikvöld
KNATTSPYRNA kl. 19.
1. deild karla:
Valsvöllur...........Valur - KA
Kópavogsvöllur...UBK - Víkingur
Vestm.eyjavöllur......ÍBV - KR
2. deild karla:
Akranesvöllur.........ÍA - ÍBK
GOLF / NM OLDUNGA
ísland í
öðrusæti
í Leirunni
Sviar hafa forustu á báðum vígstöðvum
Morgunblaðið/Bjarni
Gíslí Sigurðsson þakkar Hans Rastorfer frá Austurríki og Hans Kamm frá
Sviss fyrir leikinn.
„Viðurkennum
ekki neina sök“
Það er ekki rétt, sem fram kom í frétt í blaðinu í gær, að Akumes-
ingar hafí ekki mótmælt atvikalýsingu Fylkis í kæru á hendur
Guðjóni Þórðarsyni, þjálfara ÍA. Fylkir kærði Guðjón fyrir að hafa
haft afskipti af leik liðanna á Akranesi 25. júní er hann átti að taka
út leikbann. „Við viðurkennum ekki neina sök í málinu — teljum okkur
í fullum rétti í hvívetna,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið í gær. Beðið
er niðurstöðu héraðsdóms Akraness.
ISLENDINGAR eru í öðru sæti
íkeppninni um Evrópubikarinn
sem fram fer í Leirunni og í
keppninni um Evrópumeistara-
titilinn, sem fram fer f Grafar-
holti, er íslenska sveitin f sjötta
sæti. Svfar hafa forustu á báð-
um stöðum.
Keppendur á Suðurnesjum
komu inn á góðu skori. Bestur
allra var Willy Backstedt frá
Svíþjóð, en hann lék á 70 höggum,
tveimur undir pari, en þar sem hann
er með 9 í forgjöf var hann með
61 högg nettó.
Jóhann Benediktsson lék manna
best í íslensku sveitinni. Hann kom
inn á 76 höggum en er með 11 í
forgjöf og var því með 65 högg
nettó. Alfreð Viktorsson lék á 69
nettó, Ragnar Jónsson á 72 og Ólaf-
ur Gunnarsson á 73. Sveinbjörn
Jónsson lék á 79 og Birgir Björns-
son á 80 og þeir töldu ekki í gær.
Sænska sveitin er með 267 högg
en sú íslenska notaði 279 högg.
Austurríkismenn eru í þriðja sæti
KNATTSPYRNA KVENNA
Keflavík og Akra-
nes í bikamrslít
KEFLAVÍK, sem leikur f 2. deild,
gerði sér litið fyrir og sigraði,
2:1,1. deildarlið Þórs frá Akur-
eyri f undanúrslitum bikar-
keppni KSÍ í Keflavík f gær-
kvöldi. Þar með verður ÍBK
fyrsta liðið f 2. deild sem kemst
alla leið í úrslit bikarkeppninn-
ar.
Lára Eymundsdóttir skoraði fyr-
ir Þór fljótlega í síðari hálfleik
og suttu seinna small boltinn á
Keflavíkurmarksins.
Keflavíkurstúlkum-
ar gáfust ekki upp
og þær náðu að
jafna metin með
marki úr vítaspyrnu
sem dæmd var eftir að Olga Fær-
seth hafði verið feild innan vítateigs
þverslá
Björn
Blörtdal
skrifarfrá
Keflavík
- og skoraði Anna María Sveinsdótt-
ir úr vítinu. Eftir markið skiptust
liðin á að sækja, en þegar tvær
mínútur voru til leiksloka náði Olga
Færseth að skora sigurmark ÍBK.
„Við náðum ekki að nýta færin sem
við fengum, en það gerðu Keflvík-
ingar hins vegar og því fór sem fór
- og þessi úrslit eru mikil vonbrigði
fyrir okkur,“ sagði Sigurður Páls-
son þjálfari Þórs.
„Stelpurnar léku eins og fyrir
þær var lagt og það ásamt góðri
baráttu skópu sigur okkar í leikn-
um. Við ákváðum að leggja meginá-
hersluna að vörnina og beita síðan
skyndisóknum hvenær sem færi
gæfist og við erum að sjálfsögðu í
sjöunda himni með að vera komin
í úrslitin," sagði Þórir Bergsson,
þjálfari ÍBK.
Akranes tryggði sér farseðilinn
í bikarúrslit með að vinna
sanngjarnan sigur á Val, 2:1, á
Akranesi. Skagastúlkumar byrjuðu
vel, en þeim tókst
Sigþór ekki að koma knétt-
Eiriksson inum í netið hjá Val
skrifar fyrr en ^ síðustu
mín. fyrri hálfleiks-
ins. Anna Lilja Valsdóttir skoraði
markið. Skagastúlkur héldu upp-
teknum hætti í seinni hálfleik og
sóttu grimmt. Laufey Sigurðardótt-
ir bætti öðru marki, 2:0, við á 51.
mín. eftir að Ragnheiður Jónasdótt-
ir hafði leikið á markvörð Vals og
send knöttinn til Laufeyjar. Ragn-
heiður Víkingsdóttir náði að minnka
muninn, 2:1, fyrir þær tveimur mín.
fyrir leikslok.
FIMLEIKAR
Guðjón æfir fyrir HM
GUÐJÓN Guðmundsson, ís-
landsmeístari ífimleikum, hef-
ur dvalið erlendis frá því um
miðjan júní við æfingar og
keppni til að undirbúa sig fyrir
heimsmeistaramótið í fimleik-
um, sem fram fer í Indianapolis
í Bandaríkjunum 29. ágúst -15.
september.
Um síðustu helgi keppti Guðjón
sem gestur í landskeppni
Norðmanna og Finna, sem fram fór
í Osló. Hann hlaut samtals 102,85
stig í fijálsum æfíngum og skyldu-
æfingum, en lágmark fyrir HM er
102 stig. 14 keppendur tóku þátt
í mótinu, 7 frá Noregi, 6 frá Finn-
Guðjón Guðmundsson.
landi og Guðjón.
Guðjón náði bestum árangri í
frjálsum æfingum á svifrá 9,30 stig
og varð í 2. sæti ásamt Finnanum
Topi Taskinen, en Norðmaðurinn
Espen Jansen fékk 9.40 og sigraði.
I frjálsum æfingum á gólfi var
Guðjón í 4. sæti með 9,10 stig en
Juha Tanskanen frá Finnlandi og
Anders Gran og Espen Jansen frá
Noregi, en þeir hlutu 9,30 stig.
Guðjón keppir í boði norska fim-
leikasambandsins sem gestur á
móti sem haldið verður um næstu
helgi. Þar keppa landslið Noregs,
Svíþjóðar, Þýskalands og Englands,
samtals 25 keppendur.
með 281 högg og síðan koma Norð-
menn með 283 högg, Spánveijar
285, Finnar og Luxemborgarar
287, Svisslendingar 291, Þjóðverjar
292, Belgíumenn 299 högg og Dan-
ir reka lestina með 316 högg.
í keppni A-sveita eiga Svíar eitt
högg á ítali, léku á 307 höggum í
gær. Þeirra best lék Magnus Lind-
berg, en hann kom inn á 73 högg-
um, en það eru tvö högg yfír pari.
Finninn Matti Louhio gerði slíkt hið
sama í gær.
í íslensku sveitinni lék Karl Hólm
best, var á 80 höggum. Þorbjörn
Kjærbo lék á 81 höggi, Gísli Sig-
urðsson á 83, Gunnar Júlíusson á
84 og þeir Pétur Antonsson á 85
höggum og Sigurður Albertsson á
89 höggum töldu ekki.
Spánverjar eru í þriðja sæti á 318
höggum síðan koma, Finnar á 321,
Norðmenn á 324, íslendingar á
328, Svisslendingar á 334, Þjóðverj-
ar á 336, Austurríkismenn á 349,
Portúgalir á 357, Danir á 363,
Luxemborgarar á 354 og Belgíu-
menn reka lestina á 365 höggum.
faémR
FOLK
■ STEFÁN Arnarson markvörð-
ur FH er ekki óvanur að standa í
markinu þegar mótheijarnir taka
vítaspyrnu. Fimm sinnum hefur
hann verið einn á móti vítaskyttu
í sumar og aðeins einu sinn hefur
hann þurt að sækja knöttinn í
netið, í gærkvöldi. Tvívegis hefur
hann varið og tvisvar hafa víta-
skyttumar skotið framhjá.
■ SVEINBJÖRN Hákonarson
misnotaði síðari vítaspyrnuna sem
Stjarnan fékk gegn FH í gær. Þeg-
ar hann var að ganga til búnings-
herbergja eftir leikinn kom ungur
sonur hans til hans og vildi fá að
vita hvers vegna Stjarnan hefði
ekki skorað fleiri mörk. Sveinbjörn
sagði að þeir hefðu verið klaufar
að skora ekki fleiri mörk. „Pappi
þú varst klaufí að skora ekki fleiri
mörk,“ sagði sá stutti og bætti síðan
við: „Pabbi þú gerðir ekki mark úr
öllum vítunum!“
■ TVEIR leikmenn voru valdir
menn leiksins í viðureign IBK og
Þórs í 2. deildinni sl. sunnudags
en láðst hefur að birta það í blað-
inu. Það voru Kristinn Guðbrands-
son, ÍBK og Friðrik Friðriksson,
Þór.
■ JUHANI Moisander frá Finn-
landi lenti heldur betur illa í því á
15. brautinni í gær. Hann húkkaði
upphafshöggið og lenti utan vallar.
Annan bolta sló hann á braut en
fjórða höggið misheppnaðist og fór
aðeins nokkra metra. Þá sá hann
fyrsta boltann utan girðingar og
taldi hann ekki utan vallar og sló
hann. Sigurður Þorvaldsson
ríkisféhirðir var á göngu með hund-
inn sinn þarna og benti honum á
að boltinn væri utan vallar. Fyrir
að slá boltann fékk hann tvö högg
í víti. Síðan lenti hann í vatninu og
þegar upp var staðið hafði hann
notað 13 högg á holuna! Fyrri níu
lék hann á 38 höggum en síðari
níu á 52!