Morgunblaðið - 01.09.1991, Blaðsíða 18
'SlírN'ftíjtíjíbtJ'R1 l’/stíWÉMBER 1991
m
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar!
t > Heildsala og smásala:
SS? VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
á íþrótta- og sportvörum
í SPÖRTU Laugavegi 49
Síðustu dagar
Adidasgalli úr sterku efni.
Nr. 116 til 164 ogLogXL.
Verð 3.990,-
(áður 6.340,-).
Senorita krumpugalli.
Öll dömunúmer.
Verð 4.990,-
(áður 7.350,-).
IMPROVE tilvaldir
skólaskór. Nr. 30 til 38.
Verð 1.990,-
(áður 3.520,-).
LA PILA.
Nr. 19 til 30.
Verð 990,-
(áður 1.980,-),
Liðasett: Liverpool, Arsenal, Manch. Utd.,
Tottenham. Verð 1.990,- (áður 3.960,-),
stuttbuxur, öll nr., sundbolir, sundskýlur,
t. bolir, fimleikafatnaður o.fl. o.fl.
Vlð rúllum boltanom til bín. Nú er tæklfærið tll að gera góð kaup.
10% afslóttur af öórum vörum.
Póstsentíum
Laugavegi 49,
sími 12024.
Stœrðir: 13xl8cm.
18 x 24 cm.
24 x 30 cm.
Myndir sem birtast í Morgunblaöinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœtl 6, sími 691150
101 Reykjavík
Nú er farið að hitna í kolunum s
í Samskipadeildinni. Leikur FRAM og {
VÍKINGS sem hefst á Laugardalsvelli
klukkan 16:00 á sunnudag.
Hver verður sigurvegari deildarinnar?
Ekki missa af spennandi leik þar sem
allt verður lagt undir.
Fram
Víkingar
Laugardalsvöllur - sunnudag
Nú dregur til tíðinda
í Samskipadeildinni
Athuga-
semd frá
BSRB
í Morgunblaðinu í dag (30. ágúst)
gerir Ólafur M. Jóhannesson fjölm-
iðlarýnir blaðsins auglýsingar BSRB
um velferðarkerfið að umtalsefni.
Ólafur bendir réttilega á að í auglýs-
ingunum séu ráðherrar varaðir við
jiví að rífa niður velferðarkerfið.
Ólafur telur þessar auglýsingar vera
pólitískar og ennfremur að þær „segi
nokkra sögu um pólitíska afstöðu
forystumannanna".
Það er rétt hjá Ólafi M. Jóhannes-
syni, að hvort sem um er að ræða
niðurrif eða uppbyggingu velferðar-
kerfis þá er það í eðli sínu pólitískt.
Þá vaknar hins vegar spurningin um
viðbrögðin við slíku og hvemig beri
að skilgreina þau. í BSRB er fólk í
öllum pólitískum flokkum en eitt
hefur einkennt umræðu á öllum
fundum og ráðstefnum á vegufn
bandalagsins að undanfömu og það
er samstaða um að standa vörð um
velferðarkerfið og að það beri að
efla en ekki veikja.
Þetta er einfaldlega „pólitík" sam-
takanna. Það ætti ekki að þurfa
koma neinum á óvart þótt þessari
stefnu sé komið á framfæri.
Ólafur M. Jóhannesson staðhæfir
að ekki hafi heyrst „bofs“ þegar
skattar vom hækkaðir og skattleys-
ismörk fryst í tíð síðustu ríkisstjóm-
ar. Þetta er rangt. Frá samtökunum
bárust kröftug mótmæli vegna
þessa. í kjölfarið náðist fram breyt-
ing á skattleysismörkunum þótt
samtökunum þætti ekki nóg að gert.
Og á meðal annarra orða, hvar
var Ólafur M. Jóhannesson þegar
20 þúsund launamenn fylktu sér
undir merki BSRB og ASI á Lækj-
artorgi sumarið 1989 til að mót-
mæla verðlagsstefnu stjómvalda?
Þar vom ráðherrum og ríkisstjóm
ekki vandaðar kveðjurnar.
BSRB mun eftir sem áður taka
málefnalega afstöðu og bregðast við
misviturlegum ráðagerðum stjóm-
valda eins og efni og ástæður eru
til hveiju sinni.
(Frá BSRB.)
■ HIÐ íslenska náttúrufræðifé-
lag gengst fyrir stuttu námskeiði
til kynningar á lífí og lífsskilyrðum
í mismunandi fjörum dagana 7. og
8. september. Aðalleiðbeinandi á
námskeiðinu verður prófessor Agn-
ar Ingólfsson en hann hefur feng-
ist við rannsóknir á fjörum um allt
land. Dagskrá námskeiðsins er eft-
irfarandi: Laugardagur 7. sept-
ember. Kl. 9.00-10.30: Fyrirlestur
um líf og lífsskilyrði í grýttum fjör-
um hér við land. Kl. 10.30-15.00:
Fjöruferð við Hvassahraun sunnan
við Straum. Sunnudagur 8.
september. Kl. 9.00-10.30: Fyrir-
lestur um sjávarfitjar, sendnar fjör-
ur og leimr. Þá verða fjörunytjar
fyrr og nú teknar fyrir. Kl. 10.30-
15.00: Skoðaðar leirur við Blika-
staðakró og litið á strandplöntur
sem vaxa í sandi við efri mörk fjör-
unnar. Ef tími vinnst til verður
skroppið í Álfsnes og litið á hnull-
ungafjörur. Þátttakendum er bent
á að vera vel búnir til fótanna, helst
í stígvélum. Gagnlegt er að hafa
meðferðis bæklinginn Fjömlíf sem
Ferðafélag Islands hefur gefíð út
og fæst hjá öllum bóksölum. Fyrir-
lestramir verða haldnir í stofu G-6
í húsi líffræðiskorar Háskólans á
Grensásvegi 12 í Reykjavík. At-
hygli skal vakin á því að fjöldi þátt-
takenda er takmarkaður. Þeir sem
hafa áhuga á námskeiðinu geta
skráð sig með því að hringja í skrif-
stofu HIN. Skrifstofan er opin á
þriðjudögum og fímmtudögum kl.
9-12. Þátttökugjald er 1.000 kr.
fyrir hvom dag.