Morgunblaðið - 01.09.1991, Blaðsíða 44
varða i
i
Landsbanki
Mi íslands
ÆmJm r....
• Ranki »llra Undsmanna
Bögglapóstur
um flllt lond
PÓSTUR OG SÍMI
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Framleiðnisjóður:
Niðurskurður á
' framlögum er brot
á búvörusamningiim
- segir Haukur Halldórsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda
Hvanneyn, fra Halli Þorsteinssym, blaðamanm Morgunblaðsins.
STJORN Stéttarsambands bænda hefur mótmælt Iiarðlega öllnm
áformum um niðurskurð framlaga til Framleiðnisjóðs landbúnaðar-
ins á næsta ári og telur það brot á gildandi búvörusamningum.
Þetta kom fram í ræðu Hauks Halldórssonar formanns Stéttarsam-
bands bænda við setningu aðalfundar Stéttarsambandsins á Hvann-
eyri í gær. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra sagði óhjákvæmi-
legt að skerða framlög til Framleiðnisjóðs um rúmar 300 milljónir
króna vegna tveggja milljarða ki
\^^JPgna nýja búvörusamningsins.
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda gat þess í
ræðu sinni á aðalfundinum að í við-
auka með nýja búvörusamningnum
væri gert ráð fyrir að samtals 1.200
milljónum króna yrði veitt til Fram-
Lést eftir
umferðarslys
KONAN sem varð fyrir bíl á
mótum Lönguhlíðar og Bólstað-
arhlíðar um hádegisbilið á föstu-
dag lést síðar sama dag á Borg-
arspitalanum af áverkum sínum.
Konan var á leið austur yfir
Lönguhlíð þegar hún varð fyrir bíl
sem ekið var í suðurátt. Hún var
flutt á slysadeild Borgarspítalans
og þar lést hún seinna sama dag.
Konan var 74 ára gömul. Ekki
er að svo stöddu hægt að greina
frá nafni hennar.
-----♦ ♦ ♦----
Lögregla:
naðarauka ríkissjóðs á næsta ári
leiðnisjóðs landbúnaðarins á samn-
ingstímanum, og því skyti það
skökku við þegar fregnir bærust um
að áformað væri að skera niður um
helming framlög til sjóðsins á næsta
ári, og ráðstafa auk þess hluta af
þeim fjármunum sem í Framleiðni-
sjóð fara til ákveðinna verkefna sem
áður voru í íjárlögum.
Hann sagði að ákvæði búvörulag-
anna um framlög til Framleiðnisjóðs
væru hluti af þeirri stefnumörkun
sem fólgin væri í gildandi búvöru-
samningi, og þeir fjármunir sem
sjóðnum væru tryggðir með lögun-
um væru óijúfanlega tengdir fram-
kvæmd hennar.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra sagði í ávarpi sínu, að ríkis-
stjórnin stæði frammi fyrir alvarleg-
um vanda í ríkisfjármálum og hefði
ákveðið að takast á við hann. Það
þýddi að óhjákvæmilegt væri að
endurmeta fyrri útgjaldaáform á öll-
um sviðum og skera niður margt
af því sem látið væri óhreyft í
góðu árferði.
Sjá bls. 6.
—Fangageymsl-
ur fullnýttar
MIKILL mannfjöldi v<ar í miðbæn-
um aðfaranótt laugardagsins en
ekki kom til neinna átaka þar.
Lögreglan liafði þó afskipti af fjöl-
mörgum vegna ölvunar og gistu
um 30 ipanns í fangageymslum,
sem voru fullnýttar þcssa nótt.
Að sögn lögreglu hefur tekist sam-
starf við Tómstundaráð Reykjavíkur-
borgar um viðveru í miðbænum og
flutti lögregla ellefu ungmenni í
bækistöðvar tómstundaráðs. Þar
höfðu starfsmenn þess samband við
Idra þeirra og væntir lögregla
góðs af samstarfinu.
i
Ríkisstjórnin fjallar um rekstrarkostnað Húsnæðisstofnunar:
Aðrir aðilar en ríldð komi að
þessum málum í framtíðinni
- segir Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Félagsmálaráðherra hefur fært
það í tal við fjármálaráðherra að
vegna þeirra breytinga sem fram-
undan eru hjá Húsnæðismálastofn-
un þurfi að rifa seglin í rekstrar-
kostnaði stofnunarinnar. Að sögn
Friðriks Sophussonar fjármálaráð-
herra hefur verið rætt um tækni-
Leisitækni:
íslenskur vísindamaður finnur
upp nýja tækni við gerð ljóssía
DR. RÓBERT Magnússon, íslenskur prófessor í rafmagnsverk-
fræði við Texasháskóla í Arlington, hefur fundið upp aðferð til
ð framleiða nýja gerð ljóssía sem getur meðal annars stóraukið
möguleika á notkun leisigeisla til skurðlækninga og margfaldað
það magn upplýsinga sem unnt er að flytja um ljósleiðara.
Róbert hefur ásamt samstarfs-
manni og háskólanum sem hann
starfar við sótt um einkaleyfi á
uppfínningu þessari hjá einkaleyf-
, isstofnun alríkisstjórnarinnar í
Washington og hefur umsóknin
verið lögð fram að lokinni árs und-
irbúningsvinnu. Reiknað er með
afgreiðslu umsóknarinnar innan
hálfs árs.
Hingað til hefur Róbert ekki
gert grein fyrir hagnýtum þáttum
uppfínningarinnar opinberlega en
mun gera það í ritum í
vísindagreinum og með fyrirlestr-
um á ráðstefnum á næstu vikum.
Hann býst við að í nóvember náist
samningar við aðila sem ráða yfír
nanótækni um samstarf um smíði
frummyndar af síunni en sú tækni
sem um er að ræða gerir kröfu til
nákvæmni upp á einn nanómetra
(tíu í mínus níunda).
Sjá bls. 10.
deild Húsnæðisstofnunar og hvort
hún eigi lengur rétt á sér í umsjón
stofnunarinnar. Þá hefur ríkis-
stjórninni borist bréf frá ótil-
greindum aðilum þar sem leitað
er undirtekta við hugmyndum um
kaup á tæknideild Húsnæðisstofn-
unar.
„Það hafa verið einhveijar þreif-
ingar og okkur borist bréf með hug-
myndum í þessa átt. Ég hef verið
þeirrar skoðunar að umfang Hús-
næðisstofnunar ætti að minnka. Það
kom reyndar fram í okkar ályktun á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins,“
sagði Davíð Oddsson.
„Við höfum rætt um rekstrar-
kostnaðinn og það er ljóst að það
þarf að draga verulega úr honum.
Ég tel að það sé alveg augljóst að
miðað við þær breytingar sem verið
er að gera og lánafyrirkomulagið til
húsnæðismála hér á landi hlýtur að
draga úr starfsemi Húsnæðisstofn-
unar og í framtíðinni hljóta aðrir
aðilar en ríkið að koma að þessum
málum í miklu meiri mæli. Þá á ég
við lánastofnanir og banka eins og
víðast gerist annars staðar. Ég tel
að húsbréfakerfið eins og það er
núna sé fyrsta skrefið í þá átt. í því
sambandi má benda á það fyrirkomu-
lag sem tíðkast í Danmörku, þar sem
ríkið ábyrgist í sjálfu sér ekki lánin
heldur eru það sérstakir bankar sem
gera það, og við hljótum að færa
okkur smám saman inn á þær braut-
ir,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að þetta tengdist í
sjálfu sér ekkert fjárlagagerðinni.
„Ef þetta tilboð kemur, eða ef það
kemur hugmynd um að lækka kostn-
aðinn og draga úr starfseminni, fell-
ur það mjög vel að þeirri stefnu sem
ríkisstjórnin hefur mótað sér, þ.e.
að draga úr kostnaðinum við Hús-
næðisstofnunina," sagði Friðrik.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að ekkert tilboð
hefði borist um kaup á tæknideild
Húsnæðisstofnunar, en ein þeirra
leiða sem leitað væri til að hafa að-
hald í fjárlögunum væri að athuga
hvort lækka mætti rekstrarkostnað
í Húsnæðisstofnun. Hún sagði að þar
væri hægt að hagræða á mörgum
sviðum og hún hefði óskað eftir til-
lögum Húsnæðisstofnunar um þau
efni. Heildarrekstrarkostnaður stofn-
unarinnar á þessu ári er 440-450
milljónir króna.