Morgunblaðið - 01.09.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLADID SUNNUDÁGUR 1. SÉPTEMBER 1991
35
lega má fá gott sett á undir 20.000
krónur sem ætti að endast flestum
áhugamönnum lengi.
Þegar dellan heldur innreið sína
hjá fólki verður fljótlega ekkert
nógu fínt. Golf getur verið dýr íþrótt
ef menn vilja það við hafa, en það
er ekkert náttúrulögmál. Iþróttina
er best að iðka af skynsemi eins
og annað, og sníða sér stakk eftir
vexti.
| Fjöiskylduíþrótt
Það má segja sannlega um golf-
| íþróttina að hún henti allri fjölskyld-
* unni. Allir geta verið saman í leikn-
um og fylgst að allan hringinn án
þess að einn rjúki fram úr hinum
og sjáist ekki meir. Fjölskyldumeð-
limir geta jafnvel keppt á jafnréttis-
grundvelli gegnum forgjafarkerfið,
því hver fær sína forgjafartölu
dregna frá heildarhöggafjölda sín-
um í lok hverrar umferðar.
íþróttin hefur einnig þann kost
til að bera að hún stuðlar að hollri
útiveru og hreyfingu, án þess að
vera mjög líkamlega krefjandi. Ekki
er langj; síðan einhentur kylfingur
kom til landsins að sýna listir sínar
og trúðu menn vart eigin augum
. er þeir sáu hve langt og nákvæm-
lega hann gat skotið. Þeir sem ekki
treysta sér til að ganga upp og nið-
ur brekkurnar á eftir boltanum
geta ekið um vellina á litlum raf-
drifnum bílum og svo mætti lengi
telja.
■ Keppnir
Mót eru yfirleitt haldin á tímabil-
inu frá byijun maí til loka septem-
ber. í opnu mótunum er öllum heim-
il þátttaka. í ár hafa verið og verða
haldin alls 72 opin mót víðs vegar
um landið auk fjölmargra kvenna-,
unglinga- og öldungamóta.
Innanfélagsmótin eru, eins og
nafnið bendir til, eingöngu ætluð
félagsmönnum í viðkomandi golf-
klúbbum. Árlega skipta þau tugum
í hveijum klúbbi, og þar má auk
hinna venjulegu flokka finna ýmis
óvenjulegri svo sem ömmumót,
einnarkylfukeppni, hjóna- og para-
keppni, furðufatamót, og timbur-
mannamót.
Á landsmótinu í golfi eru krýndir
íslandsmeistarar í karla- og kvenn-
aflokkum kylfinga. Keppt er í
meistara-, fyrsta- og öðrum flokki
karla og kvenna, en auk þess í þriðja
flokki karla. Sigurvegarar í hveijum
flokki ei-u einnig verðlaunaðir.
Það er einstakt við golfíþróttina,
að langflestir iðkendur hennar eru
að keppa, en ekki aðeins þeir sem
eru í eldlínunni. Það sem gerir þetta
mögulegt er forgjafarkerfið, sem
reiknað er út miðað við getu hvers
og eins og gerir það að verkum að
misgóðir leikmenn geta keppt á
sama grundvelli.
Það sem gerir golf að dæmi-
gerðri delluíþrótt er kannski einmitt
það að árangur erfiðisins sést sam-
stundis og ótvírætt - hvert einasta
skot er annað hvort lélegt eða gott.
Þegar við bætist að alltaf eru ein-
hveijir til að keppa við, getur orðið
úr þessu hinn æsilegasti leikur sem
erfitt er að sleppa takinu á.
Reglur
Of langt mál yrði að telja upp
allar reglur sem golfarar hafa fund-
ið upp í tímans rás, enda er þær
að finna í 200 blaðsíðna bók sem
verið er að þýða á íslensku. Það er
alls ekki nauðsynlegt að kunna regl-
ur þessar upp á sína tíu fingur, en
fyrir utan þær reglur sem að sjálf-
um leiknum lúta hefur hver völlur
sínar eigin umgengnisreglur sem
ber að fylgja við leik á vellinum.
Almennt má segja að lagfæra
beri spjöll er kunna að verða á vell-
inum af völdum kylfu, gaddaskóa
eða annars, auk þess sem ber að
sýna öðrum leikmönnum tillitssemi
þegar margir eru á vellinum. Til
að halda völlunum góðum er mikil-
vægt að allir séu samstilltir um það
að fara sem best með þá, því gras-
ið er viðkvæmt fyrir ágangi.
Þeir sem gjarnan vildu stunda
hressilegt og létt frístundasport en
hafa ekki fundið neitt við sitt hæfi
ættu að prófa golfið - það er aldrei
að vita nema það slái í gegn.
Gísli Halldórsson
BYRJAÐI
GISLI Halldórsson, formaður
Olympíunefndar Islands og
fyrrverandi forseti og nú heið-
ursforseti Iþróttasambands ís-
lands, byrjaði að slá fyrir al-
vöru þegar hann var 63 ára.
Nú spilar hann á Nesvellinum
á Seltjarnarnesi, 9 holur á virk-
um dögum og 18 um helgar.
/■
g byijaði nokkuð seint að spila
golf. Ég hafði aldrei tíma til
þess meðan ég var í félags-
málum og pólitík, en síðustu þrett-
án árin hef ég spilað mikið. Þegar
maður kemst upp á lagið verður
maður fljótt forfallaður golfari því
ánægjan er mikil, félagsskapurinn
góður og útiveran holl. Hinu ber
ekki að neita að það kostar mikla
æfingu að halda sér góðum og
það má eyða í það mikium tíma.“
Gísli slær nokkur högg fyrir
blaðamann og augljóst er að þau
eru slegin af miklu öryggi. Fyrst
eru fæturnir eru vandlega stað-
settir miðað við kúluna og líkam-
inn rennur að því er virðist ósjálf-
rátt í rétta skotstellingu. Kylfa
númer átta er tekin fagmannleg-
um tökum og henni sveiflað upp.
Höggið ríður af svo áreynslulaust
að sjá að maður tekur varla eftir
því, og ekki er laust við að hluti
af upplifun skotmannsins sjálfs
skili sér til áhorfandans.
„Ég hef iðkað íþróttir alla mína
tíð, en þegar ég fór að minnka
63 ÁRA
við mig í félagsmálum fannst mér
heldur lítið að synda bara á
morgnana svo ég tók upp á því
að fara að æfa golfið eftir vinnu-
dag. Níu holur taka um tvo tíma
og átján holur fjóra, svo þetta er
hin besta útivera."
- Hvað gerir golfið svona
spennandi?
„Það er mikið til fólgið í því
að þegar menn eru að ná tökum
á þessu finnst þeim þeir alltaf
geta gert aðeins betur. Ánægjan
er svo mikil að slá góðan bolta,
sjá hann fljúga fallega í loftinu
fast að holu, að það dregur mann
út á völlinn. Ef högg mistekst sér
maður eftir því og æfir sig þeim
mun ákafar til að reyna að koma
í veg fyrir að það endurtaki sig.
Jafnvel þó menn séu orðnir
þaulæfðir mistekst þeim iðulega
högg og högg, og því verður
íþróttin aldrei fullæfð.“
- Hefur þetta haft góð áhrif á
heilsuna?
„Já, tvímælalaust. Það er eng-
inn vafi að ég á mikið til golfi og
sundi heilsu mína að þakka. Mað-
ur sefur vel og þægilega eftir einn
hring á vellinum og það eykur
vellíðan almennt. Ég mæli með
þessu sporti fyrir alla - sérstak-
lega fyrir þá sem komnir eru á
efri ár, bæði þá sem þegar stunda
golf og þá sem aldrei hafa snert
á kylfu. Það er aldrei of seint að
byija.“
RÉTTU GRÆJURNAR
FYRIR byrjendur sem ákveðnir
eru í sportinu er ágætt að verða
sér úti um hálft sett af góðum
kylfum með vel jafnvægisstillt-
um hausum (Toe Heel) og venj-
ulegum sköftum (Regular). Það
þarf að ganga úr skugga um
að unnt sé að fá viðbót við set-
tið síðar, þegar færni og kröfur
leikmannsins fara að aukast.
Þó hér sé .talað um „góðar
kylfur" er ekki átt við kylfur
sem ætlaðar eru bestu spil-
urum, því þær eru hreinlega
of erfiðar viðureignar fyrir byij-
endur. Á hinn bóginn ber að at-
huga það að mörg ódýr hálfsett
á markaðnum eru stöðluð hálfsett
sem ekki er hægt að bæta inn í
síðar. Auk þess eru þessar kylfur
oft verr jafnvægisstilltar en aðrar
og geta því orðið ófullnægjandi
þegar fram í sækir.
Af fylgihlutum og hjálpartækj-
urri golfunnandans má nefna poka
undir kylfurnar, kerru, bolta,
hanska og skó. Ráðlagt er að
kaupa stífan poka sem hægt er
að festa á kerru, því hana fá flest-
ir sér fyrr en síðar. Byijendum
er best að nota æfingabolta, sem
ekki eru eins harðir og keppnis-
boltar. Auðvitað verður breytinga
þörf á útbúnaði samhliða þróun í
getu, en dæmi um góðan útbúnað
fyrir byijanda sem ætti að endast
langt fram eftir áhugamennsku
gæti verið sem hér segir:
Hálfsett ...18.800 kr.
Poki 4.900 kr.
Kerra 6.900 kr.
Skór 3.400 kr.
Hanskar .... 480 kr.
10 boltar... 700 kr.
Samtals ...35.180 kr.
Haustvörurnar komnar
Verið velkomnar
Pósthússtræti 13.
TILBOÐ ÓSKAST
ÍFord Bronco IIXLT 4x4, árgerð ’89 (ekinn 14þús.
mílur), Pontiac Grand Prix, árgerð '89 (ekinn 38
þús. mílur), GMC P/U 1500 High Sierra 2 W/D, ár-
gerð '84 og aðrar þifreiðar er verða sýndar á Gr’ens-
ásvegi 9, þriðjudaginn 3. september kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARIMARLIÐSEIGNA
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
U.Srt:
Verð 5.995,-
Stærðir: 40-45
Litur: Svart + brúnt.
Sóli: Leður.
Efni: Skinn og skinnfóður.
Ath.: Full búð af nýjum vörum.
Póstsendum samdægurs.
5% staðgreiðsluafsláttur.
&
Kringlunni,
sími 689212.
-.. .
Toppskónum,
Veltusundi, sími 21212.
-