Morgunblaðið - 08.09.1991, Síða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1991
Hækkun leikskölagjalda á höfuðborgarsvæðinu
(almennt gjald)
4 stundir úr -* í 5 stundir úr -♦ í 6 stundir úr -♦ í 8 stundir úr -* i 9 stundir úr -* i
Garðabæra 5.400 6.000 6.700 7.500 8.100 9.000 12.000 15.0001
Kópavogurb 5.900 6.400 7.400 8.100 9.000 9.800 12.000 13.100 13.500 14.700
Hafnarfjörðurc 5.300 6.800 12.300
Mosfellsbærd 5.300 5.800 6.700 7.300 13.200 14.400
Reykjavíke 5.300 5.800 6.700 7.300 8.100 8.800 13.200 14.400
Seltjarnarnesf '8.020 10.0302 12.0303 16.740
a) Hækkaði um 10% 1. sept.. Hækkaði síðast í sept. 1989 b) Hækkaði að jafnaði um 9%. Hækkaði síðast í sept. 1989. c) Hækkaði síðast 12. feb.
1991 d) Hækkaðium9% l.sept.. Hækkaði síðast l.nóv. 1989. e)Hækkaðium tæplega9% 1. sept. Hækkaði síðast 1. nóv 1989. Sérstakt
matargjald fyrir aðra en forgangshópa leikskóla 4 til 5 stunda 2.600 kr á mánuði. f) Hækkaði siðast 1. mars 1991 um 12,28 %.
1) 8-9 tímar. 10% hækkun, en tekið upp sérstakt 2.600 kr. matargjald 2) Með fæði 13.030 kr. 3) Með fæði 15.030 kr.
Dagvistargjöld á höfuðborgarsvæðimi:
Hækkun um 9 til 10%
um síðustu mánaðamót
LEIKSKÓLA- eða dagvistar-
gjöld í flestum sveitarfélögum
á höfuðborgarsvæðinu, að
Hafnarfirði og Seltjamamesi
undanskildu, hækkuðu 1. sept-
ember um 9 til 10%.
í Hafnarfirði hækkuðu gjöldin
síðast í febrúar og á Seltjarnar-
nesi í mars, en í hinum bæjunum
voru gjöldin síðast hækkuð haus-
tið 1989.
Hækkanirnar nú eru skýrðar
með almennum verðlagshækkun-
um á þessu tímabili.
Almenningsvagnar bs.:
Sjö aðilar buðu í akstur stræt-
isvagna á höfuðborgarsvæðinu
TILBOÐ í akstur strætisvagna á
höfuðborgarsvæðinu fyrir Al-
menningsvagna bs. voru opnuð í
fyrradag. Sjö aðilar skiluðu inn
tilboðum og buðu þeir i eina til
fjórar verkeiningar af fimm, sem
boðnar voru út. Öra Pálsson,
framkvæmdastjóri Almennings-
vagna segir að tilboðin séu bind-
andi til 21. október en reynt verði
að taka afstöðu til þeirra fyrir
næstu mánaðamót.
Verkeiningamar fimm, sem Al-
menningsvagnar buðu út, eru í fyrsta
lagi hraðleiðir milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur um Hafnarfjarðarveg
og Reykjanesbraut, í öðru lagi hverf-
aleiðir í Hafnarfirði, í þriðja lagi
hverfaleiðir í Garðabæ og Bessa-
staðahreppi, í fjórða lagi hverfaleiðir
í Kópavogi og í fímmta og síðasta
lagi hraðleið frá Mosfellsbæ til
Reykjavíkur og hverfaleiðir í Mos-
fellsbæ og Mosfellsdal.
bauð sami aðili mest í 4 leiðir. Ekki
væri á þessu stigi hægt að bera sam-
an verð í tilboðunum, þar sem menn
væru að bjóða í mismunandi verkein-
ingar, en reynt yrði að vinna úr til-
boðunum fyrir næstu mánaðamót.
Tilboðin væru hins vegar bindandi
allt til 21. október.
NU DREGUR að lokum lax-
veiðitímans. Undarlegs veiðis-
umrars. Skilyrðin hafa sett
óvenju sterkan svip á gang
mála á árbökkunum. Langvar-
andi hlýindi og úrkomuleysi
ollu því að víðast hvar var
veiðin afar lítil fram eftir
sumri. Er líða tók á ágúst
gerðist það hins vegar sem
flestir veiðimenn vonuðu, það
fór að rigna og bæta í árnar.
Víða fór að veiðast, því í mörg-
um ám var talsvert af laxi og
við hann bættist úr hafinu er
vatn jókst í ánum. Þegar upp
verður staðið, verður sumarið
1991 vart betra en slakt
meðalsumar.
Veiði er nýlokið í Þverá og
Kjarrá. Óstaðfest lokatala þaðan
er um 1.900 laxar. Ljóst er að
áin er efst í sumar. Síðasta vet-
ur urðu bæði völva og tölva til
þess að spá ánni efsta sætinu
og hafði hvor sínar forsendur
fyrir spánni. Nú hefur þetta
gengið eftir.
Trúlega tekur Laxá í Kjós
annað sætið. Þar lýkur veiði á
mánudag og voru taldar líkur á
því að áin gæti náð 1.500 laxa
heildarveiði. Mikil veiði hefur
hins vegar verið í Laxá í Dölum,
hún er komin hátt í 1.100 laxa
og þar er veitt nokkrum dögum
lengur en í Kjósinni. Úr Laxá í
Aðaldal eru komnir um 1.350
laxar og menn vonuðust eftir
því að hún næði 1.400 löxum,
tölu sem gæti tryggt henni þriðja
sætið. Þó er allt á huldu, því
Grímsá var fyrir skömmu komin
hátt í 1.100 laxa, þar er mikill
lax og veitt til 20. september.
I Norðurá lauk veiðinni um
mánaðamótin. Þar veiddust um
1.270 laxar. Það gekk mikill lax
í ána, en hún var mörgum erfið
í sumar vegna hita og þurrka.
Morgunblaðið/SAM
Jón Einarsson kaupmaður
með þijá laxa sem hann náði
nýlega úr Elliðaánum. Þar
hefur veiði verið þolanleg.
Laxinn dreifði sér þá og lá jafn-
vel í torfum þar sem enginn
reiknaði með honum. Fyrir vikið
gekk mörgum illa. En þegar
kunnugir menn komu inn á milli
komu jafnan aflahrotur. Þetta
er mun betri veiði en í fyrra. Á
sama tíma lauk veiði í Laxá á
Ásum. Óstaðfest tala þaðan er
um 800 laxar. Ef rétt er, er það
mun betri veiði en tvö síðustu
sumur, en samt mun lakari veiði
heldur en menn þekkja best og
áin gaf um árabil, en sumar eft-
ir sumar veiddust vart undir
1.000 laxar og allt að 1.800,
þótt ótrúlegt sé, á tvær stangir.
Miðfjarðará er einnig komin í
fjögurra stafa tölu og þar hefur
gengið eina best í Húnavatns-
sýslum. Fyrir viku voru komnir
um 1.000 laxar úr ánni og fram-
undan voru dagar með harð-
skeyttum þaulkunnugum mönn-
um. Veiði lýkur
á mánudagsmorgun. gg
100 ára vígsluafmæli Ölfusárbrúar:
Hundasýning
í frétt á Akureyrarsíðu Morgun-
blaðsins í gær var mishermt að
sýning yrði á English Springer
Spaniel hundum í Kolaportinu þá
eftir hádegið. Hið rétta er að sýn-
ingin verður í Kolaportinu í dag,
sunnudag, og hefst hún kl. 14.
Beðist er velvirðingar mistökunum.
Tilboð bárust í allar verkeining-
amar. Bjóðendur voru 7 og skiluðu
þeir inn 14 tilboðum. Þeir aðilar, sem
skiluðu inn tilboðum voru: Hópferða-
bílar Guðmundar Guðnasonar,
Starfsmenn Strætisvagna Kópavogs,
Teitur Jónasson hf., Allra handa hf.,
Jónatan Þórisson, Norðurleið-Land-
leiðir hf. og Hagvirki-Klettur hf.
Að sögn Amar Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Almenningsvagna,
Gunngeir Pétursson
skrifstofusijórí látinn
GUNNGEIR Pétursson, skrifstof-
ustjóri hjá byggingarfulltrúanum
í Reykjavík, lézt síðastliðinn
fimmtudag, sjötugur að aldri.
Gunngeir fæddist í Reykjavík 28.
janúar 1921, sonur hjónanna Péturs
Zophoníassonar ættfræðings og
Guðrúnar Jónsdóttur. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1941 og stundaði eftir það
verkfræðinám í HÍ í tvö ár. Hann
var stundakennari við Iðnskólann í
Reykjavík 1944-49, kennari við
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1947-55, stundakennari við Verzl-
unarskólann 1956-75 og Meistara-
skólann í Reykjavík 1969-83. Hann
samdi lengi unglingapróf í reikningi
og samdi ásamt Kristni Gíslasyni
Kennslubók í reikningi, sem út kom
1963.
Hann gegndi ýmsum störfum í
bamastúkunni Unni til 1943 og sat
í stjóm Bridgefélags Reykjavíkur
um skeið. Hann keppti meðal annars
nokkrum sinnum í bridge á alþjóða-
vettvangi. Þá gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum í Lionsklúbbnum
iFrey.______-___________________
Eftirlifandi eiginkona Gunngeirs
er Sigurrós Guðbjörg Eyjólfsdóttir.
Börn þeirra eru Herdís Björg og
yiðar, guðfræðingur og bóndi að
Asum-L Gnúpveijahreppi.. -----------
Forseti Islands heiðursgestur á
hátíðarhöldum á Selfossi í daar
^olfnccí ^
FORSETI íslands verður heið-
ursgestur bæjarsljórnar Selfoss
í dag á hátíðardagskrá vegna
100 ára vígsluafmælis Ölfusár-
brúar en fyrsta brúin yfir Ölf-
usá var vigð 8. september 1891.
Dagskráin hefst klukkan 13.00
með skrúðgöngu frá Hótel Sel-
foss. Forseti íslands flytur
Losaði sig við
bílinn í lundinum
BIFREIÐ fannst ein og yfírgefin
í skógarlundi í Elliðaárdal á
fimmtudag og kom í ljós að henni
hafði verið stolið nóttina áður frá
bifreiðaverkstæði í borginni.
Bifreiðarinnar hafði ekki verið
saknað frá verkstæðinu, enda hafði
henni verið stolið eftir lokun þess.
Hún var óskemmd þegar hún fannst
og kveikjulyklamir stóðu í henni.
Selfossi.
SÉRSTAKUR póststimpill verð-
ur í notkun á Selfossi í tilefni
100 ára vígsluafmælis Ölfusár-
brúar í dag sunnudag.
Póstur og sími verður með póst-
afgreiðslu í Tryggvaskála í tilefni
afmælisins. Þar- verða meðal-annars- -
ávarp við Ölfusárbrú þar sem
einn liður dagskrárinnar fer
fram.
Dagskráin við Ölfusárbrú hefst
klukkan 13.30 með ávarpi forseta
bæjarstjórnar, Bryndísar Brynjólfs-
dóttur. Leikfélag Selfoss mun sýna
stuttan þátt úr Brúarleikriti sínu
sem verður aðalverkefni þess í vet-
ur. Halldór Blöndal samgönguráð-
herra flytur ávarp og Stórkór Sel-
foss syngur. Að loknu ávarpi frú
Vigdísar Finnbogadóttur forseta
íslands verður gengið yfir Ölfusár-
brú og áformað að frú Vigdís og
fulltrúar vinabæja Selfoss gróður-
setji tré í nýjum tijálund sem þar er.
Safnahús við Austui-veg, sem
unnið hefur verið að í sumar, verð-
ur formlega afhent klukkan 15.00
og við það tækifæri mun Ólafur
G. Einarsson menntamálaráðherra
flytja ávarp. Skátar verða á sama
tíma með barnadagskrá á leiksvæði
stimpiuð bréf úr sérstakri póstferð
hestamanna og frímerkjasafnara.
Póstlestin fór af stað frá Reykjavík
á föstudag og kemur á Selfoss í
dag klukkan 13.30.
- Sig. Jóns.
sínu við Sigtún.
Sérstök afmælisterta verður boð-
in bæjarbúum og gestum klukkan
17.00 í nýbyggingu Sólvallaskóla
sem verður til sýnis um leið. Þá
verður hátíðarkvöldverður bæjar-
stjórnar um kvöldið.
Kvöldvaka með fjölbreyttri dag-
skrá verður í íþróttahúsi Sólvalla-
skóla klukkan 21.00. Hátíðarhöld-
unum lýkur síðan með flugeldasýn-
ingu við Ölfusárbrú klukkan 23.30.
— Sig. Jóns.
------------------
Stálu gaskútum
LÖGREGLAN á Selfossi handtók
á fimmtudag þrjá menn með
stolna kósangaskúta. Tveir þeirra,
scm eru heimamenn, voru hand-
teknir eftir að lögreglunni hafði
borist vitneskja um grunsamlegar
ferðir við hjólhýsi á Laugarvatni.
Voru mennimir handteknir á bens-
ínstöð á Selfossi með sex kúta sem
þeir höfðu stolið úr hjólhýsum á
Laugarvatni og víðar og reyndu þeir
að koma kútunum, sem eru allt að
11 kg að þyngd, í verð á bensínstöð-
inni. Alls viðurkenndu þeir að hafa
stolið tíu kútum.
Bensínstöðvar taka á móti gaskút-
um og greiða 3 þúsund krónur fyrir
stykkið, og sagði lögreglan á Sel-
fossi að slík mál hefðu komið upp
áður.
Síðar um daginn höfðu starfsmenn
bensínstöðvarinnar samband við lög-
reglu og tilkynntu um mann sem
-vildi-selja-þrjá-kúta-.-— —..
Sérstakur póststimpill
í notkun á Selfossi