Morgunblaðið - 27.09.1991, Side 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBEÍÍ 1991
ÖLJÖÐ í heimsó'
hjá Háskólanum
Ljóð og óljóð
Sautjánda dag septembermán-
aðar árið 1991 eftir Krists burð
skrifaði Guðmundur Guðmundarson
framkvæmdastjóri grein í Morgun-
blaðið. Hann var ekki hrifinn af
Ijóðabók Háskólans.
Ljóð ort til Guðmundar Guð-
mundarsonar framkvæmdastjóra:
Skýrsla marsbúans.
A plánetunni jörð eru ríflega
5.000 milljón manneskjur.
Engin þeirra er eins.
Svavar Sigurðsson skáld
og skiptimiðakuðlari.
-------♦ ♦ «-----
Bragarbót
Nýlega hafa orðið nokkrar um-
ræður í blöðum og manna á meðal
um þverrandi ljóðakunnáttu fólks,
einkum þó fólks af yngri kynslóð-
inni. En komið hefur fram, að
ýmsir fþeim hópi kannast lítt eða
ekki við hin snjöllustu skáld, sem
gerðu garðinn frægan á þessari
öld, eins og Davíð Stefánsson og
Tómas Guðmundsson.
Varðandi kvæði Tómasar, sem
um langt skeið var ástsælt borgar-
skáld, en síðar þjóðskáld, má raun-
ar geta þess, að margt yngra fólk
kannast einna helst við ljóð hans
„Eg leitaði blárra blóma“, vegna
hins fallega lags Gylfa Þ. Gíslason-
ar. En um lagið má fullyrða, að
það falli undra vel að ljóðinu fagra,
enda segja mér menn, sem kunn-
ugir voru Tómasi, að hann hfi ver-
ið mjög hrifinn af lagi Gylfa.
En nú munu margir spyija hvað
unnt sé að gera til þess að auka
þekkingu þjóðarinnar á hinum
bestu skáldum, íslenskum og
helstu verkum þeirra. Ég tel, að
þarna hafi skólarnir verk að vinna,
og að það sé þeirra hlutverk að
gera hér bragarbót.
Margrét Jónsdóttir
Ríkissjónvarpið;
Takmarkað geymsluþol
Ég er yfirleitt ánægður með
Ríkissjónvarpið. Það gerir marga
hluti vel. En eina venju hefur það
sem mér finnst slæm. Þegar það
fær almennilega framhaldsþætti,
þ.e.a.s. spennuþætti, þá vill það
treyna sér þetta ágætisefni. Láta
heila viku líða milli útsendinga.
Þetta er afleitt, maður er mest á
nálum fyrstu daganna eftir útsend-
ingu. Viku seinna er minnið farið
að dofna og maður verður jafnvel
að eyða fyrsta korterinu í að rifja
upp fyrir sjálfum sér og öðrum
atburðarásina í fyrra þætti.
Ríkissjónvarpið fer illa með góða
vöru sem á ekki að geyma of lengi.
Þetta er eins og gosið í eins og
hálfs lítra flöskunum. Maður fær
sér eitt eða tvö glös og setur flösk-
una í ískápinn. En í næstu viku
er drykkurinn orðinn flatur, gos-
laus.
Karlskröggur í Vesturbænum
Tortryggnir á sím-
ann hjá Pósti og síma
Póstur og sími auglýsir fagur-
lega: „Síminn sparar þér sporin."
Ekki er það mín reynsla. Það er
sama hvað viðskipti maður þarf
að eiga við þessa stofnun. Maður
verður að mæta á staðinn og fylla
út eyðublað. Það verður ekki ann-
að sagt en að þeir séu mjög tor-
tryggnir á símann hjá Pósti og
síma.
Það er sérkennileg reynsla að
nota símann og hringja í símann
til að biðja um upplýsingar. Manni
er gefið samband við einn sem
gefur samband við annan sem
gefur samband við þriðja og svona
gengur þetta í hring.
Það er ekki heldur eðlilegt hvað
maður verður oft fyrir því að fá
rangt símanúmer. Ég segi fá rangt
númer, ekki hringja í rangt núm-
er. því ég hef slegið inn númer á
forláta takkasíma í viðurvist vitna
og það var svarað í öðrum síma
en þeim sem hringt var í. Ef það
er kvartað þá skrifa starfsmenn
Pósts og síma orsökina — og
kostnaðinn — á reikning notan-
dans. Ég er orðin langþreytt á
vinnubrögðum og viðskiptaháttum
Pósts _og síma.
Öskureiður viðskiptavinur
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur i
SÍMI: 62 84 50 £
fullorfiinsfræðslan
Lougavegi 163, 105 Reykjavík,
sími 91-11170.
• Alltaf til staðar alla daga
• Öll kvöld allt árið
• Þegar þú þarft á okkur að halda
• Námskeið og námsaðstoð fyrir alla
• Grunn- og framhaldsskólagreinar
Námskeið að hefjast
ENSKA - SPÆNSKA - ÍTALSKA - SÆNSKA - ÍSLENSKA - ÍSLENSKA FYRIR
ÚTLENDINGA - ÞÝSKA - STÆRÐFRÆÐI - EÐLISFRÆÐI - EFNAFRÆÐI -
bæði dag- og kvöldtímar. i
GORE-TEX
SUPERPROOF
canzna gönguskór ^
Vatnsheldir Léttlr , Þægilegir v ^ . r '
úra/F?í 1. Glæsibæ, sími 812922
Borðstofuhúsgögn
í miklu úrvali.
Wien borðstofuborð + 6 stólar aðeins kx. 115.860,-
Komið í stærstu Húsgagnaverslun landsins og
sjáið hið mikla alþjóðlega úrval af húsgögnum.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
A
BlLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVlK - SlMI 91-681199 - FAX 91-673511