Morgunblaðið - 27.09.1991, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1991
43
AFREKSMANNASJOÐUR ISI
Fjórir styrktir til viðbótar
Tvö sérsambönd ÍSÍ verðlaunuð og ellefu íþróttamenn styrktir til áramóta
STJÓRN afreksmannasjóðs
íþróttasambands íslands
lagði til við framkvæmda-
stjórn ÍSÍ í gær að 11 íþrótta-
menn yrðu styrktir frá sept-
ember til desember n.k. að
báðum mánuðum meðtöldum
og var erindið samþykkt. Sjö
íþróttamenn voru styrkþegar
sjóðsins frá áramótum til ág-
ústloka, en fjórir bætast nú í
hópinn. Eins var tillaga um
að verðlauna Körfuknattleiks-
sambandið og Handknatt-
leikssambandið vegna Norð-
urlandameistaratitla ungl-
inga s.l. vor samþykkt.
Nýju styrkþegarnir eru Krist-
inn Björnsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, Magnús Már Ólafs-
son, sundmaður úr Sundfélagi
Suðumesja, Ingibjörg Arnardótt-
ir, sundkona hjá Ægi, og Martha
Ernstdóttir, hlaupari í IR. Þetta
íþróttafólk fær 40 þúsund krónur
á mánuði eins og Sigurður Matt-
híasson, spjótkastari frá UMSE,
Ingibjörg Arnardóttir
Ragnheiður Runólfsdóttir, sund-
kona í ÍA, og Vésteinn Hafsteins-
son, kringlukastari frá HSK, sem
voru fyrir í flokknum.
Sigurður Einarsson, spjótkast-
ari í Ármanni, fluttist úr neðri í
Kristinn Björnsson
efri flokk og fær nú 60 þúsund
króna styrk mánaðarlega eins og
Bjarni Friðriksson, júdómaður í
Ármanni, Einar Vilhjálmsson,
spjótkastari hjá ÍR, og Pétur Guð-
mundsson, kúluvarpari frá HSK.
Að mati sjóðsstjórnar á þetta
Martha Ernstdóttir
vegna frammistöðu unglinga-
landsliða sambandanna s.l. vor,
en þau urðu Norðurlandameistar-
ar — handboltastrákarnir í Finn-
landi og körfuboltapiltarnir í
Stykkishólmi.
Magnús Már Ólafsson
íþróttafólk mikla möguleika á að
tryggja. sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum á næsta ári og
er þess vegna sérstaklega styrkt.
Þá fengu HSÍ og KKÍ 250.000
krónur hvort samband í styrk
KORFUBOLTI
Ólafur Rafnsson
Mike
Dizaar
til Hauka
*
Urvalsdeildarlið Hauka í körfu-
knattleik hefur fengið Banda-
ríkjamanninn Mike Dizaar til liðs
við sig. Dizaar, sem er rétt um tveir
metrar á hæð, kemur til landsins á
mánudag og leikur með Haukum í
fyrsta leik deildarinnar gegn Val
6. október.
Haukar binda miklar vonir við
manninn, en þeir urðu fyrir von-
brigðum með annan Bandaríkja-
mann, sem þeir réðu sem þjálfara
og leikrftann og var sá látinn fara.
Þeir léku því án útlendings gegn
IBK í Reykjanesmótinu í gær-
kvöldi, en töpuðu naumlega,
102:99. Þá vann UMFN UMFG
67:63.
Ólafur Rafnsson, fyrrum leik-
maður, hefur verið ráðinn þjálfari
Hauka.
IÞROTTASAMBAND ISLANDS
Stefán Konráðsson
JW
ráðinn til starfa hjá ISI
FRAMKVÆMDASTJÓRN
íþróttasambands íslands
ákvað á fundi sínum í gær að
ráða Stefán Konráðsson sem
aðstoðarframkvæmdastjóra
ÍSÍ og kemur hann til starfa í
desember n.k.
Ellert B. Schram tók formlega
við sem forseti ÍSÍ í gær. „Það
er mikill fengur að fá Stefán til
starfa hjá okkur,“ sagði Ellert við
Morgunblaðið um ráðninguna.
Stefán lætur af starfi fram-
kvæmdastjóra Knattspyrnusam-
bands íslands að loknu ársþinginu
í byijun desember og flytur þá í
næsta hús. „Ég óska Snorra Finp-
laugssyni, sem tekur við af mér,
velfarnaðar í starfi. Ég tel mig
hafa komið á góðum skipulags-
breytingum á skrifstofu KSÍ og er
viss um að hann tekur við góðu búi.“
Stefán hefur verið rúmt ár hjá
KSI, en var áður hjá ÍSÍ. „Það má’
segja að ég sé að fara aftur heim,
því strax og ég lauk námi í Noregi
fékk ég starf hjá ÍSÍ,“ sagði Stefán.
„Ég fékk góða skólun hjá Sveini
Björnssyni heitnum og hans mönn-
um og er mjög spenntur að fara
að starfa með Ellerti B. Schram.
Það eru gífurlega mörg spennandi
verkefni framundan í íþróttaheim-
inum og ég vænti góðs samstarfs
við alla í hreyfingunni." sagði Stef-
án.
KNATTSPYRNA
Snorri verður fram-
kvæmdastjóri KSÍ
SNORRI Finnlaugsson verður
næsti framkvæmdastjóri
Knattspyrnusambands íslands
og tekur hann við starfinu að
loknu ársþinginu í desember.
Þetta var ákveðið á stjórnar-
fundi KSÍ ígær.
Snorri var kjörinn í varastjórn
KSÍ á síðasta ársþingi fyrir
tæpum tveimur árum. Hann hefur
verið formaður mótanefndar og í
landsliðsnefnd U-16 ára karlaliðs-
ins, en lætur af þessum störfum,
þegar hann tekur við sem fram-
kvæmdastjóri.
„Ég lagði til á stjórnarfundinum
að Snorri yrði ráðinn, þar sem hann
er öllum hnútum kunnugur hjá okk-
ur og veit að hverju hann gengur,"
sagði Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, við Morgunblaðið að loknum
stjórnarfundinum í gær.
Snorri sagðist hafa fallist á að
taka að sér starfið eftir nokkra
umhugsun. „Það sem gerir þetta
Snorri Finnlaugsson
sérstaklega spennandi er að ég kem
að mjög góðu búi, bæði fjárhags-
lega og skipulagslega, því Stefán
-Konráðssonr-hefur gert hér mjög
góða hluti.“
Fáir áhorfendur
vitni að sigrinum
gegn Spánverjum
Aðeins 3.893 greiddu að-
gangseyri á leik íslands og
Spánar - besta leik sem íslenskt
knattspyrnulandslið hefur sýnt.
Það voru því grátlega fáir áhorf-
endur sem urðu vitni að hinum
frækilega sigri íslands - mesta
sigri í knattpyrnusögu landsins.
„Það er sorglegt hvað fáir áhorf-
endur urðu vitni að þessum sigri,“
sagði Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ. „Þetta má
rekja til þess sem á undan hefur
gengið.“
Það er greinilegt að knatt-
spyrnuunnendur hafí verið búnir
að gefast upp; verið búnir að fá
sig fullsadda af varnarleik
íslenska liðsins. Það var ekki
' rhérkilég knáttsþy rn'a sém
íslenska liðið sýndi gegn lélegu
dönsku liði á dögunum, þar sem
var pakkað í vörn eins og svo oft
áður. Eftir sigurinn gegn Spán-
veijum er nýtt tímabil hafið í
íslenskri knattspyrnusögu. Það
verða því örugglega fleíri áhorf-
endur sem styðja við bakið á
íslenskum knattspyrnumönnum
þegar undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar hefst á næsta ári.
Þess má geta til gamans að
6.818 áhorfendur greiddu að-
gangseyri á leik íslendinga og
Spánveija í undankeppni Evrópu-
keppni landsliða 1983 og áhorf-
endur voru 10.400 þegar þjóðirnar
léku á LaUgardalsvellinum 1985
í undankeppni HM í Mexíkó 1986.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ GUNNAR Gíslason hefur tekið
tilboði KA um að hann þjálfi KA-
liðið næsta sumar. Gunnar mun
einnig leika með KA í 1. deildar-
keppninni.
■ SIGURVIN Ólafsson gerði
fyrra mark U-16 ára landsliðsins
gegn N-lrlandi í fyrradag, en ekki
Sigurbjörn Hreiðarsson eins og
stóð í blaðinu í gær. Þetta leiðrétt-
ist hér með og er beðist velvirðing-
ar á mistökunum.
■ VISA ÍSLAND hefur veitt
spjótkösturunum Einari Vii<__
hjálmssyni og Sigurði Einarssyni
sérstakan afreksstyrk fyrir að þeir
komust í úrslitakeppnina í spjót-
kasti á heimsmeistaramótinu í
Tókýó á dögunum. Þeir fengu kr.
100 þús. í styrk frá fyrirtækinu.
■ GORAN Micic, leikmaður hjá
Þróttiog fyrrum leikmaður
Víkingsliðsins í knattspvrnu, hefun^-
ákveðið að leika ekki næsta keppn-
istímablt friéð Þrótti, eri harin verð-
ur þó áfram hér á landi.