Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 1
72 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
268. tbl. 79, árg.
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eldhamar GK 13 strandaði í gærkvöldi:
Fimm sjómenn fórust við
Grindavík, einn bjargaðist
FIMM skipverjar á vélbátnum
Eldhamri GK 13 fórust er
báturinn strandaði við Hóps-
nestá um klukkan 20 í gær-
kvöldi. Sjötta skipverjanum
skolaði upp í fjöru og komst
lífs af. Hann var fluttur í
heilsugæslustöðina í Keflavík
og er ekki í lífshættu, að sögn
læknis.
Skipverjar á Eldhamri hringdu
í Slysvarnafélagið og báðu um
aðstoð um klukkan 20 og sjö mín-
útum síðar strandaði báturinn á
Hópsnestá.
Björgunarmennirnir skutu línu
út í skipið og skipveijarnir komu
einnig skotlínu í land. Brotsjór
reið yfir skipið áður en tókst að
koma líflínu á milli og færðist
báturinn við það austar og lenti
framendi skipsins í gjótu. Skip-
veijar voru þá komnir aftur á
skut, að sögn Gunnars Tómasson-
ar, formanns slysavarnadeildar-
innar í Grindavík.
Er annað brot gekk yfir bátinn
fóru þrír skipveijar fyrir borð og
rak þá upp í fjöruna. Einn þeirra
komst lífs af. Þyrla varnarliðsins
fann síðar hina þrjá skipveijana
og voru þeir þá látnir. Skipveijar
voru allir í björgunarflotgöllum
og er talið að það hafi bjargað
lífi mannsins sem komst af. Tveir
uppblásnir gúmbjörgunarbátar
fundust við skipshliðina í gær-
kvöldi.
Björgunarsveitarmenn voru í
símasambandi við skipveija á Eld-
hamri frá því um klukkan 20,
Landhelgisgæslunni barst til-
kynning frá Tiikynningaskyldunni
í Grindavík klukkan 20.03. Klukk-
an 20.20 hringdi Tilkynninga-
skyldan aftur í Landhelgisgæsl-
una og greindi frá því að ekki
þýddi að reyna björgun af sjó, en
skipveijar ætluðu að reyna að
yfirgefa skipið. Klukkan 20.39
hafði Landhelgisgæslan samband
við björgunarsveitina í Grindavík
og bað um að haft yrði samband
við varnarliðið. Þyrla Gæslunnar
var biluð á Isafirði, en þyrla varn-
arliðsins fór í loftið klukkan 21.30
og var komin á slysstað klukkan
21.48.
Eldhamar GK var 50 tonna
stálbátur, smíðaður í Svíþjóð
1988, báturinn var síðar lengdur
í Póllandi. Eldhamar var á trolli
og var að koma úr róðri er slysið
varð í gærkvöldi.
A þessum sama stað strandaði
Hrafn Sveinbjarnarson III fyrir
nokkrum árum er manbjörg varð.
Einnig varð mannbjörg er Þor-
katla strandaði á þessum slóðum
en mannskaði varð er Grindvík-
ingur fórst við Hópsnestá.
Sjá einnig baksíðu.
Israelum og aröbum boðið til frekari friðarviðræðna í Washington 4. desember:
Björgunarmenn í fjörunni við Hópsnes í gærkvöldi. Eldhamar marar í hálfu kafi á strandstað skammt frá landi.
Morgu nblaðið/Þorkell
Shamir ljær máls á að ræða
framtíð hemumdu svæðanna
Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti bauð í gær ísraelum og aröbum tii
frekari viðræðna um frið i Miðausturlöndum í Washington 4. desem-
ber. Þetta gerði hann án þess að hafa tryggt samþykki Yitzhaks Sham-
irs, forsætisráðherra ísraels. Fyrr um daginn hafði Shamir rætt við
forsetann og sagt að fundi þeirra loknum að til greina kæmi að ræða
framtíð hertekinna svæða ísraela í viðræðunum.
Margaret Tutwiler, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði að formlegt boð hefði þegar
verið sent til sendinefnda þjóðánna
- Israela, Sýrlendinga, Líbana, Pal-
estínumanna og Jórdana. „Við höf-
um lagt til að viðræðurnar hefjist
hér í Washington 4. desember eftir
að hafa beðið í þijár vikur eftir því
að aðilar Miðausturlandaviðræðn-
anna semdu um hvar framhaldsvið-
ræðurnar skyldu fara fram,” sagði
Tutwiler á blaðamannafundi í Was-
hington. Ekki kom fram.á fundinum
hversu lengi viðræðurnar eiga að
standa.
Fréttaskýrendur sögðu að Bush
væri að reyna að binda enda á deilu
ísraela og araba um fundarstaðinn
með því að þröngva upp á þá eigin
lausn. ísraelar höfðu krafist þess að
viðræðurnar færu fram í Miðaustur-
löndum. Shamir sagði fyrir skömmu
að Washington væri of langt frá
þessum heimshluta og lagði til að
viðræðurnar yrðu haldnar á Kýpur.
Aðeins tveimur klukkustundum áður
en skýrt var frá ákvörðuninni í
Washington hafði Shamir sagt að
loknum fundinum með Bush að ræða
þyrfti þetta mál frekar. Bandaríkja-
menn höfðu skýrt fulltrúum Palest-
ínumanna frá ákvörðuninni nokkrum
klukkustundum fyrir fund Bush og
Shamirs og í ísrael var litið þannig
á að með þessu væri verið að
snupra forsætisráðherrann.
Shamir sagði einnig eftir fundinn
með Bush að Israelar væru reiðu-
búnir að ræða framtíð herteknu
svæðanna við araba. „Landnám gyð-
inga [á hernumdu svæðunum] er
hluti af landakröfuvandamálinu og
um það verður fjallað og samið í
viðræðunum,” sagði hann.
Jórdanir tóku þegar boði Bush en
Shamir kvaðst þurfa að ræða það
við ráðherra sína. Hanan Ashrawi,
talsmaður palestínsku fulltrúanna í
viðræðunum, sagði að Palestínu-
menn gætu ekki tekið því fyrr en
þeir fengju svör Bandaríkjastjórnar
við nokkrum spurningum. Fyrr um
daginn höfðu ísraelsk yfirvöld sagt
að þau myndu ekki verða við kröfum
um að Ashrawi yrði ákærð fyrir
tengsl við Frelsissamtök Palestínu
(PLO).