Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
VEÐUR
Mikið tjón í eldsvoða
Selfossi.
MIKIÐ tjón varð í eldsvoða í Fiskbúð Suðurlands á Eyrarvegi 59 á
Selfossi aðfaranótt föstudags. Miklar skemmdir urðu einnig af völd-
um vatns og sóts lyá tveimur fyrirtækjum í sama húsi.
Þegar slökkviliðsmenn komu á
vettvang logaði út-um glugga á
vesturenda hússins, þar sem Fisk-
búðin er til húsa. Mikill eldur var
í húsinu, en slökkvistarf gekk
greiðlega. Allt innanstokks í Fisk-
búðinni er gjörónýtt, en þar inni
var nokkurt magn af fiski, frosnum
og ófrosnum. Guðmundur Hans-
son, einn eigenda Fiskbúðarinnar,
segir tjónið mikið.
Vélaverkstæði Sigurðar Karls-
sonar verktaka og byggingafyrir-
tækið G-verk í austurenda hússins
urðu fyrir töluverðu tjóni, einkum
vegna vatns og reyks. Eldur komst
yfír brunavegg eftir þaki hússins.
Eldsupptök eru óljós en unnið var
að rannsókn málsins í gær.
- -Sig. Jóns.
VEÐURHORFUR íDAG, 23. NÓVEMBER
YFIRLIT: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.020 mb hæð en um 600
km suðvestur af íslandi er 974 mb grynnkandi lægð á leið norðaust-
ur. Önnur lægð, álíka djúp, er um 1.200 km suðvestur af landinu
og fer hún austur og síðar norður og fer dýpkandi.
SPÁ: Allhvass og síðar hvass norðaustan með rigningu og síðar
slyddu eða snjóéljum á Vestfjörðum, en hægari austlæg átt og rign-
ing eða súld með köflum í öðrum landshlutum. Hiti verður 0-5 stig,
svalast á Vestfjörðum, en hlýjast sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustan strekkingur
og él á norðanverðum Vestfjörðum, en mun hægari austan- og
suðaustanátt og skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. Kóln-
andi veður.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
Morgunblaöið/biguröur Jónsson
Allt innanstokks í Fiskbúð Suðurlands er gjörónýtt.
V
/ DAG kl.
12.00
Tillaga fyrir ríkisstjórn í næstu viku, segir sjávarútvegsráðherra
NEFND sú sem ríkisstjórnin skipaði að tillögu sjávarútvegsráðherra
til að athuga ýmsa þætti varðandi hugsanlega úrsögn íslendinga úr
Alþjóðahvalveiðiráðinu hefur skilað áliti sínu í skýrslu til sjávarútvegs-
ráðherra. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að íslandi beri að segja
sig úr ráðinu. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að álit
nefndarinnar sé skýrt og samhljóma. Sjálfur hafi hann aldrei dregið
dul á þá skoðun sína að það væri óeðlilegt fyrir íslendinga að vera
aðilar að alþjóðastofnun sem hundsaði stofnsamning sinn með jafn-
áþreifanlegum hætti og Alþjóðahvalveiðiráðið hefur gert.
Hvað varðar hugsanleg áhrif úr-
sagnar á viðskiptahagsmuni íslend-
inga erlendis telur nefndin afar erf-
itt að komast að einhlítri niðurstöðu
um en hún ræddi við nokkra aðila
hérlendis um þennan flöt á málinu.
Fyrirtækið íslenskar sjávarafurðir
hf. sem er næst stærsti útflytjandi
á frystum físki mælir afdráttarlaust
með því að Island segi sig úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu. Það er hins vegar
Helmild: VeSurstola islands
(Byggt á waðurspá kl. 16.15lgær)
/ VEÐUR 1/ÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 1 skýjað Reykjavík 4 rigning
Björgvin vantar
Helsinkl 4 skýjað
Kaupmannahöfn 4 rigning og súld
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk +2 logn, heiðskírt
Ósló 2 þokaígrennd
Stokkhólmur 6 þokumóða
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 15 léttskýjað
Amsterdam 4 þokumóða
Barcelona 9 hálfskýjað
Beriín 2 mistur
Chicago 2 léttskýjað
Feneyjar 11 skýjað
Frankfurt 4 skýjað
Glasgow 10 mistur
Hamborg 2 súld
London 9 mistur
LosAngeles 12 þokumóða
Lúxemborg 2 léttskýjað
Madríd 9 iéttskýjað
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Montreal 0 skýjað
NewYork 14 rigning
Orlando vantar
París 5 léttskýjað
Madeira 18 skýjað
Róm logn, heiðskirt
Vín 1 slydda
Washington 16 skúr á síð. klst.
Winnipeg +14 snjókoma
álit Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna „að mjög varhugavert sé að
ísland segi sig úr Alþjóðahvalveiðir-
áðinu á þessu stigi”. Mat SH er að
úrsögn hafi neikvæð áhrif á' mark-
aðsstöðu íslenskra afurða þar sem
litið yrði á hana sem fyrsta skrefíð
í átt til veiða á ný.
Sölustofnun lagmetis óttast einnig
að úrsögn geti verið túlkuð sem skref
í átt til veiða og.að áróður umhverfis-
samtaka gegn íslendingum myndi
einkum skaða rækjuframleiðendur.
Fyrir liggur að tveir kaupendur ís-
lensks lagmetis í Þýskalandi hafa þá
fyrirvara í samningum að hefji Is-
lendingar hvalveiðar að nýju séu
samningar uppsejgjanlegir.
Flugleiðir og Utflutningsráð voru
sammála um að ákvörðun sem túlka
mætti sem upphaf hvalveiða gæti
leitt til þess að jákvæð ímynd íslands
í umhverfísmálum biði hnekki og
slíkt myndi valda skaða fyrir okkur
sem útflutningsþjóð. Fulltrúi Ferða-
málaráðs aftur á móti taldi að umtal
í kjölfar úrsagnar íslands úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu gæti jafnvel eflt
ferðaþjónustu hérlendis. Fjölgun
ferðamanna á undanförnum árum
benti til þess að umræða fyrri ára
um hvalveiðimál hefði síst skaðað
ísland sem ferðamannaland.
Algjör einhugur var meðal hags-
munasamtaka sjómanna og útgerð-
armanna sem telja að ísland eigi
afdráttarlaust að segja sig úr ráðinu
og sömu skoðunar eru Fiskiþing
1991 og sextánda þing Verkamanna-
sambands íslands.
í máli Þorsteins Pálssonar sjávar-
útvegsráðherra kemur fram að hann
muni byggja tillögu sína til ríkis-
stjórnarinnar á því áliti sem nefndin
leggur fram í skýrslu sinni en hann
vill ekki greina nánar frá því fyrr
en um tillöguna hefur verið fjallað á
þeim vettvangi.
Meginástæður úrsagnar
í skýrslu nefndarinnar kemur m.a.
fram að á ársfundi ráðsins í Reykja-
vík í vor lá fyrir tillaga um nýtt
stjórnunarkerfi sem vísindanefndin
hafði samþykkt nær samhljóða.
Hvalveiðiríkin ísland, Noregur og
Japan lögðu fram tillögu um að ráð-
ið samþykkti þetta kerfí en meiri-
hluti ráðsins hafnaði því. í staðinn
var samþykkt tillaga um endurskoð-
un á tillögu vísindanefndarinnar. í
skýrslunni segir: „Reikna má með
að þessi endurskoðun muni leiða til
verulegrar seinkunar á allri af-
greiðslu mála og jafnvel til algerrar
friðunarreglu sem nái til flestra
hvalastofna heims a.m.k. næsta ára-
Óperusmiðjan:
tuginn. Öllum tillögum um kvóta
vegna veiða í atvinnuskyni var hafn-
að með sömu röksemdum og áður.”
í skýrslunni kemur fram að í Al-
þjóðahvalveiðiráðinu séu aðeins 38
ríki og það sé Ijóst að fáein þeirra
hafi í hendi sér að koma í veg fyrir
endurupptöku veiða því það þarf 3/4
hiuta atkvæða til að breyta núll-kvót-
anum sem samþykktur var á árs-
fundinum 1982. í skýrslunni segir
svo: „Hvalveiðiráðið hefur brugðist
skyldu sinni. Það er misnotað af
meirihlutanum, m.a. fúlltrúum ríkja
sem h'afa aldrei nálægt hvalveiðum
komið eða haft beinna hagsmuna að
gæta á því sviði. Það er orðið að
eins konar hvalfriðunarstofnun ...
Af framangreindu má ljóst vera
að hagsmunir íslenskrar þjóðar, sem
byggir afkomu sína á skynsamlegri
nýtingu lifandi auðlinda sjávar, eru
engan veginn tryggðir með þátttöku
í störfum Alþjóðahvalveiðiráðsins
eins og starfsemi þess og skipan
mála er háttað í dag. Því miður sýn-
ist eina færa leiðin til að knýja fram
breytingar þar á vera formleg úrsögn
úr því. Úrsögn Istands gæti án efa
stuðlað að umræðum um bætta
starfshætti innan ráðsins þannig að
innganga í ráðið á ný kynni síðar
að verða fýsilegur kostur.”
Nefndin telur ógeriegt að fullyrða
hver viðbrögð annarra ríkja yrðu við
úrsögn íslands úr Alþjóðahvalveiðir-
áðinu en það sé skoðun nefndarinnar
að ekki sé unnt að horfa framhjá
þeim möguleika að gripið verðr af
minnsta tilefni til áróðurs gegn ís-
landi og íslenskum framleiðsluvörum
af einstökum hvalfriðunar- eða
þrýstihópum. íslensk stjómvöld yrðu
að viðurkenna þann möguleika og
taka með í reikninginn sem afleið-
ingu af þeirri ákvörðun að segja sig
úr ráðinu.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að hann muni leggja
sína tillögu í máli þessu fyrir ríkis-
stjórnarfund í næstu viku en ákvörð-
un um úrsögn íslendinga verður að
liggja fyrir 1. janúar nk. svo úrsögn-
in geti tekið gildi á næsta ári.
Selfoss:
Maðuriim
kominn í
leitirnar
MAÐURINN, sem lýst var
eftir á fimmtudag, kom fram
heill á húfi aðfaranótt föstu-
dags.
Það voru leitarmenn björg-
unarsveitarinnar á Selfossi sem
gengu fram á manninn vestast
í kaupstaðnum.
Sig. Jóns.
Sextíu mæta í prófsöng
„VIÐ áttum alls ekki von á þessum fjölda. Við reiknuðum með 20 -
30 manns, en það eru hvorki fleiri né færri en sextíu söngvarar, sem
ætla að mæta,” sagði Margrét Pálmadóttir, formaður Óperusmiðjunn-
ar í samtidi við Morgunblaðið, en um helgina fer fram prófsöngur
á vegum Óperusmiðjunnar vegna flutnings óperunnar La Bohéme
eftir Puccini.
Margrét sagði, að upphaflega
hefði verið meiningin að prófsöng-
urinn stæði einn dag, en vegna
fjöldans færi öll helgin í þetta. Auk
fjöldans sagði Margrét að það hefði
komið henni mjög á óvart, hversu
• margir söngvarar væru með góða
1 monntun. vVV * Y
Prófsöngurinn fer fram í Borgar-
leikhúsinu, þar sem óperan verður
fiutt í vetur. Stjórnandinn Guð-
mundur Óli Gunnarsson er nú við
nám í Finnlandi, en kemur heim
vegná prófsöngsins. Leikstjóri verð-
ur Bríet Hóðinsdóttir.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstlg:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / r
/ r / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
j ■# ■* ■#
* * * * Snjókoma
f 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E1
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Í7 Þrumuveður
r ■> * 1' ’ ■ ' i
„Hvalveiðinefndin” skilar áliti:
Island segi sig úr Al-
þjóðahvalveiðiráðinu