Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 NÚMER TÍU Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Teningur. Vettvangur fyrir list- ir og bókmenntir. 10. hefti. Sextán höfundar skrifa í þetta hefti Tenings, ýmist greinar, viðt- öl, ljóð, smásögur eða ritdóma. Óvenjulegt viðtal Heftið byijar á viðtali, bráð- frumlegu, sem Sigfús Bjartmars- son tekur við Þórunni Valdimars- dóttur. Spyijandinn og spurning- arnar eru alveg horfnar, aðeins viðmælandinn stendur á sviðinu, baðaður skæru ljósi. Viðtalið er opinskátt án þess þó a ð vera „opinskátt”. Það er nærgöngult en viðmælandinn missir samt ekki snefil af sjálfsvirðingunni. Og Þórunn hefur sem betur fer ýmis- iegt að gefa lesendum án þess að hrapa niður á eitthvert hallæris- plan. Hún drepur á ýmislegt. Kynj- akvóti, sagnaritun, ’68, Cohen og Berlínarmúrinn koma öll við sögu án þess að vera endurtekning af endurtekningu. Er íslenska skáldsagan komin þrot? Ferðasaga frá Afríku ÚT ER komin hjá Máli og menn- ingu bókin Guðirnir eru geggjað- ir - Ferðasaga frá Afríku eftir Stefán Jón Hafstein útvarps- mann. í kynningu útgefanda segir: „Höfundur starfaði fyrir Rauða krossinn í Eþíópíu. Þetta er þó ekki bók um hungur og örbirgð heldur segir Stefán sögu manns sem legg- ur af stað fullur af barnatrú húman- istans, en allt reynist öðruvísi en hann hugði, og að iokum verður hann að fara lengstu ferðina inn í sjálfan sig. Útkoman er afar óvenju- leg saga, ferðasaga, þjóðarlýsing, saga um hörmungar, gleði, glæsi- leik og stolt, en þó öðru fremur persónuleg frásögn.” Bókin er 158 blaðsíður auk 32 síðna af litmyndum eftir höfundinn. Teikningar gerði Guðrún Kristín Sigurðardóttir. Bókin var unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Stefán Jón Hafstein 120fm íbúðirtil sölu Á veðursælum stað í Grafarvogi eru til sölu vel skipu- lagðar íbúðir. Góðar suðursvalir. Stórar stofur og þvottahús á hæðinni. Bílskúr fylgir. íbúðirnar seljast tilbúnar og sameign fullfrágengin. íbúðirnar verða til sýnis, fullbúnar, á næstu dögum. Örn Isebarn, húsasmíðameistari, sími31104. 1 Kn 0*í 97H LARUS Þ’ VALDIMARSS0W framkvæmdastjóri Ll Iv/V”ul0/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasal. Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Reisulegt steinhús í Langholtshverfi tvær íbúðir 3ja herb. af meðalstærð á 1. og 2. hæð. Ennfremur kj. og verkstæði 45 fm. Gott verð. Einbhús - hagkvæm skipti Norðarmegin á Nesinu nýl. steinhús hæð og ris m/5 herb. íb. um 135 fm. Ennfremur góður bílsk. 31,5 fm. Laust nú þegar. Ýmis konar eigna- skipti mögul. Á góðu verði við Hraunbæ 3ja herb. íb. ekki stór en vel skipul. Nýtt bað. Sérinng. (b. er á neðri hæð i tveggja hæða húsi. Ágæt nýsprunguþétt og mál. sameign utan- húss. Laus strax. „Stúdíó”íb. í lyftuhúsi v/Tryggvagötu nýendurbyggð eins herb. íb. m/stórum suðursv. Ódýr íbúð skammt frá Hlemmi 2ja herb. á 3. hæð rúmir 50 fm auk geymslu og sameignar í reisul. steinhúsi. Snyrtingu þarf að lagfæra. Svalir. Laus strax. Góð íbúð við Álftamýri 3ja herb. á 3. hæð 80,2 fm. Rúmg. stofa, sólsvalir. Góð sameign nýl. endurbætt. Bílsk. í smíðum. Skammt frá „Fjölbraut” í Breiðholti nokkrar góðar 4ra og 5 herb. íb. á sanngjörnu verði. Á vinsælum stað í Vogunum steinhús ein hæð 165 fm auk bilsk. 2 stofur, rúmg. hol, stór sólverönd, ■5 svefnherb. Glæsil. lóð. Eignaskipti mögul. Suðuríbúð við Fellsmúla 4ra herb. á 3. hæð um 100 fm. Laus strax. Vinsæll staður. Góð greiðslukjör. • • • Opiðídag kl. 10.00-16.00. Almenna fasteignasalan sf. ___________________________ varstofnuð 12. júh'1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 ALMENNA FASTEIGHASALAN í Blekkingu og þekkingu, grein um íslenska skáldsagnagerð, ræðir Matthías Viðar um innihaldsleysi íslenskra skáldsagna um þessar mundir. Hann tekur þijár skáld- sögur sem dæmi um þessa stöðn- un, Hversdagshöllina, Svefn- hjólið, Nautnastuld og Rauða daga. í íslenskum skáldsögum telur Mathhías lítið um vitræna nýsköpun eða þekkingarleit. Þetta sjáist í undarlegu áreynsluleysi höfundanna bæði við tungumál og hugmyndir. Flest sé pakkað inn í „ævintýri ’nversdagsleikans” eða „ævintýri ímyndunaraflsins”. Of- beldi og kynlíf séu bannvara. Og Matthías segir: „Það heyrir til undantekninga að hreyft sé við sjálfsvitund okkar á róttækan hátt, að glímt sé við sögu og menn- ingu af vitsmunalegri ástríðu.” Saman við þessar vangaveltur spinnur Matthías orðum Milan Kundera um skáldsöguna. Sam- kvæmt Kundera er lífið gildra en skáldsagan hugleiðing um tilvist. Endursögn Matthíasar á kenning- um Kundera er fróðleg en honum tekst illa að tengja hana að öðru leyti við umræðuna um stöðu ís- lenskra skáldsagna. Ofbeldi og súrrealismi Smásaga Böðvars Björnssonar, Pyntingameistarinn, kemur eins og framhald af ósk Matthíasar um ofbeldi og kynlíf. Þetta er einföld saga, kannski siðræn, sem sýnir m.a. að hver uppsker eins og hann sáir. Þijú ljóð eftir Jón Egil sýna fjöl- breytilega meðferð skáldsins á tungunni. í Dýrmætum engli er Hluti listaverks eftir William Hall. það endurtekning tempraðra, ryk- ugra lita sem ljær ljóðinu sterkast- an blæ. Tvennt klýfur samt þessa mjúku áferð og ljóðið verður áhrif- ameira fyrir vikið: Postulínsengill- inn brotnar og þessi „ég” sér sjálf- an sig ”í speglinum”. í Morgun- stund og Stopp eru súrrealískir drættir sterkir. Það er veröld á bak við veröld á bak við veröld... og allt fram þýtur endalaust. í Teningi er myndlistarhorn. Þar eru ljósmyndir af nokkrum ólíkum verkum Guðrúnar Hrannar Agnarsdóttur. Myndirnar eni daufar og kontrastlausar og draga töluvert úr því að forvitnileg verk- in njóti sín. Bernard Marcadé Laufey Helgadóttir og Sigurður Árni Sigurðsson hittu að máli franska listfræðinginn Bernard Marcadé. Þetta er fróðlegt viðtal en dálítið losaralegt í heildina. Marcadé tekur mjög forvitnilega afstöðu til listgagnrýni, vill tala um listræna gagnrýnendur á svip- aðan hátt og Nietszche talaði um listræna heimspeki en hvorki um heimspeki listarinnar né heim- spekilega list. Marcadé hefur tölu- verðar mætur á norrænum mynd- listarmönnum og telur þá hafa sín sérstöku einkenni. Á hinn bóginn vill hann fara varlega í að tala um umhverfisáhrif á listamenn, slíkt geti auðveldlega leitt út í ógöngur rasismans. Ýmislegt annað efni er í Ten- ingi en minnst hefur verið á. Þor- steinn Gylfason ritar um Skáld- skap og sannleika þar sem hann kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að ekkert heimspekilegt svar sé til við spurningunum „Hvað er skáldskapur?” og „Hvað er list?”. Sveinbjörn I. Baldvinsson er með alllangt ljóð, Felustað tímans, nokkurs konar ljúfa fortíð- arrapsódíu. Helgi Þ. Friðjónsson og Eggert Pétursson eiga viðtal við Kristin G. Harðarson. Tvær sögur eru þarna eftir Bruce Chatwin í þýðingu Kristjáns Kristjánssonar. Þoi-valdur Þor- steinsson skrifar um íjóra amer- íska listamenn. Tvö ljóð eru birt eftir Bárð R. Jónsson og ritinu lýkur á Þrem teningum, eins konar prósaljóði eftir Harald Jóns- son. í lokin má hnykkja á því að Teningur hefur með þesu hefti slit- ið barnsskónum. Efnisval og frá- gangur er í heildina til sóma. _________________________ faffisíM giáD Umsjónarmaður Gísli Jónsson 616. þáttur Víkur nú sögunni til Húna. Ö-stofnar í beygingafræðinni eru allir kvenkyns, og má svo sem segja að þeir séu „kvengerð- in” af a-stofnunum. Þeir enda líka á -ar í fleirtölu eins og karl- kyns a-stofnar. Ö-stofnar hafa enn sömu undirflokkaskipan og a-stofnar. Skal nú.fyrst hyggja að hreinum ö-stofnum, og tök- um ofurlítið breytileg dæmi. Sameiginlegt megineinkenni er fleirtölu-endingin ar, bæði í nf. og þolf. Þó gat a-hljóðið fallið þar niður, ef á undan fór á eða ó, sjá síðar. Dæmi um ö-stofn af venjulegasta tagi er nál, en önnur dæmi um hreina ö-stofna eru lifur, drottning, Ingibjörg, á og tó. Orðið nál beygist þá í eintölu: nál-nál-nál-nálar og í fleirtölu: nálar-nálar-nálum- nála. Þetta er ekki vandasöm beyging, enda fer fjöldi orða þessa slóð, svo sem ár, hlíð, kinn, kvísl, kví, taug, vél og æð. I fleirtölu eru jafnan höfð orðin limar (á tré), meiðmar (= dýrgripir), tálar (draga ein- hvern á tálar), æsar (út í æsar) og öfgar, - en síðast talda orð- ið hef ég heyrt suma hafa í karl- kyni. Mörg kvennanöfn beygjast eins og Ingibjörg, með u-end- ingu bæði í þolf. og þágufalli, svo sem Áslaug og Sigurveig. I nútímamáli hefur u skotist inn í endingar orðanna lifur, gimbur, klömbur og vigur (=spjót). Vigur er líka alþekkt eyjarheiti, en kannski er það vegna hvorugkynsorðsins ögur (Ögur) að sumum finnst skrýtið að segja Sigurður í Vigur eða frá Vigur, en það er auðvitað hárrétt mál. Orð, sem enduðu á -ing og -ung, eins og drottning og verðung (= hirð), skáru sig'að því leyti úr, að nefnifall og þol- fall voru endingarlaus að fornu, en u-ið kom fyrst í þágufalli. I gömlu Maríukvæði segir: hversu drósin dýra drottning heiðrar þá. Nú myndum við heiðra drottningu. Þetta kallast áhrifsbreyting frá þágufalli yfir í þolfall. Eins og síðast ’töldu orðin beygðust að fornu hlið, ull og laug. Hjötr bltr ofan, en á hliðu fúnar, segir um Ask Yggdrasils í fórn- um fræðum. í mínu ungdæmi sögðu menn enn að ær væru í ullu, og í Sturlungu var Sturlá Sighvatsson í laugu, þegar hon- um bárust ótíðindin um Sauða- fellsför. Eins og á (= fljót) og með fleirtöluendinguna -r, voru brá, gjá, lá (= sjór), vá (= hætta), skrá, slá, þrá og tó (mosató). Ég býst reyndar við að lá og vá séu lítt höfð orð í flt., en menn voru votir um brárnar, stukku yfir gjárnar og slárnar og leituðu í tórnar. Geymum svo undirflokka ö-stofna um sinn. ★ Sértu þróttlaus og kaldur og við aldur, tryggt er gagn til; að gleypa magnyl. (Ólafur á Neðrabæ.) ★ Nafnið Gunnþórunn er 19: aldar samsetning, til þess gerð að skíra sama barnið eftir báðum foreldrunum, sem þá var býsna títt. Annars merkir Gunnur val- kyija eða orusta og Þórunn „sú sem Þór ann” eða „sú sem ann Þór”, „vina Þórs”. Árið 1845 hétein íslensk kona Gunnþórunn og reyndar gott betur. Gunnþórunn Ingibjörg Ragnheiður Gunnlaugsdóttir var 22 ára, dóttir Gunnlaugs Odssonar, sem dómkirkjuprestur var um hríð í Reykjavík, fædd í Kaupmannahöfn, en móðir hennar hét Þórunn. Alsystir hennar og alnafna (eldri) dó á fyrsta ári. Þær systur hétu sem sagt eftir foreldrum sínum og að því er virðist ömmum sínum báðum. Gunnþórunn Ingibjörg Ragn- heiður Gunnlaugsdóttir átti sr. Halldór Jónsson, sem alþingis- maður var og prestur á Hofi í Vopnafirði (faðir sr. Lárusar föður Guðrúnar), og dóttir henn- ar og sr. Ilalldórs var nafna móður sinnar, og eftir henni var leikkonan Gunnþórunn Hall- dórsdóttir skírð, eftir því sem ég best veit. Samsetningin Gunnþórunn varð ekki mjög fágæt um hríð. Svo hétu 22 konur 1910, þar af 8 fæddar í Norður-Múlasýslu. Árin 1921-50 voru 23 meyjar skírðar þessu nafni, en hina síð- ustu áratugi hefur það ekki ver- ið í náðinni. ★ Orðið óráðsía heyrist stund- um nú á dögum um eyðslusemi eða glannalega ráðstöfun fjár- muna. Orðið er þekkt í máli okkár allar götur frá því á 17. öld. Sjálfsagt setja menn þetta í huga sér í samband við óráð, en einhver kynni þá að spyija um seinni hlutann. Sennilega er hér þjóðskýring á ferðinni. Jón Ólafsson frá Grunnavík setti saman orðabók, og þar hefur hann órássía í merkingunni „orðaflaumur, kjaftæði”. Hann hefur og orða- sambandið „eitthvað verður í órássíu” = lendir bara í orða- vaðli, en engum framkvæmdum. Stefán Ólafsson skáld í Valla- nesi notaði latínuslettuna órats- ía = ræða. Oratio í latínu er ræða eða bæn. Skólapiltar og aðrir lærðir menn hafa slett þessari latínu og til orðið óráðs- ía fyrir áhrif frá orðinu óráð og breytt merkingu sinni úr „málæði” í „bruðl og fyrir- hyggjuleysi”.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.