Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991
13
Pétur prakkari og
hestaþj ófarnir
Bókmenntir
Sigrún Klara Hannesdóttir
Tryggvi Emilsson, höfundur
þessarar bókar, er fyrir löngu
landskunnur fyrir verk sín um
verkalýðsbaráttu og lífskjör fyrr á
þessari öld, til dæmis Fátækt fólk
og Baráttuna um brauðið. Hann
sýnir hér á sér nýja hlið og sendir
frá sér barnabók um Pétur prakk-
ara og hestaþjófana. Sagan segir
frá Jóhanni hestamanni sem tapar
tveim forláta hestum, Grana og
Neista. Allt útlit er fyrir að tröll
hafí tekið þá. Pétur prakkari fær
í lið með sér tvo vini sína, þau
Boga og Siggu, og saman fara þau
í leit að hestunum. Aðferðimar við
hrossaleitina eru bráðskemmtileg-
ar og frumlegar. Varahlutir í
gmala jeppadruslu eru keyptir í
Hagkaupum og einnig tekst þeim
að líma þyrluvængi á jeppann til
þess að auka ganginn í honum.
Til þess er notað lím sem límir
allt. Ekki spillir að í farteskinu
hafa þau kíki sem hefur þá nátt-
úru að með honum má sjá bakatil
við hvaða fjall sem er. Þau sjá
brátt hvar hestarnir eru í haldi hjá
tröllum í Ingólfsfjalli og leggja
ótrauð af stað til að bjarga þeim.
Söguþráðurinn verður ekki rak-
inn hér, en inn í söguna koma
meðal annars fjórir stórir og sterk-
ir lögreglumenn sem lenda í hinu
mesta basli við björgunarstörfin.
Tröllin eiga lítinn annan þátt í
sögunni en að stela hestunum og
eru aukaatriði að öðru leyti en því
að þau eru gott myndefni og að
sjálfsögðu verða þau að steinum
eins og tröllum ber.
Sagan er ýkjusaga þar sem allt
er mögulegt. Hún er vel skrifuð
og á fallegu, kjamgóðu máli þar
sem hvergi er slegið af. Ekki eru
spöruð orðatiltæki og löng orð og
er hún þannig skyld gömlu íslensku
ævintýrunum þótt sagan gerist í
nútímanum. Tröllin kunna að
bregða yfir sig huliðshjálmi, og
nesti lögreglumannanna er ekkert
hversdagssnarl heldur reyktir
bringukollar, magálar af Hólsfjöll-
um og hákarl svo eitthvað sé nefnt.
Myndskreytingar eru eftir Grétu
V. Guðmundsdóttur. Myndirnar
sem eru í fullum litum eru sérlega
athyglisverðar og skemmtilegar og
falla mjög vel að ýkjustíl sögunn-
ar. Einkum virðist Grétu létt að
mála hesta, og sýna svipbrigði
þeirra. Gott dæmi er glottsvipurinn
á þeim þar sem þeir sitja á öxlum
lögregluþjónanna á heimleiðinni.
Frágangur á bókinni er allur góður
og bókin í heild mjög falleg og
faglega unnin af Prentsmiðjunni
Odda. Ekki skil ég þó af hveiju
blaðsíðutali hefur verið sleppt.
Aftast í bókinni er spil sem heit-
ir Leitin að týndu hestunum þar
sem börn geta endurtekið ferðina
í leit að hestunum. Sá sem kemst
fyrstur á reit 50 fær nafnbótina
Hollvinur hesta íslands!
Vafalaust á þessi saga eftir að
verða vinsæl meðal barna sem
kunna vel að meta ævintýri sem
eru stærri en hversdagslegur raun-
veruleikinn. Þó læddist að mér sá
grunur að textinn kynni að vera
heldur mikill og þéttur á síðunum
til þess að börn á aldrinum 6-10
ára, sem eru líklegustu unnendur
þessarar sögu, gætu lesið hana
sjálf. Hér er ef til vill komið kjörið
Síðbúin ættbók
BI komin út
__________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
ALLT FRÁ 1987 hefur Búnaðar-
félag íslands gefið út bókina
„Hrossaræktin” þar sem birtir
eru dómar kynbótahrossa auk
þess að vera ársskýrsla Hrossa-
ræktarráðunauta og annarra
sem starfa að hrossaræktarmál-
um í nafni BÍ eða ríkisins.
Misjafnlega hefur gengið að
koma þessari bók út vegna annríkis
ráðunauta og nú kemur bókin sem
hefur að geyma dóma frá 1990 og
skýrslur fyrir sama ár ekki út fyrr
en í október. Voru margir orðnir
langeygir eftir bókinni sem nú er
loks komin út. Hefur þessi dráttur
verið gagnrýnendur af ýmsum.
Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur og ritstjóri bókarinnar
segir ástæður fyrir þessum drætti
mikið annríki en verið sé að tölvu-
færa mikið magn margvíslegra
gagna viðvíkjandi hrossaræktinni.
Er það mjög tímafrekt starf en
Kristinn segir að stefnan í framtíð-
inni verði sú að bókin komi eigi
síðar út en í febrúar hvert ár.
Ættbókin er uppsett þannig að
hrossum er raðað eftir því í hvaða
héraði þau eru fædd og stóðhest-
arnir aðgreindir frá hryssunum.
Getið er hvar hrossin hafí hlotið
þann dóm sem birtur er. í upphafi
skránna eru hrossin sem á eftir
koma raðað upp í stafrófsröð en
þar mætti gjaman geta blaðsíðunn-
ar sem upplýsingar um hrossið er
að finna. Slíkt myndi auka gildi
bókarinnar mjög sem uppsláttar-
rits. Bókin telur nú um 250 síður
sem er kannski glöggt vitni þess
að stöðugt fleiri hross eru leidd til
dóms, ár hvert.
Myndir á forsíðu „Hrossaræktar-
innar” hafa verið með ýmsu móti
og allt niður í að vera hrein hörm-
ung. Á forsíðunni nú er mynd af
hestagullinu Þrennu frá Hólum sem
segja má sé svona brúkleg þ.e.a.s.
myndin. Að skaðlausu hefði mátt
flíka betri mynd en sú hefð hefur
skapast að birta mynd af hæst-
dæmda kynbótahrossinu þess árs
sem bókin fjallar um. Setur þetta
vissulega nokkrar skorður í
myndavali og spuming hvort ekki
mætti láta þessa hefð lönd og leið
en leggja þess í stað áherslu á að
vera með afbragðs fallega litmynd
af einhveiju háttdæmdu hrossi.
Bókin er skreytt með svart/hvítum
myndum sem em prýðilegar að
gæðum og lífga upp á lesmálið.
I efnisyfirliti bókarinnar er efnið
einnig kynnt á ensku sem auðveldar
enskumælandi fólki mjög notkun
bókarinnar. Meðal efnis auk ætt-
bókarinnar má nefna kynbótaein-
kunnir (BLUP), skýrslur yfir sýn-
ingarhald 1990, listi yfír stóðhesta-
eign hrossaræktarsambanda og
skrá yfir stóðhesta í eigu einstakl-
inga eða hrossaræktarfélaga sem
hlotið hafa afkvæmaverðlaun eða
1. verðlaun í einstaklingsdómi. Þá
em í bókinni skýrslur frá Stóðhesta-
stöð ríkisins í Gunnarsholti og frá
Hrossakynbótabúi ríkisins á Hólum.
Segja má að „Hrossaræktin” sé
komin í all gott form. Þarna er að
fmna mikinn fróðleik og upplýs-
ingar um margvíslega hluti viðvíkj-
andi hrossarækt í landinu. Þörf er
þó á betra fyrirkomulagi til að finna
hross í ættbókinni eins og áður var
vikið að og að sjálfsögðu þarf bók-
in að koma út sem fyrst svo þær
upplýsingar sem hún hefur að
geyma komi að fullum notum og
skulum við vona að svo verði í fram-
JáðLm.L—..........................
Tryggvi Emilsson
tækifæri fyrir foreldra eða aðra
aðstandendur að lesa fyrir börnin
smákafla í einu, til dæmis 15 mín-
útur á dag. Sú stund gæti orðið
öllum ánægjuleg með þessa
skemmtilegu og kúnstugu sögu.
Bók um Seltjarnar-
neshrepp hinn foma
ÚT ER komin bók um Seltjarnar-
neshrepp hinn forna og þróun
hans, en upp af þeim hreppi eru
sprottnir kaupstaðirnir Reykja-
vík, Kópavogur og Seltjarnarnes.
Höfundur bókarinnar er Heimir
Þorleifsson sagnfrœðingur og
nefnist hún Seltirningabók.
Seltirningabók skiptist í sex kafla.
1. kaflinn ijallar um hreppsféiagið
og þróun þess, 2. kafli um jarðir og
ábúendur á Framnesi, 3. kafli um
útgerð Seltirninga, 4. kafli um Mýr-
arhúsaskóla, 5. kafli um Framfara-
félag Seltirninga og annað félags-
starf, 6. kafli um kirkjuna í Nesi.
Seltirningabók er 320 blaðsíður í
stóru broti og í henni er á 4. hundr-
að ljósmynda Ness á Seltjarnarnesi,
en Bókbandsstofan Flatey sá um
bókband. Valgeir Emilsson hannaði
Heimir Þorleifsson, höfundur
Seltirningabókar afhendir Sigur-
geiri Sigurðssyni bæjarstjóra á
Seltjarnarnesi 1. eintak Seltirn-
ignabókar.
kápu, en mynd framan á kápu er
eftir Sigríði Gyðu Sigurðardóttir.
Útgefandi er Seltjarnarnesbær.
ÖND VEGISHÚSGÖGN
LINCOLN HOUSE
MARLBOROUGH -i 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 159.750,- stgr.
PENDRAGON
CHESTERFIELD - 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 197.820,- stgr.
WAGNER DENISE -
3ja sæta sófi + 2 háir stólar,
kr. 355.050,- stgr.
PALAU - borðstofuborð aflangt
+ 6 stólar, kr. 116.800,- stgr.
PALAU - borðstofuborð, sporöskjulagað,
+ 6 stólar, kr. 134.821,- stgr.
PALAU - borstofuskápur,
kr. 88.020,- stgr.
PALAU - spegilt,
kr. 80.820,- stgr.
PALAU - hár glerskápur,
kr. 102.510,- stgr.
HÚSGAGNAVERSLUN,
Síðumúla 20 - sími 688799.
Opið á laugardögum frg kl. 10-16.
-v 1