Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 17

Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 17 Einar Bjarnason ember sl. boðaði Félagsmálastofnun móður barnsins og hennar mann á sinn fund. Úrskurður Umræðuefnið var að nefndin væri búin að úrskurða að barnið yrði tek- ið og það væri búið að koma því fyrir. Þau mótmæltu þessum aðför- um harðlega og sagðist móðirin sjálf taka barnið, hún hefði ein rétt yfir því. Nefndin hlustaði ekki á óskir móðurinnar og sagði að þetta væri búið og gert. Móðirin og hennar maður eiga 10 mánaða gamlan son, þau búa núorðið í góðri íbúð og hafa bæði mjög góða atvinnu. Móðir- in tilkynnti nefndinni að hún ætlaði að hætta að vinna og taka dótturina til sín. Á það var ekki hlustað. Hún er búin að vinna á sama stað í nokk- ur ár, hún er mjög eftirsóttur starfs- kraftur, hún er 22ja ára mjög reglu- söm og strangheiðarleg. Þau hafa búið í mjög lítilli íbúð og þar af leiðandi voru þau ekki búin að taka barnið til sín. Nú eru þau komin í góða íbúð og ætluðu að taka barnið en þá dundu þessi ósköp yfir. Þegar fundinum lauk komu þau beint til okkar og sögðu okkur hvað hefði gerst en þau voru vart búin að skýra okkur frá þessu þegar dyra- bjöllunni var hringt. Ég fór til dyra og opnaði. Fyrir utan stóðu karlmað- ur og kona. Konan kvaðst vera frá Félagsmálastofnun og vera hingað komin til að sækja bamið. Félags- málastofnun var búin að gefa út úrskurð um það og honum yrði að framfylgja. Það var ekki að orðlengja að við rifumst í að minnsta kosti klukku- tíma en þá var dyrabjöllunni hringt. Fyrir utan stóð kona, hún sagðist vera komin með úrskurð Félagsmál- astofnunar og ætlaði að lesa hann fyrir okkur. Við fórum inn í stofu og hún gerði sig líklega til að byija lesturinn. Ég geng að henni og sagði, þú lest hvorki eitt né neitt hér upp í mínum húsum og hlýddi hún því. Ég horfði á hana og sagði, það varst þú, sem ætlaðir að þröngva móður barnsins til að skrifa undir plaggið þar sem hún átti að afsala sér móðurréttinum. Það var aldeilis frægt fólk í stofunni hjá okkur. Rifr- iidið hélt áfram, ég sagði að barnið færi ekki héðan út. Þá risu þær á fætur og sögðust þá láta lögregluna sækja það. (Þessi orð vildi ég heyra frá þeim.) Ég hálfsé eftir að hafa ekki látið þær senda lögregluna. Ég trúi ekki öðru en bæjarfógeti he'fði þurft að gefa út úrskurð en það hefði hann ekki gert nema að vel athugðu máli. Þá hefði barnið kannski aldrei verið tekið. Sorgarstund Nú hófst sorglegasta stundin í þessari illvígu árás Félagsmálastofn- unar. Móðirin, langamman og barnið fóru inn í svefnherbergi og læstu þar að sér. Nú held ég að fínu frún- um hafi ekki verið farið að standa á sama, þær voru órólegar. Móðirin og amman voru að reyna að róa barnið og fá það til þess að fara með afa sínum, sem kom hingað með ömmunum. Hann hefur verið alla tíð mjög góður við telpuna enda hið mesta ljúfmenni. Ég vorkenndi honum að horfa upp á þetta. Um síðir féllst barnið á að fara með honum en það kom hágrátandi fram á ganginn og kallaði: „Mamma, mamma, láttu þær ekki taka mig!” Þetta eru áhrifamikil orð. Engin svipbrigði sáust á fínu frúnum. En það voru aðrir sem grétu. Útsendarar Félagsmálastofnunar stóðu við útidyrahurðina og biðu þar eins og hræfuglar eftir því að bráðin birtist. Barnið samþykkti að fara og gekk til okkar og kvaddi okkur. Mér varð litið á fulltrúa Félagsmálastofn- unar. Sá ég ekki betur en bros léki um munnvikin á þeim. Þær hafa sjálfsagt haldið að þær væru að vinna orrustuna. Við sjáum nú til. Þetta er átakanleg saga ungrar stúlku. Það má mikið vera ef-hún líður ekki fyrir þetta um ókomna framtíð. Það eru fleiri sem einnig líða. Ég efast um að langamma hennar nái sér nokkurn tíma eftir þessa árús. Nú eru liðnir rúmir tveir mánuðir síðan barnið vartekið. Hinn 15. þ.m. móðir barnsins, amma þess og sam- býlismaður hennar boðuð á fund Félagsmálastofnunar Hafnarfj arðar. Umræðuefnið var umgengnisréttur og hljóðaði hann á þessa leið: Móðir- in má heimsækja barnið einu sinni fyrir áramót. Heimsóknartíminn má vera þijár klukkustundir. Böggull fylgir skammrifi. Tveir fulltrúar frá barnaverndarnefnd Borgamess og amman og afinn sem barnið er hjá skulu vera viðstödd og fylgjast með hveiju orði sem sagt er við bamið. Sama gildir um ömmu bamsins og hennar mann. ' Þetta minnir óneitanlega á gömlu nasistaaðferðirnar. Við höfum þegar fengið okkur góðan lögfræðing. Eg skrifa þessar línur til þess að hvetja fólk til að vera vel á verði gagnvart fólki því, sem starfar hjá Félagsmálastofnun og barnavernd- arnefnd Hafnarfjarðar. Höfundur er fyrrverandi skipstjóri. M LEÐUR VÖRUVERSL UNIN Drangey hf., Laugavegi 58, er 55 ára um þessar mundir. í tilefni afmælisins verður veittur 20% af- sláttur af öllum vöram verslunar- innar frá 23.-30. nóvember. Sérstök tilboð verða á hveijum degi. Drang- ey verður einnig í Jólaskeifunni fyrir þessi jól og gildir aflátturinn einnig þar þessa viku. Árið 1936 keyptu María S. Ammendrup og Poul Ammendrup Drangey sem þá var matvöraverslun á Grettis- götu 7. Þau fluttu síðan verslunina á Laugaveg 58 og versluðu með vefnaðarvöru og gjafavörur, en síð- an var opnuð hljómplötuverslun í Drangey. Upp úr 1950 var byijað að versla með leðurvörar og hefur verslunin síðan sérhæft sig í sölu á töskum, hönskum, seðlaveskjum og öðrum gjafavörum. Árið 1975 tók María M.. Ammendrup við rekstri verslunarinnar og hefur rekið hana síðan. M ZION,félag vina ísraels, held- ur fund í dag, laugardag, ki. 15 í safnaðarheimili Laugarnes- kirkju. Á dagskrá fundarins er m.a. umfjöllun um Laufskálahátið 1991. Þá verður nýtt fréttabréf kynnt. Fundurinn er öllum opinn. ■ / S ÝNINGA RSÖL UM Haf nar- borgar stendur nú yfir málverka- sýning Katrínar H. Ágústsdóttur. Á sýningunni era 40 olíumálverk. Myndefnið er sótt í íslenska nátt- úra. Sýningin mun standatil sunnu- dagsins 24. nóvember og verður opin frá kl. 12-18. Gullfallegar POLAR-FLEECE peysur á dömur og herra. Tilvalið í skólann og alla útivist. /53 Jogging gallar, 'á 7 þykkir, þunnir. Rúllukragapeysur *“ ~ m/rennilás (bómull). 9(m M0L EIGANl við Umferðarmiðstöðina, símar 19800 - 13072. Jóla-Happó 26.DES. 26.NOV., ÍO.DES., 7.JAN., 21.JAN., 4.FEB., 18.FEB., 3.MARS .... SPENhíANW! -efpú óttmiða! í beinni útsendingu ú Stöð 0onnm bvern þriðjudag. ö~ r $ oyORÆrr/ hAs'F'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.