Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991 21 og alvarlegt atvinnuástand víða, þannig að það sé ekki eftir neinu að bíða. Guðmundur sagði að megin- markmið næstu samninga ættu að vera þau sömu og þjóðarsáttar- samninganna, trygging stöðug- leika, næg atvinna og lægri vextir, aukinn kaupmáttur og kaupmáttar- trygging. Þjóðarsáttin hefði tekist mjög vel í öllum aðalatriðum. Það hefði verið lagt upp með það að halda sjó og það hefði tekist. Hins vegar hefði verið rætt um að kaup- máttaraukning gæti komið í kjölfar- ið. Hann ætlaði ekki að gera lítið úr því ástandi sem nú væri og þeirri breytingu sem hefði orðið á síðustu mánuðum í efnahagsmálum en það væri alveg ljóst að það þyrfti að auka kaupmátt þess fólks sem væri með laun á bilinu 43-57 þúsund krónur. Það lifði enginn á þeim launum og þar yrði að koma til kaupmáttaraukning. Stórir hópar hefðu það ágætt hér á landi og það þyrftu ekki allir að fá kjarabætur að hans mati. Hins vegar þyrfti að bæta kjör þeirra sem minnst hefðu, láglaunafólks, öryrkja og ellilífeyr- isþega samtímis því sem stöðugleik- anum væri viðhaldið. í því sam- bandi væri mjög mikilvægt að ná niður vöxtunum. Það sem hefði bjargað okkur að verulegn leyti í gegnum þjóðarsáttina hefði verið það að greiðslubyrði ungs fólks sem væri að koma sér upp heimilum og væri með miklar skuldir hefði minnkað. „Það skiptir miklu fyrst og síðast að menn standi saman. Ég held að þó ekki séu nema 20 mánuðir frá því þjóðarsáttin var gerð þá hafi viðhorf fólks breyst með þeim hætti að það er engan sem fýsir þess að fara aftur á verð- bólgubálið og í þær kollsteypur sem henni fylgja. Það er því nauðsynlegt að ná víðtækri samstöðu um að viðhalda stöðugleikanum um leið og við reynum að bæta kaupmátt- inn,” sagði Guðmundur að lokum. Lægstu laun skelfilega lág Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður starfsmannafélagsins Sókn- ar, ,sagði að félagið hefði fengið sömu skilaboð frá ríkinu, sem væri einn helsti viðsemjandi þess, og félögopinberra starfsmaftna að það væri ákaflega lítið til skiptanna. Sama gilti um önnur félög innan ASÍ. Ef kröfurnar kostuðu eitthvað þá væri ekkert til. Henni sýndist að samningarnir drægjust á lang- Loðlððraðar kuldaúlpur með skinnhettu, stórar, síðar peys- ur, silki- og ullardragtir. Mikið úrval og gæði. Hagstæðir greiðsluskilmólar. Opið virka dago fró kl. 12-18 og fró kl. 12-16 laugardago. Pósthússtræti 13 - sími 23050 inn, því við- ræðurnar færu svo hægt af stað. Þórunn sagði að það hefði marg- sinnis verið farið yfir stöð- una í kjara- málum og lín- ur í komandi samningum og það væri ljóst að fólk hefði upp- lifað stöðugleikann sem eitthvað sem það vildi halda í. Vandamálið væri hins vegar það að lægstu laun væru svo skelfilega lág að það væri engin Ieið að framfleyta sér á þeim. Því yrði tekjujöfnun með einhveijum hætti að koma til. Ein af meginkröfum Sóknar væri sam- anburður á sjúkrahússamningum vítt og breitt um landið, því nú Þórunn Sveinbjörns- dóttir væri ríkið einn viðsemjandi en hefði ekki verið það áður en lög um verk- askiptingu ríkis og sveitarfélaga tóku gildi fyrir tveimur árum. Þá hefði ríkið komið inn í samninga, en sveitarfélögin bætt við í mörgum tilfellum. Það hefði enn ekki tekist að búa til einn samning fyrir ófag- lærða á sjúkrahúsum um allt land. Það væri ekki vilji Sóknar að fólk úti á landi lækkaði i launum beinlín- is vegna þessa, en þau sæju það jafnframt sem mjög ósanngjarnan hlut að sami vinnuveitandi borgaði fólki mismunandi laun eftir búsetu. Sókn vildi fá athugun á þessu máli og síðan samræmingu sem gæti tekið einhvern tíma. Það þyrfti ekki annað en að fara með Akra- borginni upp á Akranes til að vera hærra launuð sem starfsstúlka þar en í Reykjavík. & JFolaéillboá' & Stóri<ostlegt úrval af svefnsófum og fallegum áldæðum! 15% staðgreiðsluafsláttur á svefnsófum og hornsófum. LYSTADUN-SNÆLAND SKÚTUVOGI 11 124 REYKJAVÍK SÍMI 81 46 55 SMELLUR ,SVEFNSÓFI 2ja manna kr. 38.250- Komdu og líttu á úrvalið! Opið alla virka daga frá kl. 9 -18. Laugardaga frá kl. 10 -16 og Sunnudaga frá kl. 13 -16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.