Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
Seðlabankinn
lækkar vexti sina
Aðlögnn að lækkandi verðbólgn, segir
aðstoðarbankastj óri
SEÐLABANKI íslands hefur
lækkað útlánsvexti sína um 2%
úr 20% í 18%. Þannig miðar
Akureyri:
Dæmdur í
mánaðar
varðhald
UNGUR maður á Akureyri hef-
ur viðurkennt að hafa farið inn
í hús í bænum, afklætt þar unga
telpu sem og sjálfan sig, en
hlaupist á brott er heimafólk
varð hans vart. Maðurinn var
handtekinn á laugardag og hef-
ur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald.
Atburður þessi átti sér stað
aðfaranótt síðastliðins þriðjudags.
Maðurinn komst inn í húsið um
ólæstar dyr, fór inn í herbergi litlu
telpunnar, afklæddi hana og sjálf-
an sig, en er fólk varð hans vart
flúði hann á brott úr húsinu.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri fór með rannsókn málsins og
var mikil vinna lögð í leit að mann-
inum, en hann fannst á laugardag
og var þá handtekinn. Maðurinn
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 6. janúar næstkomandi, en
næstu daga verður væntanlega
ákveðið hvort hann verður látinn
sæta geðrannsókn. Maðurinn hef-
ur áður komið við sögu lögregl-
unnar á Akureyri, en ekki í málum
af þessu tagi.
bankinn nú við 18% ársávöxtun
í kaupum sínum á ríkisvíxlum
en miðaði áður við 20%.
Vextir á víxlum til skamms
tínia, minnst fímm daga, lækka
einnig úm 2%,„úr 23% í 21%. Inn-
lánamegin lækká vextir minna eða
úr 4% í 3,5% á innistæðum á við-
skiptareikningi og þeir lækka um
1% á innistæðubréfum, úr 11% í
10% á eins mánaða bréfum og úr
12% í 11% áþriggja mánaða bréf-
um.
Eiríkur Guðnason, aðstoðar-
bankastjóri hjá Seðlabanka ís-
lands, sagði að með þessu væri
verið að aðlaga vextina minni
verðbólgu, en Seðlabankinn endur-
skoðaði sína vexti venjulega einu
sinni í mánuði og þeir hefðu verið
á niðurleið í haust.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Utför þeirra sem fórust með Eldhamri
Útför Grindvíkinganna þriggja sem fórust með Eldhamri GK 14 22. nóvember, Ama Bemharðs Kristinsson-
ar, Bjama Guðbrandssonar og Sigurðar Kára Pálmasonar, var gerð frá Grindavíkurkirkju sl. laugardag.
Mikið fjölmenni var og útförinni sjónvarpað í félagsheimilinu Festi sem, eins og kirkjan, var þéttsetið.
Félagar úr björgunarsveit Þorbjamar mynduðu blómagöng þegar kistumar voru bomar úr kirkjunni. Hilm-
ar Þór Davíðsson var jarðsunginn frá Blönduóskirkju síðastliðinn laugardag og fímmti skipveijinn, Kristj-
án Már Jósepsson, var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í gær.
Forsætisráðuneytið leggst gegn sölu Meitilsins á tapfrádrætti:
Hefur hugsanlega úrslitaáhrif
á endurreisn Qárhags Meitílsins
- segir Marteinn Friðriksson stjórnarformaður
Forsætisráðuneytið hefur tekið
illa í áform stjórnar Meitilsins hf.
í Þorlákshöfn um sölu á upp-
söfnuðum tapfrádrætti hluta-
félagsins, alls um einum milljarði
króna, til Samheija hf. á Akur-
eyri fyrir 100 milljónir kr. Byggð-
astofnun leitaði álits ráðuneytisins
á þessum áformum því Hlutafjár-
sjóður á 49% hlutafjár Meitilsins
Bíllinn er mikið skemmdur.
Morgunbladið/Árai Helgason
Umferðarsiys í Stykkishólmi:
Þyrla sótti slasað
fólk í Borgarnes
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var í fyrrinótt send eftir tveimur
ungmennum. sem meiðst höfðu í umferðarslysi í Stykkishólmi.
Vegna veðurs var ekki unnt að fljúga norður yfir Snæfellsnes og
braust lögreglubíll í fylgd vegagerðarbíls yfir Kerlingarskarð og
allt til jlorgarness þar sem þyrlan tók ungmennin og flaug með
þau til Reykjavíkur.
Þijú ungmenni voru á ferð í bíl
sem ökumaður missti vald á vegna
mikillar hálku á sunnudagskvöld
með þeim afleiðingum að hann
rakst á ljósastaur sem gekk inn í
miðja hlið bifreiðarinnar. Eitt
þeirra slapp ómeitt en annað
klemmdist fótbrotið í bílnum.
Klukkan 1.48 á mánudagsmorg-
un barst Landhelgisgæslunni
beiðni frá lækni í Stykkishólmi um
að þyria yrði send til að ná í þau
slösuðu. Vegna veðurs þurfti þyrl-
an, sem fór í loftið klukkan 3.20,
að lenda í Borgamesi og þar var
beðið meðan lögreglan í Stykkis-
hólmi í fylgd snjóruðningsbíls frá
Vegagerðinni braust suður yfír
Kerlingarskarð í hríðarveðri með
sjúklingana. í skarðir.u kom til
kasta vegagerðarmannanna þar
sem flutningabíll hafði teppt veg-
inn. Þyrlan tók svo við sjúklingun-
um í Borgamesi og flutti á Borgar-
spítalann í Reykjavík þangað sem
komið var um klukkan hálfsjö í
gærmorgun.
Að sögn lögreglu í Stykkishólmi
vom meiðsli hinna slösuðu ekki
talin lífshættuleg.
hf. Stjómarformaður Meitilsins
sagði hugsanlegt að það hefði
úrslitaáhrif á endurreisn fjárhags
Meitilsins hf. hvort sala á tapi
þess fengist samþykkt.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að heimild til nýtingar tapfrá-
dráttar við sameiningu fyrirtækja
hafi verið hugsuð til að liðka fyrir
sameiningu og hagræðingu í rekstri.
Ýmis dæmi væru um að fyrirtæki
hafí notað þessa möguleika við sam:
einingu sjávarútvegsfyrirtækja. í
Meitlinum væri ekki um sameiningu
fyrirtækja að ræða heldur væri verið
að nota þessa heimild til að selja
milljarðs kr. tapfrádrátt fyrir 100
milljónir og þannig fengi kaupandi
tapsins skattaafslátt upp á 400 millj-
ónir kr. eða meira. Þegar ríkið sjálft
ætti óbeint 49% fyrirtækisins væri
þessi ráðstöfun hæpin og eðlilegt að
hugsa sig vel um áður en ákvörðun
væri tekin.
Marteinn Friðriksson stjómar-
formaður Meitilsins segir að ef full-
trúar ríkisins stöðvi sölu tapfrádrátt-
arins gæti það haft mikil áhrif á
endurreisn fyrirtækisins, hugsanlega
úrslitaáhrif. „Staða fyrirtækisins
breytist svo mikið að við gætum
ekki tryggt að hluthafar komi með
viðbótarfé,” sagði Marteinn. Hann
vildi sem minnst segja um afstöðu
forsætisráðuneytisins. „Ég tel að öll
fyrirtæki eigi að sitja við sama borð.
Ekki skipti neinu þó að ríkisstofnun
hafí á einhvem hátt eignast hlutafé,
lögin í landinu eiga að gilda jafnt
fyrir alia,” sagði hann.
Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra, sagði að málið liti
þannig út frá hans bæjardyrum séð
að leysa ætti út eignir Meitilisins
yfir í annað félag og skilja eftir tap
upp á milljarð króna og selja það.
„Byggðastofnun leitaði álits forsæt-
isráðuneytisins á þessum áformum
og við tjáðum stofnuninni að við
væFum á móti þeim. Forsætisráðu-
neytið hefur ekki vald til að koma í
veg fyrir þessi áform en við tjáðum
Byggðastofnun að ef Hlutafjársjóður
stæði að þessu væri það alfarið á
ábyrgð stofnunarinnar,” sagði
Hreinn. Hann vakti athygli á því að
Hlutafjársjóður væri í eigu ríkisins
en vörslu Byggðastofnunar og þeir
sem fæm með atkvæðisrétt sjóðsins
í fyrirtækjum gætu ekki aðeins litið
til hagsmuna eigenda heldur yrðu
að líta á hagsmuni ríkissjóðs í víðara
samhengi.
„Það verður að líta á að Hlutafíár-
sjóður á marga milljarða í svipuðum
skuldum og hjá Meitlinum. Ef farið
væri í stómm stíl að selja þessar
skuldir sem tap til skattafrádráttar
hjá öðmm getur verið um tvöfalt tap
hjá ríkissjóði að ræða. Ekki bara að
hann glati þeim íjárhæðum sem
veittar hafa verið til þessara fyrir-
tælg'a í gegnum opinbera sjóðakerfið
heldur verði hann einnig af skatttekj-
um hjá stöndugri fyrirtækjum sem
nýta sér tapið til skattafrádráttar,”
sagði Hreinn.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sagði að mál Meit-
ilsins væri enn í skoðun í stofnun-
inni. Bjóst hann við að afstaða myndi
liggja fyrir á morgun.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
35,1% styðja sljómina,
45,6% em henni andvígir
Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt 46,5% fylgis
ANDSTÆÐINGUM ríkisstjómarinnar hefur fækkað frá því í október
síðastliðnum samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem Félags-
vísindastofnun Háskóla íslands gerði fyrir Morgunblaðið dagana 22.
til 28. nóvember. í könnuninni svömðu 35,1% því til að þeir væru
stuðningsmenn ríkisstjómarinnar, 19,3% tóku ekki afstöðu, og 45,6%
sögðust vera andstæðingar ríkisstjórnarinnar. I könnun Félagsvísinda-
stofnunar í október sögðust 51,2% vera andvígir ríkisstjórainni.
Þegar spurt var hvað menn myndu í könnun Félagsvísindastofnunar
kjósa í alþingiskosningum nú sögð- í október voru andstæðingar ríkis-
ust 11,3% af þeim sem tóku afstöðu stjómarinnar 51,2%, þá tóku 13,3%
myndu kjósa Alþýðuflokkinn á móti ekki afstöðu og 35,5 sögðust styðja
11,1% í könnun Félagsvísindastofn-
unar í október. 21,7% sögðust
myndu kjósa Framsóknarflokkinn á
móti 22,2% í október, 35,2% sögðust
myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn á
móti 35,1% í október, 19,6% sögðust
myndu kjósa Alþýðubandalagið á
móti 19,5% í október og 10,8% sögð-
ust myndu kjósa Kvennalistann á
móti 11,4% í október. Fylgi annarra
flokka reyndist vera óverulegt.
ríkisstjómina. Samkvæmt könnun-
inni er samanlagt fylgi stjómar-
flokkanna ;.ú 46,5%, sem er svipað
og í október, en þá var fylgi þeirra
samanlagt 46,2%.
Þegar afstaða til ríkisstjómarinn-
ar er greind eftir stuðningi við flokka
kemur í ljós að 83,5% þeirra sem
segjast styðja Sjálfstæðisflokkinn
styðja ríkisstjómina, 12,5% þeirra
eru hlutlausir og 4,0% eru andstæð-
ingar hennar. 64,8% þeirra ser
styðja Alþýðuflokkinn styðja ríkis
stjómina, 21,1% eru hlutlausir oj
14,1% segjast vera andstæðinga
hennar. Af þeim sem styðja Fram
sóknarflokkmn segjast. 3,7% styðj
líkisstjómina, 9,6% eru hlutlausi
og 86,7% eru henni andvígir. 4,9Í
stuðningsmanna Alþýðubandalags
ins styðja ríkisstjómina, 7,3% þéirr
eru hlutlausir og 87,8% eru andstæð
ingar. Af þeim sem styðja Kvenna
listann segjast 7,2% styðja ríkis
stjórmna, 20,3% eru hlutlausir o
72,5% eru andvígir rfkisstjóminni.
í könnun Félagsvísindastofnuna
var tekið úr þjóðskrá 1.500 mann
slembiúrtak manna á aldrinur
18-75 ára af öllu landinu, og feng
ust svör frá 1.055, en það er 70,3'
svarhlutfall.