Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 p//in ht, *t*Qrn 1 ;<S>s JSK* "o <$°e y *% 3% P *c <fy xj cfe' *u £>. OýVíf ■á<’4z BOKAMERKI FAÐIR VOR OG ÆÐRULEYSIS BÆNIN, vönduð bókamerki úr gullhúðuðu þunnu stáli. Vönduð gjöf sem gleður og fellur ekki úr gildi. TAKMARKAÐ UPPLAG. Tilvalin jólagjöf. Hvert stk. kostar 980 kr. auk sendingar- og bréfakröfukostnaðar. Sparið sendingar og kröfukostnað með því að senda greiðslu með pöntun yðar. VINSAMLEGA SENDIÐ MÉR □ stk. Faðir vor bókamerki □ sendist í bréfakröfu □ stk. Æðruleysi bókamerkis □ fullnaðargreiðsla fylgir kr. Nafn Heimili Póstnr. og staður KIRKJGFELL Pósthólf 234, 270 Mosfellsbær, sími og fax 666566 Vanþekking eða hvað? Athugasemdir vegna þyrlukaupa eftir Albínu Thordarson í umræðum um þyrlukaup und- anfarna daga hefur komið fram mikið af röngum og villandi upplýs- ingum. Hvort sem um er að ræða viljandi rangfærslur eða vanþekk- ingu er nauðsynlegt að leiðrétta eitthvað af þeim. Þessar villandi upplýsingar hafa margar komið frá mönnum sem telja sig sérfræðinga, þar á meðal sumum nefndarmanna, sem á síð- asta vori fóru til þriggja landa til að kanna þyrlur á vegum fjármála- ráðuneytisins. í umræðum á Alþingi á mánudag mátti heyra að þær höfðu borist til þingmanna, sem oft eru ekki í aðstöðu til að meta sann- leiksgildi þess sem við þá er sagt. Á fundi í Grindavík um helgina komu fram staðhæfingar um þyrl- ur, sem flestar koma einnig fram á miðopnu Morgunblaðsins sl. þriðjudag. Þar segir einn sérfræðinganna að Sikorsky Pave Hawk þyrlur eins og varnarliðið er að fá séu hættu- legar yfir sjó þar sem þær hafi ekki flotholt til að halda þeim á floti. (Þess ber að geta að Sikorsky Black Hawk, Pave Hawk og Jayhawk þyrlur eru sömu gerðar, en með mismunandi útfærslum.) Að sjálf- sögðu hafa Sikorsky-þyrlur neyðar- flotholt, eins og aðrar þyrlur, til þess að fólk komist út. Það vita hins vegajr flestir að þegar þyrla nauðlendir á sjó er það flugslys. Hún er nefnilega ekki bátur, heldur flugvél, og sekkur fljótlega eins og aðrar flugvélar. Þyrlur eru þannig gerðar að meginhluti þyngdar er ofan á þeim, mótorar, gírkassi og þyrilhaus og því hvolfir þeim við litla hreyfingu. Þetta á sérstaklega við háar og mjóar þyrlur eins og Super Pumu. Sjómenn vita það manna best að flytji maður aðal- vél, gír, öxul og skrúfu upp á stýris- hiís Kio-lír Kkinið ekki lengi á réttum kili. Hvorki Sikorsky-þyrlum né öðrum er hægt að sigla um Atlants- hafíð. Því hefur einnig verið haldið fram að lítil reynsla sé af afísingarbún- aði á Sikorsky-þyrlum. Sérfræðing- arnir hafa þó fengið upplýsingar um að afísingarbúnaður sé „stand- ard" á öllum þeim 1600 Hawk þyrl- um, sem framleiddar hafa verið til þessa. Þær hafa verið notaðar eftir allri strandlengju Bandaríkjanna, frá Flórída í suðri til Alaska í norðri. Þær eru einnig notaðar í 20 öðrum löndum og má þar nefna Tíbet í Himalayafjöllum og á Kóreuskaga, en á báðum þessum stöðum er nóg af ísingu. í ferð sinni í vor fór sérfræðinga- nefndin til Noregs til að kynna sér þyrlunotkun þar og þá sérstaklega afísingarbúnað Super Pumu, sem nýlega fékk flughæfnisvottorð í Noregi. Þeir kynntu sér m.a. fyrirtækið Helikopter Service, sem árum sam- an hefur unnið að tilraunum með afísingarbúnað á Super Pumu. Þetta fyrirtæki stundar fólksflutn- inga til olíupalla við strendur Nor- egs og notar til þess 39 þyrlur, þar af 12 af gerðinni Super Puma. Það notar nú afísingarbúnað á aðeins tveimur af Puma flutningaþyrlum sínum. Hann þyngir þyrluna um 200 kíló, eða sem nemur meira en tveimur farþegum, auk þess sem oftar þarf að skipta um þyrilblöð. Helikopter Service áætlar að það kosti um 1.000 krónum norskum meira á klukkustund að hafa afís- ingarbúnaðinn um borð í apríl-júní- hefti tímaritsins Helicopter World. Þar segir einnig að Helikopter Service hafi aðeins notað afísingar- búnaðinn í 350 klukkustundir. Hvar telja sérfræðingarnir að reynslan sé mest? Því hefur einnig verið fleygt að Sikorsky Hawk-þyrlur hafi ekki sjálfstýribúnað sem henti til björg- unarstarfa. Það vita allir, sem eitt- „Bandarísk stjórnvöld frétta það nú frá ís- lenskum sérfræðingum að Sikorsky-bj örgnnar- þyrlur, sem þau töldu þær öflugustu í heimi, séu óbrúklegar til björgunarstarfa á sjó.” hvert vit hafa á flugvélakaupum, að það er kaupandinn sem ákveður tegund af sjálfstýringu á sama hátt og kaupandi ræður því hvort hann kaupir aflstýri í nýjan bíl eða Loran í nýjan bát. Sérfræðingar sem ekki vita ann- að eins grundvallaratriði eins og það, að kaupandi ræður búnaði þyrlu sem hann kaupir, eru tæpast starfi sínu vaxnir. Þá er huggun harmi gegn að ríkisstjórn Islands hefur aðgang að íjölda annarra sérfræðinga í þyrlumálum, svo sem hjá 15 ríkjum í Atlantshafsbanda- laginu. Við ítrekaðar prófanir hafa Sik- orsky Black Hawk og Jayhawk, eins og bandaríska strandgæslan notar, komist 300 sjómílur á haf út og tekið þar upp 12 menn og flogið til baka. Því fleirum er hægt að bjarga sem vegalengdin er styttri. Enginn sérfræðingur hefur haldið því fram að Super Puma geti þetta. í skýrslu sérfræðinganna frá því í vor er því haldið fram að Sikorsky Jayhawk geti aðeins tekið um borð 6-8 menn í 250 mílna fjarlægð frá eldsneytisstöð og þar geti Super Puma tekið upp 14 menn. Þetta stafi af skorti á gólfplássi fyrir sæti. Samkvæmt skýrslu þeirra er gólfpláss í Black Hawk 8,18 fer- metrar, en 9,18 í Super Puma. Á þessum eina fermetra, sem munar ætla þeir að hafa 6-8 menn. Kjami málsins er hins vegar sá, að björgunarþyrlur eru ekki hafðar fnllar af siptum ban vnom til trof- Merrild setur brag á sérhvern dag Langar þig í fallega kaffídós ? Merrild kaffiö er afar vinsælt og það á sér góðar og gildar ásæður: Hin frábæra fylling og mýkt í bragðinu helst lengur í munni en þú átt að venjast. Kaffið er drjúgt og milt en aldrei rammt eða súrt. Það leynir sér ekki að það er blandað og brennt úr heimsins bragðbestu kaffitegundum frá Kólombíu, Brasilíu og Mið-Ameríku. Klipptu strikamerkið af rauða Merrild pakkanum og fáðu kaffi-dós eins og þá sem þú sérð hér til hliðar. Allt sem þarf að gera er að geyma strikamerkin af 6 pökkum af rauðum Merrild 500 gr. og senda til okkar. Þá sendum við þér Merrild kaffidós þér að kostnaðarlausu. Einnig getur þú skipt strikamerkjunum í peninga ef þú vilt ekki kaffidósina. 2 strikamerki = 40 kr. 4 strikamerki = 80 kr. 6 strikamerki = 120 kr. Góð kaffiráð Gott hráefni er aðalsmerki Merrild kaffisins og mjúki pokinn tryggir að gæðin haldist svo að þú færð alltaf sama ilmandi kaffið og frábæra kaffibragðið. Tæmdu aldrei pokann í dós. Settu kaffipokann ofan í Merríld kaffí- dósina. Þannig kemst hvorki súrefni né birta að kaffinu og ilmurinn, bragðið og ferskleikinn haldast til síðasta dropa. K K K « // tf K jf&hitd Já, takk. Q (krossið við) ég vil gjarnan fá eina Merrild kaffi- dós og sendi hér með 6 strikamerki af rauðum Merrild 500 gr. Q (krossið við) ég vil gjarnan fá greitt fyrir meðfylgjandi stk. strikamerki samtals kr. Hámark 1 umslag og 6 strikamcrki á heimili. Nafn Heimilisfang Póstnr./bær _ Umslagið sendist til Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124' Reykjavík Síðasti innsendingar- dagur er 31. janúar 1992. Svona lítur strikamerkið út. Þú finnur það aftaná rauðum Merrild pakka. Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.