Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 3. DESEMBeR Í99l &5 Ljósmynd/Friðþór Kr. Eydal Ný HH-60G Pave Hawk þyrla björgunarsveitar varnarliðsins á flugi yfir Vatnsleysuströnd. vélin hefði komið nauðstöddum til hjálpar. Með þessari aðferð mátti staðla flugvélakostinn og nýta hann hvar í heiminum sem væri. Horfið var frá þessari hugmynd en í stað hennar þróuð önnur sam- bærileg þar sem í stað lítillar flug- vélar komu stórar þyrlu sem senda mátti hvert sem var í fylgd með Herkúles flugvélinni sem leiðbeindi og gæfi þeim eldsneyti á flugi. Var sérstök gerð Herkúles flugvélar- innar, SC-130, þróuð í þessu skyni ásamt þyrlum af gerðunum Sikor- sky HH-53 og HH-3 „Jolly Green Giant”. Sem liður í þeirri endurskipu- lagningu sem að ofan greinir voru SC-54 björgunai-flugvélarnar flutt- ar til Prestvíkur í Skotlandi árið 1960 þaðan sem þær þjónuðu sama svæði og áður. SH-19 þyrlurnar tvær voru starfræktar áfram á Keflavíkurflugvelli fram til ársins 1963, fyrst af flughernum og síðar af bandaríska flotanum sem tók við þjónustuhlutverki á Keflavíkur- flugvelli sumarið 1961. í septemb- er árið 1963 leystu tvær nýjar þyrlur flotans af gerðinni Sikorsky SH-34J þær af hólmi og annaðist flotastöðin á Keflavíkurflugvelli rekstur þeirra til ársins 1971. Þess- ar þyrlur voru svipuðum annmörk- um háðar og þær eldri bæði hvað varðaði flugdrægi og burðarþol og nýttust því fyrst og fremst á suð- vesturhorni landsins. Þess má geta að tvær þyrlur af þessari gerð fór- ust hér á landi, önnur nærri Kúa- gerði á leið frá Hvalfirði og hin undir Eyjafjöllum. Manntjón varð í báðum þessum slysum og fórust í því fyrra nokkrir háttsettir yfir- menn varnarliðsins. HC-130 leitar og björgunarflug- vélar leystu SC-54 Rescuemaster flugvélarnar af hólmi á sjöunda áratugnum og naut varnarliðið stuðnings slíkra flugvéla sem höfðu aðsetur í Bretlandi. Farið var að láta þessar flugvélar hafa fasta viðdvöl á Keflavíkurflugvelli í viku í senn er HH-3E „Jolly Gre- en Giant” þyrlur „Detachment 14” tóku við björgunarstarfsemi á veg- um varnarliðsins í október árið 1971. „Detachment 14” var útibú frá 67. flugbjörgunarsveit bandaríska flughersins sem aðsetur hafði í Woodbridge í Bretlandi. „Jolly Green Giant”, sem þýða mætti sem „glaði græni risinn” er mun stærri og öflugri en þær þyrlur sem fyrir voru hér á landi. Þær eru tveggja hreyfla og geta tekið eldsneyti á flugi, en þar með takmarkaðist þjónustusvæði björgunarþyrla varnarliðsins ekki lengur við Kefla- víkurflugvöll og næsta nágrenni sem leiddi af sér stórbætt öryggi á þessu sviði eins og kunnugt er. Það svæði sem björgunarsveit varnarliðsins er ætlað að sinna nær gróflega að austurströnd Græn- lands í vestri, 59. breiddarbaug norðlægrar breiddar í suðri, lengd- arbaug 0 í austri og allt að norð- urpól. Sem betur fer hefur varnarl- iðið sjálft ekki þurft að nota þessa þjónustu mikið, en hún er ávallt til reiðu fyrir hvern sem er og kraftar björgunarsveitarinnar samræmdir íslenskum björguna- raðilum. Á þeim tuttugu árum sem sveit- in hefur starfað hér á landi hafa starfsmenn hennar bjargað 250 mannslífum auk þess að aðstoða við sjúkraflutninga, leiðbeina flug- vélum sem átt hafa í erfiðleikum og veita aðra aðstoð sem óskað hefur verið í fjölmörgum tilvikum. Starfsemi sveitarinnar hefur verið mjög farsæl á þessum tutt- ugu árum þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður oft og tíðum. Þó missti sveitin eina af þyrlum sínum við : björgunarstörf á Mosfellsheiði, en betur fór en á horfðist og mann- björg varð. Ekki verða hér tíunduð störf björgunarsveitarmanna varn- arliðsins frekar, en bent á árbækur Slysavarnafélagsins sem hafa að geyma ítarlegan annál starfa þeirra sem sum hver eru hrein afrek. Á síðari árum, með tikomu björgunarþyrlu Landhelgisgæsl- unnar og stórlega bættum tækja- kosti innlendra björgunarsveita, hefur þeim tilvikum sem aðstoð varnarliðsins á þessu sviði hefur verið þörf farið fækkandi. Er það einkum í þeim tilvikum að um lengri vegalengdir er að ræða en þyrla Landhelgisgæslunnar ræður við eða er óflughæf vegna viðhalds sem til kasta varnarliðsins kemur. Verður að teljást með ólíkindum hversu vel Landhelgisgæslumönn- um hefur tekist að uppfylla þær kröfur sem til þeirra eru gerðar á þessu sviði þrátt fyrir takmarkað- an tækjakost. Björgunarsveit varnarliðsins var gerð að sjálfstæðri flugsveit árið 1988 og nefnist nú 56th Air Rescue Squadron. Þetta þýðir að hún er sjálfstæðari rekstrareining en áður og fær fleiri flugáhafnir og meira starfslið. Sveitin rekur nú þrjár HH-3E þyrlur og hefur nýlega fengið þá fyrstu af fjórum HH-60G Pave Hawk þyrlum sem leysa munu þær eldri af hólmi á næstu mánuðum. Þessar þyrlur eru af nýrri kynslóð, mun öflugri, hrað- fleygari og nýtískulegri en þær eldri. Þótt þær séu smærri en þær eldri skoifir þær ekki afl til þess að lyfta því sem í þeim rúmast eins og er raunin með þær. eldri. Björgunarsveitin fær fjórar slíkar og væntanlega þá fimmtu til vara er endurnýjun á björgunarþyrlu- flota bandaríska flughersins er um garð gengin að nokkrum árum liðnum. Höfundur liefur kynní sér umsvif erlendra herja á Islandi. Grafíkmappa eftir Tryg'gva DANSKA bókaforlagið BRÖNN- UMs hefur gefið út möppu með fjórum grafíkmyndum eftir Tryggva Olafsson listmálara. Er þetta gert í tilefni af afmæli for- lagsins. Þetta er fyrsta grafíkmappa Tryggva. Hún er gefin út í litlu upplagi. Nokkur eintök verða til sölu til jóla í verslun og galleríi Bókavörðunnar í Hafnarstræti 4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.