Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 4
'4
■ MORGUNBLAÐIÐ' PRIB'JUDAGHTR ’ 3'1 DESEMBER'1991
Sigrún í hlut-
verk Nætur-
drottningar
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir tekur
á föstudag við hlutverki Nætur-
drottningarinnar í uppfærslu
Islensku óperunnar á Töfra-
flautunni eftir Mozart.
Sigrún tekur við hlutverkinu af
austurrísku söngkonunni Lydiu
Rathkolb-Riicklinger, sem er horf-
in aftur til starfa við Theater an
der Wien óperuna. í frétt frá ís-
lensku óperunni kemur fram, að
þetta er í fyrsta sinn sem íslensk
söngkona syngur hlutverk Nætur-
drottningarinnar á sviði.
Sigrún fór áður með hlutverk
Papagenu í óperunni, en nú tekur
Katrín Sigurðardóttir við því hlut-
verki. Hún söng það hlutverk áður
í uppfærslu óperunnar árið 1982.
Þá hefur Elísabet F. Eiríksdóttir
tekið við hlutverki 1. hirðmeyjar.
I frétt óperunnar kemur fram,
að sýningum á Töfraflautunni fer
VEÐUR
Hraðfrystihús Eskifiarðar:
Útgerðarmenn í Chile
vilja kaupa Hólmaborg
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
nú fækkandi. Undirbúningur fyrir
næsta verkefni, Otello eftir Verdi,
er þegar hafínn, en óperan verður
frumsýnd í byrjun febrúar.
Hehningshlutur í Hólmanesinu seldur kaupfélaginu
HRAÐFRYSTIHÚSI Eskiljarðar kvóta togarans, sem nú er 2.200
hafa borist fyrirspurnir frá út- tonn af þorskígildum, og segir Aðal-
gerðarmönnum í Chile um loðnu- steinn að sá kvóti verði fluttur á
skipið Hólmaborgina en skipið
hefur verið á sölulista frá því í
haust. Aðalsteinn Jónsson for-
stjóri hraðfrystihússins segir að
þessir aðilar virðist nyög áhuga-
samir um kaup á Hólmaborginni
og hefðu óskað eftir frekari upp-
lýsingum um skipið.
í máli Aðalsteins Jónssonar kem-
ur fram að nú standi fyrir dyrum
að selja Kaupfélagi Héraðsbúa hlut
hraðfrystihússins í togaranum
Hólmanesinu sem þessi tvö fyrir-
tæki eiga saman. Verður væntan-
lega gengið frá þeirri sölu nú í vik-
unni. Við söluna mun Hraðfrystihús
Eskifjarðar halda sínum hlut af
Hólmatind og Jón Kjartansson.
„Með þessari sölu erum við að
reyna að hagræða í rekstri okkar
sökum minnkandi kvóta eins og
flestir aðrir útgerðarmenn eru að
reyna þessa dagana,” segir Aðal-
steinn Jónsson. „Salan á Hólma-
borginni er einnig einn anginn af
því dæmi.”
Verðið sem Kaupfélag Hér-
aðsbúa borgar fyrir hlutinn í Hól-
manesi eru rúmar 100 milljónir
króna. Hvað Hólmaborgina varðar
eru þreifíngar Chilemanna ekki það
langt komnar að verðhugmyndir
séu uppi á borði. Hólmaborgin er
1400 tonna loðnuskip og hefur á
undanfömum árum haft einn mesta
loðnukvóta slíkra skipa. Kvótinn í
ár hefur ekki verið ákveðinn en
hann yrði fluttur yfír á Jón
Kjartansson og Guðrúnu Þorkels-
dóttur.
VEÐURHORFUR I DAG, 3. DESEMBER
YFIRLIT: Við Jao Mayen er um 990 mb lægð, sem fjarlægist, en
yfir Norðursjó er víðáttumikið háþrýstisvæði. Við Hvarf er lægðar-
drag sem nálgast landið í nótt. Langt suðsuðvestur í hafi er 1.005
mb heldur vaxandí lægð, sem hreyfist allhratt norðnorðaustur.
SPÁ: Austan 3-5 stig og slydda eða rigning suðaustanlands en
annars hæg breytileg átt, skýjað með köflum og él á stöku stað.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á lyilÐVIKUDAG: Allhvöss suðaustanátt og dálítil rigning
suðvestan- og vestanlands en hægari suðaustlæg átt og þurrt um
norðaustan- og austanvert landið. Fremur hlýtt í veöri.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Allhvöss eða hvöss suðaustanátt og
hlýtt. Þurrt um norðanvert landið en rigning í öðrum landshlutum.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * r * Slydda
/ * /
* t * * Snjókoma
* * *
10 HKastig:
10 gráður á Celstus
\J Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
» , » Súld
OO Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 3 úrkoma Reykfavik 2 hagtél
Bergen 6 skýjað
Helsinki 3 léttskýjað
Kaupmannahöfn 3 súld
Narssarssuaq 1 úrkoma
Nuuk vantar
Ósló +1 þoka
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Þórshöfn 7 rigning
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 2 suld
Barceiona 14 hálfskýjað
Berlín 1 þokumóða
Chícago +3 alskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 1 skýjað
Glasgow 7 mistur
Hamborg 1 þokumóða
London 3 mistur
Los Angeles 8 heiðskfrt
Lúxemborg 0 þokumóða
Madríd 8 þokumóða
Malaga 15 léttskýjað
Maliorca 12 skýjað
Montreal +1 hátfskýjað
NewYork 11 aiskýjað
Orlando vantar
París 1 alskýjað
Madeira 18 skýjað
Róm 13 hálfskýjað
Vín 6 léttskýjað
Washington 13 þokumóða
Winnipeg +22 skafrenningur
Kvikmyndin Lúkas frumsýnd í Tallin næsta sumar:
Kvikmyndað í Eist-
landi eftir verki Guð-
mundar Steinssonar
TÖKUR á kvikmynd eftir leikriti Guðmundar Steinssonar, Lúkas,
hefjast í Eistlandi í byrjun næsta árs. Þá verður verkið einnig sýnt
í Þjóðleikhúsi Eistlendinga í febrúar. Áætlað er að kvikmyndin
verði frumsýnd í höfuðborg landsins, Tallin, næsta sumar og sýnd
hér á landi skömmu síðar.
Guðmundur Steinsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að um-
boðsmaður sinn hefði sent enska
þýðingu léikritsins til Tallin fyrir
þremur árum. Þar sá Arvo Alas
handritið. Hann er ágætlega læs á
íslensku og óskaði eftir að fá verk-
ið á frummálinu, en þýddi það svo
sjálfur á eistnesku. „Fyrir rúmu
ári sýndi hann leikhúsfólki í Tallin
handritið, sem og kvikmyndaleik-
stjóranum Tonu Vivre,” sagði Guð-
mundur. „Tonu fékk áhuga á að
vinna kvikmynd eftir verkinu og
jafnframt ákvað þjóðleikhús Eist-
lendinga að taka verkið til sýninga
í febrúar á næsta ári. Uppbygg-
ingu verksins verður í engu breytt
og það verður ekki umskrifað. Hins
vegar verður það eitthvað stytt.
Þá verða einnig unnir fjórir þættir
eftir kvikmyndinni, til sýninga í
sjónvarpi.”
Tökur á kvikmyndinni hefjast í
janúarbyrjun og á þeim að vera
lokið þann 15. mars. Guðmundur
sagði að ýmislegt hefði breyst frá
þvi að undirbúningur kvikmynda-
töku hófst. Eistland hefði öðlast
sjálfstæði og þýðandi handritsins,
Arvo Alas, væri nú sendiherra
landsins í Danmörku, Noregi og
hér á íslandi. Höfundur tónlistar í
kvikmyndinni, Lepo Sumera, þekkt
tónskáld í heimalandinu, er nú
menntamálaráðherra.
Þijár persónur eru í leikritinu
um Lúkas, þ.e. Lúkas sjálfur og
hjón og fjallar verkið um sam-
skipti þeirra. Verkið var sýnt í
Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum
árum og hefur einnig verið sýnt í
Danmörku, Englandi, Belgíu og
víðar.
Jólapóstur:
322 starfsmönnum
bætt við vegna jólaanna
Póstþjónustan í Reykjavík hef-
ur ráðið 322 starfsmenn til við-
bótar þeim sem fyrir eru til þess
að flokka og bera út jólakveðjur
fyrir jólin. Landsmenn er hvattur
til að huga að jólasendingum
tímanlega en síðasti skilafrestur
jólapósts innanlands er mánu-
dagurinn 16. desember. Flug-
pósti til landa í Evrópu þarf að
skila fyrir sunnudaginn 15. des-
ember en til annarra landa fyrir
miðvikudaginn 11. desember.
Ari Jóhannsson, rekstrarstjóri
hjá Pósti og síma, sagði í samtali
við Morgunblaðið að 322 hefðu ver-
ið ráðnir til þess að flokka og bera
út jólakveðjur í Reykjavík fyrir jól-
in. Einn og einn byijaði um mánaða-
mótin. Einhveijir hæfu störf 10.-12.
desember en margir ekki fyrr enn
uppúr 16. desember. Fjöldi starfs-
manna er mjög svipaður því sem
verið hefur hjá póstþjónustunni fyr-
ir jólin undanfarin ár.
Vildi Ari hvetja landsmenn til
þess að huga tímanlega að jóla-
kveðjum til vina og kunningja. Þá
lagði hann áherslu á að merkingar
væru réttar og póstnúmer á öllum
pósti. Hætta væri á því að póstur
tefðist ef hann væri ekki með póst-
númeri.
Póst- og símstöðvar á höfðuborg-
arsvæðinu verða opnar til kl. 18 frá
9. desember til jóla. Laugardaginn
14. desember verður opið frá kl. 9
til kl. 16 og laugardaginn 21. des-
ember verður opnunartíminn sá
sami.
------» ♦ ♦--------
Flugvél
lenti hér
vegua gmns
um bilun
AIRBUS-farþegaflugvél frá
bandaríska flugfélaginu Delta
lenti á Keflavíkurflugvelli klukk-
an tæplega 7 í fyrrakvöld vegna
gruns um bilun í þrýstikerfi Hug-
vélarinnar. 71 farþegi var um
borð.
Ekki þótti ástæða til að gera
varúðarráðstafanir við lendinguna,
sem gekk áfallalaust og eftir 4 'h
klukkustundar viðdvö! á Keflavík-
urflugvelii flaug vélin á brott með
farþegana innanborðs enda hafði þá
skoðun flugvirkja leitt í ljós að ekki
væri um bilun að ræða.