Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIDJUDAGUR DE3EMBER 19^1 Gamlar minningar Bókmenntir Erlendur Jónsson Ásgeir Guðmundsson: GAGNNJÓSNARI BRETA Á ÍS- LANDI. 215 bls. Skjaldborg hf. Reykjavlk, 1991. Þetta eru stríðsminningar. ís- lendingur, alinn upp í Danmörku, flækist í net Þjóðverja þar \ landi og tekst ferð á hendur til íslands vorið 1942 til að njósna fyrir þá hér; er skotið á land úr kafbáti en gefur sig óðara fram við breska hernámsliðið. Spennandi? Það fer nú eftir því hvernig'á málin er litið. Alltént er frásögnin nákvæm; að mínum dómi langdregin um of. Felur ennfremur í sér mótsagnir ýmsar sem skerða trúverðugleikann — með réttu eða röngu. Ib Ámason Riis — en svo heitir maðurinn — segist t.d. hafa kunnað svo lítið í þýsku að hann hafi naumast treyst sér til að tala Ásgeir Guðmundsson það mál 'að gagni. Eigi að síður rifj- ar hann nú upp heilu setningamar á þýsku sem hann hefur eftir Þjóð- verjum þeim sem hann skipti við Tölvufyrirtæki Til sölu er fyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar, sem fæst einnig við innflutning og sölu á tölvum. Fyrirtækið var stofnað 1982. Heildarvelta 1991 verður 9,5 til 10,0 milli. króna. Hagstætt verð og góð greiðslukjör í boði. mmmrn m Nóatúni 17 105 Reykjavík Sími: 621315 Atvinnumiólun • Firmasala * Rekstrarróógjöf Kaupið fyrirtæki núna Framundan er besti sölumánuður ársins. Höfum mikið úrval af ýmsum verslunum. Oft er hægt að ná inn kaupverðinu bara með desembersölunni. Hafið samband strax. rynTnryj^Ti^TTw SUÐURVERI SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. ■■■■■■i^HHHi 1 21150-2137C 1 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri ' KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lóggiltur fasteignasali 1 Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Ný og glæsiieg í Grafarvogi á vinsæium stað við Sporhamra. 4ra herb. íb. á 1. hæð tæpir 120 fm auk bflsk. Sameign fullg. Nokkuð vantar af innr. Áhv. lán kr. 6,5 millj. þar af kr. 5,0 millj. til 40 ára með 4,9% ársvöxtum. Á útsýnisstað við Fossvoginn einbhús nýtt og glæsil. í Kópavogi 157,1 fm auk bílsk. 32,4 fm. Úrvals- frágangur á öllu. Mikil og góð áhv. lán. Skipti mögul. á góðri 4ra herb. íb. Góð eign - tvær íbúðir - verkstæði Reisul. steinh. á vinsælum stað í Langholtshverfi m/ tveimur 3ja herb. samþ. íb. á 1. og 2. hæð. Ennfremur kj. og geymsluris. Góður bílsk. (verkstæði) 45 fm. Tilboð óskast. Með bílskúr í smfðum við Álftamýri Mjög góð 3ja herb. íb. á 3. hæð. Rúmg. stofa, sólsvalir. Nýl. endur- byggð sameign. • • • Nokkrar góðar ibúðir 2ja, 3ja og 4ra herb. lausarnú þegar. ALMENNA FASTEIGNASAIAM LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 meðan á undirbúningi ferðarinnar stóð. Svo ýtarlega er sagt þarna frá mönnum og málefnum og svo mjög er farið ofan í smáatriði að engu er líkara en sögumaður sé að segja frá atburðum sem gerðust í gær. Samt eru þetta nærri hálfrar aldar gamlar minningar. Það er nú minni sem segir sex. Stríð er dauðans alvara í bókstaf- legri merkingu orðanna. Ungur maður, sem verður fyrir reynslu af þessu tagi, óviðbúinn og án þess að hann hafi ætlað sér það, má vera meira en lítið kjarkaður ef hann á ekki að ugga um sinn hag. Síst af öllu býst maður við að hon- um sé hlátur í hug. En Riis virðist hafa tekið þessu með íslensku kæruleysi og dönskum húmor: »Eg hló með sjálfum mér ... Þetta var alveg drepfyndið ... Og vissulega fannst mér þetta drepfyndið ...« Ef eitthvað er fyndið í sögu þess- ari þá er það að manninum skuli hafa þótt þetta svona fyndið. Hitt er annað mál að snúist allt á betri veginn er kannski hægt hlæja að slíkum hremmingum hálfri öld síðar. Höfundurinn er sagnfræðingur með talsverða reynslu að baki sem söguritari. Og hér er hann að fást við sérgrein sína. Árið 1976 birti hann í Sögu ritgerð s_em bar yfir- skriftina: Nazismi á íslandi. Saga Þjóðernishreyfingar íslendinga og Flokks Þjóðernissinna. Var saman- tekt sú bæði fróðleg og vel unnin. Síðan hefur hann haldið sig við skyld efni. Þau hljóta nú að fara að ganga til þurrðar, þar sem Iíka fleiri háfa verið að róa á sömu mið. Gagnnjósnari Breta á íslandi er þokkalega skrifuð bók ef litið er til frásagnarinnar einnar sem slíkrar. En einhvern veginn sýnist þetta vera verkefni fyrir ungan og fram- gjarnan blaðamann fremur en virð- ulegan sagnfræðing. Aðalatriði þessarar tvö hundruð blaðsíðna sögu gætu hæglega rúmast í dá- vænu blaðaviðtali. Jónas Ingimundarson Anna Júlíana Sveinsdóttir Anna Júlíana og Jónas Inginiundarson Tónlist Ragnar Björnsson Aðrir Ljóðatónleikar Gerðubergs voru laugardaginn 30. nóvember. Anna Júlíana og Jónas „sungu sam- an” (eins og Jónas sjálfur orðar það) spænska endurreisnartónlist eftir minna þekkta þarlenda höf- unda, svo sein A. Mudarra, J. de Anchieta, Chr. Morales og Fr. de la Torre, en þessi spænsku lög út- setti norskur tónlistarmaður, Arne Dörumsgaard, fyrir píanó og söng- rödd. Ágætar skýringar Önnu Júlí- önu fylgdu lögunum og verulega forvitnilegt var að kynnast þessari gömlu spænsku tónlist sem þau „sungu saman” af ágætum skiln- ingi á viðfangsefnunum, en innihald textanna sveiflaðist milli hinna ýmsu þátta tilfinningalífsins. Áfram héldu þau að kynna lítið kynnt sönglög svo sem þrjú lög eftir Fr. Chopin og síðast en ekki síst laga- flokk eftir þann merkilega tónlistar- mann, rúmenska, Georges Enesco, f. 1881, frægur sem tónskáld, fiðlu- leikari og kennari, en meðal nem- enda hans má nefna Menuhin. Lagaflokkinn „Sept chansons de Clément Marot” eftir Enesco bar hæst á efnisskránni, var sérlega forvitnilegt að kynnast honum, var hann jafnframt kannske best flutta viðfangsefni tónleikanna. Hér álít ég svið Önnu vera, þ.e. að kynna okkur gömul og sjaldheyrð sönglög. Til þess þarf gáfur, svo sem sögu- þekkingu, góða tungumálakunn- áttu, góða sviðsframkomu, geta tjáð sig með orðum einum auk list- rænna hæfileika, en þessa þætti alla hefur forsjónin prýtt Önnu, en slíkir flytjendur eru ekki á hveiju strái og ættu að vera dýrkeyptir. Vandamál Önnu er raddbeitingin, þar er eitthvað að sem verður að laga, hvaða flutningsform sem valið er. Hér verður Anna að leggjast, undir feld og hugsa upp á nýtt. Engar ráðleggingar kann ég henni aðra en miskunnarlausa sjálfsgagn- rýni og ráð réttra aðila, til þessa endurmats hefur Anna gáfur og hæfileika sem þurfa að geta nýst. Jónas „söng” afar vel á píanóið og hefðu fáir gert betur. Nýsköpun í atvinnulífinu Eiríkur Ásgelr Ingólfur Halldór Ásgríi mur Þorsteinn Davíð ÞaÖ hefur ekki farið fram hjá neinum að nú árar illa í íslensku eíhahags- og athafnalífi. Mörgum þykir syrta í álinn, en ef grannt er skoðað leynast í atvinnulífinu mörg tækifæri, sem geta orðið lyftistöng þróunar og framfara á komandi árum. Tæknifræðingafélag íslands ætlar að leggja sitt af mörkum í þessum efhum með því að boða til ráðstefhu um nýsköpun f íslensku atvinnulífi. Dagskrá: Setning ráðstefnunnar - Eiríkur Þorbjömsson, formaður TFÍ Nýsköpun íatvinnulífinu - Jón Sigurðsson.'iðnaðarráðherra Ný atvinnusókn - Ásgeir Magnússon, Iðnþróunarfélagi Eyflrðinga Tœkifyrir sjávarútveg - Ingólfur Ámason, rekstrartæknifræðingur Horfur í sjávarútvegi - Halldór Ámason, aðstoðarmaður sj ávarútvegsráðherra Hugbúnaður - útflutningsgrein - Ásgrímur Skarphéöinsson, rafeinda- tækniffæðingur Iðnhönnun - Þorsteinn Geiiharðsson, arkitekt og iðnhönnuður Margt smátt gerir eitt stórt - Davíð Lúðvíksson, FÍI Ráðstefnan er ætluð öllum þeim aðilum sem áhuga hafa á þessu brýna þjóðarverkefhi. Hún verður haldin í A-sal Hótel Sögu, miðvikudaginn 4. desember nk. og hefst kl. 13:30 stundvíslega. Ekkert ráðstefnugjald. Tæknifræðingafélag íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.