Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
BarbaraKeesVmg
, „lar (otmá'a Bll
ÖRtf&UR
TÖFRAFLAUTAN
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Það hafa orðið nokkuð tíð mann-
askipti í hlutverkaskipan Töfra-
flautunnar hjá íslensku óperunni
undanfarið og á það sérstaklega við
um hlutverk næturdrottningarinn-
ar. Fyrstu sýningarnar söng Yelda
Kodalli frá Tyrklandi og þá brugðu
á leik Birgit L. Franzen frá Sví-
þjóð, Lydia Rathkolb-Riicklinger
frá Austurríki en hún söng þetta
hlutverk þegar Töfraflautan var
fyrst uppfærð hjá íslensku óperunni
og nú síðast bandaríska söngkonan
Mary Wynston-Smith, sem vakti
mikla athygli fyrir söng sinn á
Ebony-tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands fyrir stuttu. Þá hef-
ur verið skipt um í hlutverki Sa-
rastro, þar sem Tómas Tómasson
kom inn fyrir Viðar Gunnarsson og
1. sópran af hirðmeyjum nætur-
drottningarinnar en þar kom inn
Elísabet F. Eiríksdóttir fyrir
Signýju Sæmundsdóttur. Ekki eru
allar breytingar upp taldar því á
næstu sýningum mun Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngja næturdrottn-
inguna en við hlutverki Papagenu,
sem hún hefur farið með, tekur
Katrín Sigurðardóttir. Katrín söng
þetta hlutverk í fyrstu uppfærsl-
unni.
Bandaríska söngkonan Mary
Wynston-Smith vakti mikla athygli
á Ebony-tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands fyrir stuttu og þegar
hún hafði verið ráðin til að syngja
næturdrottninguna þótti rétt að
fjalla um söng hennar sérstaklega,
svo og söng Elísabetar F. Eiríks-
dóttur. Willis hefur mikla drama-
tíska rödd og túlkaði hún vel hefnd-
arþorsta næturdrottningarinnar.
Dískantleikur Mozarts, sem þetta
hlutverk er einnig fraégt fyrir, var
í meðförum Wynston-Smith allt of
veikur, framfærður á mjög grönn-
um og hljómlitlum falsettutónum.
Elísabet F. Eiríksdóttir fór ágæt-
lega með hlutverk sitt sem fyrsta
hirðmey næturdrottningarinnar,
bæði hvað varðar söng og leik.
Fyrir utan smábreytingar á sviðsút-
búnaði, sem gerðar voru á þessum
sýningum, var sýningin í heild mjög
áþekk því sem hún var í upphafi
og frammistaða flytjenda sömuleið-
is, en sýningunni stjórnaði Robin
Stableton.
Brot úr vasabókum
Péturs Gunnarssonar
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Dýrðin á ásýnd hlut-
anna eftir Pétur Gunnarsson.
í kynningu útgefanda segir m.a.
„Bókin er með svipuðu sniði og
Vasabók sama höfundar sem út kom
árið 1989. Hér eru brot úr vasabók-
um áranna 1972-1983, margvísleg-
ar stuttar hugleiðingar um mannlíf,
náttúru, drauma og andartakið sem
er að iíða, og er efninu skipt í nokkra
hluta. Allt ber þetta vitni þeirri við-
leitni að „krota og pára - svo lífið
hverfi ekki sporlaust”.
Bókin er 69 bls. í vasabókar-
broti. Kápu gerði Guðrún Kristjáns-
dóttir, en Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði.
Pétur Gunnarsson
Bók um
Heiðar
Jónsson
IÐUNN hefur gefið út bók um
líf og starf Heiðars Jónssonar
snyrtis, sem nefnist Heiðar - eins
og hann er, eftir Nönnu Rögn-
valdsdóttur.
í kynningu útgefanda segir:
„Heiðar snyrtir hefur löngum verið
umtalaður maður og umdeildur. En
hann er líka listamaður og einstak-
ur hæfileikamaður sem sífellt kem-
ur á óvart. í þessari bók segir hann
frá sjálfum sér og lífi sínu, sögum
og umtali, störfum, ævintýrum og
kostulegum uppákomum hérlendis
og erlendis. Hann hefur málað
prinsessur og kvikmyndastjörnur
og fengið tilboð um frægð og frama
á erlendri grund, en þó er hann
alltaf snæfellskur sveitastrákur
innst inni. Og hér er Heiðar einmitt
hann sjálfur, kemur til dyranna eins
og hann er klæddur og lýsir tæpi-
tungulaust skoðunum sínum og við-
horfum til málefna og manna - en
þó aðallega kvenna.”
Bókin er prentuð í Prenttækni.
Heiðar Jónsson
■ KOMIN er út hjá Máli og
menningu myndasagan Georg í
Mannheimum eftir Jón Ármann
Steinsson og Jón Hámund Marin-
ósson. í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Sagan segir frá Georg mör-
gæs sem býr á hinu ósnortna Snæ-
landi. Þangað fer að berast rusl frá
Mannheimum og er svo komið að
dýrunum er ekki lengur vært fyrir
mengun. Georg ákveður að taka til
sinna ráða, fara til Mannheima og
talal við ráðamenn þar. Þetta verð-
ur til þess að öll dýr sameinast um
að gera uppreisn gegn ofríki
mannsins og fara í verkfall. Þetta
verður til þess að þaða verður stríð
milli manna og dýra og er barist
með ýmsum aðferðum. Sögunni lýk-
ur með sátt og allir lofa bót og
betrun.”
BETRA KYNLIF
eftir bandaiíksa sálfræðinginn Barböru Keesling.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur þýddi og ritar
einnig formála.
Bókin leiðbeinir fólki að glæða unað kynlífsins.
Fjallað er á faglegan hátt um algenga kynlífsvanda
og sett franrnákvæmt æfingakerfi sem einstaklingar
og pör geta nýtt sér til að draga úr spennu um
kvíða í kynlífi.
ORN OG ^ ORLYGUR
Síöumúli 11 -108 Reykjavík - Sími: 684866
SPAÐISTJORNURNAR
Allt sem þarf til að búa til stjörnukort
Gerið stjömukortin sjálf! Handhæg bókaaskja sem hefur að geyma allt til að þið getið sjálf
búið til nákvæmt stjömukort á tíu til fimmtán mínútum og sagt ótrúlega margt um
persónuleika manna og hegðun. Reynið stjömuspána á sjálfum ykkur, fjölskyldu og vinum!
Verðkr. 3.390.-
Stjörnur og kynlíf